Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 22
22 MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 jftU»uhukji UNGLINGALANDSMÓTIÐ Á LAUGUM 2006 Keppendur UDN stóðu sig með sóma Keppendur og aðstandendur frá Ungmennasambandi Dala- manna og Norður Breiðfirðinga skemmtu sér konunglega á Ung- lingalandsmótinu á Laugum og voru mjög ánægðir með mótið í ár. Alls fóru 26 keppendur að þessu sinni og stóðu sig allir með sóma. Sigurður Bjarni Gil- bertsson sigraði í kúluvarpi 13 ára pilta en hann kastaði kúlunni 11,37 metra. Keppendur UDN bönkuðu á verðlaunadyr í öðrum greinum í frjálsum íþróttum. Gunnlaug Birta Þorgrímsdóttir fékk 1. verðlaun í Glímu 11-12 ára stelpna en hún var eini kepp- andinn og keppti því við 2 stráka í sínum aldursflokki og skellti þeim báðum í gólfið og stóð uppi sem sigurvegari. Systkinin Magnús Bjarki og Elín Margrét Böðvarsbörn stóðu sig einnig vel í glímunni en Magnús varð í 3. sæti 11-12 ára stráka og Elín í 4.sæti 13-14 ára stelpna. í sundinu varð Óskar Samúel Ingvarsson í 6.sæti í 50 m skrið- sundi 13-14 ára drengja. Sigur- dís Egilsdóttir varð í 6.sæti í 100 m bringusund telpna 13-14 ára og í 4.sæti í 50 m bringusundi. SO Fjör hjá liði UMSB á mótinu Alls voru skráðir 57 keppendur frá UMSB á unglingalandsmót- inu. Lið UMSB í frjálsum íþróttum var skipað 20 krökkum og í heild má segja að árangur hafi verðið góður hjá þeim. UMSB átti tvo unglingalands- mótsmeistara í frjálsum íþróttum, Björgvin Hafþór Ríkharðsson, 13 ára, hann varð í fyrsta sæti í 800 m hlaupi og þriðji í hástökki. Björk Lárusdóttir 11 ára, varð í fyrsta sæti í 600 m hlaupi og þriðja í hástökki. Sigmar Aron Ómarsson, 12 ára, varð þriðji í 600 m hlaupi, Hera Sól Haf- steinsdóttir, 11 ára, varð önnur í hástökki. Arnar Hrafn Snorra- son,14 ára, varð þriðji í hástökki. Bergþór Jóhannesson varð þriðji í kúluvarpi í flokki 15-16. ára og Einar Örn Guðnason í sama flokki varð í öðru sæti í spjótkasti. Fjögur lið frá UMSB kepptu í körfubolta. 11 og 12 ára strákar unnu alla sína leiki og urðu því unglingalandsmótsmeistarar. Það gerðu 15 - 18 ára stúlkur einnig og urðu því unglingalands- mótsmeistarar í sínum flokki. 13 - 14 ára stúlknaliðið varð í þriðja sæti og 13 - 14 ára strákar í fjórða sæti. Fjórir keppendur voru frá UMSB í skák. í 15- 16 ára flokki varð Tinna Kristín Finnbogadótt- ir unglingalandsmótsmeistari. Jóhann Óli Eiðsson varð annar í 13-14 ára flokki og Auður Eiðs- dóttir varð önnur í flokki 11-12 ára. Fjölnir Jónsson varð fjórði í flokki 14-15 ára. Alls kepptu 35 krakkar í knatt- spyrnu á vegum UMSB. Bestum árangri náðu stelpurnar 13-14 ára. Þær gerðu eitt jafntefli en sigruðu alla aðra leiki og urðu því unglingalandsmótsmeistarar. Þátttakendur voru 7 frá UMSB á sundmótinu og voru synt 31 einstaklingssund. Auk þess tók sundfólk frá UMSB þátt í boð- sundum með öðrum félögum en ekki náðist að manna sveitir ein- göngu með keppendum frá UMSB. Helstu úrslit hjá sundfólki UMSB er eftirfarandi: ísfold Grétarsdóttir varð ung- lingalandsmótsmeistari i 100 m bringusundi 11-12 ára og þriðja í 50 m bringusundi. Þórkatla Dag- ný Þórarinsdóttir varð unglinga- landsmótsmeistari í 100 og 50 m bringusundum í flokki 13 -14 ára Ottó Hlíðar Gunnarsson varð unglingalandsmótsmeistari í 50 m baksundi og 200 m. skriðsundi í flokki 11 og 12 ára. Hann varð annar í 200 m fjórsundi og þriðji í 50 