Skessuhorn


Skessuhorn - 18.10.2006, Qupperneq 16

Skessuhorn - 18.10.2006, Qupperneq 16
16 MIÐVIKUDAGUR 18. OKTÓBER 2006 SA]ÉSiSClIÍiM!í:Í Búreikningar fyrir sér- hæfð sauðfjár- og kúabú Árleg skýrsla Hagþjónustu landbúnaðarins um uppgjör búreikninga í nautgripa- og sauðfjárrækt fyrir árið.2005 er komin út. í tilkynningu frá Hagþjónustunni segir að í heild hafi borist bókhalds- gögn frá 347 búum víðsvegar að af landinu, en til uppgjörs nýttust gögn frá 309 búum. Uppgjörsbúin lögðu inn samtals 26,6% heildarinn- leggs mjólkur í afurðastöðvar á árinu 2005 og 12,7% kindakjöts. Sérhæfð kúabú: Samkvæmt samanburði sömu búa (131 bú) var bú- stærð á sérhæfðum kúabúum að meðaltali 35,4 mjólkurkýr á árinu 2005, samanborið við 34,6 mjólkurkýr árið á und- an. Innvegið magn mjólkur í afurðastöð var að meðaltali 166.200 lítrar á bú; aukning nemur 4,2% frá fyrra ári. Reiknað út frá mjólkurinn- leggi, var nyt mjólkurkúa að meðaltali 4.695 lítrar á kú á árinu 2005; aukning nemur 1,8% á milli ára. Heildar- tekjur á bú voru að meðaltali 16.954 þús. kr. á árinu 2005; aukning nemur 9,2%. Búin eru mjög sérhæfð og er hlut- fall tekna af reglulegri starf- semi (búgreinatekjum) 92% af heildartekjum, bæði árin. Hagnaður fyrir laun eiganda var 1.770 þús. kr.; lækkun nemur 0,6% frá árinu á und- an. Fjárfestingar á árinu 2005 voru að meðaltali 7.157 þús. kr. á bú, sem er 34,3% aukning á milli ára. Skuldir voru 34.135 þús. kr. og nem- ur hækkun þeirra 6.272 þús. kr. eða 22,5%. Þá hækkuðu bókfærðar eignir í 30.171 þús. kr. á árinu 2005, eða um 18,1%. Höfuðstóll var nei- kvæður um 3.964 þús. kr. í árslok 2005 og eiginfjárhlut- fall neikvætt um 13%; en var neikvætt um 9% árið á und- an. Sérhæfð sauðfjárbú: Samkvæmt samanburði sömu búa (50 bú) var bú- stærð á sérhæfðum sauðfjár- búum að meðaltali 326,2 vetrarfóðraðar kindur á árinu 2005, samanborið við 312 vetrarfóðraðar kindur árið á undan. Innvegið magn kindakjöts í afurðastöð var að meðaltali 7.323 kg á bú; aukning nemur 4,5% frá fyrra ári. Meðalafurðir voru 22,5 kg á vetrarfóðraða kind á árinu 2005, sem er sama magn og árið á undan. Heildartekjur á bú voru að meðaltali 5.124 þús. kr. á ár- inu 2005; aukning nemur 26,4%. Búin eru mjög sér- hæfð og er hlutfall tekna af reglulegri starfsemi (bú- greinatekjum) 85% af heild- artekjum á árinu 2005 og 91% árið á undan. Hagnaður fyrir laun eiganda var 1.198 þús. kr.; hækkun nemur 76,2%. (Mikla aukningu hagnaðar fyrir laun eiganda frá fyrra ári, má rekja til hærra afurðaverðs en einkum til bókfærðs hagnaðar vegna sölu á greiðslumarki og vél- um og tækjum). Fjárfestingar á árinu 2005 voru að meðal- tali 1.333 þús. kr. á bú, sem er 56,3% aukning frá fyrra ári. Skuldir voru 6.387 þús. kr. á árinu 2005 og nemur hækkun þeirra 1.593 þús. kr. eða 33,2%. Þá hækkuðu bók- færðar eignir í 8.392 þús. kr. á árinu 2005, eða um 16,2%. Höfuðstóll var jákvæður um 2.005 þús. kr. í árslok 2005 en lækkaði um 21,1% frá ár- inu á undan. Eiginfjárhlutfall var 24% á árinu 2005 saman- borið við 34% árið á undan. MM Allir eigi kost