Skessuhorn


Skessuhorn - 30.08.2006, Qupperneq 8

Skessuhorn - 30.08.2006, Qupperneq 8
8 MIÐVIKUDAGUR 30. ÁGÚST 2006 ■.f.inm... Sauðfjárbændur geta ekki búist við mikiHi kjarabót í haust Utlit er fyrir að rannhækkun dilkakjöts milli ára dugi ekki fyrir auknum kostnaði bænda við aðföng og verðbólgu undanfarinna 12 mánaða: FRÉTTASKÝRING: Það er gjarnan sagt að uppskeru- tími sauðfjárbænda sé haustið; fé er sótt á fjall og rekið til rétta, bændur vega og meta dilka sína og senda til slátrunar og fá fljótlega úr því skorið hvað þeir bera úr bítum fyrir vinnu sína síðustu 12 mánuði. Sauðfjár- bændur eru þannig sú stétt manna, líkt og t.d. skáld, sem vinnur lengi að ákveðnu verki án þess að vita með neinni vissu hver afraksturinn verð- ur. Þeir eru jafrivel háðir mun fleiri breytum en skáldið sem semur bók- ina, mörgum síkvikulum þáttum svo sem breytingum á neyslumynstri al- mennings, stöðu vinnslufyrirtækja, veðri, verðbólgu og verðbreytingum á ýmsum aðföngum. Allt óvissuþætt- ir sem ekki er séð fyrir um áður en borið var á tún í fyrravor, heyjað í fyrrasumar og hrútunum hleypt í kræmar á síðustu aðventu; sem sýn- ir hversu aðdragandinn er langur í vinnsluferlinu áður en kemur að því að dilkar verða lagðir inn nú í haust. Undanfarið ár hafa sterkar vænting- ar verið til þess að sauðfjárbændur gætu nú farið að eygja bjartari tíma í afkomulegu tdllitri en eins og allir vita em tekjur af sauðfjárbúum það htlar að fæstir bændur Hfa eingöngu af sauðfjárrækt. Lambakjötsneysla hef- ur á nýHðnum árum verið að aukast og landinn kaupir afurðimar í vax- andi mæh og reyndar hefur átt sér stað söluaukning í öllum tegundum kjöts, bæði rauðu og hvím. Lamba- kjötsfjallið fræga heyrir nú sögunni til og minni birgðir leiða til þess að jafhvel er skortur á dilkakjötri á nýja markaði sem loksins virðast vera að opnast á erlendri grundu. Aukning hefur orðið á sölu lambakjöts sl. 12 mánuði þrátt fyrir lítrið markaðsstarf og lélegt grillveður í sumar. En miðað við bættar aðstæður á markaði geta bændur þá búist við verulegum hækkunum á innleggjum sínum í haust? Einn ágætur sauðfjár- bóndi sem blaðamaður heyrði til á bændafundi í Húnavamssýslu í lið- inni viku sagði orðrétt: „Ef bændur nýta ekki rétt sinn til að bæta kjör sín nú í haust og mótmæla skammar- legri verðskrá sláturleyfishafa, þá gera þeir það aldrei. Aðstæður á kjötmarkaði hafa aldrei verið betri og því skyldi það ekki leiða tíl þess að við fáum meira fyrir afurðir okk- ar?“ Þó einstaka baráttuglaður bóndi, eins og sá húnvetnski látd heyra í sér, bendir þó margt til þess að bændur beri í krónutölu um 10% meira úr bítum í haust miðað við í fyrra, en raunhækkun verði mun minni eða jafhvel engin að teknu til- liti til aðfangahækkana og 4,8% hækkunar neysluverðsvísitölu und- anfama 12 mánuði. Minna til útflutnings Þrátt fyrir að verðbólga hafi und- anfama mánuði mælst þetta 8-9% miðað við eitt ár, gáfu Landssamtök sauðfjárbænda út viðmiðunarverð fyrir dilka- og ærkjöt fyrr í sumar sem verður að segjast eins og er að innihaldi, miðað við aðstæður á markaði, afskaplega hófstillta kröfu um hækkun kjöts svo ekki sé kveðið sterkar að. Þannig hækkar verðskrá- in um 10% frá því á síðasta ári og gildir það um alla flokka kjöts nema um kjöt af fullorðnu