Skessuhorn - 10.05.2006, Síða 16
16
MIÐVIKUDAGUR 10. MAI 2006
Sveitamarkaður við Laxá í
Leirársveit um helgar í sumar
Sveitamarkaður verður opinn um
helgar í sumar í gamla sláturhúsinu
við Laxá í Leirársveit. Sem kunnugt
er var slíkur markaður haldinn á
sama stað einn sunnudag í ágúst í
fyrra og tókst hann það vel að nú
hefur verið ákveðið að halda starf-
seminni áfram. Það var Jóhanna
Harðardóttir sem átti frumkvæðið
að sveitamarkaðnum í fyrra og hún
vinnur nú að skipulagningu sumars-
„Þama mætti handverksfólk og
bændur með ffamleiðsluvöru sína
og seldi vel. Markaðurinn var feiki-
vel sóttur af þeim þölmörgu sem
áttu leið um Vesturlandsveg og
menn fóru út klyfjaðir brauðum,
sultum, garðplöntum, fiski, skraut-
og nytjamunum, fatnaði og græn-
meti“ segir Jóhanna í samtali við
Skessuhom.
Talið er að um 2.500 manns hafi
komið að markaðnum þerman eina
dag í fyrra. „Margír höfðu á orði að
svona markaður þyrfri að vera stað-
bundinn og alltaf opinn og margir
hafa spurt um markaðinn í vor“ seg-
ir Jóhanna og bætir við að nú hafi
verið ákveðið að hafa markaðinn op-
inn írá klukkan 13-18 alla laugardaga
og sunnudaga í júní, júlí og ágúst.
„Þessi sumaropnun er tilraun sem
mun skera úr um það hvort markað-
urinn sé kominn til að vera um
ókomna ffamtíð á þessum stað. Hér
er kjörið tækifæri fyrir alla þá sem
eiga ffamleiðsluvörur að koma þeim
á ffamfæri á hentugan hátt. Eins og
nafnið gefur til kynna er markaður-
inn hannaður til að vera boðspallur
fyrir vörur sem framleiddar eru
heima og þar verður aðstaða til að
selja bæði hluti og matvæfi. Hér er
því til dæmis kjörinn vettvangur fyr-
ir hverskyns vörur „beint ffá bónda“
og hægt er að vera með alla dagana
eða hluta þeirra ef vöruframboðið er
lítið“ segir Jóhanna.
Ekki er að efa að sveitamarkaðn-
um verður vel tekið af ffamleiðend-
um og neytendum og þeir sem á-
huga hafa á að taka þátt eða vantar
ffekari upplýsingar geta nálgast þær
hjá Jóhönnu í Hlésey í síma 566-
7326 eða á johanna@hlesey.is. HJ
ms.
Dreginn í land
Garpur SH-95 fékk ískrúfuna þegar hann var á beitukóngsveiðum skammt
frá Stagley á Breiðafirði sl. þriðjudag. Skipverjar þurftu að bíða í klukku-
stund þar til Sproti SH-51 kom og dró skipið til hafnar í Stykkishólmi.
f^etuútui'-^,.
Afpólitískmn hrossakaupum
Hvert er bæjarstjóraefni Sam-
fylkingarinnar? Þessi spurning hef-
ur hljómað nokkuð títt í eyrum
Samfylkingarfólks undanfarið.
Svarið er einfalt og hefur alla tíð
verið ljóst: Samfylkingin býður ekki
fram sérstakan bæjarstjóra! Stefna
okkar er að auglýsa starfið og ráða
hæfasta umsækjandann.
Tilefhi þessara skrifa, er hið sér-
stæða útspil Sjálfstæðisflokksins að
veita tilteknum einstaklingi emb-
ættið nú fyrir skemmstu. Að vísu
sáu þeir enga ástæðu til að stunda
góða stjórnsýsluhætti, þótt ekki
verði fundið að smekkvísinni hér.
