Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 10
10
MIÐVIKUDAGUR 5. APRIL 2006
j»t53U11Uk.
Kóngurinn í sveitarfélaginu sem vakiryfir öllu; Snafells/ökull.
Rekstur Snæfellsbæjar
betri en áætlað var
Rekstur Snæfellsbæjar og stofn-
ana hans var jákvæður um tæpar
15,9 milljónir króna á síðasta ári.
Þetta kemur fram í tilkynningu til
Kauphallar Islands. Er þessi niður-
staða talsvert betri en gert var ráð
fyrir í fjárhagsáætlun en þar var
gert ráð fyrir að niðurstaðan yrði
neikvæð um tæpar 32,6 milljónir
króna.
Skatttekjur bæjarfélagsins námu
rúmtun 430 milljónum króna en
voru rúmar 420 í áædun. Framlög
jöfnunarsjóðs voru tæpar 227 millj-
ónir króna eða mtm hærri en í áæd-
tm sem var tæpar 197 milljónir
króna. Ymsar tekjur námu rúmum
334 milljónum króna en í áætíun
var gert ráð fyrir rúmum 315 millj-
ónum króna. Samtals voru því
rekstrartekjur því 991 milljón
króna í stað 932 milljóna króna í
áædtm eða ríflega 6,3% hærri en
upphaflega var áædað.
Laun og launatengd gjöld námu
rúmlega 447 milljónum króna í
stað rúmlega 449 milljóna króna í
áætlun. Annar rekstrarkostnaður
var tæpar 314 milljónir króna sem
er nokkru hærra en áædun sagði til
um en þar var miðað við tæpar 295
milljónir króna. Afskriftir námu
tæplega 61 milljón króna en í áælt-
un var reiknað með tæpum 65
milljónum króna. Þá voru fjár-
magnsgjöld rúmar 85 milljónir
króna í stað tæpra 87 milljóna
króna í áædun.
I árslok 2005 námu hreinar
skuldir Snæfellsbæjar og stofhana
hans rúmlega 1.132 milljónum
króna og höfðu því atikist á árinu úr
rúmum 1.085 milljónum króna ffá
því í árslok 2004.
HJ
Mest hækkun íbúðarhúsnæðis á höf-
uðborgarsvæði og Vesturlandi
Á milli áranna 1990 og 2005
hækkaði verð á íbúðarhúsnæði um
226,1% á Vesturlandi. Aðeins á
höfuðborgarsvæðinu varð meiri
hækkun á sama tíma eða um
226,6%. Þetta kemur ffam í sam-
antekt Fasteignamats ríkisins. Á
sama tíma var hækkunin 209,1% á
Suðurlandi, á Reykjanesi 191,8%,
á Austurlandi 182,8%, á Norður-
landi eystra 156%, á Norðurlandi
vestra 101 % og minnst varð hækk-
unin á þessum árum á Vestfjörðum
aðeins 57,3%.
Frá árinu 1995 hefur íbúðaverð
á Vesturlandi hækkað um 127,1%
og um 81,4% frá árinu 2000. Á
milli áranna 2004 og 2005 hækkaði
verðið um 18,4% á Vesturlandi.
HJ
Grænnkragi
í Grandarfirði
Bæjarstjórn Grundarfjarðar
samþykkti fyrir nokkru að ráðast í
átaksverkefni við trjáræktun,
þannig að myndað verður skjól-
belti ofan byggðarinnar. Að sögn
Bjargar Ágústsdóttir bæjarstjóra er
þetta er nokkurs konar „grænn
kragi“ til að skýla þéttbýlinu fyrir
veðri og vindum í framtíðinni,
þegar trén ná vexti.
Skógræktarfélag Islands tók að
sér að gera áætlun um ræktun,
staðsetningu, plöntuval og fram-
kvæmd verkefhisins, sem líklega
verður unnið í áföngum á
nokkrum árum. Ætlunin er að
hefja gróðursetningu og undir-
búning í sumar.
Auk þess fór bærinn þess á leit
við Skógræktarfélag Eyrarsveitar í
fyrra að félagið og bærinn tækju
höndum saman og stæðu fyrir
átaki til að styðja fólk sem hug-
leiðir gróðursetningu trjágróðurs
innanbæjar. Þannig væri hægt að
stuðla að gróðursetningu og
plöntun trjáa í görðum og á opn-
um svæðum. Segir Björg það geta
orðið til að gera bæinn enn hlý-
legri á komandi árum og er ætlun-
in að hrinda því átaki af stað í
sumar. HJ
Fundur Landssamtaka
sauðfjárbænda
Fundarmenn á aðalfundinum.
Aðalfundur Lands-
samtaka sauðfjár-
bænda var haldinn í
Bændahöllinni 30. og
31. mars sl. Vesdend-
ingar áttu 10 fulltrúa
á fundinum sem
komu úr 4 félögum.
Þetta var mjög góður
fundur enda er nú
bjart ffamundan hjá
sauðfjárbændum því
sala á lambakjöti
eykst stöðugt og er
nú spurning um hvort skortur verði
á kjöti í sumar. Sauðfjárbændur
voru því hvattir til að reyna að
koma með lömb í sumarslátrun.
Flutt voru nokkur erindi á fundin-
um. Dr. Daði Már Kristófersson,
hagfræðingur kynnti ffamleiðsku-
kostnað í sauðfjárrækt og saman-
burð á kostnaði á milli landa.
