Skessuhorn


Skessuhorn - 18.10.2006, Page 24

Skessuhorn - 18.10.2006, Page 24
Láttu ekki vandræðin verða til vandræða íbúðalánasjóður www.ils.is www.skessuhorn.is Daglegar ferðir Opnunartímaruirka daga 8-12 og 13-17. Engjaás 2 • 310 Borgarnes • S(mi: 458 8880 landflutningar@landflutningar.is • www.landflutningar.is Landflutningar 'SAMSKIP Rekstur Gámu á Akranesi boðirni út Gunnar Sigurðsson. Bæjarráð Akraness hefur sam- þykkt að bjóða út rekstur sorpmót- tökustöðvarinnar Gámu sem tekur á móti öllu sorpi sem ekki fer í sorptunnur bæjarbúa. Gunnar Sig- urðsson, forseti bæjarstjómar Akra- ness segir kaupstaðinn nú vera að fara sömu leið og mörg önnur sveitarfélög hafa farið með góðum árangri. Fyrir skömmu var sorp-- hirða á Akranesi boðin út í sam- vinnu við önnur sveitarfélög á Vest- urlandi og segir Gtmnar að rétt hefði verið að bjóða þennan rekstur út samhliða en af því varð ekki. Það útboð var ákveðið af fyrrverandi meirihluta. Gert er ráð fyrir að gerður verði rekstrarsamningur til þriggja ára og er um heildarútboð að ræða þar með talin grófurðun, kurlun timb- urs og annars sem tilheyrir rekstr- inum. Bæjarfélagið hefur frá upp- hafi rekið Gámu og era starfsmenn hennar þrír sem verður að sögn Gunnars nú sagt upp störfum. Hann segir útboðið ekki þurfa að koma á óvart því Sjálfstæðisflokk- urinn hafi lengi haft útboðið á sinni stefnuskrá. Ekki liggur fyrir hvenær af út- boðinu verður en sviðsstjóra tækni- og umhverfissviðs var falið að vinna útboðsgögn og að sögn Gunnars er vonast til þess að þau liggi fyrir um næstu mánaðamót. Ósáttur við útboð Valdimar Þorvaldsson, forstöðu- maður Gámu er ósáttur við þá ákvörðun bæjarráðs að bjóða rekst- ur stöðvarinnar út. Hann segir ekk- ert samráð hafi verið haft um út- boðið við starfsmenn stöðvarinnar og þeir hafi eins og aðrir lesið um það í fjölmiðlum. „Eg velti því fyr- ir mér hvort til staðar séu nægilega mörg fyrirtæki í slíkum rekstri til þess að tryggja að sparnaður verði með útboði. Raunar eru flestir þættir rekstursins bvmdnir samn- ingum eins og eyðing spilliefna og brotajáms og því er að óbreyttu að- eins verið að bjóða út vinnulaun starfsmanna og vélavinna á svæð- inu. Því er vandséð hvað hægt er að spara í þessum rekstri með útboði,“ segir Valdimar. Fyrir nokkrum árum fóra fram viðræður við Sorpu í Reykjavík um hugsanlega yfirtöku þess fyrirtækis á rekstri Gámu en að sögn Valdi- mars var horfið frá þeim hugmynd- Valdimar Þorvaldsson. um þar sem ljóst þótti að ekki yrði um spamað að ræða. „Það er al- kunna að einkafyrirtæki gera meiri arðsemiskröfur en hið opinbera í rekstri sínum og því veltir maður því auðvitað fyrir sér hvort almenn- ingur og fyrirtæki á Akranesi séu tilbúin til þess að greiða hærra verð fyrir sorpmál sín“. Eins og ffarn kom í viðtalinu við Gunnar Sigurðsson forseta bæjar- stjórnar verður starfsmönnum Gámu sagt upp um leið og útboð fer fram. Valdimar, sem einnig er formaður Starfsmannafélags Akra- ness, segist afar ósáttur við þá fram- komu bæjarins að starfsmenn þurfi að frétta um uppsagnir starfa sinna í fjölmiðlum. Ekkert geti réttlætt slíka framkomu við starfsmenn bæj- arins. HJ Oheimilt verði að eiga lög- heimili í írístundabyggð Óheimilt verður að skrá lög- heimili sitt í frístundabyggð ef lagaffumvarp sem Magnús Stefáns- son félagsmálaráðherra hefur lagt fram á Alþingi verður samþykkt. Samkvæmt frumvarpinu bætist skipulögð frístundabyggð við þá staði þar sem tímabundin dvöl er ekki ígildi fastrar búsetu eins og gistihús, fangelsi, vinnuhæli, sjúkrahús, heimavistarskóla og ver- búðir svo einhverjir staðir séu nefndir. I greinargerð með frumvarpinu kemur fram að í framhaldi af dómi Hæstaréttar árið 2005 um að sveit- arfélaginu Bláskógabyggð hafi ekki verið heimilt að synja fjölskyldu um skráningu lögheimilis í sumarhúsi. Vísaði dómurinn til þess að ekki hafi verið vísað til haldbærra heim- ilda, sem sett gætu skorður við slíkri skráningu á svæði sem ætlað væri fyrir frístundabyggð. I fram- haldi af dómnum hefur mikil um- ræða farið ffam á vettvangi sveitar- stjórna í landinu sem höfðu áhyggj- ur af því að óbreytt lög hefðu í för með sér kröfu um verulega aukna þjónustu og kostnað fyrir sveitarfé- lögin og af þeim sökum gætu þau þurft að draga úr þjónustu þar sem tekjustofnar þeirra séu takmarkað- ir. Félagsmálaráðherra skipaði á sínum tíma starfshóp til að meta áhrif dóms Hæstaréttar og er ffum- varpið í samræmi við tdllögur hóps- ins. Þeir sem vilja hins vegar færa heimilisfang sitt samkvæmt áður- nefndum dómi Hæstaréttar hafa heimild til þess til 1. janúar 2007 samkvæmt frumvarpinu. HJ ICELANDAIRHOTELS H A M A R mngur aggleði að Jtí’átel Jtfamri Jólamatseðill fyrir Hótel Hamar allar helgar frá 17. nóv. til 10. des. árið 2006 Hátíðar fordrykkur. Þrjár tegundir af jólasíld maríneruð að hætti hússins Kryddlegnar rjúpur með marinerðum gráfikjum og peru. Bláberjagrafinn lax með hunangskexi og ristuðum furuhnetum. Jarðaberja og mintusorbet. Val um einn aðalrétt: 1. Andabringa með hindberjagljáa, kanillegnum kartöflum og púrtvínslagaðri hindberjasoðsósu. 2. Hvítvíns & salvíu brasseraður kalkúnn með valhnetu eplafyllingu og sætri kartöflustrudel. 3. Lambahryggjarvöðvi með rósmarin engifer, borin fram með rauðlaukssultu og kartöflu-sveppa "sauté". Hlaðið eftirréttarhlaðborð með a.m.k 6 mismunandi girnilegum eftirréttum og kaffi/te. Verð kr. 6.800 á mann Gisting, morgunverðarhlaðborð og jólaseðill verð kr. 11.250 nóttin á mann miðað við tvo í herbergi. Verð kr. 3.500 á mann fyrir auka nótt. Tilboð fyrir hópa upplýsingar í síma: 433 6600 eða hamar@jcehotels. is Hótel Hamar - Borgarnesi - sími 433 6600 - h a m a r @ i c e h o t e 1 s . i s

x

Skessuhorn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.