Skessuhorn - 10.05.2006, Qupperneq 15
SSESSUHeSBH
MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006
15
*e/i/u/t/i—.
1. kafli -
Hvemigflytja skal
búferlmn
Kæru sveitungar
núverandi og tilvonandi.
Fyrir okkur öllum liggur að hefja
búsetu í nýju sveitarfélagi innan fárra
vikna, stærra sveitarfélagi en því sem
við nú búum í. Þetta var niðurstaða
kosninganna síðastliðið vor og henni
ber að hh'ta. Það fór þó auðvitað ekki
svo að við værum öll sama sinnis á
kjördag sameiningarkosninga og
þannig verður það ekki heldur nú
þegar kosið verður í sveitarstjóm.
Sjálfur kaus ég með sameiningu og
lágu fyrir því margar ástæður. Ein sú
helsta var að svæði nýs sveitarfélags
er eitt og sama þjónustu- og atvirmu-
svæðið og hagsmunir íbúa þess eiga
fyrir vikið mikla samleið. Þeir sem
kusu gegn sameiningunni höfðu
auðvitað sínar góðu og gildu ástæður
fyrir því atkvæði og aldrei fáum við
úr því skorið hverjir höfðu þar á
réttu að standa.
Undirbtxningur ferðar
Það gerist ekki oft að manni býðst
það tækifæri að ffytja í nýtt sveitarfé-
lag án þess að þurfa að pakka búslóð-
inni í pappakassa og ferðatöskur og
þurfa svo að taka allt upp aftur á
áfangastað og fiima því nýjan stað.
Nei, þetta verður miklu þægilegri
flutningur þar sem hvert okkar fyrir
sig ræður því hvert vinnuframlagið
verður og hvort við viljum á annað
borð skipta okkur á einhvem hátt af
framkvæmdinni.
Hitt er annað að flutningum fylgja
almennt einnig kostir. Ymislegt safii-
ast upp hjá okkur, fyllir geymslur og
skúmaskot og á í raun ekkert erindi
með okkur á nýjan áfangastað.
Flutningum fylgir semsagt einstakt
tækifæri til tiltektar, tækifæri til að
skilja efrir allt það sem engum hefur
orðið að gagni eða til ffamdráttar og
íþyngjandi er að rogast með. Við
skulum því ekki taka með okkur ann-
að en það sem við teljum að komi
okkur sjálfum og nýju sveitarfélagi til
góðs og nýtist til góðra verka.
Lagt af stað
Við flutningirm sjálfan er fykilat-
riði að horfa ffam á veginn. Tvisvar
á leiðinni þinfum við að taka ffamúr
flokksbundnum framboðum sem
lögðu af stað löngu á undan okkur en
sækist ferðin hægt enda virðist sem
þau hafi pakkað xúður í töskur fleiru
en því sem koma mun að gagni í nýju
sveitarfélagi. Gæta skal ýtrustu var-
kámi og tillitssemi við ffamúrakstur-
inn og gerið ekki ráð fyrir að þau víki
vel enda fylgja þessi framboð
flokkslfntun sem eru mun hfykkjótt-
ari og ófyrirséðari en þær veglínur
sem við hin fylgjum og það vita allir
sem reynt hafa að vegirnir í Borgar-
firði eru ekki nógu breiðir fyrir þess
konar aksturslag.
s
A áfangastað
Þegar á áfangastað kemur þurfum
við öll að taka höndum saman við að
koma okkur vel fyrir. Þarfir okkar
eru mismunandi og taka þarf tillit til
margra þátta. Margt þarf að gera og
mörgum að sinna. Hver sem skoðtm
okkar er á sameiningu þessara sveit-
arfélaga þurfum við öll að vinna
saman að því að grípa þau tækifæri
sem í henni felast til uppbyggingar
og eflingar. Breytingar eru offar en
ekki af hinu góða, undirstaða ffam-
þróunar og andstaða stöðnunar.
Tækifærin til útrásar og eflingar nýs
sveitarfélags munu vaxa á hverju strái
sem við sáum saman fyrir.
Að lokum
Til að ná settum markmiðum
þurfum við að byggja upp sjálfstraust
okkar og álit okkar á samfélaginu
sem við búum í. Búseta í nýju sveit-
arfélagi okkar skal bera vott um
ffumkvæði og áræðni. Nánar um það
í næsta kafla.
Þór Þorsteinsson
Höf. skipar fjói-ða sæti Borgarlistans.
f^e/t/u/i/i^^
Til oddvita framboðslista í sameinuðu sveitarfélagi t
Borgaffirðifyrir sveitarstjómarkosningar 27. maí 2006
Agæti frambjóðandi!
