Skessuhorn


Skessuhorn - 18.10.2006, Blaðsíða 22

Skessuhorn - 18.10.2006, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 18. OKTOBER 2006 22 Klór-frjóvgun Grannkona mín ein og vin- kona er sérstaklega orðheppin. Eitt sinn þegar við sem oftar sátum yfir kaffibolla vorum við að tala um barnalán og hversu misjafnlega fólki gengi að fjölga sér. „Alveg er þetta með ein- dæmum, segir hún, hversu mis- jafht þessu er skipt milli kvenna. Sum pör reyna fram í hið óend- anlega og ekkert hefst upp úr því nema vonandi ánægjan, en aðrar konur eru svo frjósamar að þær mega ekki taka í þöndina á karlmanni, þá eru þær orðnar ófrískar.“ Eg skyldi nú ekki samhengið á milli þess að taka í höndina á karlmanni og þess að verða óléttur. ,Jú, svaraði hún að bragði, það er ekki sama hvar þær klóra sér á eftir“. Misritanir Misritanir í skýrslum eru ótrúlegar. Það bvarflar að manni að viðkomandi geti varla hafa verið með fullu viti. Hér eru nokkur dæmi úr skýrslum lögffæðinga. Lögfræðingur: Var þetta sama nef og þú braust sem barn? Lögfræðingur: Segðu mér læknir, er það ekki rétt að í flestum tilfellum sem maður deyr í svefhi, þá veit hann ekk- ert af því fýrr en morguninn eftir? Lögfræðingur: Og hvað gerðist þá? Vitni: Hann sagði við mig: „Eg verð að drepa þig þar sem þú getur borið kennsl á mig. „ Lögfræðingur: Og drap hann þig? Lögfræðingur: Varst það þú eða bróðir þinn sem dó í Ví- etnamstríðinu? Lögfræðingur: Yngsti sonur- inn, þessi tvítugi, hvað er hann gamall? Lögfræðingur: Att þú börn eða eitthvað þess háttar? Lögfræðingur: Eg sýni þér sönnunargagn 3 og spyr hvort þú þekkir manninn á myndinni. Vitni: Þetta er ég. Lögfræðing- ur: Varst þú viðstaddur þegar myndin var tekin? Ris vandamál Þegar ég heyrði risvandamál fýrst auglýst var ég ekki skarpari en svo að ég taldi víst að auglýs- ingin tengdist vandamálum í risum, þ.e. þar væri leki eða eitthvað í þá veru. Fljótlega komst ég að hinu sanna og skammaðist mín fýrir einfeldn- ina. Risvandamál komust veru- lega í tísku er undralyfið Viagra kom á markaðinn. Allir muna brandara er spruttu upp eins og gorkúlur á baug. Flestir sem eiga tölvur fengu rismiklar myndir sendar, þá leiðina, hinir keyptu sér blöð þar sem ekki var lágt á mönnum risið. Hins veg- ar komu fljótt í ljós aukaverkan- ir við þessu undralyfí og lækk- aði þá heldur risið, notkun þess gat nefnilega valdið hjartaáfalli. Þá minnist ég samtals við eldri mann sem alltaf sagðist hafa drukkið kaffi á kvöldin. „Eg verð svo stinnur og fínn og til- búinn í slaginn ef ég geri það. Það er engin leið fýrir mig að gagnast konu minni ef ég drekk ekki kaffi fýrir háttinn." A tím- um heilsubylgju hefur fólki ein- dregið verið ráðið frá því að drekka mikið kaffi og allra síst fýrir svefhinn. Það skyldi þó aldrei vera að ris-vandamálin séu vegna minnkandi kaffi- drykkju? . Svo mörg voru þau orð úr sveitinni að sinni. Meira síðar. Umsjón: Bima Konráðsdóttir Sextán þúsund gesdr sækja Garðavöll Um sextán þústmd hringir hafa verið spilaðir það sem af er ári á Garðavelli á Akranesi og reiknað er með að um sextán þúsund gestir sæki golfvöllinn heim á ári, þar af koma um sjö þúsund þeirra af Reykjavíkursvæðinu. Þetta kom ffam í kynningu Heimis Fannars Gunnlaugssonar, formanns Golf- klúbbsins Leynis í hófi sem haldið var fýrir styrktaraðila og velgjörð- armenn klúbbsins á