Skessuhorn - 01.03.2006, Blaðsíða 11
S2ESSUHÖBK
MIÐVIKUDAGUR 1. MARS 2006
11
Björgunarsveitarmenn vinna fyrir nýju húsi
Félagar í Björgunarsveitinni OK
í Borgarfirði vinna þessa dagana
hörðum höndum að endurbótum á
gamla verkstæðishúsinu í Reyk-
holti, en húsið mun í framtíðinni
þjóna hlutverki slökkvistöðvar í
uppsveitum Borgarfjarðar. Slökkvi-
stöðin hefur undanfarna áratugi
verið til húsa í mun minna húsi við
hlið þessa en þar hefur björgunar-
sveitin einnig aðstöðu sína. Björg-
unarsveitarmenn gerðu samkomu-
lag við sveitarstjórn Borgarfjarðar-
sveitar um að gegn því að vinna að
endurbótum á húsnæði nýrrar
slökkvistöðvar eignaðist sveitin allt
húsið sem hún hefur nú starfsemi
sína í.
Að sögn Snorra Jóhannessonar,
björgunarsveitarmanns ganga fram-
kvæmdirnar vel. „Okkur hefur
gengið mjög vel að fá mannskap í
sjálfboðavinnu við þetta verk og
erum langt komnir með það sem að
okkur snýr. Meðal félagsmanna eru
margir lúnknir verkmenn sem
kunna til svona vinnu og því gengur
þetta vel undir styrkri stjórn Jóns
Friðriks Jónssonar umsjónarmanns
hreppseigna. Okkar hlutverk var að
hreinsa út ýmislegt dót úr verkstæð-
ishúsinu og búa það tmdir að iðnað-
armenn geti tekið við og lokið verk-
inu. Við setjum m.a. upp nýjar inn-
keyrsludyr á húsið, rifum milliveggi,
gamlar innréttingar og fleira,“ sagði
Snorri. Hann segir að þegar
slökkvistöðin fari úr björgunarsveit-
arhúsinu stækki aðstaða OK manna
um 100 fermetra, en sveitin á ýmsan
búnað sem þarfnast meira rýmis og
aðstaða fyrir félagsmenn og búnað
þeirra hefur nær engin verið, en á
því verði nú mildl bót. MM
Nýk/örinn Herra og Ungfrú Bifröst stigu dans eftir að úrslitin varu tilkynnt. Vilhjálmur
fetar meí þessu ífótspor dóttur sinnar sem var einmitt kjörin Ungfrú heimur á dögunum.
Bifróvisjón haidið með
pompi og pragt
Arleg árshátíð og söngkeppni
Bifrestinga, Bifróvisjón var haldin á
Hótel Sögu um helgina með mikilli
viðhöfn. Menn voru á einu máh um
að sjaldan eða aldrei hefði umgjörð
hátíðahaldanna verið jafn glæsileg
en þema kvöldsins var „rauði dreg-
illinn".
Það var Skagamaðurinn Hróðmar
Halldórsson sem sigraði í söng-
keppninni þetta árið en hann flutti
lagið ,,.411t er á tjá og tundri" með
Sálinni hans Jóns míns. Hefð er fýr-
ir því að kjósa bæði Herra og Ung-
ffú Bifröst þetta kvöld og það voru
þau Asta Guðmundsdóttir og Vil-
hjálmur Skúlason sem urðu hlut-
skörpust í því kjöri. Sigurður Arn-
alds var kjörinn besti kennarinn en
allt ædaði um koll að keyra þegar
hann flutti magnaða ræðu um nem-
endur skólans fyrr um kvöldið og
Sigurður Amalds var kjörinn hesti kenn-
ari skólans.
brast í söng að henni lokinni.
Siv Friðleifsdóttir mætti á árshá-
tíðina en hún situr í stjóm Við-
skiptaháskólans á Bifröst. Hún tók
meðfylgjandi myndir og þær, ásamt
fleirum, má finna á heimasíðu henn-
ar www.siv.is. SOK
m
öOftaAftgyaae
Laust starf til umsóknar
Dagleg þrif og
umsjón kaffistofu
Laust er til umsóknar starf vib dagleg þrif
og umsjón kaffistofu á bæjarskrifstofunni
í Borgarnesi.
Um er að ræða fullt starf sem unnið er á
dagvinnutíma. Launakjör eru skv.
kjarasamningum Launanefndar^sveitarfélaga
vib Starfsgreinasamband íslands.
Umsóknir skulu berast á bæjarskrifstofuna ab
Borgarbraut 11, Borgarnesi fyrir 10. mars nk.
Nánari upplýsingar gefur bæjarritari í síma
4B7-1224 eba á skrifstofunni.
