Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 9

Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 9
§ÍSgSSUli©BK MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 9 Ný handavinnuverslun í Borgamesi Hægt er að setjast niðuryftr skemmtilegri handavinnu og góðum kaffibolla í Handa- vinnuhúsinu. Frá vinstri eru þær Júlíana Hálfdánardóttir, upprunandi handavinnu- kona, Erla Kristjánsdóttir, annar eigandi verslunarinnar og Ingibjörg Karlsdóttir, sem er mikil handavinnukona. Konur úr félagsstarfi aldraðra í Borgamesi skoða lopaúrvalii. Laugardaginn 25. mars var Handavinnuhúsið opnað í Borgar- nesi. Verslunin, sem er til húsa neðst við Borgarbraut, reka þær Erla Kristjánsdóttir og Sigríður Karls- dóttir. Þar má finna handavinnu af ýmsum toga og má þar nefiia sem dæmi, allt sem til þarf til útsaums, bútaefni, gam af ýmsum toga og þá einna helst lopa í flestum gerðum og htum sem mun verða helsta söluvara verslunarinnar. Opntmartími er ffá 14 til 18 alla virka daga og á milli 12 og 14 á laugardögum. Hægt er að setjast niður með handavinnu og kaffibolla hjá þeim í versluninni, fá leiðbeiningar eða bara njóta félags- skaparins. Verslunin er einnig um- boðsaðili fyrir happadrættd HHI, SÍBS og DAS. I Borgamesi hefur ekki verið rek- in handavinnubúð í rúmt ár og em viðbrögð almennings góður vottur um áhuga og þörf fyrir sKka verslun í bæjarfélaginu. „Hér litu við um 100 manns á opnunardaginn og dagana síðan hefur verið heilmikið að gera í búðinni. Við finnum fyrir mikilli já- kvæðni og þörf fyrir verslun sem þessa og erum þakklátar fyrir allan þann áhuga og stuðning sem okkur er sýndur. Við erum mjög ánægðar með þessar góðu viðtökur og hlökk- um mikið til framtíðarinnar,“ segir Erla í samtah við blaðamann Skessu- homs. Aðspurð hvað hafi orðið til þess að þær hafi ákveðið að opna handavinnuverslun segir Erla að hugmyndin hafi upphaflega verið grín þeirra á mihi sem kom upp á göngum Grunnskólans í Borgamesi þar sem þær báðar vinna. „Við Sísí vorum svona að grínast með þetta þar sem við emm báðar miklar handavinnukonur og föndrum mik- ið saman. En svo einn daginn kom hún og sagði að nú skildum við kýla á þetta verkefni og þremur vikum seinna opnum við svo búðina hér,“ útskýrir Erla. Hún segist ætla að hætta að vinna við skólann og snúa sér alfarið að verslunarstörfum Á síðasta ári tók Sláturfélag Suð- urlands til slátrunar 22.068 fjár frá Vesturlandi. Er það tæplega 35% samdráttur frá árinu á undan en þá tókfélagið á móti 33.848 fjár. Þetta kemur ffam í ársskýrslu félagsins fyrir árið 2005. Af einstöku deild- um má nefna að mest aukning varð í Hvalfjarðar- strandardeild þar sem slátrað var 1.748 fjár í stað 1.655 árið á undan. I að- eins einni annarri deild varð aukning en það var í ásamt því að starfa í apótekinu í Borgamesi. Sísí mun starfa áffam við skólann og vinna við verslunar- reksturinn samhhða því. „Eftir páska verðum við með lopapeysunámskeið sem við leið- beinum á sjálfar og svo verður eitt- hvað annað sniðugt námskeið þegar líður á haustið. Við reynum að vera með eitthvað við allra hæfi en úrval og magn mun aukast þegar h'ður á, þetta er ágætt til að byrja með,“ seg- ir Erla um ffamtíðarplön. BG Akranes- og Skilmannadeild. Mestur samdráttur varð hins vegar í Daladeild úr 10.895 fjár árið 2004 í 2.961 í fyrra. Má þann samdrátt rekja til þess að slátrun hófst að nýju í Búðardal í fyrra effir nokk- urra ára hlé. Hjf 2005 2004 stk stk Hvalfjarðarstrandardeild 1,748 1,655 Borgarfjarðar- og Mýradeild 7,004 8,244 Leirár- og Meladeild 2,577 3,145 Akranes- og Skilmannadeild 1,999 1,996 Snæfells- og Hnappadalsdeild 5,779 7,913 Daladeild 2,961 10,895 Samtals 22,068 33,848 Mikil fækkun sláturfjár SS á Vesturlandi VILTU VERA MEÐ í LIÐI LANDNÁMSSETUR ÍSLANDS BQRGARNESI Landnámssetur íslands í Borgarnesí leitar eftír góðu og glaðlyndu fólkí með mikla þjónustulund tíl starfa í sumar. Qóð tungumálakunnátta er æskíleg en þó ekki skilyrðí. Ráðíð verður bæðí í fullt starf og aukavaktír eftír samkomulagí, aðallega um helgar. Víð leitum að fólkí til að annast afgreiðslu inn á sýníngar og í mínjagrípaverslun, til þjónustu í veítíngasal og í uppvask og þrif. Umsóknír sendist að Hamravík 18, 310 Borgarnesi fyrir 12. apríl. Æskilegt að fólk getí hafíð vínnu ekki seinna en 10. maí. Flligger Hörpuskin, Hörpusilki og Utitex fást nú hjá KB Búrekstrardeild BUREKSTRARDEILD Egilsholt 1-310 Borgarnes Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501 Opið frá ki. 8-12 og 13-18 alla virka daga

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.