Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 11

Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 11
■■.V-liiin... MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 2006 11 Símafyrirtæki kljást Samkeppniseftirlitið telur ekki ástæðu til íhlutunar vegna tilboðs sem Landssíminn sendi íbúum á Akranesi í kjölfar tilboðs ffá sam- keppnisaðilanum OgVodafone. Taldi Samkeppniseftirlitið að við- brögð Landssímans í málinu hefðu verið hófleg og ekki brot á sam- keppnislögum. Samkeppnisyfirvöldum barst er- indi frá OgVodafone, þar sem því var haldið fram að Landssími Is- lands hf. hefði misnotað markaðs- ráðandi stöðu sína í tengslum við farsímaþjónustu. I málinu lá fyrir að OgVodafone hafði boðið íbú- um Akraness sérstakt kynningar- tilboð á farsímaþjónustu. Skömmu síðar kynnti Landssíminn íbúum Akraness tilboð á farsímaþjónustu. I niðurstöðu Samkeppniseftirlits- ins kom m.a. ffam að tilboð fyrir- tækjanna væru að ýmsu leyti ólík og að ekki væri unnt að líta svo á að Landsíminn hefði með tilboði sínu undirboðið OgVodafone. Taldi Samkeppniseftirlitið ekkert benda til þess að tilgangur tilboðs Landssímans hefði verið að þröngva OgVodafone út af mark- aði fyrir farsímaþjónustu við ein- staklinga heldur hefði umrætt til- boð verið þáttur í viðbrögðum fyr- irtækisins við tilboði OgVodafone. HJ ( \ Tillaga að Aðalskipulagi Leirár- og Melahrepps 2002-2014 Sveitarstjórn Leirár- og Melahrepps hefur tekið aðalskipulagstillögu Leirár- og Melahrepps til fyrri umræðu sbr. 2. mgr. 17. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997 Sveitarstjórn Leirár- og Melahrepps auglýsir hér með tillögu að Aðalskipulagi Leirár- og Melahrepps 2002-2014 samkvæmt 18. gr. skipulags- og byggingarlaga nr. 73/1997. Greinargerð og skipulagsuppdrættir verða til sýnis, ásamt athugasemdum Skipulagsstofnunar við tillögunni, frá og með 7. apríl 2006 til og með 5. maí 2006 á eftirtöldum stöðum: í anddyri Heiðarskóla í Leirár- og Melahreppi Á heimasíðu sveitarfélagsins, www.hvalfjordur.is Hjá Skipulagsstofnun, Laugavegi 166, Rvk Þeim sem telja sig eiga hagsmuna að gæta er hér með gefinn kostur á að gera skriflegar athugasemdir við skipulagstillöguna. Athugasemdir skulu hafa borist eigi síðar en 19. maí | 2006. i Skila skal skriflegum athugasemdum á skrifstofu sveitarfélagsins, Heiðarborg, 301 Akranes. | Þeir sem ekki gera athugasemdir við skipulagstillöguna fyrir tilskilinn frest teljast samþykkja « hana. Staðsetning tjaldsvæðis rædd í Snæfellsbæ Bæjarstjórn Snæfellsbæjar hefur samþykkt samhljóða að óska eftir tillögum frá Hildigunni Haralds- dóttur um mögulega staðsetningu tjaldsvæðis í Olafsvík. Tillaga þessi kom í kjölfar umræðu í bæjarstjórn eftir að meirihluti bæjarstjórnar hafði lagt það til að kannað yrði hvort hægt væri að koma fyrir tjaldsvæði við heilsugæslustöðina í bænum. „Astæða þess að þessi tillaga er lögð fram er m.a. sú að bent hefur verið á það að langt sé fyrir fólk í dag að fara gangandi frá núverandi tjaldsvæði í miðbæ Olafsvíkur. Með því að tjaldsvæðið yrði komið fyrir á því svæði sem lagt er til verður örstutt fyrir þá er gista á tjaldsvæðinu að ganga í miðbæinn. Þetta gæti m.a. orðið til þess að þeir sem okkur sækja heim nái bet- ur að njóta þeirrar þjónustu sem boðið er upp á. Einnig er þetta svæðið nokkuð sér í byggðinni og því ætti ekki að skapa mikið ónæði að setja tjaldstæðið þar. Auk þess er það ljóst að á umræddu svæði verður ekki byggð nein varanleg mannvirki, þannig að landið sem færi undir tjaldstæðið nýtist ekki sem byggingarland í náinni fram- tíð“ segir meðal annars í tillögu meirihlutans. Bæjarfulltrúar minnihlutans lýstu sig andvíga tillögu meirihlut- ans. „Þetta svæði er í íbúabyggð og mun tjaldstæði þar skapa óþarfa hættu að okkar mati. Þá er ekki búið að skipuleggja þetta svæði til þessara nota.Við teljum engu að síður að brýnt sé að kanna tjald- svæðismál Olafsvíkur. Bæjarfull- trúum J-listans finnst þetta gott mál fyrir íbúana að taka afstöðu tdl,“ segir orðrétt í tillögu minni- hlutans. I framhaldi af umræðum um til- lögu meirihlutans kom fram áður- nefnd tillaga um ráðgjöf frá Hildigunni og eins og áður sagði var sú tillaga samþykkt samhljóða. HJ Húsbyggjendur Sumarhúsaeigendur Bændur - Alhliða þjónusta - Grús - R.B. Rotþrær Lagnasandur Drenmöl Túnþökur Mold Húsdýraáburður Dráttarvélar Sturtuvagn Smágröfur 22 tonna grafa Kjarnaborun Steinsögun Hægt að fá allt efni heimkeyrt eða sækja á staðinn Ibúðarhúsnæði Sumarhús Útihús Húsaklæðningar Gluggaskipti Sólpallar Breytingar Viðhald {Sigvaldi Geir Þórðarson - húsasmíðameistari| sími 433 8890 gsm 896 9990 - netfang: nupar@simnet.is Sigurjón Birgisson gsm 866 6138 Árni Geir Sigvaldason gsm 862 2999 Leirár- og Melahreppur 1. apríl 2006 Búfræði * Garðyrkja • Blómaskreytingar • Garðyrkjuframleiðsla • Skógur og umhverfi1 • Skrúðgarðyrkja Garðyrkjufræðingur - Búfræðingur * Þessar brautir bjóðast einnig í fjarnámi Kynntu þér starfsmenntanám við LBHI það gæti hentað þér. www.lbhi.is Landbúnaðarháskóli Islands Hvanneyri »311 Borgarnes • s. 433 5000 • www.lbhi.is "iwjl JÉÉm. JBHB B JkJHi sk , 'Á

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.