Skessuhorn


Skessuhorn - 20.09.2006, Qupperneq 2

Skessuhorn - 20.09.2006, Qupperneq 2
2 MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006 . Ihi >- Til minnis Við minnum vegfarendur og forráðamenn barna á að nú tekur daginn að stytta og því er notkun endurskinsmerkja nauðsyn. Veðtyrhorfwr Það verður norðaustan átt á fimmtudag og föstudag og kólnar heldur. Bjart að mestu suðvestanlands á fimmtudag, en norðan- og vestanlands á föstudag. Annars dálítil væta öðru hverju. Hægviðri á laug- ardag og sunnudag og víða bjart. Fremur svalt og víða næturfrost. Semsagt síðustu forvöð að ná berjum í hús. Spwrninj viKiAnnar í síðustu viku var spurt á skessuhorn.is hvort hefja ætti hvalveiðar í atvinnuskyni að nýju á íslandi. Af um 500 svörum telja 87% svarenda að tvímælalaust eða líklega eigi að hefja hvalveiðar á nýj- an leik og um 10% vilja það alls ekki eða líklega ekki. Um 3% svarenda tóku ekki af- stöðu til málsins. í næstu viku spyrjum við: „Hefur aukinn umferðaráróður haft áhrifáþig?" Svaraðu án undanbragða á www.skessuhorn.is Vestlendinjtvr viKnnnar Bændur og smalar þeirra eru Vestlendingar vikunnar að þessu sinni. Arka þeir þessa dagana eða ríða um heiðar og fjöll í leit að kindum, sama hvernig viðrar. Sýnt í Landnámssetri I Borgarnesi Uuflardagur 23, sept Id. 23 Uppsslt Sunnudaflur 24. sopt. kl. 18 ðrtá laue urtl Mtbftudagur 27. suptauitwr U. 20 Uttt urtt Fimmtudagur 6. oktobsr M. 20 Lausugtt Fdstudagur 8. október U. 28 Uua sstt Uugartagur 7. októbor H. 28 Uppsott Laugardagur 7. októbor U. 20 Uppsttlt Sunrmdagur 8. október U. 28 Uus sartt Fímmtudagur 12. oktáiMr H. 20 Laus sisti Föstudaflur 13. októhsr U.20 Uussarti StBðfesta þarf miða með graiðslu viku fyrir sýningardag LEIKHÚSTILBOÖ Iviféttaáut hvoMit&rdur og leikhu&miði kr. 43ÖO 4SÓ0 MjDAPANÍANIR 1 SIMA 457 Viðgerð og varðveisla kútters Sigurfara Stjórn Byggðasafnsins á Görð- um á Akranesi heíur óskað eftir liðsinni Arkitektafélags Islands vegna varðveislu kútters Sigurfara. Eins og fram hefur komið í frétt- um af og til undanfarin ár er ástand skipsins orðið mjög bág- borið og óttast menn jafnvel að styttist í að skipið brotni undan þunga sínum á stöllum þess við Garða ef ekki verður ráðist skjótt í viðgerðir. Að sögn Björns Elísonar for- manns stjórnar Byggðasafnsins vill stjórnin fyrst og fremst sækja ráð- gjöf um hvernig skuli staðið að varðveislu og endurbyggingu kútt- ersins. Björn sagði stjórnarmenn helst vilja byggja yfir fleyið og það sé vel inn í myndinni. Þá hefur komið upp sú hugmynd að halda samkeppni um hönnun yfirbyggingar og útlits á svæðinu ef af framkvæmdum verður. Aðspurður um kostnað við að gera kútterinn upp og byggja yfir hann sagði Björn þá upphæð ekki liggja fyrir, en taldi að það gæti hlaupið á hundruðum milljóna króna en engum pen- ingum hefur verið veitt til verksins. Fyrstu skóflustxmgumar að nýjum leikskóla við Ugluklett voru nýlega boðnir út. Páll S Brynjarsson, sveitarstjóri í Borgar- byggð sagði við þetta tækifæri að þörfin væri orðin brýn fyrir fleiri leikskólarými í bæjarfé- laginu í hentugra hús- næði en nú væri til stað- ar. Leikskólinn við Ugluklett mun m.a. leysa af hólmi leikskóla- deild við Mávaklett sem rekin hefur verið í óhentugu húsnæði