Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 15

Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 15
SSESSíMöEK MIÐVIKUDAGUR 16. ÁGÚST 2006 15 Samningur um könnun á ímynd Vesturlands Grétar Þór Eyþórsson forstöðumaSur RannsóknarmiSstöðvarinnar á Bifröst og Helga Halldórsdóttir formaó- ur SSV haldsala samninginn eftir undirritunina. Á síðastliðinn þriðjudag undirrit- uðu Helga Hall- dórsdóttir, formað- ur SSV og Grétar Þór Eyþórsson, for- stöðumaður Rann- sóknarmiðstöðvar- innar á Bifröst sam- starfssamningur um könnun á ímynd Vesturlands í augum íbúa höfuðborgar- svæðisins. Undir- skriftin fór fram á Hótel Hamri Borgarnesi. Úrtakið eru 1500 einstak- lingar sem fá senda póstkönnun þar sem spurt verður um viðhorf þeirra til Vesturlands í þrjátíu spurningum. Rannsóknar- miðstöðin sér um alla framkvæmd könnunarinnar.Verkið er komið vel af stað og munu niðurstöðurn- ar liggja fyrir um mánaðarmótin október-nóvember. Samningurinn er hluti af vaxtasamningi og er hann framlag SSV. Þessi könnun og samningurinn um hana er framhald af farsælu samstarfi SSV og Rannsóknarmið- stöðvarinnar sem hófst með ráð- stefnunni „Á fleygiferð", sem haldin var á Bifröst í janúar sl. SO Svartur föstudagur Alls urðu m'u umferðaróhöpp í umdæmi lögreglunnar í Borgar- nesi í síðustu viku og þar af 5 á föstudeginum 11. ágúst. Tvö þeirra urðu við Lyngholt í Leirár- sveit og þar slösuðust tveir öku- menn í útafkeyrslu og aftaná- keyrslu. Eitt slys varð við útafakst- ur og veltu í Hásasveit þar sem ökumaður sofnaði undir stýri, þar voru ökumaður og farþegi flutt á sjúkrahús. SO Onnur bifreiðin sem illafór fyrir í slysunum við bainn Lyngholt í Hvalfjarðarsveit á síðastliðinn fóstudag. Ljósm.: Jón Valgeir Viggósson. Brodending Flugmaður fisflugvélar slapp með skrekkinn og sár á fingri þeg- ar honum hlekktist á í flugtaki inn við Reyðarvatn sl. laugardag. Flug- vélin missti skyndilega afl í flugtak- inu og brotlenti hann flugvélinni nærri vaminu. Mun flugmaðurinn hafa gle^mit að skrúfa ffá bens- ínkrana áður en hann fór í loftið og því komst flugvélin ekki lengra. Fóru menn ffá björgunarsveitinni Oki á staðinn ásamt lögreglunni í Borgarnesi og var flugmaðurinn fluttur landleiðina til byggða. SO LATTU OKKUR FÁÞAÐ ÓÞVEGIÐ r r m C \r,r.lnjjo ) Efnalaugin Múlakot ehf Borgarbraut 55 310 Borgarnesi Sími 4371930 Borgarbyggð Starfsmaður óskast Starfsmaður ( kona ) óskast í íþróttamiðstöðina Kleppjárnsreykjum Um að ræða 100 % starf. Umsækjandi þarf að hafa náð 18 ára aldri og geta hafið störf nú þegar. Starfið felur í sér umsjón og gæslu mannvirkisins, baðvörslu ( kvennaklefar), þrif, afgreiðslu o.fl. uppgjör, innkaup, eftirlittækjamála o.þ.h. Starfsmaðurinn þarf að hafa ríka þjónustulund að upplagi, gott lag á börnum og unglingum auk áhuga og skilningá íþrótta- og æskulýðsstarfi. Laun samkvæmt launatöflu Kjalar. Skllyrði fyrir ráðningu er að starfsmaðurinn standist hæfnipróf sundstaða. Vinnustaðurinn er reyklaus. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofu Borgarbyggðar Borgarbraut 14. Nánari upplýsingar gefur íþrótta- og æskulýðsfulltrúi á bæjarskrifstofu eða í síma 433-7122. Netfang: indridi@borgarbyggd.is Umsóknarfrestur er til miðvikudags 23. ágúst n.k. íþrótta- og æskulýðsfuiltrúi Matgæðingaveisla í Landnámssetrí Næstkomandi fimmtudagskvöld verður aftur matgæðingaveisla með notarlegri kvöldvöku í Landnáms- setri. Landnámssetur ætlar að byggja upp þá hefð að fimmtudags- kvöld verði að notarlegri samveru- stund með úrvals matseld og söng og sögum. Þegar gestir koma í hús bíður eitthvað óvænt ffá mat-listamanni kvöldsins. Þá mun góður sögumað- ur taka við og segja það sem honum liggur á hjarta. Á undan og eftir munu tónlistarmenn syngja eða leika nokkur lög. Núna á fimmtudaginn mun gestakokkur kvöldsins verða Elísa- bet Halldórsdóttir ffá Breiðabóls- | stað. - Beta er galdrakona.!!!! * Þá mun Kjartan Ragnarsson | syngja ástarkvæði Olafs Kárassonar Ljósvíkings og annað sem honxnn s liggur á hjarta Sögumaður kvöldsins er svo Hjörleifur Stefánsson frá Litlu- Brekku. Hann mtm segja sögur af álfum, draugum, marbendlum og annari óværu. Það er hugmyndin að fimmtu- dagskvöldin í Landnámssetri verði eitthvað sem Vestlendingar geta gengið að sem vísu. (Fre'ttatilkynning) V Framandi réttir í b/and við þá gömíu oi . Mánudaga - miðvikudaga: 12:00-18:00 fimmtudaga og laugardaga: 12:00-20:00 föstudaga og sunnudaga: 14:00-20:00 Barinn er opinn frá kl: 18:00 föstudags-, laugardags- og sunnudagskvöld. Trúbadorínn Heimir Jóhannsson skemmtir gestum laugardagskvöldið 19. ágúst frá 22:00 - 01:00 Paradísar kvöldverður á laugardagskvöld! 3 rétta matseÖill á góÖu verÖi BorÖapantanir í síma 525-8441. Einstaklingar og fyrirtæki athugiÖ Verðum með iólahíaðborð í nóvember og desember. Tilvalið fyrir stóra sem litla vinnustaði, vini, fiölskyldur og aðra sem vilja upplifa frábæra stemningu í faílegu umhverfi. Lystisemdir ehf, veisluþjónusta Kaffi Raradís - Lystisemdir ehf. - Munaðárnesi. Sími: 525-8441 s /

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.