Skessuhorn - 20.09.2006, Side 14
14
MIÐVIKUDAGUR 20. SEPTEMBER 2006
Endurreisa þarf velferðarsamfélagið
-segir Guðbjartur Hannesson frambjóðandi í próflcjöri
S amfylkingarinnar
Guðbjartur Hannesson, skóla-
stjóri á Akranesi segir að stjórnar-
farið í landinu hafi hvatt hann til
dáða þegar hann tók þá ákvörðun
að gefa kost á sér í prófkjör Sam-
íylkingarinnar í Norðvesturkjör-
dæmi. Hann tilkynnti um ákvörðun
sína á fundi kjördæmisráðs flokks-
ins sem haldinn var á Isafirði á
laugardag. Hann segir í samtali við
Skessuhorn að á undanförnum
árum hafi ítrekað verið skorað á sig
að bjóða sig fram til Alþingis. „Ég
hef verið í sérlega gefandi og
skemmtilegu starfi og því ekki talið
tímabært að bjóða mig fram. Nú
þegar Jóhann Arsælsson ákvað að
hætta þingstörfum ákvað ég að
verða við þessari áskorun og gefa
Samfylkingarfólki og stuðnings-
mönnum á Norðvesturlandi kost á
að bjóða mig fram í 1. eða 2. sæti á
lista flokksins í vor“.
Guðbjartur hefur gegnt fjöl-
mörgum trúnaðarstörfum í stjórn-
málastarfi, setið í bæjarstjórn Akra-
ness í 12 ár, setið í ótal ráðum og
nefhdum og stjómum fyrirtækja,
meðal annars í bankaráði Lands-
bankans í nokkur ár. „Nú síðast hef
ég setið í Framtíðarhópi Samfylk-
ingarinnar og tekið þátt í afar skap-
andi umræðu um framtíðarsýn í
hinum ýmsu málaflokkum. Eftir 25
ára skólastjórn og viðbótarnám í
fjármálum og menntun þá langar
mig að nýta þessa reynslu mína á
Vilja Iíf í skólahúsið
í Óla6dal
nýjum vettvangi. Stjórnarfarið í
landinu hefur hvatt mig til dáða.
Ég hef eins og svo ótal margir fyllst
réttlátri reiði yfir vaxandi óréttlæti
og ójöfhuði undir sitjandi ríkis-
stjóm. Hverfa þarf ffá sérhyggj-
unni, forréttindum hinna ríku og
virðingarleysinu gagnvart fólki og
náttúru. Ný ríkisstjórn þarf að
byggjast á megin styrkleika íslenskt
samfélags, það er samábyrgð, jafn-
ræði og jöfhum tækifæram. Endur-
reisa þarf velferðarsamfélagið. Þá
skiptir miklu að jafhræðis sé gætt til
dæmis milli landsbyggðar og höf-
uðborgarsvæðis, en það er langt í
frá að svo sé og engin teikn að
svokölluð markaðsöfl tryggi slíkt
jafhræði,“ segir Guðbjartur.
Aðspurður segir hann að Sam-
fylkingin þurfi að styrkjast í kom-
andi kosningum ekki hvað síst í
Norðvesturkjördæmi. „Frjálslynd-
ur jafhaðarflokkur eins og Samfylk-
ingin er einfaldlega eini kosturinn
fyrir kjósendur til að gefa skýr
skilaboð um ósk um breytta stjóm-
arstefnu og ég hef áhuga á að leggja
mitt að mörkum til að svo megi
verða,“ segir Guðbjartur að lokum.
