Skessuhorn - 10.05.2006, Qupperneq 11
MIÐVIKUDAGUR 10. MAI2006
11
Framkvæmdastjóri
Skagavers óhress með um-
mæli bæjarstjóra
Sveinn Arnar Knútsson, fram-
kvæmdastjóri verslunarinnar Skaga-
vers á Akranesi segir Guðmtmd Pál
Jónsson, bæjarstjóra hafa farið með
órökstuddar dylgjtu- í garð fyrirtæk-
isins í frétt Skessuhoms um kaup á
húsnæði fyrir bókasafn. Eins og
fram kom í fréttinni var ein tillaga
starfshóps tun framtíðarstefnu í hús-
næðismálum bókasafnsins sú að
kannaður yrði vilji eigenda Skaga-
vers um hugsanleg kaup bæjarins á
húsnæði verslunarinnar. Aðspurður
sagði Guðmundur Páll að ekki hefði
verið leitað efrir kaupum á húsnæði
Skagavers. I samtali við Skesshom í
síðustu viku sagði haim ástæðuna þá
að vegna fyrri viðskipta bæjarins við
eiganda Skagavers hafi ekki verið
talið líklegt að viðræður skiluðu
ásættanlegri niðurstöðu.
Sveinn Arnar segist forviða á um-
mælum Guðmundar Páls og ekld
hafa hugmynd um hvað bæjarstjór-
inn eigi við. „Eg veit ekki hvaða við-
skipti bæjarstjórinn á við því þótt
ótrúlegt megi virðast hafa þessir að-
ilar átt sáralítil viðskipti þá fjóra ára-
tugi sem verslunin hefur starfað í
bæjarfélaginu. Það er auðvitað rann-
sóknarefni í sjálfu sér hvernig á því
stendur,“ segir Sveinn Amar.
Hann telur ffamgöngu bæjaryfir-
valda í húsakaupamálum bókasafns-
ins ráðast af því að kosningar séu í
nánd og því sé stjómmálamönnum
ekkert heilagt. „Bæjarstjóranum má
vera það fullljóst að eigendur Skaga-
vers em ekki í framboði til bæjar-
stjórnarkosninga á Akranesi og af
þeim sökum frábiðjum við okkur að
vera bendluð við embættisfærslur
bæjarstjórans og vandræðagang hans
við réttlætingu á leynilegum við-
skiptasamningum við utanaðkom-
andi fyrirtækjasamsteypur þar sem
bæjarstjórinn virðir að vettugi góða
stjórnsýsluhætti að mati löglega
kjörinna bæjarfulltrúa," segir Sveinn
Arnar.
Aðspurður segir Sveinn Arnar
aldrei hafa verið leitað efrir hugsan-
legum kaupum á húsnæði Skagavers
þrátt fyrir að faglegur starfshópur
hafi komist að þeirri niðurstöðu að
húsnæðið gæti vel hentað fyrir bóka-
safn. „Það er bæjarstjóranum til
minnkunar þegar hann reynir að
réttlæta löngu gerða viðsldptasamn-
inga sína, sem hann hefur leynt bæj-
arstjórn og bæjarbúa mánuðum
saman, með órökstuddum dylgjum
tun meint fyrri viðskipti. Versltmin
Skagaver hefur starfað í fjóra áratugi
á Akranesi. Bæjarfélagið er einn
stærsti viðskiptavinur verslana í bæj-
arfélaginu en þrátt fyrir það hafa
viðskipti á milli Skagavers og bæjar-
ins aldrei verið mikil enda hafa ein-
hver önnur sjónarmið ráðið ferðinni
í innkaupastefiiu bæjarins en hag-
kvæmnissjónarmið.“
Sveinn Amar segir samskipti bæj-
arins og Skagavers hins vegar hafa
verið nokkur í gegnum tíðina sér-
staklega í skipulagsmálum. „Þá sögu
væri áhugavert að rifja upp en hún er
bæjaryfirvöldum ekki til framdráttar.