fé sem hækkar um 17% milli ára. Rétt er að taka skýrt ffam að verðskrá LS birtir lág- marks viðmiðunarverð sem samtök sauðfjárbænda vænta fyrir komandi sláturtíð en að sjálfsögðu geta slátur- leyfishafar bætt um betur og hækkað meira. Raunin hefur hinsvegar verið sú, og undir það tekur m.a. ffam- kvæmdastjóri Norðlenska, að slátur- leyfishafar taka mið af viðmiðunar- verði LS, þar er tónninn gefinn af bændunum sjálfum. Þá er gengið út ffá því í haust að útflutningsverð dilkakjöts í haust nái 220 kr. á kg. en landbúnaðarráðherra hefur ákveðið að útflutningsskylda haustið 2006 verði 4% til og með 9. september, hækki þá í 10-12% en lækki aftur í 4% 12. nóvember. Mesta kjarabótin fyrir bændur í haust felst því e.t.v. í að minna af ffamleiðslunni verður eymamerkt til útflutnings miðað við 18% árið 2005 og 36% árið 2004, en fyrir kjöt til útflutnings hefur fengist verulega lægra verð en fyrir það sem ætlað er á innanlandsmarkað. Þó telur Har- aldur Benediktsson, formaður Bændasamtaka Islands að útflutn- ingshlutfallið hefði mátt vera ívið hærra, eða 12% í stað 10% miðað við horfur á mörkuðum hér innan- lands- og utan. Skiptar skoðanir um ákvörðun LS Sláturleyfishafar hafa á undan- fömum dögum verið að gefa út verð sín til bænda og taka þau mið af kröfum Landssambands sauðfjár- bænda, eins og við mátti búast. Hækkun á verði sláturleyfishafa er algeng þetta um 10-12% ffá því á liðnu hausti og sumir þeirra ætla þar að auki að staðgreiða bændum sem þýðir einhverja kjarabót til viðbótar. Þar kemur þó á móti að fæstir þeirra ætla að greiða sérstaklega fyrir inn- mat og gæmr og hafa fellt verð fyrir þær afurðir inn í kílóverð kjöts. Fyr- ir innmat og gærar hefur á undan- förmun ámm mjög lítið verið greitt en hér effir alls ekkert. Sauðfjár- bóndi á Vesturlandi sem Skessuhom ræddi við fyrir vinnslu þessarar ff étt- ar og sem ekki vill láta nafns síns getið, telur veigamikil rök gegn því að Landssamtök sauðfjárbænda leggðu ffam kröfur tun meiri hækk- im kjöts í haust. Þau rök era einfald- lega að hækki kjötið meira verður sterkari krafa t.d. á Alþingi nú á kosningaári urn að felldir verði nið- ur innflutningstollar á kjöti til lands- ins og gegn því vilja hagsmunasam- tök bænda standa. Annar bóndi sem býr í Borgarfirði og Skessuhom ræddi við var á al- gjörlega öndverðu meiði við starfs- félaga sinn og taldi að sú litla hækk- un sem boðuð hefur verið á kjöti í haust leiði til þess að hann tald á- kvörðun um að hætta ffamleiðslu: „Fyrst ekki er hægt að hækka verð til okkar meira en þetta núna, jaftivel þó selja hefði mátt miklu meira af kjöti fyrir gott verð á erlenda mark- aði, þá ætla ég að hætta þessu - ég gefst upp! Eg tel útséð með að sauð- fjárbændur nái nokkumtímann að standa saman um að bæta kjör sín fyrst þeir gera það ekki núna.