Þeir vita nefhilega hvar afburða-
manna er von og leituðu í raðir
Samfylkingarinnar, til varaþing-
manns sem ekki hafði fengið
áhugavert djobb ffá því að hann
missti sæti sitt á þingi. Vissulega
eru fyrrum þingmenn alls ekki
óhæfir til að gegna krefjandi störf-
um. Þvert á móti getur sú fjöl-
breytta reynsla sem þingmanns-
starfið veitir, vegið jafn þungt og
menntun. Fyrrverandi þingmenn
eiga því að geta sótt um þau störf
sem þeir hafa áhuga á að vinna á
sama grundvelli og allir aðrir. Tími
pólítískra hrossakaupa á að vera lið-
inn og hefur sem betur fer ekki ver-
ið stundaður hér á Akranesi um
langt árabil við mannaráðningar.
Eiginlega varð ég hálf hissa á að
vera svo þráspurður um bæjar-
stjóraefni. Samfylkingin hefur
barist fyrir opinni stjórnsýslu og
talað gegn þeim hrossakaupum sem
sjálfstæðismenn hafa ítrekað stund-
að hvar sem þeir eru við völd.
Fyrstu merkin sjáum við nú fyrir
kosningar, allir vita að eina ástæða
þess að íhaldsmenn leituðu til Gísla
er að þeir telja sig hafa tímabundin
hag af því makki, ekki flóknari en
það. Akurnesingar eiga skilið það
besta og ekkert annað þegar kemur
að vali á bæjarstjóra. Hagsmunapot
hefur aldrei og verður aldrei það
besta sem í boði er.
Þegar gengið verður til kosninga
laugardaginn 27. maí verður kosið
um fulltrúa til bæjarstjómar en ekki
um starf bæjarstjóra. Samfylkingin
býður ffam kröftugan hóp, ungt og
ffamsækið fólk í bland við eldra og
reyndara. Allt fólk sem fordæmir
pólítísk hrossakaup og mun ástimda
heiðarleg og fagleg vinnubrögð við
stjórnun bæjarins.
Hrafnkell A. Proppé
Höf. skipar 5. sæti á lista Samjylk-
ingarinnar og óháðra á Akranesi.
Jafntefli í leik
Víkings og IR
Síðastliðinni laugardag, í ein- kepptu liðin sín á milli í fótbolta.
muna veðurbhðu tóku kapparnir úr Leikar fóra þannig að liðin skyldu
Víkingi Olafsvík á móti IR-ingum á jöfii, eitt mark gegn einu.
íþróttavellinum á Hellissandi og MM/ Ljósm. SA
Björtjramtíð
Faxaflóahafiia
Eitt af stefnumálum Framóknar-
flokksins á Akranesi fyrir síðustu
bæjarstjórnarkosningar var samein-
ing hafna við Faxaflóa í eitt fyrir-
tæki. Þetta markmið náðist eins og
flestir vita og aðild Akurnesinga að
fyrirtækinu Faxaflóahafnir sf. gefur
Skagamönnum tækifæri til að taka
þátt í mótun ffamtíðarstefnu og
uppbyggingu hafnanna á Akranesi,
Borgarnesi, Grundartanga og í
Reykjavík.
Mörg stór verkefni eru
framundan í hafnamálum svæðisins
en nú þegar eru verkin farin að tala.
Smábátalægi hefur nýlega verið
stórbætt á Akranesi og einnig fengu
Faxalóahafhir sf. nýlega úthlutað
lóð til að byggja á nýtt hús fyrir
fiskmarkað við höfnina á Akranesi.
Samkvæmt nýsamþykktu aðal-
skipulagi Akraneskaupstaðar er
stefnt að mikilli uppbyggingu hafn-
arsvæðisins frá því sem nú er. Gert
er ráð fyrir nýjum hafnargarði við
Skarfavör og nýjum uppfyllingum
út frá á Sementsgarði. Tekið er mið
af þeirri framtíðarsýn sem er í
stofnsamþykkt Faxaflóahafna sf.
þar sem segir að Akraneshöfn skuli
byggjast upp sem fiskihöfn.
Við Skagamenn höfum sett ffam
skýr markmið um uppbyggingu
hafnarsvæðisins á Akranesi sem
miðstöð fiskiskipa og landvinnslu
og að sú höfh skipi sér í ffemstu
röð fiskihafna á norðanverðu Atl-
antshafi. Að því munum við ffam-
sóknarfólk vinna í góðri samvinnu
við meðeigendur okkar í Faxaflóa-
höfnum sf..
