Skessuhorn - 16.08.2006, Side 4
4
MIÐVIKUDAGUR 16. AGUST 2006
Sex sækja
um stöðu
skólastjóra
VARMALAND: Sex umsóknir
bárust um stöðu skólastjóra
grunnskólans á Varmalandi en
Flemming Jessen sem gegnt
hefur stöðunni um árabil sagði
henni lausri fyrir nokkru. Um-
sækjendur um stöðuna eru:
Björg Olafsdóttir Borgarbyggð,
Hreinn Þorkelsson Stykkis-
hólmi, Ivar Orn Reynisson
Borgarbyggð, Kristín Arnar-
dóttir Reykjavík, Sigfríður
Björnsdóttir Reykjavík og Þór-
unn María Oðinsdóttir Borgar-
byggð.
-hj
Þnr leikmenn
IA valdir á
úrtökumót
AKRANES: Þrír leikmenn á
yngra ári í 3.flokki IA, þeir
Björgvin Andri Garðarsson,
Viktor Ymir Elíasson og Skúli
Freyr Sigurðsson, hafa verið
valdir til þátttöku í árlegu úr-
tökumóti KSI og fer það fram á
Laugarvatni síðar í mánuðin-
um. A mótið eru kallaðir saman
efnilegustu drengir landsins
fæddir árið 1991 og voru að
þessu sinni valdir 60 leikmenn.
Mótið stendur yfir í þrjá daga.
-hj
Magnús Þór
þýðir Gaarder
LANDIÐ: Magnús Þór Haf-
steinsson alþingismaður hefur
tekið sig til og þýtt umdeilda
grein norska heimspekingsins
Josteins Gaarder á heimasíðu
sinni www.magnusthor.is Grein
Gaarder vakti mikla úlfúð bæði
í Noregi og víðar og hefur hann
nánast þurft að fara huldu höfði
eftir birtingu hennar. Bókafor-
lag í Israel hefur lýst því því yfir
að það sé hætt að gefa bækur
Gaarder út vegna óánægju með
greinina. I grein sinni fjallar
Gaarder um ástand mála í Lí-
banon og hefur hún ekki áður
birst í íslenskri þýðingu.
-kóp
Of margir
í fcíIliUÍÍl
BORGARNES: Mikil umferð
var um umdæmi lögreglunnar í
; Borgamesi um helgina og var
það mest fólk á leið til og frá
Pæjumóti á Siglufirði og
Fiskideginum mikla á Dalvík.
Umferðin gekk nokkuð greið-
lega en þó ekki án afskipta lög-
reglu. Okumaður jeppabifreið-
ar var stöðvaður og við skoðun
kom í ljós að of margir vora í
bílnum. Einungis fjögur sæti
voru í bifreiðinni en fimmti far-
þeginn lá innan um farangur í
farangursgeymslu bílsins. Var
sá, ungur piltur, fluttir af lög-
reglu til Borgarness og mun at-
vikið verða kært.
-kóp
Kristmn H. Gunnarsson býður
sig fram til ritara
Kristinn H. Gunnarsson alþing-
ismaður hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu um framboð til ritara Fram-
sóknarflokksins. Aður höfðu þeir
Haukur Logi Karlsson og Birkir
Jón Jónsson lýst yfir framboði sínu
til embættisins og eftir yfirlýsingu
Kristins bættist Sæunn Stefánsdótt-
ir í hópinn. Næstu helgi heldur
flokkurinn flokksþing sitt og verður
kosið til þriggja embætta, for-
manns, varaformanns og ritara.
Hér á eftir fer yfirlýsing Kristins.
Yfirlýsing um jramboð til emb-
ættis ritara Framsóknarflokksins.
A flokksþingi Framsóknarflokksins
um næstu helgi verður kosin ný for-
ysta. Ritari er einn af þremur kjóm-
um forystumónnum flokksins og fer
auk þess með forystu í innra starfi
hans með því að leiða landstjóm
Framsóknarflokksins, sem mótar
stefnuna um innra starfið.
Að vel athuguðu máli hef e'g á-
kveðið að bjóða mig fram og sækjast
eftir kjöri í ritarastarfið.
Vænlegasta leiðin til þess að snúa
vöm í sókn liggur í gegnum innra
starf flokksins með virkri þátttöku
hins almenna félagsmanns bæði í
málefnaáherslum og við val á for-
ystumönnum og frambjóðendum. I
Framsóknarflokknum eru um 10
þúsund félagsmenn og miklir sóknar-
möguleikar eru fólgnir í því að nýta
vilja og virkni hvers þeirra. Eftir
langt starf innan stjómtnálaflokks og
24 ára setu samtals í sveitarstjóm og
á Alþingi hef ég öðlast reynslu sem ég
tel að geti orðið gagnleg í því starfl
sem framundan er.
