Skessuhorn


Skessuhorn - 16.08.2006, Síða 24

Skessuhorn - 16.08.2006, Síða 24
«* Láttu ekki vandræðin verða til vandræða íbúðalánasjóður www.ils.is FJÁRHAGSLEG GLITNIR^ VELGENGNI ÞÍN ER OKKAR VERKEFNI Dagiegar ferðir Opnunartímar virka daga 8-12 og 13-17. Engjaás 2 • 310 Borgarnes • Sími: 458 8880 landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is Telur Skipulagsstofnum meta birldhríslur meira en mannslíf Ytri hluti Þorskafjarðar. Reykjanes til vinstri og Hallsteinsnes til hœgri. Mynd: Jónas Guðmundsson vegur.is Hreppsneíhd Reykhólahrepps tel- tir að Skipulagsstoihun meti vemd- un birkis meira en mannslíf í um- ferðinni. Þetta kemur ffam í athuga- semd sem hreppsnefndin hefur sent umhverfisráðuneytinu vegna um- sagna Skipulagsstofnunar, Umhverf- isstofnunar og fleiri við stjórnsýslu- kæra hreppsins á úrskurði Skipu- lagsstofnunar um mat á umhverfisá- hrifum Vestfjarðavegar nr. 60 á milli Bjarkarlundar og Eyrar í Reykhóla- hreppi. Eins og ffam hefur komið í ffétt- um hafnaði Skipulagsstofnun þeirri leið sem heimamenn vildu fara við vegagerð á þessum slóðum, svokall- aðri B-leið. Sá vegur hefði meðal armars legið um Hallsteinssnes þar sem birkikjarr vex. I staðinn vill Skipulagsstofnun að farin verði leið sem liggur mun hærra. Kærði hreppurinn þessa ákvörðun Skipu- lagsstofhunar til umhverfisráðuneyt- isins. I ffamhaldinu gafst Skipulags- stofhun tækifæri til þess að senda inn athugasemdir sínar við kæruna. Hreppsnefnd furðar sig á því að Skipulagsstofnun og Umhverfis- stofhun skelli skollaeyrum við nýjum upplýsingum í málinu sem sýna eiga að ýmsar upplýsingar sem Skipulagsstofnun lagði tdl grundvallar í úr- skurði sínum hafi verið rangar eða ónákvæmar og villandi. „Skipulags- stoftiun byggir enn á því að birkið á Hallsteins- nesi, þ.m.t. í Teigsskógi, beri að varðveita vegna þess hversu svæðið sé lítt snortið af mönnum og búsmala, þrátt fyrir að sýnt hafi verið ffam á með margvíslegum rök- um að svo er alls ekki, heldur er um að ræða svæði sem hefur verið nýtt alveg ffá landnámi. Af því leiðir að sérstaða svæðisins er langt í ffá eins mikil og stofhun lagði út ffá í úrskurði sfnum og alls ekki svo mikil að ekki megi bæta úr því sem verður að víkja fýrir veginum með mótvægisaðgerðum“ segir orðrétt í athugasemdum hreppsnefhdar. Þá segir einnig: „Um það er rætt að náttúran verði að fá að njóta vafans. Það er þó sérstakt áhyggju- efhi að mati hreppsnefhdar að íbú- arnir og samfélagið, fólkið sem býr við norðanverðan Breiðafjörð og raunar á Vestfjörðum öllum, skuli í ákvörðunum Skipulagsstofnunar ekld njóta neins vafa. Hér verður að hafa í huga hvaða ffamkvæmd er um að ræða. Verið er að fjalla um eina þjóðveginn sem liggur um Reyk- hólasveit og tengir saman byggðar- lögin í Barðastrandarsýslu og er jafnffamt eina tenging þéttbýlisins á Reykhólum við vestari hluta hrepps- ins. Hér er ekki um aðra valkosti að ræða. Til þessara aðstæðna tekur Skipu- lagsstofhun ekki tillit. Við þessar að- stæður er eðlilegt að ítrustu kröfur séu gerðar til umferðaröryggis og greiðfærni á eina veginum sem um er að ræða. Itrekað kemur ffam hjá Skipulagsstofhun að þó svo leið C og D kunni almennt séð að uppfylla lágmarkskröfur Vegagerðarinnar um umferðaröryggi og greiðfærni þá hafi leið B umtalsverða yfirburði yfir leiðir C og D varðandi áhrif á veg- tæknilega þætti, umferðaröryggi og greiðfæmi. I hnotskurn er það sem hér hvílir á vogaskálunum, annars vegar mannslífin í umferðinni og hins vegar birkihríslur. Það er ekki ásættanlegt að Skipulagsstofhun skuli aðeins vísa til samþykkta stjórnvalda sem lúta að náttúruvemd og sérstaklega til vemdar birks, en láta hjá líða að vísa til annarra sam- þykkta og stefiiumótunar s.s. sam- gönguáædunar og umferðarörygisá- ædunar nldsstjómarinnar þar sem áhersla er lögð á ömggari vegi og endurskoðun vegastaðla með tílliti til umferðaröryggis“. Hreppsnefnd leggur áherslu á að umhverfisráðherra horfi til þeirra samþykkta sem gerðar hafa verið á Alþingi og víðar þar sem beinbnis hafi verið reiknað með vegi á þeim slóðum sem Skipulagsstofnun hefur nú lagst gegn. I því sambandi er bent á svæðisskipulag Reykhólahrepps, sem bæði skipulagsstjóm ríkisins og umhverfisráðherra hafa staðfest og einnig lög um vemd Breiðafjarðar en þar segir að stefht sé að því að varðveita náttúrafar Breiðafjarðar eftir því sem hægt er með hliðsjón af þróun byggðar og atvinnuháttum þess fólks sem svæðið byggir. HJ STÓRSÝNING í RílDHÖUINNI Á SAUDÁRKRÓKl £ • •• • •• • •• • •• ..••• !•••: !•••': Vélasýning Húsdýragarður Fræðsluerindi Islenskt handverk Smalahundakeppni Hrútasýning Kúlfateyming Kynbótasýning hrossa liBÍIÍJIIiÍiilllgiÍ Fyrirtæki kynna vörur sínar og þjónustu ::: Frábært tækifæri fyrir bændur að kynna sér það nýjasta sem í boði er ::: Skemmtun fyrir alla fjölskylduna ::: Opnunartími: Föstudagurinn 18. ágúst kl. 13-19 Landbúnaðarsýning kl. 12 Yfirlitssýning kynbótahrossa Laugardagurinn 19. ágúst kl. 10-19 Landbúnaðarsýning Sunnudagurinn 20. ágúst kl. 12-18 Landbúnaðarsýn Aðgangseyrir kr. 1.000 • Frítt fyrir 12 ára og yngri www.horse.is/landbunadarsyning V

x

Skessuhorn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.