Skessuhorn


Skessuhorn - 18.10.2006, Blaðsíða 14

Skessuhorn - 18.10.2006, Blaðsíða 14
14 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 SlESSjÍM©BK[ Skógrækt í Reykholti bætir veðráttu og ásvnd staðarins Lítil og látlaus athöfn var í Reyk- holti sl. miðvikudag þegar svokall- aður Aldamótaskógur var formlega opnaður þar á staðnum. Tilurð þessa verkefnis var að aldamótaárið 2000 gróðursettu sjálfboðaliðar og starfsmenn skógræktarfélaga lið- lega 280 þúsundir skógarplöntur í svokallaða Aldamótaskóga á 5 svæðum í öllum landshlutum, eina plöntu fyrir hvern Islending. Til- efnið að stofnun Aldamótaskóga var þúsaldamótin og sameiginlegt 70 ára afinæli Skógræktarfélags Islands og jafhaldra þess, KB banka (þá Búnaðarbanka íslands), sem lagði til allar plöntur og áburð til verk- efnisins. Bankinn hefur í fhamhald- inu styrkt umhirðu og gerð aðstöðu til útivistar í Reykholti, en skógur- inn er nú þegar ásamt annarri skóg- rækt heimamanna og Skógræktar- félags Borgfirðinga, búinn að gjör- breyta til hins betra ásýnd staðarins Fv. Magnús Jóhannesson, Jenni R Olason, fulltrúar KB banka og Sr Geir Waage. Það hefur oft verið tekið svo til orða að efþú týnist í íslenskum skógi sé ráðið að standa upp! Nú er svo komið að það er ekki nóg í skóginum í Reykholti, jafnvelfyrir hœstu menn. Hér er horft úr skógarjaðrinum og heim að Reykholti. og aðstöðu til útivistar almennings á þessum sögufræga stað. Þar samdi Jónas þekktustu verk sín Séra Geir Waage bauð gesti vel- komna að nýju upplýsingaskilti um Aldamótaskóga sem komið hefur verið upp norðan kirkjunnar og Snorrastofu . Þar fluttu ávörp m.a. Magnús Jóhannesson, formaður Skógræktarfélags Islands, Jenni R Ólason formaður Skógræktarfélags Borgarfjarðar auk fulltrúa KB banka. Séra Geir lýsti umfangi og áhrifum skógræktar í Reykholti. Fyrsti vísir að skógrækt á staðnum var á fjórða áratug liðinnar aldar þegar Þorgils Guðmundsson kenn- ari við Héraðsskólann hóf plöntun ásamt nemendum í hlíðinni ofan staðarins. Fram að þeim tíma hafði staðurinn verið skóglaus. Arið 1990 var átak gert í skógrækt á staðnum þegar hópur skógræktarfólks af Norðurlöndunum kom tdl plöntun- ar á vegum Skógræktarfélags Is- Búið er að komafyrir merkingum áýms- um trjátegundum við göngustígana um Reykholtsskóg. lands. Þá skal getið þess að árið 1945 tóku afkomendur prestshjón- anna Sr Einars Pálssonar og Jó- hönnu K Eggertsdóttur Briem sig til og fengu girðingu til afnota til að setja niður plöntur og hefur sá ætt- bogi síðan sinnt þeirri skógrækt og komið saman á hverju ári í Eggerts- flöt. Minnisvarði um þau prests- hjónin er þar að finna. Séra Einar var prestur í Reykholti árin 1908- 1930 en prestsfrúin var afkomandi Eggerts Ólafssonar skálds sem fórst, eins og kunnugt er, á Breiða- firði, en lundurinn dregur nafn sitt af skáldinu. Þar giftu hjónin Eggert skáld Ólafsson og Ingibjörg Guð- mundsdóttir sig árið 1767. Til gamans má geta þess að Eggertsflöt notaði skáldið Jónas Arnason sem afdrep þegar hann vildi skrifa í næði. Þar samdi hann m.a. leikritin Skjaldhamra og Þið munið hann Jörund á þeim árum sem hann bjó og kenndi í Reykholtd. Menningin í skjól Séra Geir segir að áður en Alda- mótaskógaverkefnið hafi farið af stað hafi meira landi í Reykholti verið ráðstafað undir skógrækt og áætlar hann að nú séu um 70 ha lands skilgreindir undir skógrækt á staðnum. Þar af eru Aldamótaskóg- ar í um 5 ha. „Hér er nú að verða til skógur sem ver staðinn gegn norð- austanáttinni sem hér er ríkjandi. Skógurinn sem á allra næstu árum verður enn sýnilegri