Eg legg áherslu á að Framsóknar-
flokkurinn er umbótasinnaður fé-
lagshyggjuflokkur sem starfar undir
kjörorðinu manngildi ofar auðgildi
og setur almenna hagsmuni ofar sér-
hagsmunum. Hófs þarf að gæta í
markaðs- og einkavæðingu, jafna á
lífskjör og gæta að tekjudreifingunni
í þjóðfélaginu. Sýna áherslur flokks-
ins á manngildið með áherslum á
velferðarmál fremur en skattalækk-
un.
14. ágúst 2006
Kristinn H. Gunnarsson
Guðbjartur Hannesson útilokar ekki
þingframboð
3Nú þegar styttast fer í Alþing-
iskosningar hefur farið af stað um-
ræða um hugsanlega frambjóðend-
ur. Norðvesturkjördæmi er þar
ekki undanskilið og nú þegar hafa
núverandi þingmenn Sjálfstæðis-
flokksins í kjördæminum lýst því
yfir að þeir muni sækjast eftir
áframhaldandi setu á ffamboðslista
flokksins í kjördæminu.
Samkvæmt áreiðanlegum heim-
ildum Skessuhorns hefur talsverð
umræða farið fram meðal Samfylk-
ingarfólks í kjördæminu um fram-
boðsmál og hugsanlega skipan
framboðslista flokksins. Hafa nöfn
ýmissa manna verið nefnd í því
sambandi. Einn þeirra sem nefnd-
ir hafa verið til sögunnar er Guð-
bjartur Hannesson skólastjóri
Grundaskóla á Akranesi og fyrr-
verandi bæjarfulltrúi.
I samtali við Skessuhorn sagðist
Guðbjartur kannast við þessa um-
ræðu. „Eg hef orðið var við þessa
umræðu en ég hef ekki verið á
leiðinni í þingffamboð. Eg tel hins
vegar nauðsynlegt að íbúar Akra-
ness eigi áffam verðugan fulltrúa á
Alþingi. Sé það skoðun Samfylk-
ingarfólks á Norðvesturlandi að ég
geti orðið að liði mun ég að sjálf-
sögðu skoða þann möguleika að
taka sæti á ffamboðslista flokksins
en ítreka það jafnframt að ég er í
krefjandi og skemmtilegu starfi
sem skólastjóri Grundaskóla og
hef ekki verið á förum úr því ágæta
starfi".
Eins og áður sagði er Guðbjart-
ur fyrrverandi bæjarfulltrúi á
Akranesi. Hann var bæjarfulltrúi á
árunum 1986-1998 og hefur í
gegnum tíðina gegnt fjölmörgum
trúnaðarstöðum á hinum pólitíska
velli sem og í öðru félagsstarfi.
Hann hefur verið skólastjóri
Grundaskóla ffá stofnun hans fyr-
ir nærri 25 árum. Skólinn hlaut
sem kunnugt er fyrstur skóla Is-
lensku menntaverðlaunin árið
2005.
Núverandi þingmenn Samfylk-
ingarinnar í Norðvesturkjördæmi
er Jóhann Arsælsson og Anna
Kristín Gunnarsdóttir. HJ
Margir vilja verða stjómendur
í Éorgarbyggð
Fyrir nokkru voru augiýstar iaus-
ar til umsóknar þrjár stöður stjóm-
enda hjá hinu nýja sveitarfélagi
Borgarbyggð. I fyrsta lagi var það
staða markaðs- og menningarfúll-
trúa og sóttu átta manns um þá
stöðu. Umsækjendur eru: Anna
Margrét Bjamadóttir Mosfellsbæ,
Asa S. Harðardóttir Borgarbyggð,
Asmundur R. Richardsson Reykja-
vík, Guðrún Jónsdóttir Borgar-
byggð, Hrefna Guðmundsdóttir
Mosfellsbæ, Olgeir Helgi Ragnars-
son Borgarbyggð, Steinn Kárason
Reykjavík og Magnús G. Eyjólfs-
son Borgarbyggð.
Þá var staða umsjónarmanns
eigna og ffamkvæmda auglýst laus
og um hana sóttu: Asgeir Rafnsson
Borgarbyggð, Elías Jóhannesson
Borgarbyggð, jón Friorik jónsson
Borgarbyggð, Jökull Helgason
Grundarfirði, Sturla Karlsson
Reykjavík, Trausti Jóhannsson
Borgarbyggð og eirm umsækjandi
sem óskaði nafnleyndar.
Um starf umhverfisfulltrúa sóttu
Björg Gunnarsdóttir Borgarbyggð,
Guðrún Bjarnadóttir Borgarbyggð,
Jón Benjamínsson Reykjavík og
Steinn Kárason Reykjavík.