m
Jóhann Arsælsson
hættir þingmennsku
Jóhann Arsælsson þingmaður
Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi hefur ákveðið að gefa
ekki kost á sér til áffamhaldandi
þingsetu. Hann tilkynnti þetta á
fundi kjördæmisráðs Samfylkingar-
innar ffam fór á Isafirði á laugar-
dag. I ávarpi sínu á fundinum
kvaðst Jóhann ætla að vinna af alefli
að því að fella núverandi ríkisstjóm
og hann myndi starfa af fullum
krafti innan Samfylkingarinnar. Jó-
hann tók fyrst sæti á Alþingi sem
varaþingmaður Vesturlandskjör-
dæmis árið 1984. Hann var kjörinn
þingmaður Vesturlandskjördæmis
fyrir Alþýðubandalagið árið 1991
og sat til loka þess kjörtímabils árið
1995. Hann var aftur kjörinn á þing
árið 1999 þá sem frambjóðandi
Samfylkingarinnar og var endur-
kjörinn árið 2003. Jóhann var bæj-
arfulltrúi á Akranesi 1974-1982 og
1986-1990.
A fundinum var ákveðið að láta
prófkjör ráða því hvernig efstu sæti
framboðslistans fyrir kosningar til
Alþingis næsta vor. I prófkjörinu
geta allir flokksmenn tekið þátt
sem og þeir sem undirrita stuðn-
ingsyfirlýsingu við flokkinn. A
fundinum lýstu nokkrir flokks-
menn yfir áhuga á framboði en
ffamboðsffestur rennur út 30. sept-
ember. Þeir em Sveinn Kristinsson
á Akranesi sem sækist eftir 1. sæti
listans, Guðbjartur Hannesson á
Akranesi sækist eftir 1. eða 2. sæti
listans, Ragnhildur Sigurðardóttir í
Snæfellsbæ sækist efdr 3. sæti list-
ans, Sigurður Pétursson á Isafirði
sækist eftdr 1.-4. sæti listans og
Bryndís Friðgeirsdóttir sækist eftir
1.-3. sæti listans. Aður hafði hinn
þingmaður flokksins í kjördæminu,
Anna Kristín Gunnarsdóttir á
Sauðárkróki, lýst því yfir að hún
sæktist eftir 1. eða 2. sæti á ffam-
boðslista flokksins.
HJ
Vil byggja upp rétdátt samfélag
-segir Ragnhildur Sigurðardótdr
Sveitarstjóm Dalabyggðar hefur
falið sveitarstjóra að kanna tillögur
sem fyrir liggja um ffamtíð skóla-
hússins í Olafsdal og ræða máhð við
eigendur jarðarinnar og Olafsdals-
nefnd. Forsaga málsins er sú að
Sturlaugur Eyjólfsson ritaði sveitar-
stjóm bréf um skólahúsið. I bréfinu
kemur ffam að um 1990 hafi húsið
verið mjög illa farið effir ítrekuð
innbrot þar sem rúður vom brotnar,
ýmsu stolið og skemmdir unnar.
Fyrir atbeina Búnaðarsambands
Dalamanna hafi síðan verið ráðist í
viðgerð á húsinu á árunum 1994-
1996 og einnig hafi verið girt í
kringum húsið og helstu minjar í
Olafsdal. Umsjón með þeim við-
gerðum höfðu arkitektarnir Stefán
Om Stefánsson, Grétar Markússon
og Hjörleifur Stefánsson.
Þá segir í bréfi Sturlaugs að síð-
ustu tíu árin hafi ekkert verið gert í
Olafsdal. Landbúnaðarráðimeytið,
sem hefur umráð yfir jörðinni fyrir
hönd ríkissjóðs, hafi ekki sinnt jörð-
inni á nokkum hátt. Enginn hafi eft-
irlit með húsinu, girðingin sé ekki
skepnuheld lengur og hestar hafi
komist að húsinu og nagað glugga á
suðurenda þess.
