Skessuhorn


Skessuhorn - 13.09.2006, Qupperneq 15

Skessuhorn - 13.09.2006, Qupperneq 15
 MIÐVIKUDAGUR 13. SEPTEMBER 2006 15 Vaxtarsamningur undirritaður á föstudag Næstkomandi föstudag verður aðalfundur Samtaka sveitarfélaga á Vesturlandi (SSV) haldinn í hús- næði Fjölbrautaskóla Snæfellinga. Við það tækifæri verður Vaxtar- samningur Vesturlands undirritað- ur. Vinna við samninginn hefur far- ið fram undanfarið ár og hefur SSV haft veg og vanda af henni. Vaxtarsamningar eru samkomulag sveitarfélaga og annarra aðila á viðkomandi svæði um uppbygg- ingu öflugra atvinnugreina eða þeirra sem eiga sér bjarta framtíð. Slíkir samningar hafa verið gerðir á öðrum landsvæðum, m.a. á Eyja- fjarðarsvæðinu og á Vestfjörðum. I samningnum er lögð áhersla á eflingu helstu byggðakjarna s.s. á norðanverðu Snæfellsnesi, í Borg- arfirði og á Akranesi. Markmið hans er að efla helstu byggðakjarna svæðisins sem kjama stjórnsýslu, menntunar, rannsókna og þjón- ustu, auk þess sem jaðarsvæði verði efld. Séstaklega verði horft til þess að byggja upp frekari aðstöðu fyr- ir háskólasetur og rannsókna- og vísindastarf til að efla þekkingar- kjarna svæðisins. Vaxtarsamningurinn mun gilda frá miðju ári 2006 til ársloka 2009. 30-40 milljónum króna verði varið til verkefnisins árlega sem fjár- magnað verði af ríki, sveitarfélög- um, stofnunum og atvinnulífi. Hann á að festa í sessi til langtíma kraftmikið og skilvirkt starf sem miði að auknum hagvexti, fjöl- breytileika atvinnulífs, eflingu sér- þekkingar og fjölgunar starfa. Tillögur eru settar fram um beinar aðgerðir á einstaka sviðum. Tilteknar era forgangstillögur sem skiptast í fimm flokka. a)Mennta- og rannsóknarklasi; horft verði til háskólanna á Vesturlandi, stofnað verði Þekkingarver Vesturlands og hugað að framhaldsskólunum. b)Menningar- og ferðaþjón- ustuklasi; komið verði á fót Mark- aðsstofu ferða- og kynningarmála Vesturlands, horft verði til sér- hæfðra safnahringa og Green Glo- be 21 verkefnisins. c)Sjávarútvegs- og matvælaklasi; horft verði til aukinnar arðsemi hlunninda, sam- keppnisstöðu landvinnslunnar og svæðisbundinnar þróunar lífrænn- ar framleiðslu. d)Iðnaðarklasi; horft verði til starfseminnar á Grundartanga, málmiðnaðs og byggingariðnaðs. e)Tillögur á öðr- um sviðum; horft verði til sam- göngubóta á milli Vesturlands og höfuðborgarsvæðisins, tilrauna- verkefnis um safn- og tengivegi, upplýsingatækni og stofnað verði Svæðisútvarps Vesturlands. Kostn- aðaráætlun liggur ekki fyrir í öll- um einstökum tillögum, en nefna má sem dæmi að Markaðsstofa ferða- og kynningarmála er áætluð kosta 57 milljónir og Svæðisútvarp 15 milljónir. -KÓP HB Grandi sem fyrr HB Grandi hf. er kvótahæsta fyrirtæki landsins sem áður, en nýtt fiskveiðiár hófst um síðustu mánaðamót. Samtals eru aflaheim- ildir fyrirtækisins rúm 35.698 þorskígildi eða 9,64% af úthlutuð- um aflaheimildum landsmanna. Af öðrum útgerðarfyrirtækjum á Vesturlandi má nefna að Soffanías Cecilsson hf. í Grundarfirði er 17. hæsta fyrirtækið með rúm 4.760 þorskígildi, Guðmundur Runólfs- son hf. í Grundarfirði er í 19. sæti með 3.754 þorskígildi, Hraðfrysti- hús Hellissands er í 23. sæti með tæp 3.030 þorskígildi og KG fisk- verkun í Rifi er í 29. sæti með 1.818 þorskígildi. Ef litið er til einstakra útgerðar- staða á Vesturlandi þá er mestum aflaheimildum úthlutað á Akranes eða