Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 17

Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 17
^oustnuu i MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 17 Stefiit að afliendingu fjölnota- íþróttahúss 1. september Fjölnota íþróttahúsið sem er í byggingn á Jaðarsbökkum á Akra- nesi verður að öllum líkindum tek- ið í formlega notkun laugardaginn 2. september að sögn Harðar Kára Jóhannessonar rekstrarstjóra íþróttamannvirkja Akraneskaup- staðar. Eins og ffam hefur komið í fréttum Skessuhorns var upphaf- lega stefht að vígslu hússins í vor og í fyrstu voru nefndar dagsemingar í maí. Síðar var stefht að vígslu 17. júní og enn síðar 8. júlí. Að sögn Harðar stefnir verktakinn nú að af- hendingu hússins þann 1. septem- ber. Hann segir að að undanfarnar vikur hafi vinna við lóð hússins taf- ið afhendingu en áður tafðist bygg- ing hússins af ýmsum orsökum. í upphafi var áætlað að kostnaður við byggingu hússins yrði um 375 milljónir króna en í apríl var áætlað að kostnaðurinn yrði um 430 millj- ónir króna en þá höfðu verið gerð- ar breytingar á búnaði hússins sem kallaði á aukinn kosmað. Aðalverk- taki við byggingu hússins er SS verktakar. HJ T^mninn^í Framsókn á krossgötum Þá er komið að því að flokkseigenda- klíka Fram- sóknarflokks- ins vakni, vilji hún ekki að flokkurinn lognist út af. Þetta er jú allt í þeirra höndtxm. Það halda þeir að minnsta kosti. Það er grátlegt ef flokkurinn gerir ekki upp fortíð sína á þessum komandi flokksfundi, hreinsar borðið og kemur hreinn og beinn til næstu kostninga. Núna í morgunsjónvarpinu, Island í bítið, var varaformaður Framsóknarflokksins spurður af hverju hann gæfi ekki kost á sér í fyrsta sætið. Hann sagði að það væri bara einn sem gæfi kost á sér þar. Það er greinilegt að maðurinn les hvorki blöð né horfir á sjónvarp eða hlustar á útvarp og hlýtur að vera mjög vinafár vegna þess að flestdr landsmenn vita að ég er í framboði. Eg er að gefa framsóknarmönnum valmöguleika á framtíð til ffamfara. Eg bið þig sem lest þetta og kannast við varaformanninn að vekja hann úr mókinu og láta hann vita að það er enn von fyrir flokkinn. Eg var ungur heillaður af sam- vinnuhugsjóninni og mér rermur til rifja sú spilling sem hefur hreiðrað um sig í Framsóknarflokknum. Þetta er eins og hvert annað illgresi sem kæfir allan góðan gróður. Framsóknarflokkurinn mótaðist af ungmannafélagsanda aldamótakyn- slóðanna. Núna virðast allar hug- sjónir gleymdar og samvinnuhug- sjónin orðin að samtryggingarpóli- tík flokksgæðinga. Eg er búinn að vera erlendis lengi og hef ekld fylgst með íslenskri póhtík ffá degi til dags. Skil sannast sagna ekkert í þeim doða sem hvílir yfir þjóðinni. Hef heyrt talað um spillingu í Thaflandi og Laos en hún kemst ekki í hálfkvistd við þá spilhngu sem viðgengst hér þar sem ríkisfyrirtæki eru seld langt undir markaðsverði á sama tíma og stjórnmálaflokkar komast upp með að halda fjármálum sínum leyndum. Sögusagnir ganga um að við séum að selja raforku undir markaðsverði og peningamir renni í vasa hliðhollra flokka. Þessu hefur verið haldið leyndu fyrir þjóð- inni þó hún eigi kröfu að vita allan sannleikann. Kæru flokksbræður og -systur, við munum mörg hafa tárast yfir sög- unni af lambi fátæka mannsins, sem var slátrað til að lenda á veisluborði höfðingja, og heitið því að eiga aldrei hlut að slíkum verknaði. En hvemig hefur okkur tekist að efiia það heit? Ef til vill finnst einhverjum óþægilegt að rifja það upp en hjá því verður ekki komist. Jesú Kristur sagði að sannleikurinn gerði okkur ffjáls og það ber að segja hverja sögu eins og hún er: Fomum rétti bænda á sjávarjörðum hefur nýlega verið fómað og tilvera heilla byggðarlaga hefur verið sett í uppnám til þess eins að útvaldir geti leigt kvóta eða selt fyrir hundruðir milljóna. Samkvæmt Gini-stuðlinum, sem er alþjóðlegur mælikvarði á ójöfin- uði, hefur aldrei verið meiri tekju- mismunur á Islandi og er hann einn sá hæsti í Evrópu. Minnir á lönd þar sem menn hefja skæruhernað til að rétta hlut sinn. Þetta gerðist í tíð nú- verandi ríkisstjómar og að hluta til undir forystu okkar framsóknar- manna. Margt bendir til þess að þrá flokkseigendafélagsins effir völdum sé slík að hún hafi ekki bara tapað velsæmi heldur öllu jarðsambandi við venjulegt framsóknarfólk, nægir þar að nefna Iraksstríðið, fjölmiðla- málið og kvótamálið. Þannig yppta þeir góðlátlega öxl- um yfir furðulegum hugmyndum Björns