Skessuhorn


Skessuhorn - 18.10.2006, Page 4

Skessuhorn - 18.10.2006, Page 4
4 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 2006 „•tcáaúriGkw 3 Sofitiaði undir stýri DALIR: Maður á fertugsaldri er talinn hafa sofnað undir stýri þegar hann var á ferð um Bröttubrekku sl. föstudagskvöld með þeim afleiðingum að jepp- lingur sem hann ók valt. Bíllinn rann töluverða vegalengd á slit- lagi vegarins áður en hann fór nokkrar veltur út fyrir veg. Oku- maðurinn var einn í bílnum og var töluvert lemstraður. Hann var fluttur á sjúkrahús til að- hlynningar en hefur verið út- skrifaður. Að sögn lögreglu er bíllinn gjörónýtur. -mm Gísli formaður Hafitiasambands Landið: A þingi Hafhasam- bands sveitarfélaga sem ffam fór á Höfti í Homafirði í liðinni viku var samþykkt að breyta nafhi samtakanna í Hafnasam- band Islands og jafnffamt var lögum sambandsins breytt. Megin tilgangur breytinganna var að gera höfhum kleift, sem ekki eru í eigu sveitarfélaga, að vera innan samtakanna. A þing- inu var Gísli Gíslason, haftiar- stjóri Faxaflóahafha kjörinn for- maður Hafnasambands Islands en hann hefur verið formaður Hafnasambands sveitarfélaga undanfarin ár. Aðrir stjórnar- menn vom kjörnir þau Björg Agústsdóttir, Grundarfirði, Björn Magnússon, Hafhasam- lagi Norðurlands, Helga Jóns- dóttir, Fjarðabyggð, Ólafur M. Kristinsson, Vestmannaeyjum, Ólafur Örn Ólafsson, Grindavík og Skúli Þórðarson, Húnaþingi vestra. -hj Rannsakar ædaðar hleranir AKRANES: Bogi Nilsson ríkissaksóknari hefur falið Ólafi Þór Haukssyni sýslumanni á Akranesi að annast rannsókn á ætluðum hlerunum á símum í utanríkisráðuneytinu hjá Jóni Baldvini Hannibalssyni, þáver- andi utanríkisráðherra og Arna Páli Arnasyni, starfsmanni varn- armálaskrifstofu ráðuneytisins. Akvörðunin er tekin í tilefni af ummælum og upplýsingum Jóns Baldvins og Arna Páls í fjölmiðl- um um hleranir á símum þeirra. -hj Fyrirspum um Þjóðbraut ALÞINGI: Magnús Þór Haf- steinsson þingmaður Frjálslynda flokksins hefur lagt ffam á Al- þingi fyrirspum til Sturlu Böðv- arssonar samgönguráðherra um hvað líði undirbúningi fram- kvæmda við nýjan þjóðveg (Þjóðbraut) inn í þéttbýlið á Akranesi. -hj Nýr formaður smábátaeigenda á Snæfellsnesi Alexander Kristinsson á Hell- issandi var á dögunum kjörinn nýr formaður Snæfells, félags smábáta- eigenda á Snæfellsnesi, á aðalfundi félagsins sem haldinn var í Gmnd- arfirði. Símon Sturluson í Stykkis- hólmi, sem verið hefur formaður, gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Félagsmenn Snæfells þökkuðu Símoni fyrir góð störf í þágu félags- ins. A fundinum var samþykkt áskor- un þess efnis að Landssamband smábátaeigenda beiti sér af alefli fyrir því að lög um línuívilnum verði breytt þannig að allir dag- róðrarbátar sem róa með línu njóti ívilnunar án tillits til þess hvernig línan er beitt. Einnig hvötm félags- menn Snæfells til þess að stjórnvöld ákveði og gefi út jafnstöðuafla til fjögurra ára í senn og að veiðiheim- ildir taki mið af vistvænleika veið- anna og þannig komið á raunhæffi veiðarfærastýringu við nýtingu auðlindarinnar. HJ Vegfarendur um Kirkjubraut á Akranesi ráku upp stór augu sl. miðvikudagsmorgun þegar þeir sáu fána Sparisjóðs Mýrasýslu og Hyrnunnar blakta við hún á fánastöngum fyrir utan félagsmiðstöðina