Skessuhorn - 10.05.2006, Síða 23
SSESSIÍHÖEI:
MIÐVIKUDAGUR 10. MAÍ 2006
23
Stuðningsmannafélagið
Skagamörkin í treyjum nr. 12
Þóröur Már Gylfason, formaður stuðningsmannafélgsins Skagamörkin
Skagamörkin heitir nýtt stuðn-
ingsmannafélag sem stofnað var í
samstarfi við rekstrarfélag mfl. ÍA
og Café Markar á Akranesi. For-
maður félagsins og forsprakkur
stofnunar félagsins er Þórður Már
Gylfason en auk hans sitja í stjórn
þeir Salvar Georgsson, Axel Freyr
Karlsson, Jón Valur Ómarsson og
Marinó Árnason. Njóta þeir
stjórnarmenn aðstoðar Sigrúnar
Ríkharðsdóttur en hún sér um
fjármál félagsins. Fleimasíða fé-
lagsins er komin í gagnið, á vef-
slóðinni: skagamorkin.com.
„Við erum á fullu að undirbúa
okkur fyrir sumarið og þetta er
búin að vera alveg brjáluð vinna,
en mjög skemmtileg. Að sjá nýtt
stuðningsmannalið verða að
veruleika er frábært. Við erum að
láta útbúa fyrir okkur treyjur, boli
og trefla og ætlum að koma sem
flestum á vellinum í gult. Fyrirtæki
tóku vel á móti okkur þegar við
fórum að afla auglýsinga á treyjur-
nar, bolina og í leikskrá í fjáröflun-
arskyni. Nýtt lukkudýr er í pöntun
sem að krakkarnir eiga bara eftir
að elska og dýrið á að vera kom-
ið heim á Skagarin fyrir ÍA-KR
leikinn þann 20. maí,“ sagði Þórð-
ur þegar blaðamaður hitti hann að
máli í síðustu viku.
Á stofnfundinum sem haldinn
var á Café Mörk sagði Þórður að
mikil stemning hafi verið og Ólaf-
ur Þórðarson þjálfari hafi fagnað
tilkomu félagsins og vonaðist
hann til að stuðningsfólk myndi
fjölmenna á velli landsins í sumar,
láta vel í sér heyra og hvetja sína
menn áfram. Einnig tók Óli það
fram að stuðingsmenn væru tólfti
maðurinn á vellinum og í fram-
haldi af orðum þjálfarans var
ákveðið að setja númerið 12 á all-
ar treyjur og boli sem stuðnings-
mannafélagið er að láta gera.
Stuðningsmannalag var flutt á
stofnfundinum og í texta lagsins
má finna slagorð félagsins; „Önn-
ur gullaldarár mættu skella nú á,
því við erum liðið, fá aðrir að sjá.“
Um tilkomu félagsins sagði
Þórður: „Fjöldi fólks hefur verið
að tala um að svona félag vant-
aði, en það fólk er nú samt fæst
búið að skrá sig í stuðnings-
mannafélagið og hvet ég alla til
þess að ganga í Skagamörkin og
styðja við bakið á okkar mönnum
með okkur. Við ætlum að gefa út
leikskrá fyrir hvern leik og tromm-
urnar okkar sem eru orðnar 14,
verða barðar vel á vellinum. Fyrir
leiki ætlum við að hittast á Café
Mörk og hita upp. Ég vil koma því
á framfæri að þetta verða fjöl-
skylduskemmtanir og verður
Mörkin reyklaus þegar við verðum
þar fyrir leiki. Bjóða á upp á rútu-
ferðir milli Café Markar og Akra-
nesvallar þegar heimaleikir eru,
en á leik ÍA-KR 20. maí verður far-
ið í skrúðgöngu á völlinn með nýja
lukkudýrið í fararbroddi.Við erum
búnir að fá ótrúlega góð viðbrögð
með félagið og þetta verður bara
gaman.“
Á fyrsta leik ÍA í Landsbanka-
deildinni þann 14. maí verður
boðið upp á fríar sætaferðir til
Grindavíkur. „Ég vona að við sjá-
um sem flesta á vellinum í sumar
og: Áfram ÍA!“ sagði Þórður að
lokum. SO
Leikmenn IA
Igor Pesic, 23 ára Ellert Jón Björnsson, 24 ára Dean Martin, 34 ára Þórður Guðjónsson, 33 ára, Páll Gfsli Jónsson, 23 ára Arnar Gunnlaugsson, 33 ára
fyrirliði
Guðjón Sveinsson, 26 ára Hafþór Ægir Vilhjálmsson, Högni Haraldsson, 20 ára Andri Júlíusson, 21 árs Kári Steinn Reynisson, 32 ára Guðmundur Böðvar
20 ára Guðjónsson, 16ára
Jón Vilhelm Akason, 20 ára
Heimir Einarsson, 19 ára
Kristinn Darri Röðulsson,
20 ára
Bjarki Guðmundsson, 30 ára
Hjörtur Hjartarson, 32 ára