á háhraðatengingu Þingmenn Samfylkingarinnar hafa lagt ffam á Alþingi tillögu til þingsálykt- unar um háhraðatengingar í dreifbýli og á smærri þéttbýlisstöðum. I tillögunni segir að Alþingi álykti að fela sam- gönguráðherra að undirbúa frumvarp til laga sem tryggi að allir landsmenn eigi kost á háhraðatengingu óháð búsetu. Málið verði afgreitt fyrir þinglok í vor. I greinargerð með tillögunni segir að slík tenging flokkist sem grunnþjónusta í nútímasamfélagi að mati flutnings- manna tillögunnar rétt eins og orku- veita og símaþjónusta. Þá kemur ffam að Síminn og fjarskiptafyrirtækin meti það svo að ekki sé arðvænlegt að leggja ADSL-tengingar í byggðarlögum þar sem íbúar eru færri en 150. „Þarna ráða gróðasjónarmiðin för en inntak þessarar tillögu er hins vegar að það sé skylda samfélagsins að tryggja öllum Islendingum háhraðanettengingu óháð búsetu. Án þess er ekki um að ræða jafnstöðu við aðra um þátttöku í nú- tímasamfélagi. Því eiga stjórnvöld að semja við fjarskiptafyrirtækin um að veita, eða hafa milligöngu um að veita, slíka þjónustu," segir orðrétt í greinar- gerðinni. Brýnt sé því að stjórnvöld hafi forystu um að tryggja að allir eigi þess kost að hafa háhraðatengingu, óháð bú- setu. HJ Fjörlegnr fundur SF í Stykkishólmi í síðustu viku var haldinn op- inn fundur á vegum Samfylk- ingarinnar á veitingastaðnum Fimm fiskum í Stykkishólmi. Fundurinn var hluti af funda- röð um allt kjördæmið sem nú stendur yfir, en þeir eru ætlaðir til kynningar á frambjóðendum í prófkjöri Samfylkingarinnar í Norðvesturkjördæmi. Ellefu ffambjóðendur hafa gefið kost á sér í fjögur efstu sæti listans en prófkjörið fer fram þann 28.-29. október næstkomandi. Almenn ánægja var með fundinn og að loknum fram- sögum urðu líflegar umræður. Bar þar hæst umræður um verkaskiptingu ríkis og sveitar- félaga, virkjanamál og sjávarút- vegsmál. Fyrr um daginn höfðu frambjóðendur heimsótt fyrir- tæki í Snæfellsbæ. Þeir fengu allsstaðar góðar móttökur og náðu ekki að anna eftirspurn fyrirtækja sem óskuðu eftir heimsókn. Nánari upplýsingar um fundaröðina má fá á heimasíðu Samfylkingarinnar, www.samfylking.is. SÓK Frambjóðendumir ellejhi sem gefið hafa kost á sér ífiögur efstu sœti lista Samfylkingarinnarfyrir komandi prófkjör í lok mánaðarins. Sjómarskipti í Kiwanisklúbbnum Þyrli Stjórnarskiptafundur í Kiwanis- klúbbnum Þyrli á Akranesi fór fram 2. október sl. á veitingastaðnum Galito, en klúbburinn heldur sína almennu fundi þar. Um stjórnarskiptin sá svæðisstjóri Eddu-svæðis, Hjálmar Fllöðversson. Þar tók Guðni Tryggvason við for- mennsku af Jóni Trausta Hervarssyni, en ný stjórn var kosin á aðalfundi klúbbsins í vor. Á stjórnar- skiptafundinum var sam- þykkt að styrkja nýstofnuð samtök átröskunarsjúklinga FORMA. Á síðasta starfsári gaf klúbburinn Tónlistarskól- anum á Akranesi hjómflutn- ingstæki í tilefni 50 ára af- mæli skólans, einnig var Golfklúbbnum Leyni færð- ur af gjöf golfbíll. Þá var öllum fyrstu bekkingum grunnskólanna afhentir hjólahjálmar og að þessu sinni voru 106 hjálmar af- Ný stjóm