flugsundi.Sigurður Þórarins- son varð annar í 200 m. skrið- sundi í flokki 15-18 ára. Björg Guðlaugsdóttir varð önnur í 50 m. skriðsundi, og 50 m baksundi og þriðja í 100 m. bringusundi í flokki 15-18 ára. Bjarnfríður Magnúsdóttir varð þriðja í 50 m. skriðsundi í flokki 15-18 ára. Einn keppandi frá UMSB tók þátt í glímu, það var Hafþór Freyr Snorrason 12 ára og varð hann fimmti í sínum flokki. SO HSH með 44 keppendur á mótinu Frá HSH voru 44 keppendur voru að þessu sinni skráðir á Unglingalandsmótið á Laugum, 17 í frjálsar, 5 í sund, 4 lið í knatt- spyrnu, 2 lið í körfubolta og auk þess léku nokkrir unglingar í blönduðum liðum í körfubolta. Þar að auki fylgdu foreldrar, systkini og fararstjórar. Kepp- endur HSH voru í alla staði til fyr- irmyndar á meðan mótinu stóð og fór svo að við mótsslit var lið HSH útnefnt prúðasta lið móts- ins og fengu keppendur afhent- an Fyrirmyndarbikar ULM. Svo skemmtilega vill til að HSH fékk þennan bikar einnig árið 1995 á Blönduósi. Arnar Þór Hafsteinsson 11 ára sigraði í langstökki í sínum ald- ursflokk og varð því Landsmós- meistari en Arnar Þór lenti einnig í 2. sæti í 60 m. og 600 m. hlaupi. Snjólfur Björnsson 12 ára varð þrefaldur Landsmótsmeist- ari er hann sigraði í hástökki, langstökki og í 4 X 100 m. boð- hlaupi með blandaðri sveit, einnig lenti hann í 2. sæti í 60 m. hlaupi og varð í 2. sæti í kúlu- varpi. Hermann Þór Haraldsson 13 ára varð í 3. sæti í spjótkasti og langstökki. í sundinu sigraði Hildur Björg Kjartansdóttir 12 ára, bæði í 4 X 50 m. skriðsundi og fjórsundi með blandaðri sveit og sveit HSH, skipuð Guðrúnu Erlu Ólafsdóttur, Hrefnu Rós Lár- usdóttur, Hildi Björg Kjartans- dóttur og Berglindi Gunnarsdótt- ur lenti í 3. sæti í 4 X 50 m. skrið- sundi. 13-14 ára stúlkur í HSH lentu í 3. sæti í knattspyrnu, drengir 13- 14 ára lentu í 2. sæti og drengir 15-16 ára lentu í 3. sæti. Stúlkur 15-18 ára í blandaðri sveit HSH og UMSB urðu Landsmóts- meistarar í körfubolta, í 2. sæti urðu drengir í blandaðri sveit HSH og þriggja annara sveita og drengir 15-16 ára lentu í 3. sæti í körfunni. SO Sveitakeppni GSI á Hamarsvelli Sigursveitin í sveitakeppni GSÍ2006 í 4. deild, sveit Golfklúbbs Kiðjabergs. Sveitakeppni GSÍ 2006 í 4. deild var haldin á Hamar- svelli í Borgarnesi dagana 12. og 13. ágúst sl. í góðu veðri. Sveitir Golf- klúbbsins Kiðja- bergs og Golf- klúbbs Borgarness færast upp í 3. deild eftir mótið. Þess má geta að í sveit Kiðjabergs voru tveir innfæddir Borgnesingar, þeir Haraldur Már Stefánsson og Hlynur Þór Stef- ánsson en faðir þeirra Stefán Har- aldsson keppti einnig fyrir sveit Golfklúbbs Borgarness. SO Urslit f Sveitakeppni GSl í 4. deild: 1. Golfklúbbur Kiðjabergs - GKB 635 2. Golfklúbbur Borgarness - GB 648 3. Golfklúbbur ísafjarðar - GÍ 659 4. Golfklúbbur Þverá - GÞH 666 5. Golfklúbburinn Mostri - GMS 680 6. Golfklúbbur Seyðisfj. - GSF 717 7. Golfklúbbur Siglufj. - GKS 736 8. Golfklúbbur Fatreksfj. - GF 774 9. Golfklúbburinn Vík - GKV 794 Kátir Borgfirðingar á Króksmóti 6. flokkurA-lið með Finnboga Vikari Guðmundssyni þjálfara og Björgvini Ríkharðssyni aöstoðarþjálfara. Skallgrímur úr Borgarnesi sendi lið til þáttöku á Króksmótinu um síðastliðna helgi. Liðið tók þátt í 7.flokki A - liða og 6.flokki A- og B - liða. 6.flokkur A - lið stóð sig frábærlega og náði 3.sæti í mjög sterkri A - liða keppni, á eftir Haukum og KA. Strákarnir þóttu spila mjög góða knattspyrnu og skemmtu áhorfendum með leiftr- andi og skemmtilegu spili. 