Bæjarstjóranum væri nær að segja
satt og rétt ffá þannig að öll sagan
verði sögð, hvort hann sé með risa-
vöxnum fjárskuldbindingum bæjar-
félagsins á Skagaverstúninu að
hugsa um sérhagsmuni samstarfsað-
ila sinna eða almannahagsmuni.
Fram hafa komið miklar efasemdir
ffá bæjarfulltrúum um að samning-
urinn um kaup á húsnæði undir
bókasafh sé hagkvæmur bæjarfélag-
inu“.
Sveinn Amar segir Skagaver ekk-
ert hafa að fela í samskiptum sínum
við bæjarfélagið. „Eg skora á bæjar-
stjórann að upplýsa um þessi við-
skipti sem hann vísar til. Við þurfum
enga leynd eins og ríkt hefur í hús-
næðismálum bókasafnsins. Svo mik-
il var leyndin að löglega kjömir bæj-
arfulltrúar kaupstaðarins höfðu enga
hugmynd um að verið væri að skuld-
binda bæjarsjóð fyrir mörg hundmð
milljónir króna inn í framtíðina á
einum dýrasta stað í bæjarfélaginu.
Slíkt og annað eins á sér vonandi
ekki hliðstæðu í nútíma samfélagi
þar sem reiknað er með að leikregl-
ur lýðræðisins séu virtar. Það er ekki
stórmannlegt að bjarga sér úr vand-
ræðtun með því að skrökva," segir
Sveinn Arnar að lokum.
HJ
- N
Auglýsing um framboðslista
Þrír listar eru í framboði til sveitarstjórnarkosninga 27. maí 2006
í sameinuðu sveitarfélagi Hvalfjarðarstrandarhrepps, Skilmannahrepps,
Innri-Akraneshrepps og Leirár- og Melahrepps.
Listarnir og frambjóðendur eru:
E - listi sam-Einingar
1. Hallfreður Vilhjálmsson, bóndi
og oddviti, Kambshóli
2. Hlynur Máni Sigurbjörnsson,
stjórnandi rannsóknarst.,
Hagamel 15
3. Arnheiður Hjörleifsdóttir,
umhverfisfræðingur,
Bjarteyjarsandi
4. Stefán Gunnar Ármannsson,
framkvæmdastjóri og bóndi,
Skipanesi
5. Daníel Ottesen, bóndi, Ytra-
Hólmi
6. Björgvin Helgason, búfræðingur
og húsasmiður, Eystra-Súlunesi
7. Asa Hólmarsdóttir, líffræðingur,
Hagamel 2
8. Sigurgeir Þórðarson, sölumaður,
Hagamel 10
9. Hallgrímur Rögnvaldsson,
bóndi, Innra-Hólmi
. 10. Ragna Kristmundsdóttir,
kennari, Vogatungu
j 11. Daniella Gross, búfræðingur,
i Eystri-Leirárgörðum
1 12. Ingibjörg Halldórsdóttir, nemi,
Heynesi
5 13. Guðmundur Gíslason,
flokksstjóri, Hlíðarbæ 10
14. Haraldur Benediktsson, bóndi,
Vestri-Reyni
H - listi H4
1. Ása Helgadóttir, oddviti,
Heynesi
2. Dóra Lfndal Hjartardóttir,
kennari, Vestri-Leirárgörðum
3. Bjarni Rúnar Jónsson,
vélsmiður, Ásfelli I
4. Hjalti Hafþórsson, verktaki,
Hlíðarbæ 11
5. Pétur Sigurjónsson, iðnvélvirki,
Lækjarmel 6
6. Bylgja Hafþórsdóttir,
afgreiðslumaður, Hagamel 7
7. Brynjólfur Þorvarðarson,
leiðbeinandi, Raðhúsi 2
Heiðarskóla
8. Gauti Halldórsson,
ofngæslumaður, Hlíðarbæ 20
9. Hannesína Ásdís Ásgeirsdóttir,
stuðningsfu I Itrúi, Litla-Mel
10. Anna Leif Elídóttir, kennari,
Leirá
11. Helena Bergström, kennari,