Kiwanisklúbbsins Þyrils. Frá 1989 hefur klúbburinn verið með land í Miðvogslandi í fóstri og hafa klúbbfélagar og eiginkonur þeirra gróð- ursett trjáplöntur þar á vorin. Nú hefur klúbburinn afhent Skógræktarfélagi Akraness land þetta til frekari upp- græðslu. -KÓP Fuglallfí Rifi Á sumrin er mikið um að vera á tjörn- unum í Rifi á Snæfellsnesi. Síðastliðið sumar voru um 600 æðarkollur með hreiður sín í hólmunum tveimur sem sjást á myndinni bak við álftaparið með ungana sína fjóra. Þá eru þar einnig nokkrar andategundir, óðinshanar og fleiri tegundir fugla. Yfir svífur svo krían í stórum hópum. Með haustinu kemur álftin og heldur sig á tjörnunum stund- um fram á vetur eða þar til síðasta vök- in lokast vegna frosta. Hún er þar líka oftast fyrsti sumargesturinn. Hverner er lögbrot löglegt? Mig langar að skrifa hér nokkrar línur vegna framgangs Heilbrigðis- eftirlits Vesturlands og bæjarráðs- manna á Akranesi. Það er þannig að við íbúar hér á neðri Skaga höfum undanfarin fjögur ár barist fyrir því að fá að búa við sama umhverfi og aðrir bæjar- búar hér á Akranesi, en án árang- urs. Fyrir tæpum fjórum árum var fyrirtækið Laugafiskur flutt hingað til Akraness frá Innri Njarðvík þar sem því hafði verið lokað af Heil- brigðiseftirliti Suðurlands (HES) vegna mikillar fylu sem frá fyrir- tækinu lagði og allar götur síðan höfum við þurft að búa við það að loka öllum gluggum af og til og alltaf á nóttinni. Oft þurfum við að þvo þvottinn aftur sem við tökum inn af snúrunni. Laugafiskur hefur öll þessi ár lofað að það sé verið að vinna í því að koma í veg fyrir ólyktina en ekkert hefur gagnast og ástandið er óviðunandi. Það hlýtur að hafa verið öllum heilbrigðisfull- trúum og ráðamönnum bæjarins ljóst hvernig starfsemi Laugafiskur var í og að Heilbrigðieftilit Suður- lands eftir margra ára árangurlausa baráttu hafði lokað fyrirtækinu með lögregluaðgerð í Innri Njarðvík eftir að HES hafði hafnað því að endurnýja starfsleyfið, en fyrirtækið hélt samt áfram starfsemi sinni án starfsleyfts. En viti menn; þá var fyrirtækið bara flutt á Akranes og sett niður í um það bil 160 metra fjarlægð frá íbúðabyggð. Með alla fyrri sögu úr Innri Njarðvík sem liggur fyrir og lá fyr- ir þá, hljótum við að spyrja Heil- brigðiseftirlit Vesturlands hvað lá til grundvalla því að veita þessu fyr- irtæki starfsleyfi á Akranesi svona nálægt íbúðabyggð og af hverju er þetta fyrirtæki enn með starfsleyfi því það er marg búið að brjóta ákvæði starfsleyfisins um hollustu- hætti og mengunarvarnir nr.7/1998. En til að minna ykkur á þá kemur þar ffam að útgefanda starfsleyfis sé heimilt að endur- skoða og eða afturkalla starfsleyfi atvinnurekstrar ef sýnt þykir að hann hafi meiri mengum í för með sér en búast mátti við þegar leyfið var veitt. Nú í tæp fjögur ár hafa komið fram mörg hundruð kvartanir formlegar og óformlegar, það hafa verið lagðir fram undirskriftalistar þar sem fólk mótmælir þessari starfsemi vegna ólyktar (fylu) og beiðnir um að starfsleyfið verði aft- urkallað á þessum stað. Þessu hefur ekki svo mikið sem