Þá var einnig augiýst starf af=
greiðslufulltrúa á skrifstofu sveitar-
félagsins og um hana sóttu Elías Jó-
hannesson Borgarbyggð, Guðlaug
Einarsdóttir Borgarbyggð, Guðrún
Hulda Pálmadóttir Borgarbyggð,
Heiðrún Jónsdóttir Akranesi og
Þuríður Jóhannsdóttir Borgar-
byggð. Ráðið verður í stöðrunar
fljótlega.
HJ
Samþykkja stækkun kerskála
HVALFJARÐARSVEIT: Skipu-
lags- og byggingarnefnd Hval-
fjarðarsveitar samþykkti í síðasta
mánuði byggingarleyfi fyrir
stækkun kerskála C og D, 5.
áfanga. Við stækkunina mun árs-
framleiðsla fara úr 220.000 tonn-
um í 260.000 tonn. Samkomulag
fyrrum Hvalfjarðastrandarhrepps
og Skilmannahrepps við ríkisvald-
ið um byggingarleyfisgjöld stend-
ur. -kóp
Frá lögreglunm
AKRANES: 117 mál og verk-
efni komu til afgreiðslu lögregl-
unnar á Akranesi í síðustu viku.
Af þeim eru 44 verkefhi úr um-
ferðinni. 5 umferðaróhöpp voru
tilkynnt til lögreglu í vikunni
þar af voru tvö þar sem öku-
menn bifhjóla misstu stjórn á
hjólum sínum og lentu í göt-
unni. -so
Eldur við
úrbrædda bifreið
AKRANES: Síðasthðinn mánu-
dag var tilkynnt til lögreglunnar
á Akranesi um unga menn sem
væru að kveikja í bifeið við ræt-
ur Akrafjalls. Þegar að var gáð
reyndist nú ekki vera svo heldur
hafði bifreiðin brætt úr sér og
eldur kviknað undir henni.
Slökkvilið Akraness kom á stað-
inn og slökkti eldinn. -so
Meiddust lítið
AKRANES: Síðastdiðinn mið-
vikudag missti ungur ökumaður
stjóm á bifreið sinni á malarvegi
við Berjadalsá með þeim afleið-
ingum að hún hafnaði á hvolfi út
í ánni. I bifreiðinni voru öku-
maður og þrír farþegar sem
sluppu með minniháttar meiðsl.
Sjúkrabiffeið flutti ökumann og
farþega á Sjúkrahúsið á Akranesi
til skoðunar. Bifreiðin var flutt
af vettvangi með kranabifreið en
hjólabúnaður hennar var mikið
skemmdur. -so
Hestur prjónar
yfir sig...
BORGARFJÖRÐUR: Stúlka á
þrítugsaldri varð undir hesti sem
prjónaði með hana og féll síðan
við í útreiðartúr í Norðurár-
dalnum á mánudaginn síðasta.
Var stúlkan flutt til læknisskoð-
unar á sjúkrahús í Reykjavík en
talið var að hún hefði sloppið vel
miðað við aðstæður. -so
Frá lögreglunni
BORGARNES: Alls voru 55
teknir fyrir of hraðan akstur í
umdæmi lögreglunnar í Borgar-
nesi í síðustu viku. Sá sem hrað-
ast ók var ítalskur ferðamaður
sem mældist á 143 km. hraða og
varð hann að punga út 30 þús-
und krónum áður en hann gat
haldið för sinni áfram og þá
væntanlega á heldur minni
hraða. Þá voru tveir teknir fyrir
ölvtm við akstur í vikunni.
-so
Tveir brunar hjá
Norðuráli
HVALFJÖRÐUR: Tveir brun-
ar urðu í álverksmiðjunni hjá
Norðuráh í síðustu viku.
Minniháttar bruni varð mið-
vikudaginn 9. ágúst og heldur
meiri daginn eftir þegar skamm-
hlaup varð í keri nr. 5 í kerskála
B sem olli því að kerið sprakk.
Engin slys urðu á fólki en tölu-
verðar skemmdir á tækjabúnaði.
-so
Bjarnarbraut 8 - Borqarnesi Sími: 433 5500
Kirkjubraut 54-56 - Ákranesi Fax: 433 5501
Skessuhom kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga
er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta
auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til
12:00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í
lausasölu.
Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200
sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950.
Verð í lausasölu er 400 kr.
SKRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLAVIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is
Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is
Sigurbjörg Ottesen 868 0179 sibba@skessuhorn.is
Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhom.is
Umbrot: Guðrún Björk Friðriksd. 437 1677 gudrun@skessuhorn.is