Sólvöllum
12. Haraldur Magnús Magnússon,
bóndi, Belgsholti
13. Linda Guðbjörg Samúelsdóttir,
ferðaþjónustubóndi, Tungu
14. Marteinn Njálsson, oddviti,
Vestri-Leirárgörðum
Yfirkjörstjórn
L - listi Hvalfjarðarlistans
1. Sigurður Sverrir Jónsson,
bílstjóri og oddviti, Stóra-
Lambhaga IV
2. Magnús Ingi Hannesson, bóndi,
Eystri-Leirárgörðum
3. Elísabet Unnur Benediktsdóttir,
stuðningsfulltrúi, Eystri-Reyni
4. Jóhanna Harðardóttir,
blaðamaður, Hlésey
5. Steinar Matthías Sigurðsson,
bóndi, Hrafnabjörgum
6. Bjarki Sigurðsson, flokksstjóri,
Neðra-Skarði
7. Magnús Óskarsson,
bifreiðastjóri, Nýhöfn
8. Haraldur Jónsson, sjómaður,
Móum
9. Magnús Ólafsson, verkamaður,
Efra-Skarði
J
r
v
Lokahóf meistara-
flokks Skallagríms
Jovan Zdravevski og Heiðar Lind Hansson.
Lokahóf meistaraflokks
Skallagríms í körfubolta var
haldið á Hótel Hamri á laug-
ardagskvöldið. Var það bæjar-
stjórn Borgarbyggðar sem
bauð leikmönnum liðsins og
velunnurum þess upp á veit-
ingar og var stemningin góð.
Valur Ingimundarson veitti
tveimur leikmönnum viður-
kenningar en þær komu í hlut
Jovan Zdravevski sem var val-
inn besti leikmaður liðsins og Heið-
ars Lind Hanssonar sem þótti efni-
legastur. Olafi Helgasyni var veitt
gjöf frá félaginu en hún var til þakk-
lætis fyrir það ffábæra starf sem
hann vinnur fyrir félagið. Sparisjóð-
ur Mýrasýslu veitti deildinni vegleg-
an styrk í hófinu.
SO/ Ljósm: Af vef UMF
Skallagríms.
Akranesmót og lokahóf BA
Akranesmót og lokahóf Bad-
mintonfélags Akraness var haldið í
Iþróttahúsinu við Vesturgötu
sunnudaginn 23. apríl. Var að
vanda mikið fjör og gleði ríkjandi
og fjöldi keppenda mætti. A Akra-
nesmótinu er keppt um Akra-
nesmeistara en einnig er því tengt
Trimmmót og hið vinsæla foreldra-
og vinamót. Þá var að vanda haldin
pizzaveisla eftir mótið og þar voru
veitt verðlaun og viðurkenningar
tímabilsins. Auk þess er happa-
drætti milli þeirra sem mættu á
mótið og voru vinningar gefnir af
Kawasaki badminton vörum. Kar-
itas Osk Olafsdóttir var valin spilari
ársins. Urslit Akranesmótsins má
finna í heild sinni á vef Skessuhorns
frá 8. maí sl. MM
Varmalandsskóli auglýsir
lausar stöður við skólann
Um er að rœða kennslu ó unglingastigi, ííslensku,
I dönsku og stœrðfrœði. Líttu inn á heimasíðu skólans
1 www.varmaland.is.
z
3
Upplýsingar gefur Flemming Jessen í síma
8401520, netfang: fjessen@varmaland.is.
SIM6NNTUNARMIÐSTOÐIN
Á V6STURLANDI
Aðalfundur
Aðalfundur Símenntunarmiðstöðvarinnar d
Vesturlandi verður haldinn í Alþýðuhúsinu í
Borgarnesi fimmtudaginn 18. maí 2006 kl. 16.00
Dagskrá:
Venjuleg aðalfundarstörf
Önnur mdl
Allir velkomnir
www.heimaskagi.is
Verum stolt af Skaganum!
j