og 20 barna leikskóla við Böm í Borgamesi tókufyrstu skóflustungumar að nýja leikskólanum sem rísa mun í vetur við Uglu- klett. Framkvæmdir eru nú hafnar við byggingu nýs leikskóla við Uglu- klett í Borgarnesi. Leikskólinn verður þriggja deilda skóli þar sem áætlað er að hægt verði að rúma 45 börn. Auk þess er í teikningum gert ráð fyrir því að hægt verði að stækka hann um eina deild síðar. Stefnir sveitarstjórn á að fram- kvæmdum við skólann ljúki vorið 2007. Það voru fulltrúar yngstu kyn- slóðarinnar, börn í leikskólum í Borgarnesi sem hjálpuðust að og tóku fyrstu skóflustungurnar að nýja leikskólanum við hátíðlega at- höfn síðdegis sl. miðvikudag. Borg- arverk ehf. mun síðan annast jarð- vegsffamkvæmdir og samið hefur verið við SG hús á Selfossi um að reisa og gera fokhelda sjálfa bygg- inguna. Aðrir verkþættir við hana Skallgrímsgötu sem op- inn hefur verið ffá því í janúar á þessu ári í bráðabirgðahúsnæði. Opnun þar leysti biðlistavandamál sem fram að þeim tíma hafði verið í Borgarnesi. „Þessi fyrirhugaða aukning í leik- skólarýmum gefur okkur auk þess möguleika á að taka inn yngri börn en tveggja ára. Munum við m.a. þess vegna leggja áhersla á að hraða framkvæmdum eins og kostur er,“ sagði Páll. MM Leikskólinn Skýjaborg stækkaður Sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar hefúr samþykkt að ráðast í stækkun leikskólans Skýjaborgar sem allra fyrst. Skipað hefúr verið í ffam- kvæmdanefnd stækkunarinnar og í henni sitja Hlynur Sigurbjörnsson, Asa Helgadóttir og Þórdís Þóris- dóttir. I dag rúmar leikskólinn 30 börn en að sögn Einars Arnar Thorlaciusar sveitarstjóra er leik- skólinn fullnýttur í dag. Biðlistd er við leikskólann og þurfa foreldrar því að nýta sér þjónustu dagmæðra. I samtali við Skessuhorn segir Ein- ar Orn að búið sé að ákveða stækk- un sem nemur 18 leikskólaplássum. Hönnun er á lokastági þessa dagana og liggur framkvæmdanefndin yfir teikningum. Stefnt er að því að ganga til samninga um framkvæmdir við Akur hf. á Akranesi en það fyrirtæki reisti leikskólann fyrir nokkrum árum. Vonir standa tdl að stækkun- in verði tekin í notkun í lok næsta sumars og segir Einar að rík áhersla verði lögð á að sú tímasetning standist. Sem kunnugt er ákvað sveitarstjórn Hvalfjarðarsveitar í sumar að leikskóli sveitarfélagsins væri gjaldfrjáls. SO Rekstur félagsheimilisins Klifs til leigu Snæfellsbær hefur auglýst rekst- ur félagsheimilisins Klifs lausan til umsóknar frá og með 1. október nk. Breytingar urðu á rekstarfyrir- komulagi félagsheimilisins fyrir tveimur árum þegar það var fyrst boðið einkaaðilum til rekstar. Síð- an þá hefur Undir jökli ehf., sami aðili og rekur Hótel Olafsvík, séð um reksturinn. Nokkrar kvaðir eru á rekstrinum, en húsnæðið er sam- eign bæjarfélagsins og nokkurra félagasamtaka í bænum. Bæjarfé- lagið hefur forgang að húsinu með ýmsar skemmtanir og atburði á sínum snærum. Má þar nefna ára- mótaball, þorrablót og Færeyska daga, auk þess sem þar er boðið upp á starfsemi fyrir eldri borgara. Þá er leikfélagið með starfsemi sína í húsinu, sem og Sjóstang- væðifélag Snæfellsbæjar. Þá má nefna að áframhald verð- ur á bíósýningum Lionsklúbbs Olafsvíkur, en klúbburinn kom að uppbyggingu hússins. Þá hafa