Skessuhorn - 30.08.2006, Síða 1
VIKUBLAÐ Á VESTURLANDI
35. tbl. 9. árg. 30. ágúst 2006 - Kr. 400 í lausasölu
SíSastliöinn sunnudag var hin 120 ára gamla kirkja í Reykholti t Borgatftrði opnuð aftur eftir gagngerar endurhietur sem staðið hafa
yfir undanfarin ár. Kirkjan hefur nú verið ajhelguð enda hætt að þjóna hlutuerki sínu sem guðshús en mun íframtíðinni þjóna hlut-
verki safns. A meðfylgjandi mynd eru Margrét Hallgrímsdóttir þjóðminjavörður, Bjöm Bjamason dóms- og kirkjumálaráðherra, sr.
Geir Waage sóknarprestur og loks formaður sóknamefndar í Reykholti; Guðlaugur Oskarsson. Ljósm. KÓR Sjá einnigfrétt á bls. 22.
Bæjarstjóri segir örfáa
ökumenn valda mikilli
hættu með hraðakstri
Slátrun
hættí
Búðardal
Slátrun sauðfjár hefur nú ver-
ið hætt í Búðardal aðeins ári eft-
ir að sláturhúsið þar var tekið í
notkun að nýju eftir endurbætur
sem kostuðu 66 milljónir króna.
Þetta varð ljóst eftir að Kaupfé-
lag Skagfirðinga tók yfir leigu-
samning Norðlenska á slátur-
húsinu fyrir skömmu. Um leið
og slátrun er hætt í húsinu
skuldbindur KS sig til þess að
skapa fimm heilsársstörf við
kjötvinnslu í Búðardal. Sveitar-
stjóri Dalabyggðar segir Norð-
lenska ekki hafa undirbúið slátr-
un þrátt fyrir samning þar um.
Framkvæmdastjóri Norðlenska
neitar því og segir undirbúning
slátrunar hafa verið í fullum
gangi en segir að skort hafi á
samstöðu heimamanna um
rekstur hússins.
Ymsir sjá teikn á lofti um að
fákeppnisaðstæður við slátrun
sauðíjár séu að verða samhliða
meiri fækkun sláturhúsa en ráð
var fyrir gert. Formaður Neyt-
endasamtakanna segir að vakin
verði athygli Samkeppniseftir-
litsins á stöðu mála í greininni.
I Skessuhorni í dag er fjallað
ítarlega um málefni tengt slátur-
húsinu og ítarleg umfjöllun er
um verðlagningu sauðfjárafurða
og afkomuhorfur bænda nú í
upphafi sláturtíðar. Sjá fréttir
þessu tengt á bls. 8, 9, 10, 19 og
24.
MM
ATLANTSOLIA
Dísel ‘Faxabraut 9.
Bæjaryfirvöld á Akranesi í sam-
vinnu við sýslumannsembættið á
Akranesi skoða nú hvernig bregðast
megi við miklum hraðakstri á göt-
um Akraness. Gísli S. Einarsson
bæjarstjóri segir að tmdanfarið hafi
fjölmargar kvartanir borist frá íbú-
um vegna hraðaksturs. Má þar
nefria íbúa við Akratorg, Jaðars-
braut, Esjuvelli, Esjubraut og
Kirkjubraut. Einnig hefur verið
kvartað um hraðakstur og umferð-
argný í nágrenni við skóla bæjarins.
Gísli segir að í síðustu viku hafi
stjórnendur bæjarins fundað með
Olafi Þór Haukssyni sýslumanni
þar sem rætt var hvernig hægt væri
að bregðast við þessum vanda.
„Menn eru sammála um að fáir ein-
staklingar séu valdir að því hættuá-
standi sem skapast hefur vegna
hraðaksturs en það gengur illa að
koma höndum yfir þá vegna þess að
þeir virðast hafa gott samband sín á
milli til að forðast lögreglueftirlit,“
segir Gísli.
Eins og fram hefur komið í
Skessuhorni hefur skipulags- og
byggingarnefnd Akraness haft til
skoðunar tillögur um ný hraða-
mörk á ýmsum íbúðargötum, við
skóla og fleiri staði. Gísli segir að
einnig hafi verið nefndur sá mögu-
leiki að afmarka umferðarsvæði
með umferðarhliðum en sá kostur
sé mjög dýr eða allt að 50 milljónir
króna fyrir þá staði sem helst eru til
skoðunar.
Þá var rætt var um gönguljós og
umferðarstýringu með ljósum,
myndavélabúnað og ýmsan tækni-
búnað til umferðartalningar og
ákvörðun umferðarlagabrota og
einnig var rætt var um að takmarka
umferðarhraða með þrengingum á
götum m.a. á Esjuvöllum og Esju-
braut norðanverðri og fleiri stöð-
um.
Að sögn Gísla mun skipulags og
byggingarnefnd ræða málið frekar
og tillagna má vænta þaðan um
meðferð málsins. Þá muni lög-
regluyfirvöld hafa málið í skoðtm
og munu ákvarðanir verða teknar
þegar álit og tillögur liggja fyrir frá
þeim sem með málið fara.
Gísli segir menn sammála um
nauðsyn þess að vekja upp almenna
umræðu um þetta hættuástand.
„Við viljum hvetja íbúa á Akranesi
til að leggja lið gegn þeim einstak-
lingum sem gera sér leik að því að
setja líf einstaklinga í hættu með
glannaakstri á götum bæjarins.
Samtakamátturinn skiptir sköpum í
þessari baráttu og hann viljum við
virkja á næstu vikum,“ segir Gísli að
lokum.
HJ
Kolbeins-
staðarhreppur
í aðra sýslu?
Byggðaráð Borgarbyggðar
hefur falið sveitarstjóra að óska
eftir því við dómsmálaráðuneyt-
ið að Kolbeinsstaðahreppur fær-
ist undir umdæmi Mýra- og
Borgarfjarðarsýslu. Hreppurinn
var einn þeirra fjögurra sveitar-
félaga sem í vor sameinuðust í
nýtt sveitarfélag sem nú heitir
Borgarbyggð og tilheyra hin
sveitarfélögin Mýra- og Borgar-
fjarðarsýslu. Nú tilheyrir hrepp-
urinn Snæfellsnes- og Hnappa-
dalssýslu og til forna tilheyrði
hann Hnappadalssýslu.
HJ
Betur fór en
á horfðist hjá
Norðuráli
Slökkvilið Akraness og
slökkvilið höfuðborgarinnar
voru kölluð út á miðvikudags-
kvöld síðasta að álveri Norður-
áls á Grundartanga. Á1 hafði lek-
ið úr keri í kerskála A og borist í
lagnastokk með lágspennulín-
um. Brunnu línur og myndaðist
talsverður reykur. Slys urðu ekki
á mönnum og aldrei skapaðist
nein hætta vegna óhappsins að
sögn stjórnenda Norðuráls.
Reykræsta þurfti lagnakjallarann
og gekk það vel. Síðar um
kvöldið kom viðgerðarhópur á
staðinn og lauk viðgerðum síðla
fimmtudags. Lítið tjón varð af
óhappinu og það hafði ekki áhrif
á framleiðslu álversins.
HJ