Bjórgunarsveitarmenn vinna við viðgerðir á verkstœðishúsinu í Reykholti sem Guðmundur heitinn Rjerúlf byggði upphaflega. Húsið
mun hér eftirþjóna hlutverki slökkvistöðvar.
Menningarráð Vesturlands var
skipað í desember2005.
Menningarráð Vesturlands er
sjálfstætt ráð sveitarfélaga á
Vesturlandi. Hlutverk ráðsins er að
standa fyrir öflugu þróunarstarfi í
menningarmálum, hvetja til
samstarfs og faglegra vinnubragða
og stuðla að almennri vitund og
þekkingu um málaflokkinn.
Menningarráð Vesturlands úthlutar
tfjármagni til menningan/erkefna á
Vestur-landi, samkvæmt samningi
ríkis og sveitar-félaga á Vesturlandi
um menningarmál og hefur eftirlit
með framkvæmd þessa samnings.
Menningarráðið er skipað fimm
fulltrúum, einum frá hverju fjögurra
samstarfssvæða á Vesturlandi og
einum skipuðum afSamtökum
sveitarfélaga á Vesturíandi.
Menningarráð Vesturlands óskar að
ráða menningarfulltrúa.
Helstu verkefni
Þróunarstarf í menningarmálum á
Vesturlandi.
Að efla samstarf innan og á milli sam-
starfssvæða um menningarmál.
Fagleg ráðgjöf og verkefnastjórnun.
Öflun styrktaraðila til menningarstarfs
á Vesturlandi.
Menntun og hæfniskröfur
Háskólamenntun á listasviði er æskileg,
ekki skilyrði.
Góð enskukunnátta er skilyrði, kunn-
átta í Norðurlandarmáli er kostur.
Frumkvæði og sjálfstæði í vinnu-
brögðum.
Skipulagshæfileikar.
Hæfni í mannlegum samskiptum.
Starfið er 50% en gæti orðið meira með tímanum. Skilyrði er að starfsmaðurinn hafi
búsetu á Vesturlandi.
Umsóknir óskast fylltar út á www.hagvangur.is fyrir 12. mars nk.
Númer starfs er 5261.
Upplýsingar veitir Kristín Guðmundsdóttir hjá Hagvangi. Netfang: kristin@hagvangur.is
HAGVANGUR
- við ráðum
Skoy.irhtið 12 • 105 Beykjavtk
Stmi 520 4700 • www.hagvangur.ts
Húsverndunarsjóður
Akraneskaupstaðar
Akraneskaupstaður
Húsverndunarsjóður Akraneskaupstaðar auglýsir eftir umsóknum til Húsverndunarsjóðs,
sbr. ákvæði í 1. gr. 2 mgr. reglna fyrir Húsverndunarsjóð Akraneskaupstaðar en þar
segir: "Hlutverk sjóðsins er að veita styrk til endurgeroa eða viðgerða á húsnæði eða
öðrum mannvirkjum á Akranesi sem séstakt varðveislugildi hafa af listrænum eða
menningarsögulegum ástæðum, enda séu framkvæmdir \ samræmi við upprunalegan
byggingarstfl núss og í samræmi við sjónarmið minjavörslu".
Veittir eru styrkir til að greiða hluta kostnaðar vegna:
1. Undirbúningsframkvæmda, áætlanagerðar og tæknilegrar ráðgjafar.
2. Framkvæmda til viðhalds og endurbóta.
3. Byggingarsögulegra rannsókna og útgáfu þeirra.
4. Húsakannana.
Umsóknum um styrki úr sjóðnum skulu fylgja greinargóðar verklýsingar og teikningar
af fyrirhuguðum framkvæmdum. Byggingarnefnd getur kallað eftir frekari gögnum
og upplýsingum eftir því sem þurfa pykir að mati nefndarinnar. Byggðasafn Akraness
og nærsveita skal veita umsögn um styrkumsóknir.
Að gefnu tilefni er hlutaðeigendum bent á að leita eftir áliti Húsverndunarsjóðs
I Akraneskaupstaðar og sækja um styrk áður en framkvæmdir hefjast.
| Umsóknir skulu berast eigi síðar en 31. mars 2006 á skrifstofur
! Akraneskaupstaðar, Stillholti 16-18, 3. hæð.
Frekari upplýsingar veitir byggingarfulltrúi að Dalbraut 8 eða í síma 433 1051. Re^lur
fyrir húsverndunarsjóðinn er nægt að skoða í heild sinni á heimasíðu Akraneskaupstaðar
www.akranes.is
Bæjarritarinn í Borgarbyggð.
Akranesi, 23. febrúar 2006 - Skúli Lýðsson, byggingarfulltrúi.