skólastofnanir bæjarins og for- eldrafélög áfram aðgang að hús- inu. Snæfellsbær mun hafa afnot af húsinu á virkum dögum endur- gjaldslaust til fundahalda og mannfagnaða ef á þarf að halda. Eyþór Björnsson, bæjarritari í Stykkishólmi sagði í samtali við Skessuhorn að góð reynsla væri af þessu rekstrarfyrirkomulagi. Þetta hafi komið ágætlega út fyrir sveit- arfélagið og þar á bæ vonuðust menn til þess að það tækist að leigja reksturinn út á ný. Ahuga- sömum er bent á að hafa samband við Eyþór eða senda bréf á skrif- stofu Snæfellsbæjar. -KÓP Leiðrétting I síðasta tölublaði Skessuhoms er fregn um söfnun til að gefa Sjúkrahúsi Akraness sneið- myndatæki. Nokkurs misskiln- ings gætir í ffegninni. Lions- klúbbur Akraness hefur ekki for- göngu um söfnun þessa heldur er hún algjörlega á vegum einstak- linga. Þegar henni lýkur verður gerð nánari grein fyrir henni. Leiðréttingu þessari vildi Jósef H Þorgeirsson, ffáfarandi formaður klúbbsins koma á ffamfæri. -mm Bæta lýsingu HVALFJ.GÖNG: Stjóm Spalar hefur ákveðið að tvöfalda lýsingu yfir akbrautum Hvalfjarðarganga fyrstu 250 metrana inn í göngm beggja vegna. Samkvæmt upplýs- ingum ffá Speh hefur einkum eldra fólk kvartað yfir því að of mikill munur sé á dagsbirtu og lýsingu inn í göngunum. Með því að auka lýsinguna næst munnum ganganna auðveldar það vegfar- endum að venjast birtubreyting- unni. Nýjum loftljósum verður komið fyrir í næstu viku og er nauðsynlegt að loka göngunum í fjórar nætur tdl þess að gefa iðn- aðarmönnum vinnuffið og nauð- synlegt öryggi. Göngin verða því lokuð ffá miðnætti til kl. 6 að morgni aðfaramætur þriðjudags, miðvikudags, fimmtudags og föstudags þ.e. 19.-22. september. -hj Ráðist á mann AKRANES: Aðfaramótt sunnu- dags kom maður á lögreglustöð- ina á Akranesi blóðugur í ffaman og með brotna ffamtönn. Kvaðst hann hafa verið á gangi í bænum þegar einhver kom aftan að hon- um og barði í höfúðið þannig að hann féll í götuna. Högg hafi síð- an dunið á andliti hans þar sem hann lá í götunni. Maðurinn kvaðst ekki þekkja árásarmann- irm, sem hvarf á braut. Hinn slas- aði fór til aðhlynningar á slysa- deild og er árásin í rannsókn hjá lögreglu. -so 20 gr. af hassi BORGARFJÖRÐUR: Lög- reglan í Borgamesi stöðvaði sl. föstudag tvo menn sem vom á leið norður í land í gegnum hér- aðið og vom þeir handteknir eft- ir að í fórum þeirra fúndust rúm- lega 20 gr. af hassi. Viðurkenndu þeir að eiga hassið og var þeim sleppt að yfirheyrslum loknum. -so 301 Hvalíjarðar- sveit HVALFJARÐARSVEIT: Sveitarstjóm Hvalfjarðarsveitar hefúr samþykkt tillögu Einars Amar Thorlaciusar sveitarstjóra um að óskað verði eftir því við Is- landspóst að póstáritun í sveitar- félaginu verði breytt á þann veg að í stað áritunarinnar 301 Akra- nes komi 301 Hvalfjarðarsveit. Sem kunnugt er varð sveitarfé- lagið Hvalfjarðarsveit til £ vor við sameiningu fjögurra sveitarfélags sunnan Skarðsheiðar, Innri- Akraneshrepps, Hvalfjarðar- strandahrepps, Skilmannahrepps og Leirár- og Melahrepps. Ibúar þessara sveitarfélag tilheyTðu póstnúmerinu 301 Akranes. Er því nú svo komið að allir íbúar í 301 era komnir í sama sveitarfé- lagið og því var tdllagan lögð fram. -hj

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.