rúmlega 15.164 þorskígildum, til Rifs er úthlutað tæplega 12.084 þorskígildum, í Grandarfjörð er úthlutað tæplega 11.120 þorskígildum, til Olafsvíkur er út- hlutað tæplega 6.788 þorskígild- um, í Stykkishólm er úthlutað rúmlega 3.413 þorskígildum, á Hellissand er úthlutað rúmlega 2.894 þorskígildum, á Arnarstapa er úthlutað tæplega 641 þorskígildi og í Borgarnes er út- hlutað tæplega 44 þorskígildum. HJ Björgunarsveit - eitthvað Jyrír þig? Á hvetju hausti eru teknir nýliðar inn í starf björgunarfélagsins, Aldurslámark er 16 ára (f. 1990). Kynningarkvöld verður fimmtudagskvöldið 14. sept. kl. 20:00, í húsi félagsins Kalmannsvöllum 2 (beint á mótí Nettó). Þar býðst þér að koma og kynnast starfsemi, búnaði og tækjum. HúsiS hér á lofti eftir að vera tekið af stalli sínum í Hafrarfirði. Ljósm. Fjarðarpósturinn. Hús flutt úr Haftiar- firði í Skorradal Nýverið var timburhús tekið af stalli sínum í Setbergi í Hafhar- firði, sett á bíla og því ekið í tveimur hlutum upp í Skorradal. Kaupandi hússins er Tryggvi Sæ- mundsson og eiginkona hans en þau búa á Hálsum þangað sem húsið var flutt. Hús þetta var byggt árið 1982 og er 150 fermetr- ar að grannfleti. „Þetta hafði allt saman mjög skamman aðdraganda og þurfum við því að geyma húsið á bæjar- hlaðinu hjá okkur þar sem ekki er búið að steypa nýjan grunn undir það. Við sáum húsið auglýst fyrir verslunarmannahelgi, keyptum það 31. ágúst á tvítugsafmælisdegi frúarinnar og fluttum það síðan 6. september. Seljandinn vildi losna fljótt við það af gamla staðnum enda hafði hann keypt það til að láta fjarlægja og rýma fyrir nýju og stærra húsi. Reyndar gekk þetta svo hratt fyrir sig að þegar við vor- um komin með húsið á pallinn kom í ljós að seljandinn hafði ekki aflað tilskilinna leyfa. Skipulags- og byggingafulltrúi í Hafnarfirði hafði samþykkt að senda flutning hússins í grenndarkynningu en ekki var tekin afstaða til nýbygg- ingarinnar. Því ferli var ekki lokið og kom því í ljós þegar húsið var komið á bílana að við fluttum það burtu án tilskilinna leyfa en vorum samt í lögreglufylgd," sagði Tryggvi Sæmundsson í samtali við Skessuhorn. Aðspurður um kostnað við að kaupa notað hús af þessu tagi seg- ist Tryggvi vonast til að koma vel út úr því. „Flutningurinn var nokkuð dýr en fyrir húsið sjálft greiðum við rúmar 4 milljónir sem verður að teljast gott verð. Með grunni og öðrum kostnaði verðum við engu að síður með hús á góðu verði þegar upp verður staðið,“ segir Tryggvi, en sjálfur vinnur hann við húsasmíðar hjá frænda sínum Pálma Ingólfssyni. MM Borgarbyggð Tilboð óskast Borgarbyggð, óskareftirtilboðum íverkið: Leikskóli við Ugluklett í Borgarnesi Verkið er fólgið í byggingu 500m2 leikskóla við Ugluklett í Borgarnesi að undanskilinni hússkel en um þann verkþátt er þegar búið að semja. Skiladagar verksins koma fram í útboðsgögnum. Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Borgarbyggðar, Borgarbraut 14,310 Borgarnesi. Verð útboðsgagna er kr. 5.000. Tilboð verða opnuð á sama stað, föstudaginn 29. september 2006, kl 14:00 Forstöðumaður framkvæmdasviðs Borgarbyggðar Flligger Hörpuskin, Hörpusilki og Utitex fást nú hjá KB Búrekstrardeild BUREKSTRARDEILD BORÖARNESt Egilsholt 1-310 Borgarnes Afgreiðsla sími: 430-5505 Fax: 430-5501 Opið frá kl. 8-12 og 13-18 aila virka daga

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.