Bjarnasonar um hlerunar- deild lögreglu En þeim fjánnunum væri til dæmis betur varið með því að efna samninga við öryrkja. Mörgum þykir okkur hafa borið af leið, því í stefnuskrá Framsóknar- flokksins, sem ég er stoltur af, stend- ur í fyrstu grein: „I. Þjóðfélagsgerð Við viljum áffam byggja upp þjóðfélag á grunngildum lýðræðis, persónufrelsis, jafiiræðis og samfé- lagslegrar ábyrgðar." Framsóknarflokkurinn átti á árum áður ýmist ffumkvæði eða stóran hlut í mörgum helstu ffamfaramál- um þjóðarinnar. Sem Islendingur og ffamsóknarmaður lít ég stoltur til afreka genginna forystumanna flokksins. Við megum ekki láta hendur falla þó forystan hafi tímabundið villst af leið. Framsóknarflokkurinn er lýðræð- islegur flokkur og það er okkar skylda að rétta stefnuna þjóðinni til heilla. Eg finn til þeirrar skyldu og býð mig ffam til forystu í flokkntun. Verði ég kjörinn mun ég gegna þessu ábyrgðarmikla starfi af heiðar- leika, virðingu og auðmýkt í þágu allra landsmanna. Haukur Haraldsson Höfundur býður sigfram semfor- mann Framsóknarflokksins. f^enninn^.. Skólamir bytja Á þessum árstíma er margt fólk að endurskipu- leggja sitt dag- lega lff sérstak- lega með tilliti til þess að nú eru skólamir að byrja. Sumir nemendur eru að færast milli skólastiga t.d. ffá leikskóla yfir í grunnskóla eða ffá grunnskóla yfir í framhaldsskóla, eru að hefja há- skólanám eða að byrja á leikskóla. Margir eru á þessu hausti að fóta sig í nýju íbúðahverfi eða nýju húsnæði á öðru svæði en þeir eru vanir. Flest sveitafélög hafa fyrirhyggju hvað þessar þjóðlífsbreytingar varð- ar og er þá aðallega verið að huga að öryggi bama í umferðinni og vegfar- endur beðnir að taka tillit til að- stæðna en það er að ýmsu fleiru að hyggja. Starfsemi foreldrafélaga og for- eldraráða í grannskólum landsins liggur að mestu niðri yfir hásumarið en strax effir verslunarmannahelgi er hafist handa við undirbúning hauststarfsins. Þá era foreldrar nýrra nemenda boðnir velkomnir í for- eldrafélögin og bekkjarfulltrúar taka til starfa. Yfirleitt era bekkjarfulltrú- ar kosnir á námskynningum á haustdn en margir skólar halda nú aðalfundi á vorin og hafa skipulagt að vori upphaf skólans hvað for- eldrasamstarfið varðar. Foreldraráð sem starfa skv. lögum með skólastjórum yfirfara skóla- námskrár, stundatöflur og huga að viðurværi og velferð bama í grunn- skólum s.s. öryggi skólabama sem gott er að huga að einmitt við upp- haf skólans og laga það sem bemr má fara. Umsjónarkennarar era með við- talstíma sem oftast er getið um í stxmdaskrá nemenda og skóladagatal og innkaupalist er oft hægt að sjá á heimsíðum skóla jafnvel fyrir skóla- setningu. Auk þess starfa skólahjúkr- unarfræðingar og námsráðgjafar innan skólanna og geta foreldrar leitað til þeirra á auglýstum viðtals- tímum. Heimih og skóli, landssamtök for- eldra beina þeim tilmælum til for- eldra að huga vel að bömum sínum sem mörg hver hafa byggt upp væntingar eða kannski kvíða. Sam- tökin vilja einnig hvetja foreldra til að taka virkan þátt í foreldrasam- starfi. Rannsóknir sýna að mikill á- vinningur er af þátttöku foreldra í skólastarfi og góðri samvinnu heim- ila og skóla. Milli þessara aðila þarf að ríkja trúnaður og jákvætt viðmót. Samtökin hvetja foreldra til að leita sér upplýsinga um hvaðeina er varð- ar skólagöngu bamsins hjá starfs- fólki skóla, hjá ffæðsluyfirvöldum sveitarfélaganna eða á heimasíðu samtakanna. www.heimiliogskoli.is. Helga Margrét GuSmundsdóttir, verkefnastjóri Heimili og skóli - lands- samtök foreldra. — BÍLAMÁLUN 0G RÉTTINGAR Bílverk GJ Akursbraut 11 - 300 Akranes - Sími: 430 0708 ATVINNA Bifreiðasmiður/bílamálari óskast til starfa sem fyrst. Upplýsingar í síma 430-0708 og 698-3359 Tónlistarskóli Borgarfjarðar Borgarbraut 23 - 310 Borgarnes - Sími: 437 2330 INNRITUN Tekið verður við nýjum umsóknum í Tónlistarskóla Borgarfjarðar, að Borgarbraut 23 Borgarnesi og í síma 437 2330 þriðjudaginn 22. ágúst frá kl. 14:00 - 18:00. Skólastjóri Tilkynning Sjúkraþjálfun í Borgarnesi Helga Ágústsdóttir, sjúkraþjálfari, mun hefja störf þann 21. ágúst 2006 að Borgarbraut 65 í kjallara Dvalarheimilisins. Veitt er meðferð og ráðgjöf til heilsueflingar í samráði við tilvísandi lækni. Tímapantanir eru í síma 437-1035 og 899-8035. 3 fyrir 2 af öllum útsöluvörum Þú færð ódýrustu flíkina fría ma uom KIRKJUBRAUT 2 • AKRANESI SÍMI431 1753 & 861 1599 * * ♦ -4 9

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.