föstudaginn. Klúbburinn gerði samning við sjö golfklúbba um sérstakt vinasam- starf og hefur það tekist mjög vel. Félagsmenn þeirra klúbba spiluðu um 38% af þeim hringjum sem leiknir hafa verið á árinu en félags- menn Leynis eiga um 56% af spil- uðum hringjum og 8% umferðar- innar kemur frá félagsmönnum annarra klúbba. Talið er að golffnenn sem sækja Garðavöll heim fari um þrjú þús- und ferðir á ári um Hvalfjarðar- göng og skilji eftir sig um 14 millj- ónir króna á ári fýrir ýmsa aðkeypta þjónustu á Akranesi. Félagar í Golfklúbbnum Leyni eru 423 í dag og hefur fjölgun þeirra verið of hæg að mati félagsmanna enda hefur þeim aðeins fjölgað um átta á árinu. Nokkur breyting hefur orðið að undanförnu á aldurssamsetningu félaga því í klúbbinn hafa gengið 39 félagar sem eru 18 ára eða yngri. A sama ta'ma hefur félögum 19 ára og eldri fækkað um 31. Þessi mikla fjölgun yngri félagsmanna er af- rakstur átaks sem klúbburinn stóð fyrir meðal barna og imglinga til kynningar á golfíþróttinni og er markmiðið að gera íþróttina að heilsársíþrótt. Eins og ávallt eru talsverðar framkvæmdir við Garðavöll í deigl- unni og má þar nefna hugmyndir um byggingu vélahúss, starfs- mannaaðstöðu og síðast en ekki síst hafa verið uppi áætlanir um bygg- ingu nýs golfskála með myndarlegri veitingaaðstöðu. Fyrir skömmu voru einnig, eins og fram kom í frétt Skessuhorns, kynntar hug- myndir um byggingu 50-80 her- bergja hótels við Garðavöll. Fram kom í kynningu Heimis að núver- andi áætlanir geri ráð fyrir að hefja framkvæmdir að hausti 2007 og húsið verði risið á um 9 mánuðum. HJ Ellefu ára stigameistari GB Uppskeruhátíð Golfklúbbs Borgarnerss var í Valfelli laugardaginn 14. október. Skemtidagskrá var heimatilbúin að vanda og þótti takast vel. Verðlaun í SPM mótaröðini hlutu eftirtaldir: Höggleikur án/forgj: 1. Omar Orn Ragnarsson 315 högg 2. Stefán Haraldsson 330 högg 3. Bergsveinn Símonarson 332 högg 4. Finnur Jónsson 334 högg Stigameistari Golfklúbbs Borg- arness 2006 varð með nokkrum yf- irburðum hinn ungi og efnilegi kylfingur Bjarki Pétursson, en Bjarki er aðeins 11 ár gamal og er án efa einn efhilegasti kylfingurinn í röðum GB og jafnvel þó víðar væri leitað. MM Punktakeppni: 1. Bjarki Pétursson 2. Albert Þorkelsson 3. Guðrún Sverrisdóttir 4. Pétur Már Sigurðsson 152 punkta 150 punktar 149 punktar 145 punktar Styrktaraðili mótsins var Sparisjóður Mýrasýslu Verðlaun voru veitt fýrir Meistarmót í holukeppni. Holumeistarar GB 2006: Kvennaflokkur: Júlíana Jónsdóttir Karlaflokkur: Stefán Haraldsson Bjarki Pétursson, stigameistari GB Skammhlaup í FVA á föstudag Næstkomandi föstudag verður óhefðbundin dagskrá hjá nemend- um Fjölbrautaskóla Vesmrlands á Akranesi. I stað venjulegs skóladags er nemendum boðið að taka þátt í allskyns þrautum og keppnum sem reyna ýmist á hugann eða lík- amann. „Skammhlaup er í þeim til- gangi að brjóta upp hefðbundna dagskrá skólans og fá alla með til þátttöku í líflegum og skemmtileg- um degi. Skyldumæting er í Skammhlaup, en það hefúr verið liður í skólastarfi FVA undanfarin 7-8 ár,“ segir Hörður Helgason skólameistari í samtali við Skessu- horn. Fyrir hverja þraut í Skammhlaupi eru veitt 1-10 stig. Fyrirfram skip- aðir hópar keppa sín á milli í margs konar greinum, t.d. teppaboð- hlaupi, en í því sest einn liðsmaður á teppi sem annar svo dregur, lang- hlaupi