Arnardal. Ekki er þarna um merki útþenslu þess- ara ágætu fyrirtækja Fánaþjófar á ferð heldur hefur þessum fánum verið stolið af fánastöngum fyrirtækj- anna í Borgarnesi og þeim komið fyrir við Arnardal. Starfsfólki Arnardals var gert við- vart og tók það fánana niður og verður þeim komið í hendur eigenda. HJ Leitað að rjúpnaskyttu á Bröttubrekku Á níunda tímanum á sunnudags- kvöld voru björgunarsveitir Slysa- varnafélagsins Landsbjargar kallað- ar út til leitar að rjúpnaskyttu á Bröttubrekku. Svæðisstjórn var kölluð saman og fjórar björgunar- sveitir boðaðar sem og sporhundar. Maðurinn kom fram rétt fyrir klukkan 21 um kvöldið í Víðidal í ágætu ásigkomulagi. Skyttan, sem er vanur fjallamaður á fertugsaldri, hafði farið til veiða við annan mann og áformuðu þeir að hittast við bíl sinn klukkan 18. Þegar hann skilaði sér ekki var farið að svipast um eft- ir honum og kallað eftir aðstoð björgunarsveita á níunda tímanum eins og fyrr segir. Aðstæður til leit- ar á svæðinu voru mjög erfiðar, mikil rigning og hífandi rok. Björg- tmarsveitir á landinu voru kallaðar út til leitar að samtals þremur rjúpnaveiðimönnum á þessum fyrsta degi veiðitímabilsins, sem blessunarlega komu allir fram. Þetta var í Bitrufirði, Lyngdalsheiði og síðasta leit dagsins var á Bröttu- brekku. MM Lítil eftírtekja eftír fyrsta rjúpnaveiðidaginn Heldur færri gengu til rjúpna á fyrsta degi veiðitímabilsins, en reiknað hafði verið með, enda veð- ur óhagstætt; rok og rigning víða um land. Samkvæmt heimildum Skessuhorns eru margir sem kusu að bíða næstu helgar en þá má veiða nokkra daga í röð og einhverjir eru búnir að taka sér frí ffá miðviku- degi fram á sunnudag í þeim til- gangi að ganga til rjúpna. Fregnir bárust á sunnudaginn af veiðimönnum í Dölunum, þar hafði lítið sést af fugli, uppi á Bröttubrekku voru menn og síðan voru nokkuð margir á Holtavörðu- heiði. Flestir sáu lítið af fúgli og sumir ekkert. „Við fórum í morgun og fengu nokkra fugla en það var son, er blaðamaður hitti hann þeg- ar hann lokið fyrsta veiðideginum í rjúpu á þessu tímabili. GB ekki mikið af rjúpu, við fengum sjö annar hópurinn og hinn veiddi átta,“ sagði veiðimaður sem var að skjóta á Barða- ströndinni á sunnu- dag. „Það hefur verið meira af fugli hérna,“ bætti hann við. Á Tröllatungu- heiði reyndu fyrir sér en fei fugla. „Ég aðeins uppá fjall og fékk rjúpur. Það var ar leiðinlegt veður en góð útivist," sagði Skagamaður- inn Ami Aðalsteins- Ami Aðalsteinsson með þtjá affuglum dagsins sl. sunnudag. Ný röntgentæld áSHA f síðustu viku voru tekin í notkun ný röntgentæki á Sjúkrahúsinu og heilsugæslu- stöðinni á Akranesi. Undan- famar vikur hefur staðið yfir viðamiklar endurbætur á mynd- greiningardeild stofiumarinnar og liður í þeim ffamkvæmdum vom þessi tækjaskipti. Starfsemi deildarinnar er því hafin þótt ekki sé að fullu lokið þeim framkvæmdum sem fyrirhug- aðrar voru. Á þessum tíma hef- ur nauðsynlegri þjónustu verið haldið uppi og fluttu geisla- ffæðingar SHA starfstöð sína á Reykjalund þangað sem sjúk- lingar stoftumarinnar hafa ver- ið fluttir í nauðsynlegum til- vikum. Einnig vom sjúklingar í einhverjum tilfellum fluttir til Reykjavíkur. Stefnt er að því að ffamkvæmdum ljúki að fullu í desember. HJ Fyrrverandi for- seti í heimsókn REYKHÓLAR: Rudolf