Guðni Tryggvason,
skipar 3. sati á lista Framsóknar-
flokksins á Akranesi.
'f^etuútui^l.
Fáeinar athugasemdir við grein Arinbjöms Haukssonar
Borgarland ehf hefur undanfarin
fjögur ár unnið að uppbyggingu á
Borgarbraut 59 í Borgamesi. Ymsar
hugmyndir hafa verið viðraðar
varðandi þessa uppbyggingu m.a.
nú síðast íbúðabygging.
Borgarland ehf leitaði efrir kaup-
um á húsinu á Borgarbraut 57 og
kynnti hugmyndir um skipulag
Borgarbrautar 55-57 og 59. Ekki
var áhugi á þeim tíma hjá eigendum
þessara lóða að selja á því verði sem
Borgarland ehf taldi eðhlegt verð.
Því komst þessi hugmynd ekki í
ffamkvæmd. Það er því ekki í neinu
samræmi við raunveruleikan að
keyrt hafi verið á skipulagsbreyt-
ingar með einhverju offorsi.
Blekkingar á íbúafundi?
A íbúafundi kynnti Richard
Briem sýnar hugmyndir um skipu-
lag miðbæjarins. Við það er ekkert
að athuga axmað en að byggingar-
magn á lóðinni var jafh mikið eða
meira en Borgarland ehf gerir ráð
fyrir og ekki var séð hvernig leysa
ætti bílastæðamál. I kynningu sinni
gerði Richard m.a. ráð fyrir fjög-
urra hæða blokk við Kveldúlfsgötu
þ.e. íbúðarblokk sú sem Borgarland
ehf hefur hug á að byggja er tveim
hæðum hærri. Ekki var annað að
sjá í kynningu Richards að hann
notaði mismunandi stærðarhlutföll
til þess að láta sína hugmynd koma
betur út.
Skipulagslög
höfð að engu?
I bréfi Skipulagsstofnunar út af
auglýstu skipulagi Borgarbrautar
59 kemur skýrt fram að það er al-
geng venja að skipuleggja eina lóð
þegar ekki er fyrirhugað að byggja
á stærri reit. Þegar Borgarland ehf
fór af stað með sitt verkefni þá lá
ekkert annað fyrir en aðeins yrði
byggt á þessari einu lóð. Það er
því algjör rangfærsla hjá Arinbirni
að skipulagslög hafi ekki verið
höfð að leiðarljósi, enda segir í
niðurlagi bréfs Skipulagsstofnun-
ar: „Akveði bæjarstjórn hinsvegar
að birta auglýsingu um samþykkt
deiliskipulagsins í B-deild
Stjórnartíðinda þarf hún áður að
svara á fullnægjandi hátt frarn-
komnum athugasemdum og senda
svörin þeim er gerðu athugasemd-
ir. Stofnunin þarf að fá afrit af nýj-
um svörum bæjarstjórnar." Skv.
þessu er ekkert því til fyrirstöðu að
svara athugasemdum með eðlileg-
um hætti og auglýsa deiliskipulag-
ið.
Meginatriði bréfs Skipulags-
stofnunar er það að ófaglega hefur
verið staðið að málum hjá Borgar-
byggð en ekki ólöglega. Borgar-
land ehf er búið að vera í fjögur ár
að vinna að uppbyggingu á lóðinni
að Borgarbraut 59 og það er óá-
sættanlegt fyrir fyrirtækið að málið
skuli ekki klárað nú þegar. Fjöldi
einstaklinga hafa verið í stöðugu
sambandi sl. eitt og hálft ár og leit-
að eftir kaupum á íbúðum í vænt-
anlegu húsi. Ibúðarhúsnæði vant-
ar í Borgarnesi eins og kunnugt er.
Því er það skoðun forsvarsmanna
Borgarlands ehf að niðurstaða
Borgarbyggðar í málinu sé ekki á-
sættanleg. Það er búið að sam-
þykkja deiliskipulag fyrir þessa lóð
og ætti að vera einfalt mál fyrir
Borgarbyggð að klára málið, enda
er Borgarland ehf með bréf upp á
samþykkt þessa skipulags.
Borgamesi, 8. maí 2006
f.h. Borgarlands ehf
Guðsteinn Einarsson.