Skessuhorn


Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 05.04.2006, Blaðsíða 15
 MIÐVIKUDAGUR 5. APRÍL 2006 15 Þeim hjónum finnst best aS vera úti í náttúrunni. Hér erjón að hvíla lúin bein í mióju labbinu með konu sinni sem án efa hejúr veriS vel rösklegt. mest og best og eru ávallt vínlaus og reyklaus. ,Jú svona í seinni tíð,“ segir Jón sposkur á svip og bætir við: „Við vorum búin að taka þann skammt út sitt í hvoru lagi áður en við kynntumst.“ ,Já, hann vínið og ég reykingarnar, það er heldur ekki hægt að dansa með áfengi því þá hefur maður ekkert jafnvægi," bætir Brimrún við og heldur á- ffam: „Komið og dansið, er annar klúbbur sem við erum þátttakend- ur í. Hann er upprunninn í Noregi og tilgangur hans er til að hvetja ungt fólk til að hætta óreglu." ,Já, þess vegna vildu þau endilega fá mig,“ skýtur Jón inní og glottir. ,Já, eins og víti til varnaðar," segir Brimrún og þau hlæja í kór. Efhilegt ungt fólk Þá berst tal okkar að ungu fólki í dag og þar liggur Jón ekki á skoð- unum sínum. „Eg var nú einu sinni tmgur og get hreinlega sagt að unga fólkið í dag er mikið betra fólk en hér áður fyrr. Eins og með reykingar t.d. Hér áður var það siður að allir reyktu um fermingu en sá siður er löngu úr gildi. Krakkar í dag eru yfirleitt mjög efnilegt fólk, vel upplýst og þrosk- að og drekka og reykja síður en svo meira en við eldra fólkið gerðum á þessum aldri. Ef við bara hlustum aðeins hvernig við tölum um þennan aldurshóp. Það eru t.d. einhverjir tugir eða hundruðir ungs fólks niðrí bæ og einn eða tveir eru með læti og það þykir eitthvert tiltökumál, en til saman- burðar þá voru hér áður mun færra fólk samankomið í bænum og þá var allur hópurinn alveg vitlaus. Við eldra fólkið megum ekki gleyma hvernig við vorum sem ungmenni,“ segir Jón. „Það eina sem ég hef áhyggjur af eru eitur- lyfin. Eg myndi ekki vilja vera unglingur í dag því hættumar era nær og alvarlegri. Ég vil sjá meiri umfjöllun um það jákvæða sem unga fólkið er að gera í fféttum og fjölmiðlum. Við eigum svo mikið af flottu ungu fólki sem er að gera skemmtilega hluti," bætir Brimrún við. Dansaðstöðu fyrir unga fólkið Aðspurð um hvað þau vildu sjá gert fyrir unga fólkið á Akranesi segir Brimrún: „Það þarf að spyrja ungmennin hvað þau vilja gera og hvetja þau þannig, en ég mundi vilja sjá eitthvað svipað Rekstrar- sjóninni í gamla daga þar sem unga fólkið getur komið og dansað í 3-4 tíma á daginn. Dans er mikil og góð hreyfing þar sem tónlist kemur við sögu og því ávallt mikið fjör.“ Þarf að stækka Höfða Hvað bæjarmálin varðar eru málefni Dvalarheimilisins Höfða efst í huga Jóns. „Það er brýnt málefni að stækka við Höfða og fjölga þar íbúðum og húsum fyrir aldraða. Ég tel að einfaldasta og ódýrasta lausnin sé sú að byggja hæðir ofaná elsta húsið. Það hús er sterklega byggt, teikningar eru til staðar, lyftan er í húsinu og þetta er ódýrasta lausnin.“ Jón nefnir líka að Akraneskaupstaður verði að styrkja atvinnutækifæri sín innan bæjarmarkanna. „Hér er mikil íbúðahúsauppbygging og gengur hratt fyrir sig. En verslunarupp- bygging er komin útum þúfur. Lít- ið hefur verið hlúð að þeim versl- unum sem hér berjast til að halda lífi og á sama tíma er hliðrað til um leið og utanaðkomandi verslunar- menn óska eftir aðstöðu. Nú ætla tvær stórar matvöruverslanir að opna hér á Akranesi og einhver aukning í öðram verslunum líka. Það er aldeilis að Akurnesingum