“ Af ffamansögðu má ljóst vera að Landssamtök sauðfjárbænda bera mikla ábyrgð við verðmyndun lambakjöts með útgeftiu viðmiðun- arverði sínu fyrr í sumar. Einn við- mælandi blaðsins taldi auk þess mjög óeðlilegt að formaður Landssam- bands sauðfjárbænda væri á sama tíma formaður afurðastöðvar á NA landi og velti því fyrir sér hvort við- komandi bóndi hefði meiri hags- muni sem formaður stjórnar vinnslufyrirtækis, en sem sauðfjár- bóndi sem þyrffi að fá hæsta mögu- lega verð fyrir afurðir sínar - ffá slát- urleyfishafanum. en sennilega hefur þessi skyndilega fækkun orðið meiri en nokkurn óraði fyrir, því umhverfi þar sem þrjú fyrirtæki ráða nær öllum mark- aði kallast fákeppnismarkaður og slíkar aðstæður vilja menn forðast í lengsm lög. Islendingar þekkja vel dæmin; við eigum þrjú olíufélög, þrjá til fjóra stóra viðskiptabanka, þrjú gildandi tryggingafélög og á- ffam mætti telja. Meint verðsamráð oHufélaganna er dæmi sem talar sínu máh um galla markaðar sem ein- kennist af fákeppni. Fyrirtæki í fá- keppni liggja eðh málsins samkvæmt Fákeppnisaðstæður í slátrun Á liðnum árum hefur það verið stefiia stjómvalda og Bændasamtaka Islands að fækka beri sláturhúsum hér á landi og stuðlað þannig að öfl- ugri rekstri sláturleyfishafa sem eftir yrðu. Sum þeirra uppfylltu ekki kröfur um aðbúnað og þurftu af þeim sökum að hætta starfsemi. Rök fyrir fækkun sláturhúsa vora m.a. þau að sláturleyfishafar og kjöt- vinnslur þurftu að ná sterkari stöðu gagnvart kaupendum sinna vara, þ.e. verslanakeðjum á smásölumarkaði sem undanfarin ár hafa í krafti stærðar sinnar haft sterk tök á til- tölulega veikbyggðum fyrirtækjum í slátrun og vinnslu. Engu að síður hefur sú mikla fækkun sláturhúsa sem raun ber vitni orðið hraðari og meiri en flestum óraði fyrir og segja má að nú séu einungis þrjár blokkir fyrirtækja sem skipta með sér hátt í 90% af markaðinum hér á landi, þ.e. Norðlenska á NA- og Austurlandi, Kaupfélag Skagfirðinga sem einkum starfar á svæðinu vestan Tröllaskaga, Vestfjörðum og hluta Vesturland og hefur nú yfir að ráða sláturhúsunum á Króksfjarðamesi og Búðardal og á helmingshlut í sláturhúsinu á Hvammstanga og þar af leiðandi hefur mikið samstarf við og loks er það Sláturfélag Suðurlands sem hef- ur yfirburðastöðu á Suðurlandi og teigir sig einnig að hluta inn í aðra landshluta eftir slámrfé. Auk þessara stóra sláturleyfishafa em nokkur lít- il hús á Vopnafirði, Kópaskeri og Blönduósi sem slátra litlu magni hvert af þeim 550 þúsund dilkum sem slátrað verður í haust. Ráðagerð stjómvalda hefur tekist hvað fæklom slámrhúsanna varðar sífellt undir ámæli og grunsemdum um samráð sem er slæmt fyrir þau en um að ræða einn mesta óvin neyt- enda. Fákeppni er enda litla systir einokunar. Þegar fyrirtækjum í þessari grein fækkar svo ört vaknar eðilega sú spurning hvort í sauðfjárslátrun hér á landi sé komin upp staða fákeppni og hvort slíkt sé ekki fjandsamleg staða t.d. fyrir bændur sem eiga allt sitt undir ffjálsri verðmyndum kjöts. Hverjir em t.d. kostir vestlenskra bænda í haust til að fá dilkum slátr- að? Vart er það raunhæfur möguleiki að aka fénu til slátrunar á NA hom landsins og við það fækkar mögu- leikunum vemlega. Einnig má segja að þessi staða sé uggvænleg fyrir af- urðastöðvar sem ekki hafa sláturleyfi og nægir í því sambandi að neftia kjötvinnslufyrirtæld eins og t.d. það sem starfar í Borgarnesi og sl. sunnudag vígði nýtt, tæplega 2000 fermetra sérhæft kjötvinnsluhús. Staða þess fyrirtækis hvað varðar kaup á dilkakjöti til framleiðslunnar er erfið og búast má við að verð á að- föngum til þess verði hærra en sam- keppnisaðilar þeirra fá, reki þeir einnig sláturhús. Á sama hátt og bændur í Dalabyggð em uggandi yfir nýjustu ffegnum