Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 7

Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 7
.iSESSíiHöBE MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 7 tíma. Síðan fannst mér þetta bara svo gaman.“ Hverju sem um var að kenna þá er víst að Finnur Torfi fékk áhuga á ýmsum lögfræðileg- um spursmálum. „Eg var um tíma í stjórn Skotveiðifélags Islands og við vorum að velta fyrir okkur rétti okkar til veiða í landinu. Þá komu upp ýmis lögfræðileg álitamál sem ég hygg að hafi átt þátt í því að ég fór í lögfræðina," segir hann. Það er hins vegar ekki allt sem heillar Finn við lögfræðina, sumir þættir hennar skipta hann meira máli en aðrir. „Eg hafði áhuga á eignarétti, ekki síst landréttindum almennings, almannarétti. Kröfu- réttur sem sumir lögfræðingar telja þungamiðju lögfræðinnar fannst mér alltaf einhvers konar við- skiptafræði." Aðspurður um þjóð- lendulögin sem hafa verið í deigl- unni undanfarin ár, en þar er tekist á um eignarréttinn, segist Finnur ekki mjög hrifinn af því. „Mér fannst þetta vera fínt eins og það var að til væru eigendalaus lönd, þannig hafði það verið frá upphafi, og mér fannst ekki nauðsynlegt að stofna þjóðlendur í eigu ríkisins. Ríkið hafði allar heimildir til að nýta sér löndin, t.d. til virkjana. Það var í sjálfu sér ágætt að fá úr því skorið hvað væru eignarlönd og hvað eigendalaus svæði, en til þess þurfti ekki að stofha þjóð- lendur.“ Líf mannsins í náttúrunni Árið 1989 gaf Finnur Torfi út sína fyrstu ljóðabók, Einferli. Þeg- ar hann er spurður að því hvers vegna hann hefði ekki gefið út ljóð fyrr á ævinni segist hann líklega hafa verið seinþroska í þessu eins og öðru. „Það er hins vegar gríðar- lega erfið ákvörðun fyrir fullorð- inn mann að gefa út ljóðabók," segir hann. „Ljóð eru mjög per- sónubundin og uppsprottin af einkanlegum til- finningum. Að gefa út ljóðabók er að bera tilfinn- ingar sínar á torg og það er svolítið erfitt. En þegar maður hefur gert það og fær þokkalegar við- tökur líður manni betur á eftir.“ Finnur Torfi segist alltaf hafa ort en kannski ekki stöðugt og af mikilli alvöru fyrr en fyrsta bókin kom út. Nú hafa komið út fimm ljóða- bækur eftir hann og sú nýjasta, Myndir úr vík- inni, hefur að geyma stemn- ingsmyndir úr Englendingavík þar sem hann býr. Finnur segir að margir hafi komið að máli við hann þegar hann hætti sem dómari og spurt hvort hann mundi ekki flytja suður en hann sjái enga ástæðu til þess. „Eg á ekki bara heima í húsi hérna, ég bý í lifandi náttúru og er orðinn hluti af þessu lífi með ýmsum hætti. Eg renni fyrir fisk í fjörunni, ræ út á bát og sé um æðarvarp fyr- ir björgunarsveitina í Litlu-Brák- arey. Mér fellur svo vel hér að ég hef ekki hugsað mér að fara neitt, þó það gerist kannski einhvern tímann, hvað veit ég?“ Finnur Torfi segir að náttúran skipti sig gríðarlega miklu máli og þess sér stað í ljóðum hans. „Meg- instefið í ljóðum mínum eru líf mannsins í náttúrunni. Mér er Horftyfir Englendingavík. þannig farið eins og mörgum að mér ofbýður yfirgangurinn gegn náttúrunni, þetta er eins og fleinn í holdi manns. Það þarf að nást sátt um nýtingu á landinu án þess að náttúruverðmætum sé spillt í stór- um stíl. Þjóðin öll þarf að ná sátt,“ segir Finnur. Og ekki bara hvað varðar náttúruna. „Mér ofbýður þessi misskipting auðs og efnislegra gæða sem er í landinu og held að það sé mjög brýnt verkefni fyrir stjórnmála- menn að reyna að hamla gegn henni. Mörg þúsund manns hafa nú meiri tekjur af fjármagni sínu en af launum og margir eru ein- göngu með fjármagnstekjur. Hvaðan kemur þessu fólki þessi auður? Getur verið að þetta sé eitthvað annað en það sem vinn- andi fólk skapar með blóði sínu, svita og tárum? Ég minnist þess að kaþólska kirkjan taldi á miðöldum að það væri ósiðlegt að taka arð af dauðu fé. Svo fá menn arð af kvóta sem þeim var úthlutað og þurfa ekki að vinna fyrir. Þetta er í hróp- legu ósamræmi við réttlætiskennd alls þorra manna. I gegnum tíðina hefur minn aflvaki ekki verið þau laun sem ég hef þegið fyrir störf mín, þó þau skipti stundum máli, heldur ánægjan af því að verða að gagni, að gera meðborgurum mín- um gott. Þetta býr í flestum ef ekki öllum, ekki síst þeim sem vinna umönnunar- og þjónustustörf." segir Finnur Torfi Hjörleifsson að lokum. -KÓP Ljósm.: Finnur Torfi Hjörleifsson. Borgarbyggð, f.h. Orkuveitu Reykjavíkur, Símans og Rarik, óskar eftir tilboðum í verkið: Gatnagerð og lagnir í Borgarnesi Ugluklettur Verkið er fólgið í lagnavinnu og gatnagerð. Fyrir Borgarbyggð skal jarðvegsskipta í byggingareit leikskóla og leggja götur og plön. Fyrir Orkuveitu Reykjavíkur skal leggja holræsi, vatnslagnir, einfalt dreifikerfi hitaveitu og fdráttarrör fyrir Ijósleiðara. FyrirSímann skal leggja plaströr og strengi í sameiginlega skurði. Fyrir Rarik skal sjá um jarðvinnu í sameiginlegum lagnaskurðum. Helstu magntölur eru: Gröftur........................... 4.000 m3 Bergskeringar....................... 800 m3 Fyllingar........................ 11.500 m3 Holræsalagnir....................... 200 m Vatnslagnir.......................... 150 m Hitaveiturör DN20-DN50.............. 300 m Fjarskiptarör 012-50................ 400 m Sfmalagnir, stofnrör 0 75............ 460 m Símalagnir, strengir............... 1.500 m Malbik............................ 3.400 m2 Kantsteinn.......................... 600 m _ Skiladagar verksins koma fram í útboðsgögnum. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14, 310 Borgarnesi. Verð útboðsgagna er kr.5.000. Tilboð verða opnuð á sama stað, mánudaginn 28. ágúst 2006, kl 14:00 Sviðsstjóri framkvæmdasviðs Borgarbyggðar Verslunarrekstur og húsnæði til sölu á Reykhólum Auglýst er til sölu 72 fm. verslunarhúsnæði og rekstur dagvöru- verslunar á Reykhólum í Austur Barðastrandasýslu auk umsjónar með bensínafgreiðslu fyrir Olíufélagið ESSO. Gott tækifæri fyrir samhent og kraftmikil hjón sem vilja reka sjálfstæða starfssemi. Tilboð óskast Farið verður með allar upplýsingar sem trúnaðarmál. Áhugasamir vinsamlegast hafi samband við Jón Kjartansson í síma; 434 7890 eða 892 3830 fyrir 7. september nk

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.