verið svarað að nokkru viti hingað til svo ég hlýt að spyrja enn og aftur hvar í lögum er heimild fyrir því að hunsa þau laga- ákvæði sem kveða á um að heil- brigðisnefnd beri að sjá til þess að framfylgja ákvæðum laganna en það er einmitt að búa öllum lands- mönnum heilnæm lífsskilyrði og vernda þau gildi sem felast í heil- næmu og ómenguðu umhverfi. Þetta er eitt af grunnatriðum fyrir því að heilbrigðiseftirlit var sett á stofn. Það hlýtur þá að vakna upp sú spurning miðað við þá sögu sem hér liggur fyrir um fyrirtækið hvort heilbrigðiseffirlitið sé að snúast upp í andhverfu sína og vernda fyrirtæki en ekki íbúana, er kannski æðsta valdið orðið Mammon! Hér langar mig að snúa mér að bæjarstjórnamönnum hér á Akra- nesi. Það getur ekki verið að ykkur hafi ekki verið ljóst í upphafi saga þessa fyrirtækið og hvað fylgdi þessari starfsemi þegar hún var flutt hingað ffá Innri Njarðvík og komið fyrir hér í 160 metra fjarðlægð ffá íbúðabyggð. Eg hlýt að álykta að ykkur hafi bara fundist að við íbúar hér á neðri Skaga ættum skilið að búa við þessa skítalykt sem er ffá Laugafiski en ég veit að nokkrir bæjarfulltrúar hafa haldið því fram að það sé engin ólykt (fyla) frá fyr- irtækinu. Með öðrum orðum; Laugafiskur flutti hingað ffá Innri Njarðvík og skyldi skítalyktina eft- ir! En ég get frætt ykkur á því að skítalyktin kom með fyrirtækinu hingað á Akranes og hefur ekki fundist í Innri Njarðvík síðan fyrir- tækið fór þaðan. Mergur málsins hér er að eftir fjögurra ára starfsemi fyrirtækisins á Akranesi þá er engin lausn til sem fyrirtækið vill þárfesta í og kemur í veg fyrir þessa fylu frá Laugafiski og að engin lausn sé fyr- irsjáanleg í komandi framtíð nema sú sem við höfum verið að benda á; en það er að færa fyrirtækið á iðn- aðarlóð við Höfðasel sem er í um það bil þriggja km fjarðlægð ffá íbúðabyggðinni hér á Akranesi. Ykkur var kynnt niðurstaða rannsókna RF um lytkarmengun og í henni kemur ffam að engin lausn er til sem fyrirækið gemr sætt sig við til að draga úr lyktarmengunni frá Laugafiski en samt mælið þið með því að fyrirtækið fái endumýj- un á starfsleyfi á sama stað og það er á. Þið emð með öðmm orðum að mæla með því að fyrirtækið fái að brjóta gegn ákvæðum starfsleyf- is og lögum nr. 7/1998, lögum og reglum sem sett vom á löggjafar- þingi okkar Islendinga, sem mér skilst að einn af ykkur ætlar að bjóða sig fram til að sitja á og vænt- anlega að taka þátt í að setja lög og reglur sem allir landsmenn eiga að fara eftir! Ætlar hann þá líka að mæla með því að það verði ekki farið eftir þeim lögum og reglum? Svona sið- leysi er einfaldlega ekki boðlegt fólki. Ætlist þið svo til að fólk taki ykkur alvarlega? Það er líka hálf hlálegt að lesa hér greinar þar sem bæjaryfirvöld greina frá átaki í um- hverfismálum hér á Akranesi. Lykt- armengun er umhverfismál! Þetta mál er ykkur til skammar og lítilsvirðingar. Svona ætti enginn að gera í þeirri stöðu sem þið erað í. Kveðja, Guðmundur Sigurbjömsson Bakkatúni 4 300 Akranesi

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.