af því að hætt er slátrun í Búðardal hljóta stjóm- endur Borgarness kjötvara að íhuga af alvöra slátrun dilka í Borgarnesi á nýjan leik; eigi að vera hægt að tryggja vinnslunni nægjanlegt hrá- efiú. Ojöfh sldpting En hverjir eru raunverulegir möguleikar bænda nú í upphafi haustslátranar 2006 til að ná hærra verði fyrir innlegg sín í haust? Það að innan við 1 % verðmunur sé á al- gengum flokki dilkakjöts hjá þremur stærstu fyrirtækjunum í slátrun bendir til að þrátt fyrir að eftdrspum sé mikil eftir kjöti um þessar mund- ir þá muni sú eftirspum ekki skila sér í hækkuðu verði til bænda. (Skv. verði á flokknum D-R3 hjá SS, KS og Norðlenska sl. föstudag, en í þennan flokk fóm í fyrrahaust um 26-28% kjötsins. KS ætlar að greiða kr. 339 fyrir kg, SS kr. 338 kg. og Norðlenska kr. 336 kg.). Að teknu tilliti til verðbólgu undanfarinna mánaða er boðuð hækkun á verði lambakjöts til bænda svo lítil að hún vegur vart upp hækkun á aðföngum sem bændur hafa þegar orðið fyrir á ffamleiðsluferlinu sem hófst sl. ár með kaupum á áburði, olíu á vélar, kjamfóðri og öðram rekstrarvörum til búanna. Lögmálið tim framboð og eftirspum virðist því að framan- sögðu ekki skila sér til þeirrar hækk- unar sem bændur hefðu átt að geta vænst á kjöti í haust m.t.t. sögulega lítilla birgða lambakjöts. Tahð er að 18-26% hækkun hafi orðið á verði kjöts út úr búð til neyt- enda á Hðnum 12 mánuðum og virð- ist því sem milliHðir og smásölu- verslun sé að taka þá hækkun nær alla eða alla til sín, en bóndinn, sjálf- ur ffamleiðandinn, situr eftir. Allar tölur um hvemig vinnslufyrirtækin annarsvegar og smásöluverslunin hinsvegar skipta mismuninum á sín- um hluta í heildarverði kjöts á mifli sín er erfitt að nálgast. Haraldur Benediktsson, formaður Bændasam- taka Islands segir í samtali við Skessuhom að hlutur bóndans af heildarverði lambakjöts sé um 40% sem þýðir að vinnslan og smásalan ásamt virðisaukaskatti sem ríkið tek- ur til sín taki 60%. Smásöluverslun- in fær á að giska sama verð fyrir að selja kjötið og bóndinn sem vinnur að framleiðslu þess 12-16 mánuði á ári. Þó þarf verslunin ekki að sitja uppi með birgðir eða óselda vöru og er á engan hátt að leggja af mörkum viðlíka vinnu og bóndinn, sem þó fær ekkert meira í sinn hlut. Kök- unni er þannig æði misskipt í hlut- falli við fjárfestingu og rekstrar- kostnað. Bændur taki höndum saman Af ffamansögðu gætu aðstæður sauðfjárbænda nú í upphafi slátur- tíðar 2006 um margt verið betri. Að Hkindum hafa bændur litla mögu- leika úr þessu til að bæta kjör sín fyr- ir komandi sláturtíð. Einna helst gætu þó baráttuglaðir bændur á sömu landssvæðum tekið höndum saman. Áður en þeir undirrita slátur- fjárloforð sín í haust gætu þeir boð- ið sláturleyfishöfum að bjóða í hjarðir sínar á fæti og knúið með því móti ffam hærra verð í krafti stærð- ar sinnar. Ef rétt er að líkur séu á góðri sölu lambakjöts bæði innan- lands- og utan á næsta ári ættu slát- urleyfishafar að hafa bæði svigrúm og fjárhagslegt bolmagn til að greiða hærra verð fyrir kjötið í haust en það verð sem þeir hafa nú kynnt. Að öðram kosti hljóta menn að spyrja hvert ávinningurinn og hagræðingin hafi lent sem stefiit var að með fækk- un sláturhúsa? MM

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.