„Það er ekki vansalaust fyrir okk-
ur Dalamenn að láta þetta gamla,
stóra og merkilega hús standa þama
eftirlitslaust, og án nokkurra nytja
nema sem fæða fyrir hross Saurbæ-
inga. Því vil ég skora á hreppsnefnd
Dalabyggðar að beita sér fyrir því að
koma á fót einhverri starfsemi í
Ólafsdal,“ segir orðrétt í bréfi Stur-
laugs. Nefnir hann sem dæmi að
auglýsa megi efrir einhverjum sem
taka vilja staðinn að sér hvort sem
það yrðu félagasamtök eða einstak-
hngar. Við umræður um bréfið í
sveitarstjórn Dalabyggðar var
einnig lögð fram tillaga ffá Þrúði
Kristjánsdóttur um að húsið yrði
flutt í Búðardal og það notað sem
safhahús.
Torfi Bjamason stofnaði Búnað-
arskólann í Olafsdal árið 1880 og
var það fyrsti Búnaðarskóli á Islandi.
Skóhnn starfaði til 1907. Skólahúsið
var byggt árið 1890 og er 421 ffn að
stærð. Jörðin hefur verið í eyði í
rúma þrjá áratugi. HJ
Ragnhildur Sigurðardóttir, um-
hverfisfræðingur í Snæfellsbæ seg-
ir Samfylkinguna eiga mikla
möguleika í Norðvesturkjördæmi
en hún hefur gefið kost á sér til
setu í þriðja sæti framboðslista
flokksins við komandi þingkosn-
ingar. Hún er fædd og uppalin í
Olfusi og lauk mastersgráðu í um-
hverfisfræði frá Landbúnaðarhá-
skóla Noregs árið 1998. Sama ár
keypti hún ásamt manni sínum
Gísla Erni Matthíassyni bónda
jörðina Álftavatn í Staðarsveit þar
sem þau búa með sauðfé. Að auki
starfar hún sem lektor við Land-
búnaðarháskóla Islands á Hvann-
eyri og rekur lítið ráðgjafarfyrir-
tæki á sviði umhverfismála heima í
sveitinni. I samtali við Skessuhorn
Sveinn Kristinsson, bæjarfulltrúi
á Akranesi segir félagsleg sjónar-
mið og áherslur Samfylkingarinn-
ar þurfa að verða grundvöllur að
stefnu nýrrar ríkisstjórnar að lokn-
um kosningum á næsta ári. Sveinn
tilkynnti á fundi kjördæmisráðs
Samfylkingarinnar í Norðvestur-
kjördæmi um síðustu helgi að
hann sæktist eftir að skipa efsta
sæti á lista flokksins í kjördæminu.
Hann segist alltaf hafa haft brenn-
andi áhuga á félagsmálum og alltaf
tekið þátt í svoleiðis stússi, hvar
sem hann hefur búið.
Sveinn hefur að sögn ávallt tek-
ið þátt í launa- og réttindabaráttu
sinna stétta og verið þátttakandi í
stjórnmálastarfi frá því á unglings-
ámm. Þá hefur hann setið í fjölda
nefnda og stjórnum fyrirtækja svo
sem Orkuveitu Reykjavíkur og
Faxaflóahafna. Hann hefur setið í
bæjarstjórn Akraness í þrjú kjör-
tímabil, en þau tvö síðustu ýmist
verið formaður bæjarráðs, eða for-
seti bæjarstjórnar. Þá hefur hann
síðastliðin fimm ár sinnt störfum
segir hún alla tíð hafa starfað mik-
ið að félagsmálum og verið virk í
stjórnmálum. Hún er nú meðal
annars formaður Bæjarmálasam-
taka Snæfellsbæjar, formaður Sam-
fylkingarinnar á Snæfellsnesi og
situr í stjórn kjördæmisráðsins.