mun í ffamtíð- inni skapa öllu lífi hér á staðnum gott skjól og gjörbreyta veðráttunni til hins betra - hér mun menningin hafa gott skjól. Fyrir þetta erum við staðarbúar þakklátir, bæði skóg- ræktarfólki af öllu Vesmrlandi sem komið hefur hingað tdl plöntunar og ekki síður KB banka sem lagði verulega fjármuni í verkefnið," sagði Geir Waage. Fomar þjóðleiðir endurgerðar Effir smtta athöfn við upplýs- ingaskiltið var gengið um skóginn í Reykholti undir leiðsögn Sr Geirs. Þar er búið að gera glæsilega úti- vistaraðstöðu með nýjum göngu- stígum, borðum, bekkjum og merk- ingum við hinar fjölmörgu trjá- plönmtegundir sem þar er að finna. Þá hefur Vegagerðin smtt dyggi- lega við göngustígagerð um skóg- inn. „Vegagerðin hefur um margra ára skeið átt mjög gott samstarf við okkur í Reykholti og gert staðnum mikið gott með því að bera ofan í ferð frá þjóðveginum og á hinar fornu þjóðleiðir sem eru miklu feg- urri og öruggari til að ríða efdr en þjóðvegurinn með olíubomu slit- lagi. Vegagerðin hefur einnig lokað hinum forljóm og hætmlegu veg- skurðum neðan við Snorragarð og fyrir það er ég þakklátur. Eg met mjög mikils hversu góð samskiptin við Vegagerðina hafa verið og þakka það gagn sem hún hefur gert staðnum undanfarin ár,“ segir Geir í samtali við Skessuhorn. Hann seg- ir að tvisvar á undanförnum ámm hafi Landsvirkjun auk þess látið Reykhyltingum í té vinnuflokka harðduglegra ungmenna undir góðri verkstjórn, sem hafa hreinsað til og fegrað staðinn með vinnu- framlagi, svo sem fjarlægt gamlar girðingar og hjálpað til við tyrfmgu og fegrun. Auk þeirra ffamkvæmda sem get- ið hefur verið til fegmnar og land- bóta Reykholtsstaðar er ekki hægt að ljúka þessari ffásögn án þess að geta byggingar hestaréttar sem þar er að rísa næst og vestan við efsm húsin í Reykholti. Þetta er nýstár- legt hestagerði, þó í fomum stíl, þar sem hestafólk og gestir, sem t.d. koma ríðandi tdl messu á þjóðhátíð- ardegi ár hvert, geta geymt hross sín. Séra Geir vinnur mestmegnis sjálfur við þetta verk en segist hafa notið smðnings Vegagerðarinnar. Um tilurð gerðisins er saga og um hana segir Sr Geir: „Hann Guð- laugur Oskarsson, sóknarnefndar- formaður laug því á mig og að mér að ég hafi gefið Höskuldi heitnum Eyjólfssyni á Hofsstöðum það lof- orð í aðdraganda prestskosningar árið 1979 að ég myndi beita mér fyrir gerð hestagerðis þannig að reiðmenn gæm áð þar með góðu móti og geymt hesta sína. Loforð þetta á ég að hafa gefið í aðdrag- anda þess að ég var skipaður sókn- arprestur í Reykholti. Samvisku minnar vegna get ég því ekki annað en látið verða að því að koma þessu í verk,“ segir Geir. Höskuldargerði er niðurgrafið þannig að sé horft neðan frá staðnum ber ekkert á því í landslaginu í brekkunni, en þegar að því er komið er það stórt og myndarlegt og sannarlega þess virði að líta það augum. Séra Geir vildi að lokum koma því á ffamfæri að allir þeir sem hann hafi leitað tdl, opinberir aðilar sem einkaaðilar, í þeim tilgangi að bæta og fegra staðinn, hafi gert það myndarlega og með mikilli gleði og fyrir það væri hann afar þakklámr. MM hinar fornu þjóðleiðir ofan við stað- inn í því skyni að beina ríðandi um- Höskuldargerði Horft niður í Höskuldargerði, nýja hestagerðið sem Sr Geir vinnur að þessa dagana með stuðningi Vegagerðarinnar. \ ^ . ' ■ ■ . ar horft er sunnanmegin úr Reykholtsdal til Reykholts má þegar já glögg merki verðandi skógar í Reykholti, sem verður enn sýni- legri og ekki síst gagnlegri á nœstu árum.

x

Skessuhorn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.