sem leiðir nemendur um stóran hluta bæjarins og vamsboð- hlaupi sem felst í því að hvert lið fær 2 plastglös til að bera vatn úr föm yfir í könnu þar til hún er full. I tímaþrautinni þurfa nemendur að hjálpast að við að leysa þrautir sem flestar tengjast náminu, þó að bind- ishnýtingar og uppábúin rúm muni seint teljast til hefðbundinnar námsskrár. Aður en dagskránni lýkur koma allir nemendur saman á sal þar sem keppt er í síðustu þraut- um dagsins, svo sem kappáti, drag- keppni og hópsöng. Sá hópur sem fær flest stig er leystur út með veg- legri pizzuveislu að dagskrá lokinni. Það er ljóst að nemendur FVA eiga skemmtilegan og spennandi dag fyrir höndum. Meðfylgjandi ljósmynd var tekin í dragkeppni á Skammhlaupi á síðasta ári. AHB Danshópur Evu sýndi og æfði í Flóanum Um liðna helgi fóru börn og unglingar sem æfa dans hjá Evu Karen Þórðardóttir á Kleppjárns- reykjum í æfingabúðir austur í Þingborg í Flóa. Alls fóru 54 ung- menni á aldrinum 6 ára til 16 ára og undu saman við dansæfingar, leik og störf. Þau gistu eina nótt ásamt fríðum hópi foreldra sem vann að matseld og umönnun. A sunnudeginum var auglýst danssýning sem heppnaðist afar vel og voru um 100 Flóamenn sem mættu og nutu sýningarinnar þar sem allir sýndu sitt besta. Danshóp- urinn stóð sig með prýði og var sér og sínum til sóma og stolt foreldr- anna sem gáfú sér tíma til að fara með. það er um helmingur nemenda Vert er að geta þess að nú æfir 61 skólans. krakki dans á Kleppjárnsreykjum KG/Ljósm: Þór Þorsteinsson. undir styrkri stjórn Evu Karenar en Landsleikur í Akraneshöllinni Knattspyrnusamband Islands hefur óskað efdr því að landsleik- ur Islands og Englands í flokki kvenna undir 19 ára aldri fari fram í Akraneshöllinni þann 21. nóvember og hefur bæjarráð Akraness fallist á málið. Leikur- inn verður því fýrsti landsleikur- inn sem fram fer í Akraneshöll- inni sem nú er stefút að því að vígja fyrsta vetrardag þann 21. október. HJ Þrír leikmenn endumýja samninga við IA Þrír leikmenn IA, þeir Páll Gísli Jónsson, Heimir Einarsson og Ellert Jón Bjömsson skrifuðu um helgina undir nýja samninga við félagið. Samningur Heimis er til þriggja ára en samningar Páls Gísla og Ellerts Jóns eru til tveggja ára. Gísli Gíslason, for- maður rekstrarfélags meistara- flokks IA segir samninga þessa mjög mikilvæga fýrir félagið því þarna sé um að ræða þrjá af fram- tíðarleikmönnum þess. HJ Guðjón þjdlfari og Gísli formaður með þá Pdl Gísla og Heimir á milli sín. Strákar gera það gott í körfunni Sjöundi flokkur stráka i körfu- bolta frá Umf. Skallagrími keppti í A riðli Islandsmótsins og varð í öðra sæti á eftir KR-ingum, en þeir unnu þrjá af fjórum leikjum. Meðfylgjandi er mynd af leik- mannahópnum ásamt þjálfara þeirra Jovan Zdravevski sem er leikmaður með meistaraflokki Skallagríms. GS Bestu stuðnings- mennimir Á lokahófi knattspyrnufólks sem haldið var á veitingahúsinu Broadway á laugardaginn voru veittar fjölmargar viðurkenning- ar fýrir góða frammistöðu á ný- liðinni leiktíð. Bestu stuðnings- menn í úrvalsdeild karla voru valdir stuðningsmenn IA. Fékk félagið að launum peningaverð- laun sem verja skal til unglinga- starfs. Stuðningsmarmafélag IA, Skagamörkin, var stofnað í vor og vakti verðskuldaða athygli við knattspyrnuvellina í sumar. HJ

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.