„Ég hef gefið kost á mér í þriðja
sæti listans því ég tel að það verði
baráttusætið í vor. Ég hef verið
vinstra megin við miðju frá ung-
lingsárum og vil hafa meiri áhrif á
samfélagið og mun í störfum mín-
um leggja sérstaka áherslu á um-
hverfis-, landbúnaðar-, byggða- og
jafhréttismál. Ef einhversstaðar er
hægt að byggja upp réttlátt og gott
samfélag þá er það á Islandi. Ég tel
að Samfylkingin eigi mikla mögu-
leika í kjördæminu og að við séum
fyrir Rauða kross íslands. „Ég hef
gaman af því að takast á við
ögrandi verkefni og þegar það get-
ur staðið til boða að sinna þing-
mennsku fyrir Norðvesturkjör-
dæmið fmn ég að ég get ekki látið
það tækifæri fram hjá mér fara. Ég
þekki sveitarstjórnarmálin út í
hörgul, hef um dagana sankað að
mér fjölbreyttri reynslu á mörgum
sviðum, bæði úr samfélaginu al-
mennt og atvinnulífinu. Ég er
fæddur og uppalinn á ysta hjara
Vestfjarða, en uni mér vel hvort
sem er í þéttbýli eða í einangrun
nyrstu Stranda. Ég tel að mín fjöl-
breytta reynsla og samfélagssýn
muni gagnast vel ef ég fæ umboð
til að beita mér fyrir hönd íbúanna
í kjördæminu og fyrir þjóðina í
heild. Þess vegna legg ég kátur í
þetta ferðalag með viljann og
reynsluna í farteskinu," segir
Sveinn.
Hann segir Samfylkinguna
sterkasta málsvara jafnaðar og fé-
lagshyggju á Islandi. Staða flokks-
ins í kjördæminu og á landsvísu sé
tilbúin til að taka við stjórn lands-
málanna," segir Ragnhildur Sig-
urðardóttir.
HJ
sterk en hana þurfi að styrkja enn
frekar. „Hin félagslegu sjónarmið
og áherslur Samfylkingarinnar
þurfa að verða grundvöllur að
stefnu nýrrar ríkisstjórnar. A kom-
andi vetri þarf að kynna stefmma
af krafti og í kosningunum í vor fá
kjósendur tækifæri til að fella lúna
hægri ríkisstjórn og fá í staðinn
nýja og kraftmikla jafnaðar- og fé-
lagshyggjustjórn," segir Sveinn
Kristinsson.
HJ
Herdís sældst
eftir öðru sæti á Ksta
Framsóknarflokks í NV
Herdís Á Sæmundardóttir, vara-
þingmaður Framsóknarflokks í NV
kjördæmi hefur sent frá sér yfirlýs-
ingu um væntanlegt framboð sitt
vegna Alþingiskosninganna í vor.
Yfirlýsing hennar er svohljóðandi:
„Ég hef ég ákveðið að sækjast eftír
að skipa 2. sæti á lista Framsóknar-
flokksins í Norðvesturkjördæmi.
I gegn um störf mín á undanföm-
um ámm hef ég öðlast mikla reynslu
og þekkingu sem ég vil nýta í þágu
kjördæmisins. Sem formaður stjóm-
ar Byggðastofnunar tel ég mig
þekkja vel aðstæður atvinnuh'fs og
skilyrði til búsetu og þróunar
byggðar á landsbyggðinni. Ég hef
jafnframt verið sveitarstjómarmað-
ur til fjölda ára í Skagafirði og er nú
formaður ráðgjafamefndar Jöfhun-
arsjóðs sveitarfélaga og hef því góða
þekkingu og reynslu af málum á
vettvangi sveitarfélaga. Við síðustu
Alþingiskosningar skipaði ég 3. sæti
á lista flokksins og er því 1. vara-
þingmaður Framsóknaflokksins í
Norðvesturkjördæmi. Á vettvangi
Alþingis og landsmála hef ég beitt
mér fyrir atvinnu- og byggðamálum
í víðu samhengi. Uppbygging
menntastofhana á landsbyggðinni
og betra aðgengi að menntun á öll-
um skólastigum er mér afar hugleik-
ið sem og greiðari samgöngur og
bætt fjarsldpti á landsbyggðinni.11
HerdísA. Sæmundardóttir
Saudárkróki.
I vor þarf að fefla lúna rflásstjóm
-segir Sveinn Kristinsson