Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 19

Skessuhorn - 16.08.2006, Blaðsíða 19
S£ESS'UHÖE2:3 MIÐVIKUDAGUR 16. AGUST 2006 19 Starfshópur um húsnæðismál Tónlistarskólans teldnn til starfa Fyrir nokkru síðan tók til starfa starfshópur á vegum Akraneskaup- staðar sem vinna skal að húsnæðis- málum Tónlistarskóla Akraness. Sem kunnugt er ákvað núverandi meirihluti bæjarstjórnar Akraness að hverfa frá þeirri stefhu að Bóka- safh Akraness flytti í nýbyggingu á miðbæjarreit og þess í stað yrði skoðað hvort það húsnæði henti undir starfsemi Tónlistarskólans. Starfshópinn skipa auk bæjarstjóra, skólastjóri Tónlistarskólans og sviðsstjóri tækni- og umhverfissviðs bæjarins. Þetta kom fram í svari Gísla S. Einarssonar bæjarstjóra við fyrirspurn minnhluta bæjarráðs. Fram kemur að rýmisþörf bygg- ist á mati skólastjóra og starfs- manna skólans en umrætt húsnæði er um 1.300 fermetrar að stærð. Þá hefur Elín G. Gunnlaugsdóttir arkitekt hjá Skapa og Skerpu verið ráðin til að vinna að hönnun og undirbúningi framkvæmda á grundvelli þess sem starfshópurinn mun leggja til. Minnihluti bæjarráðs óskaði eftir því að lögð verði fram kostnaðar- áætlun vegna ffamkvæmdanna en bæjarstjóri sagði í svari sínu að sú áætlun lægi ekki fyrir þar sem hún sé í vinnslu. HJ Hlutavelta fyrir Höfða Þrír krakkar komu færandi hendi á Dvalarheimilið Höfða sl. þriðjudag. Þau héldu hlutaveltu í anddyri Nettó og gáfu Höfða af- raksturinn, 4.741 kr. Þessum ungu Akurnesingum er færðar kærar þakkir fýrir hlýhug í garð Höfða. -KÓP Myndf.v. Hinrik Már Guðráðs- son, Júlíana Karvelsdóttir, Þorbjó'rg Eva Ellingsen. Æfck Skólasetning Heiðarskóla HEIÐARSKOLI r- ■ - — ■ — — — ■ —— Heiðarskóli verður settur fimmtudaginn 24. ógúst kl. 16:00 í Heiðarborg. Að lokinni skólasetningu hitta nemendur umsjónarkennara sína í stofunum og stundatöflur verða afhentar. Boðið verður upp ó kaffi og meðlœti í Heiðarskóla eins og venja er. Laust starf í Heiðarskóla Heiðarskóli auglýsir eftir skólaliða til starfa. Um er að rœða 100% starf. í starfinu felst aðallega rœsting og gœsla auk annarra tilfallandi verkefna. Laun er skv. kjarasamningi Starfsgreinasambands íslands og LS. Umsóknarfrestur er til 20. ógúst. Upplýsingar gefur skólastjóri í símum 433 8920 og 862 8920 Starfsfólk Brekkbæjarskóla og Grundaskóla mæti til starfsmannafundar föstudaginn 18. ágúst kl. 8:30. Skólastjórar Nemendur komi í skólana fimmtudaginn 24. ágúst sem hér segir: BREKKUBÆJARSKÓLI 1.-2. bekkur kl. 09:00 3. - 4. bekkur kl. 09:30 5. - 7. bekkur kl. 10:00 8.-10. bekkur kl. 10:30 GRUNDASKÓLI 1.-4. bekkur kl. 09:00 5. og 6. bekkur kl. 09:30 7. og 8. bekkur kl. 10:00 9. og 10. bekkur kl. 11:00 Nemendur sem sækja grunnskólana á Akranesi skulu eiga lögheimili á Akranesi. Foreldrar grunnskólabarna athugið að hafa samband við skrifstofur grunnskólanna ef skólaskipti eru fyrirhuguð. Símanúmer á skrifstofu Brekkubæjarskóla er 433 1300 og símanúmer á skrifstofu Grundaskóla er 433 1400. Opið hús er í skóladagvist frá kl. 9:30 og geta foreldrar gengið frá vistunartíma og fengið nauðsynlegar upplýsingar á staðnum. Allar nánari upplýsingar eru á heimasíðum skólanna. Veffang Brekkubæjarskóla er www.brak.is og veffang Grundaskóla er www.grundaskoli.is Fræðslu-, tómstunda- og íþróttasvið Tombóla til styrktar RKI Tvœr ungar sex ára dömur, þœrjóna Alla Axelsdóttir t.v. ogAnna Mínerva Kristins- dóttir t.h. komu og lögðu 6.378 kr., inn á hjálparjóð RKI í vikunni. Agóðinn kom til eftir tomhólu sem stúlkurríar héldu og voru þeim fierðar góðar þakkirfyrir. -KOP Gólfþjónustan Júlíus R. Júlíusson 847 1481 Dagur Ingvason 845 5705 PARKETSLÍHJN • PAHKETIÖEK • PARKETVIflHALÐ • PARKETSALA W1 GÁMA Opnunartími Gámu verður lengdur á virkum mánudögum til kl. 20.00 í staðinn fyrir kl. 18.30 og verður tilhögun þessi í gildi út ágústmánuð. Sýslumaðurinn í Borgarnesi Skrifstofustarf Laust er til umsóknar starf skrifstofumanns við embætti sýslumannsins í Borgarnesi. Starfið Starfið felur í sér aðkomu að hinum ýmsu verkefnum, er viðkoma starfssemi embættisins. Startfshlutfall er 100% Hæfisskilyrði Góð almenn menntun , frumkvæði og sjálfstæði, góð tölvukunnátta, sveigjanleiki og jákvætt viðmót og hæfiii í mannlegum samskiptum. Lairn eru skv.kjarasamningi fjármálaráðherra og viðkomandi stéttarfélags. Umsóknarfrestur er til 3. september 2006. Umsóknum ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf skal skila til Stefáns Skarphéðinssonar sýslumanns, Bjamarbraut 2, 310 Borgamesi. I Athygli er vakin á því að umsóknin mun gilda í 6 mánuði I frá því að umsóknarfrestur rennur út, með vísan til | 3.tl.2.mgr.2.gr. reglna um auglýsingar á lausum störfum, i með síðari breytingum nr.464/1996 , sem settar em " skv.heimildí 2.mgr.7.gr.laganr.70/1996 umréttindiog skyldur opinberra starfsmanna. Sýslumaðurinn í Borgarnesi Akraneskaupstaður

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.