Eg hef áhyggjur af velferð kom-
andi kynslóða, bæði í Borgarfirði og
í öðrum heimshlumm. Þess vegna
hef ég ákveðið að greiða engum
framboðslista atkvæði mitt í kosn-
ingunum 27. maí nk., nema oddviti
listans samþykki eftirfarandi yfirlýs-
ingu og senda mér tilkynningu þar
um í tölvupósti:
Eg undirritaður oddviti fram-
boðshsta í sameinuðu sveitarfélagi í
Borgarfirði fyrir sveitarstjórnar-
kosningar 27. maí 2006, lýsi því yfir
að ff á og með þeim degi sem ég tek
sæti í sveitarstjóm mun ég:
1. leitast við að taka mið af hug-
myndaffæði sjálfbærrar þróunar í
allri umræðu og ákvarðanatöku í
sveitarstjóm.
2. fara gaumgæfilega yfir allar
gildandi samþykktir og áætlanir
sveitarfélagsins og leggja til breyt-
ingar á þeim atriðtun sem stangast á
við hugmyndafræði sjálfbærrar þró-
unar.
3. nota hvert tækifæri til að upp-
fysa aðra um þessa hugmyndaffæði,
bæði innan sveitarstjómar og í opin-
berri umræðu.
Sem dæmi tun einstakar ákvarð-
anir eða aðgerðir sem stuðla að sjálf-
bærri þróun má nefna eftirfarandi:
* Að markvisst sé unnið að því að
takmarka losun gróðurhúsaloft-
tegunda vegna ferðalaga á vegum
sveitarstjómar
* Að sorphirðu- og sorpförgunar-
gjöld standi undir ölltun kosmaði
sveitarfélagsins vegna meðhöndl-
unar úrgangs og skattar séu lækk-
aðir að sama skapi til að komast
hjá auknum álögum á heimilin
* Að líffænt vottuð eða umhverfis-
merkt vara og þjónusta hafi for-
gang í innkaupum sveitarfélagsins
* Að verslanir og þjónustuaðilar séu
hvött til að auka ffamboð á slíkum
vamingi
* Að sveitarfélagið taki þátt í þróun-
arstarfi í samvinnu við sveitarfélög
í þriðja heiminum (norðtu-suður
samvinna)
* Að eingöngu sé boðið upp á sið-
gæðisvottað kaffi á kaffistofum
sveitarfélagsins
* Að beitt sé vistvænum aðferðum
við tunhirðu opinna svæða á veg-
um sveitarfélagsins
* Að grunnskólar og leikskólar sveit-
arfélagsins taki þátt í Grænfána-
verkefninu
* Að komið sé upp Staðardagskrá 21
fyrir allt sveitarfélagið, henni
framfylgt og hún endurskoðuð
reglulega
Að lokum vil ég minna á máltæk-
ið sem segir að „enginn gerði stærri
mistök en sá sem gerði ekkert, af því
að honum fannst hann geta gert svo
lítið“.
Með bestu kveðjum og fyrirffam
þökk fyrir góðar undirtektir,
Stefán Gtslason,
Þórðargötu 12, Borgarnesi
þorgar* ■
pryói
Akranesi
Vegna manneklu getum
við aðeins haft opið frá
kl. 15.00 - 20.00
alla daga
nema sunnudaga
kl. 13.00 -18.00
f maí ogjúní
Tré, runnar, rósir... Áburður, eitur, pottamold, pottar...
Sími 893 8200, fax 431 5055 - gob@simnet.is,
borgarprydi@borgarprydi.is - www.borgarprydi.is
Vesturlandsdeild Gigtarfélags íslands
boðar til fræðslufundar laugardaginn 13. maí
næstkomandi í Grundaskóla á Akranesi,
kl. 13:00.
Gestir fundarins verða:
Margrét O. Leópoldsdóttir læknir og virkur félagi í GÍ, sem
mun ræða um gigt almennt frá sjónarhóli hins veika og svara
spurningum, sjá einnig www.gigt.is
Fulltrúi ÖBÍ kynnir ný útkomið rit "Hugmynd að betra
samfélagi" sjá nánar á www.obi.is
Á fundinum er stefnt að því að stofna sjálfshjálparhóp fólks
með gigt á Akranesi.
Aðstandendur og allt áhugafólk um velferð fólks með
gigtsjúkdóma er hvatt til að mæta, sérstaklega frambjóðendur
fyrir sveitarstjórnarkostningarnar.
Fundurinn er öllum opinn, aðgangur ókeypis,
hollar og óhollar veitinar í boði.
Jóhanna Leópoldsdóttir, formaður Vesturlandsdeildar GÍ
Mjólkurbílstjórí
Sumarafleysing
MS Reykjavík, óskar eftir að
ráða bílstjóra í
sumarafleysingar við söfnun
og flutning mjólkur frá
mjólkurframleiðendum á Vesturlandi til Reykjavíkur.
REYKiAVÍK
“K
avík MJm
Æskileg búseta er í Borgarnesi eða nágrenni.
Nánari upplýsingar veitir PáLl Svavarsson að
Bitruhálsi 1 - Reykjavík eða í síma 569-2200.
Hægt er að senda umsóknir á netfangið
starfsmannasvid@ms.is