6.flokkur B - lið og 7.flokkur A - lið stóðu sig líka vel þó úrslitin hafi ekki verið eins og best verð- ur á kosið, enda við sterka and- stæðinga að etja. Stákarnir börð- ust þó eins og hetjur og gáfust aldrei upp. Þeir spiluðu heiðar- lega og framkoma þeirra og for- eldra var til fyrirmyndar. Átti þetta við um öll lið hjá Skallagrím. Strákarnir sem íóku þátt í Króksmótinu eiga heiður skilinn fyrir glæsilega framistöðu og góða framkomu, jafn á vellinum sem utan vallar. Þeir hafa lært mikið í sumar og hafa æft af miklu kappi, hafa lært að standa saman sem hópur og gefast aldrei upp. Og síðast en ekki síst að æfingin skapar meistarann. ö.flokkur B - lið er komið í 8 - liða úrslitakeppni á Pollamót KSÍ og fer keppnin fram í Fagralundi í Kópavogi, helgina 19.- 20.ágúst. Þeir leika við ÍBV klukkan 16:00 og Hauka klukkan 18:40 þann 19. ágúst og HK klukkan 12:30 20. ágúst. Það þarf varla að taka fram hversu glæsilegur árangur þetta sé hjá 6.flokki B - lið að komast í 8 - liða úrslit á Pollamóti KSÍ. KÓP Hestaþing Snæfellings Keppendur í barnaflokki á Hestaþingi Snæfellings. Hestaþing Snæfellings var haldið á Kaldármel- um 12. ágúst sl. í blíð- skapaveðri. Mótið var opið öllum félagsmönn- um í hestamannafélögum á Vesturlandi. Þáttakend- ur komu frá Snæfellingi, Glað, Faxa og Skugga. Þáttaka var nokkuð góð en þó minni en undan farin ár og er helsta skýr- ingin sú að mótið er hald- ið seinna en venja er. Mótið tókst engu að síð- ur mjög vel og var keppnin drengileg og skemmti- leg. Knapi mótsins var valinn Lár- us Ástmar Hannesson úr Stykkis- hólmi sem eins og oft áður var með hesta í verðlaunasætum í vel flestum greinum. Hestur mótsins var valinn Draumur frá Gilsbakka sem er í eigu Lárusar og fjöl- skyldu. Hryssa mótsins var valin Hetta frá Útnyrðingsstöðum, eig- andi hennar er Kolbún Grétars- dóttir. Á mótinu var einnig afhent- ur farandgripur sem gefinn var af Leifi Kr. Jóhannessyni fyrir all- mörgum árum. Hann er afhentur árlega þeim félagsmanni sem þykir hafa unnið vel fyrir félagið og náð góðum árangri í keppni, ræktun, félagsstarfi eða öðru því er stjórn félagsins telur virðingar- vert. Að þessu sinni var það Gísli Guðmundsson hrossabóndi í Hömluholti sem að hlaut gripinn. Úrslit mótsins uðru þessi: A flokkur 1. Siguroddur Pétursson og Kápa frá Kaðalsstöðum 1, 8,29 2. Lárus Ástmar Hannesson og Gyðja frá Bjarnarhöfn, 8,21 3. Anna Dóra Markúsdóttir og Eld- hamar frá Bergi, 7,97 B flokkur 1. Siguroddur Pétursson og Arnljót frá Bergi, 8,40 2. Lárus Ástmar Hannesson og Draumur frá Gilsbakka, 8,29 3. Anna Dóra Markúsdóttir og Sjón frá Bergi, 8,20 Ungmennaflokkur 1. Sóley Birna Baldursdóttir og Fálki frá Múlakoti, 8,23 2. Guðmundur Margeir Skúlason og Örlátur frá Hallkelsstaðahlíð, 8,07 Unglingaflokkur 1. Ingólfur Örn Kristjánsson og Hetta frá Utnyrðingsstöðum, 8,35 2. Brá Atladóttir og Marri frá Ólafsvík, 7,99 3. Haukur Magnússon og Ferill frá Mýrdal 2, 7,98 Gísli Gíslason bóndi í Hömluholti hlaut Þotubikarinn á mótinu, hann situr hér hryssuna Gyllingu frá Þór- eyjarnúpi. Barnafiokkur 1. Hrefna Rós Lárusdóttir og Rauð- hetta frá Magnússkógum, 8,13 2. Þórdís Fjeldsteð og Vinur frá Akra- nesi, 8,13 3. Aldís Sunna Jónsdóttir og Urð frá Hítarnesi, 7,96

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.