Schuster fyrrverandi forseti Slóvakíu heimsótti Reykhóla á laugardaginn. Hann kom þangað í fylgd lífvarðar síns og Haraldar Snæhólms. Fyrst kom forsetinn fyrrverandi við í Þörungaverk- smiðjunni þar sem Halldór Sig- urðsson ffamkvæmdastjóri tók á móti honum og sýndi verksmiðj- una. Þá var Hlunnindasýningin á Reykhólmum skoðuð undir leið- sögn Óskars Steingrímssonar sveitarstjóra. Rudolf var kjörinn annar forseti Slóvakíu 29. maí 1999 og tók við embættinu 15. júní það ár. Forsetakosningunum í apríl 2004 tapaði hann hins veg- ar fyrir Ivan Gasparovic. Áður var Rudolf borgarstjóri í Ko_ice í fimm ár. -hj Samdráttur í afla VESTURLAND: í septem- ber var landað 2.563 tonnum af sjávarfangi í höfnum á Vestur- landi. Er það ríflega þriðjungs samdráttur ffá sama mánuði í fyrra þegar 3.922 tonnum var landað á Vesturlandi. Af einstök- um fisktegundum má nefna að í ár var landað 935 tonnum af þorsld en á sama tíma í fyrra var aflinn 1.413 tonn. Ysuaflinn í ár var 330 tonn en var 825 tonn í fyrra. Aðeins 198 tonnum af ufsa var landað í ár en 325 tonnum í fyrra og 152 tonnum af steinbít var landað í ár en 239 tonnum í fyrra. Fyrstu níu mánuði ársins var landað í höfhurn á Vesturlandi 68.753 tonnum af sjávarfangi en á sama tíma á síðasta ári höfðu 76.802 tonn komið á land. Sam- drátturinn er því rúm 10% á milli ára. Mestur er samdrátturinn í loðnu en í ár var landað 9.929 tonnum en á sama tíma í fyrra hafði verið landað 31.220 tonn- um. Hins vegar hefur fyrstu níu mánuðina verið landað 14.527 tonnum af kolmunna en engum kolmunna var landað á sama tíma í fyrra. -hj Lokatölur í læd Þann 11. október sl. gaf Lands- samband veiðifélaga út nýjar staðfestar lokatölur eftir veiði- sumarið í stærstu íslensku lax- veiðiánum. Hér að neðan er sá Hsti yfir ámar á Vesturlandi: Norðurá 2247 Þverá og Kjarará 2176 Langá 1835 Grímsá og Tunguá 1118 LaxáíDölum 1100 Haffjarðará 1049 Laxá í Kjós 1023 Laxá í Leirársveit 698 Straumfjarðará 502 Flókadalsá (Borgarf) 438 Bóndi í Dölum hafði samband við Skessuhom og vildi leiðrétta rangar tölur sem birst höfðu um veiði í nokkrum ám í sýslunni. Beðist er velvirðingar á því. En réttar lokatölur í viðkomandi ám em þessar: Krossá á Skarðsströnd 196 Búðardalsá 300 Flekkudalsá 217. -mm Bjarnarbraut 8 - Borgarnesi Sími: 433 5500 Kirkjubraut 54-56 - Akranesi Fax: 433 5501 Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14:00 á þriðjudögum. Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skilafrestur smáauglýsinga er til 12:00 á þriðjudögum. Blaðið er gefið út í 3.000 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu. Áskriftarverð er 1300 krónur með vsk á mánuði en krónur 1200 sé greitt með greiðslukorti. Elli- og örorkulíf.þ. greiða kr. 950. Verð í lausasölu er 400 kr. SkRIFSTOFUR BLAÐSINS ERU OPNAR KL. 9-16 ALLA VIRKA DAGA Útgefandi: Skessuhorn ehf. - 433 5500 skessuhorn@skessuhorn.is Ritstj. og ábm. Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Blaðamenn: Halldór Jónsson 892 2132 hj@skessuhorn.is Magnús Magnúss. 894 8998 magnus@skessuhorn.is Kolbeinn Ó Proppé 659 0860kolbeinn@skessuhorn.is Augl. og dreifing: Katrín Óskarsd. 616 6642 katrin@skessuhorn.is Umbrot: Olgeir Helgi Ragnarsson 437 1677 gudrun@skessuhorn.is

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.