Skessuhorn - 25.10.2006, Qupperneq 10
10
MIÐVIKUDAGUR 25. OKTÓBER 2006
Fyrirtækið Hafiiyt
stofiiað um fiskvinnslu
Sveit-Ungamir hreiðra um sig í Fossatúni
Börkurjónsson, sjómaður á Akra-
nesi vinnur nú að stofnun nýs fyrir-
tækis í fiskvinnslu. Það hefur hlotið
nafhið Hafnyt og mun vinna ýsu og
þorsk á innanlandsmarkað og til út-
flutnings. Aðspurðtu- segir Börkur
að fýrirtækið fari af stað um næstu
mánaðamót og verði til húsa að Æg-
isbraut 27. Þrír til fjórir starfsmenn
munu vinna við fyrirtækið. „Eg mtm
flaka ýsu og þorsk og selja bæði
ferskar afurðir og lausfrystar. Eg hef
ágæta aðstöðu, góða frysti- og kæli-
aðstöðu og það er allt að verða klárt
hjá mér til að geta hafist handa,“
segir Börkur. MM/ljósm. KH
Búið er að stofna hljómsveitina
Sveit-Ungana í Borgarfirði. Sveitin
var sett saman í tengslum við hug-
mynd að dagskrá fýrir veitingahús-
ið Tímann og vatnið í Fossatúni og
hefur að undanförnu verið æft upp
prógram til flutnings á jólahlaðbori
sem þar verður í nóvember og des-
ember. Gengið var út ffá að efnis-
tök ættu sér skýrskotun til um-
hverfisins og árstíðarinnar með
áherslu á glens og glaðværð. Þegar
á fýrstu æfingu kom í ljós að með-
limir áttu allir í fórum sínum lög
við eigin texta eða staðarskálda sem
myndu henta til flutnings í dag-
skránni. Frumsamið, alborgfirskt
efni myndar því uppistöðuna í laga-
flutningi þeirra. En Sveit-Ungarnir
gera meira en að flytja lög, því inn
á milli laga verða sagðar sögur og
farið með gamanvísur af mönnum
og málefnum í Borgarfirði. Þá mun
seinni hluti dagskrárinnar saman-
standa af íslenskum jólalögum með
þátttöku og samsöng gesta.
Sveit-Ungarnir eru: Bjami Guð-
mundsson, gítarleikari, söngvari og
prófessor á Hvanneyri, Þorvaldur
Jónsson, harmonikku, hljómborðs-
og gítarleikari, söngvari og
kúaabóndi í Brekkukoti, Sigurður
Jakobsson, bassaleikari og sauðfjár-
bóndi á Varmalæk og Þórunn Pét-
ursdóttir, söngkona og starfsmaður
Landgræðslunnar frá Asbrún í Bæj-
arsveit.
MM
Vetri fagnað í Dölum
Ráðunautamir Ján Viðar jánmundsstm og Lárus Birgisson þukla hér hrúta. Ljósm. Björn
Fyrsta vetrardag héldu Dala- ur- og suðurhólf, vegna sauðfjár-
menn vetrarhátíð; hausthátíð Fé- veikivarna. Mikil þátttaka var í báð-
lags sauðfjárbænda í Dalasýslu. Um um hólfum, þó heldur meiri í því
var að ræða hrútasýningar í báðum nyrðra. Það er núverandi stjórn í
hólfum, en sýslunni er skipt í norð- Félagi sauðfjárbænda í Dölum sem
A hrútasýningu íArbliki. Siggi í Ytri-Fagradal, Eyjólfur í Ásgarði, Guðbjöm í Magn-
ússkógum I, Jón Egill á Skerðingsstöðum og Rúnar á Valþúfu. Ljósm. Bj'öm
Bjarki á Kjarlaksvöllum mœtti á svæðið með „Dýrið, “ sem vakti ókipta athygli yngri
kynslóðarinnar. Ljósm. Bj'öm
hefur haft veg og vanda að þessari
hátíð, sem nú var haldin í annað
sinn og er komin til að vera, fýrsta
vetrardag, að sögn Höllu Steinólfs-
dóttur stjórnarmanns.
Dalamenn eru með kynbótaátak í
sauðfjárrækt og keppnin var sett á
laggirnar í því sambandi. Mikil
stemning myndaðist á sýningunum
og virtust allir skemmta sér hið
besta. Geirmundastaðahrútur
hreppti fýrsta sætið, en Guðbrand-
ur Þorkelsson á Skörðum átti hrút-
inn sem mældist með þykkasta bak-
vöðva á Vesturlandi. Lárus G. Birg-
isson og Jón Viðar Jómundsson sáu
um að meta kynbótagripi Dala-
manna.
„Það er gott að endurlífga hrúta-
sýningar, sem voru fastur liður í
hverri sveit hér áður fýrr en hefur
farið fækkandi á liðnum árum,“
sagði Halla í samtali við Skessu-
hom. Aðrir í stjórn sauðfjárræktar-
félagsins em Asmundur E. Daða-
son, Guðbrandur Þorkelsson, Guð-
mundur Geirsson og Guðjón Torfi
Sigurðsson.
A sama tíma var haldin keppni í
innanhússknattspyrnu á vegum
UDN. Þar mættu fjögur kvennalið
og sjö karlalið til leiks. Einnig var
slegið upp grillveislu í Arbliki og
þar dunaði síðan dansinn fram effir
nóttu, þar sem lopapeysan og
gúmmískórnir vora lykilatriði.
BGK
Nefrdin sem stóðfyrir héraðshátíðinni: Halla í Ytri-Fagradal, Guðmundur í Geirshlíð
og Guðbrandur í Skörðum. Ljósm: Bjöm.
Sigurvegarar íflokki hyndra hrúta. Frá vinstri: Bryndís á Geirmundarstöðum (1. sœti),
Guðbrandur á Skörðum með son sinn (2. sæti), Monika í Rauðbarðaholti (3. sæti), Birg-
ir í Bœ (4. sæti) og Friðjón á Hallsstöðum (3. sæti). Ljósm. GTS
Gullverðlaunahafar í kvennaflokki á fótboltamótinu, Frá vinstri:
Sólveig, Gróa Björg, Herdís og Marta. Svana, Svala og Lína eru í
forgrunni en Katrín erfremst. Ljósm. Bjöm
Sigurvegarar íflokki kollóttra hrúta,frá vinstri: Jóhannes frá
Homstöðum (1. sæti), Daði á Lambeyrum (2. sœti), Kjartan á
Dunki og tvö bamabörn hans (3. sœti), Ása á Homstöðum (4.
sœti) og Guðmundur á Kjarlaksvöllum (3. sæti). Ljósm. GTS
BÆNDUR & BUALIÐ
Munið sveitateítið á Hótel Borgariiesi 3. nóvemher. Miðapantanir í síma 437 1515
Búnaðarfélag Mýramanna sér um framkvæmd sveitateitsins í samvinnu víð Búnarðarsamtok Vesturlands