þarf að fjölga á næstu áram til að geta sinnt öllum þessum verslun- um,“ segir Jón að lokum. Skessuhorn þakkar þessum síkátu hjónum fyrir að fá að skyggnast inn í líf þeirra og tilvera. BG ■ l/'jv/ó/fju/ /<«/' Marsterta Marengsbotnar: 4. eggjahvitur 2-dl.sykur 1. dl.púðursykur 2. bollar Rice krispies Þeytið vel saman eggjahvitur og sykur. Hrærið Rice krispies var- lega út í og setjið í tvö smurð kökuform. Bakist við 15 0°c í ca. 60 mínútur. Kreni (á milli botna): 1 peli rjómi rúsinur nóa kroppa jaröaber Þeytið rjómann og setjið rúsinur og nóa kroppa og jarðaber (í litlum bitum) út í eftir smekk. Krem (ofan á): 4 eggjarauóur 3 msk. sykur 2 stk. mars óO.gr.smjörliki Eggjarauður og sykur þeytt saman. Mars og smjörliki brætt og blandað saman við og kælt. Skreytið að vild með Nóakroppi og ávöxtum þegar kremið hefur storknað. Opið virka daga frá kl. 14-18, laugardaga frá kl. 12-16 Ýmis námskeið framundan t.d. lopapeysuprjón. Umboð fyrir Happadrætti Háskólans, DAS og SÍBS. Handavinnuhúsið Brákarbraut 3 Borgarnesi Sími: 437-1421_____J INGI TRYGGVASON hdl. lögg. fasteigna- og skipasali GNIR í BORGARNESI KVELDULFSGATA 6, Borgarnesi íbúð 122,3 ferm. á neðri hæð í tvíbýlishúsi ásamt bflskúr 24 ferm. Forstofa flísalögð. Stofa, hol, gangur og fjögur herbergi parketlögð. Eldhús dúklagt, eldri viðarinnr. Baðherbergi með korkflísum á gólfi, veggir flísalagðir. Þvottahús og búr. Nýr sólpallur, nýlegt þakjám og nýlegar ofnalagnir. Góð staðsetning. Verð: 25.500.000 ÞÓRÓLFSGATA 20, Borgarnesi Einbýlishús ásamt bflskúr samtals 195,1 ferm. fbúð 161,6 ferm. þar af á efri hæð 128,3 ferm. Bflskúr 21 ferm. Forstofa flísalögð. Stofa, borðstofa, hol, gangur og fjögur herbergi parketlögð. Eldhús parketlagt, ljós viðarinnrétting. Baðherbergi allt flísalagt, Ijós er þvottahús, geymslur og bflskúr. Góð staðsetning og gott útsýni. Stutt í skóla og íþróttamannvirki. Verð: 29.000.000 Allar nánari upplýsingar á skrifstofu Ingi Tryggvason hdl. - löggiltur fasteigna- og skipasali Borgarbraut 61,310 Borgames, s. 4371700,860 2181 -fax 4371017, netfang: Ut@simnet.is - veffang: lit.is viðarinnr. Búr. Á neðri Akraneskaupstaður Staða leikskólastjóra við leikskólann Vallarsel Vallarsel er 6 deilda leikskóli með um 160 nemendur. Við skólann starfa tæplega 40 starfsmenn. ÍVallaseli hefur verið lögð sérstök rækt við tónlistaruppeldi í samvinnu viðTónlistarskólann á Akranesi. Öll aðstaða er til fyrirmyndar en viðbygging við skólann var tekin í notkun 2004. Aðalverkefni leikskólastjóra er að bera ábyrgð á daglegri starfsemi og rekstri og veita skólanum faglega forystu. Óskað er eftir umsækianda sem hefur leikskólakennaramenntun, æskilegt er að viðkomandi hafi framhaldsmenntun á sviði stjórnunar. Ennfremur að viðkomandi hafi stjórnunarrevnslu og stjórnunarhæfileika. Mikilvægt er að umsækjandi nafi góoa samskiptahæfileika og hafi reynslu af leikskólastarfi. Ráðið verður í starfið frá t. september. Nánari upplýsingar veita Lilja Guðlaugsdóttir leikskólastjóri sími 4331220 og Helga Gunnarsdóttir, sviðsstjóri fræðslu-, tómstunda- og íþróttasviðs, sími 433-1000. ! Með umsókn fylgi gögn um námsferil, störf og önnur gögn í sem að gagni geta komið við mat á umsókn. ! Umsókn sendist fræðsíu-, tómstunda- og íþróttasviði, Stillholti 16-18, 300 Akranes. Umsóknarfrestur er til 24. apríl n.k.. Fræðslu-, tómstunda- og íþróttasvið

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.