Snorri Sigurðsson ffamkv.stj. bú-
rekstrarsviðs LBHI kynnti
kennslu- og rannsóknaaðstöðu
LBHÍ í sauðfjárrækt. Stefán Vil-
hjálmsson, fagsviðsstjóri kjötmats
kynnti breyttar aðferðir og effirlit
við kjötmati og Jón Viðar Jón-
mtmdsson kynnti rannsókn sem
byrjar í vor á orsökum dauðfæddra
lamba. Stjóm Landssamtaka sauð-
fjárbænda er landshlutaskipt utan
formannssætisins og er Sigurgeir
Sindri Sigurgeirsson í Bakkakoti í
stjóm fyrir Vesdendinga. Kosið var
núna um formannssætið og var Jó-
hannes Sigfusson ffá Gunnarsstöð-
um í Þistilfirði endurkjörinn for-
maður til næstu þriggja ára. Hægt
er að lesa fundargerð aðalfunda LS
á bondi.is undir Landssamtök
sauðfjárbænda. ÞSK
Til hamingiu leikdeild Umf. Dagrenningar!
„Bein, bara bein!“ Herra Balón (Sigurður Halldórsson), Frú Kopetska (Agústa á Skarði) og Herra Sveyk (Jón Gíslason) í einu atriða
leikritsins.
Fg vissi ekki á hverju ég ætti von
þegar ég lagði af stað á ffumsýn-
ingu í Lundareykjadalinn á leikrit-
inu Sveyk síðastliðið föstudags-
kvöld. Fg var búin að lesa bókina
fyrir nokkram áram og fannst hún
ffekar leiðinleg. Fg fór samt bjart-
sýn af stað því ég kannast svolítið
við þetta fólk sem stendur að þess-
ari sýningu, allavega eldri gerðina,
og vissi að þau geta ýmislegt enda
mikil samheldni með Lunddæling-
um og ráðast ekki á garðinn þar
sem harm er lægstur. Og með þenn-
an leikstjóra Stefán Sturlu hlaut að
fæðast eithvað meiriháttar afkvæmi
enda kom það í ljós.
Það er ekki verið að velja eitthvað
auðvelt verk ffekar en fyrri daginn
eða með fáum leikendum. Nei ekki
aldeilis; memaður og kjarkur hefur
alltaf fylgt þessu félagi. Leikmyndin
er eftir endilöngum salnum sem er
mjög hagkvæmt. Texti var yfirleitt
mjög skýr og skilaði sér vel um sal-
inn. Fg æda ekki að fara að telja
upp hverjir stóðu sig best enda er
leiksýning samvinna alls hópsins og
útkoman fer effir því hvað samvinn-
an er góð og hvað leikuranum
finnst gaman að vera saman.
Gaman var að sjá allt þetta unga
fólk sem var að stíga sín fyrstu spor
á leiksviði, þau vora mjög góð. En
ég verð að nefna einn sem ég vona
að ég eigi eftir að sjást aftur á leik-
sviði, en það er Snorri Bjamason.
Fg hvet alla til að taka ffá eina
kvöldstund og skreppa í Brautar-
tungu á leiksýningu. Þið eigið ekki
eftir að sjá eftir því. Þetta var ffá-
bært kvöld, ég fór allavega hlæjandi
heim og skil ekkert í því hvernig
það er hægt að gera svona skemmti-
legt leikrit eftir svona leiðinlegri
bók.
Þegar ég rifja upp fyrir mér sýn-
inguna þá skelli ég umsvifalaust
uppúr. Takk fyrir ffábæra sýningu.
Það var augljóst að leikurunum
fannst gaman að vera saman því
þeir skiluðu ffábærri sýningu.
Enn ein rósin í hnappagatið!
Steinunn Garðarsdóttir.
Persónur og leikendun
Herra Sveyk, hundasali..........................Jón Gíslason, Lundi
Herra Balón, ljósmyndari......Sigurðtn- Halldórsson, Gullberastöðum
Frú Kopetska, kráareigandi.............Ágústa Þorvaldsdóttir, Skarði
Prohaska yngri, slátrarasonur.......Snorri Bjamason, Skálpastöðum
Herra Brettsnæder, gestapómaður....Sigurður O. Ragnars., Oddsstöðum
Herra Búllingar, sveitarforingi í SS........Árni Ingvarsson, Skarði
Anna vinnukona, ........................Kolbrá Höskuldsdóttir, Sleif
Katí vinnukona, ...............Birta Sigurðardóttir, Gullberastöðum
Muller 2, SS maður.......Unnsteinn Snorri Snorrason, Syðsm-Fossum
SS maðim.....................Ragnar Finrnu: Sigurðsson, Oddsstöðum
SS maður.....................Benjamín Davíðsson, Hvanneyrargötu 8
SS maður...............................Joakim Ekelund Oddsstöðum
Gestur á krá.............................Kari Berg, Gullberastöðum
Gestur á krá......................Elva Jónmundsdóttir, Amþórsholti
Adolf Hider.......................................Þór Þorsteinsson
Fangi.....................................Oskar Halldórsson, Krossi
Fangi............................Eyjólfur Kristinn Omólfsson, Hesti
Fangi..........................Magnús Guðmundsson, Amþórsholti
Fangi....................................Agúst Örn Long, Melgerði
Norrænn fjárhundur...................................Klessa, Lundi