Morgunblaðið - 02.05.2019, Síða 22
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Sumarið heilsaði kylfingum með hlý-
indum og helstu vandamál vallar-
stjóra undanfarið hafa verið mikil
spretta og að fá fólk til að slá flatir og
brautir samhliða hefðbundnum vor-
verkum. Í gær var opnað inn á flatir á
nokkrum af vinsælustu völlunum.
Ekki aðeins er það í fyrra lagi,
heldur eru flatir og brautir í betra
standi heldur en yfirleitt á þessum
árstíma.
Á heimasíðu Golfsambandsins má
sjá yfirlit um hvenær flatir eru teknar
í notkun á völlunum. Sumir eru löngu
búnir að opna, en vellir eins og í
Brautarholti, hjá GR á Korpúlfs-
stöðum, GK á Hvaleyri, GKG í Leir-
dal og á Setbergsvelli voru sumar-
flatir teknar í notkun 1. maí. Í Grafar-
holti verður opnað með innanfélags-
móti á laugardag og miðað er við
opnun 10. maí á Urriðavelli Golf-
klúbbs Odds og á Bakkakotsvelli.
Yfirleitt er opnað síðar á þeim völlum
sem liggja nokkuð yfir sjávarmáli og
þrátt fyrir góða tíð munar um hvern
metra í hækkun.
Hefðu getað opnað mun fyrr
„Hér er staðan ótrúlega góð og ég
man vart eftir öðru eins á þeim 25 ár-
um sem ég er búinn að vera hér,“ seg-
ir Ólafur Þór Ágústsson, fram-
kvæmdastjóri Keilis í Hafnarfirði.
„Miðað við sprettu og tíðarfar hefð-
um við getað verið búnir að opna fyrir
nokkru, en við treystum mikið á
skólafólk og án þess höfum við ein-
faldlega ekki komist yfir alla vinnuna
þetta vorið. Nú er hins vegar komið
að þessu og það er búið að slá brautir
þrisvar sinnum og flatirnar sjö sinn-
um. Ætli við séum ekki um sex vikum
á undan því sem yfirleitt hefur verið
hvað varðar gæði brauta og flata.“
Sömu sögu er að segja úr Eyjafirði
að sögn Steindórs Kr. Ragnarssonar,
framkvæmdastjóra Golfklúbbs Akur-
eyrar, sem einnig er formaður Sam-
taka íþrótta- og golfvallarstarfs-
manna. „Hérna fyrir norðan lítur
þetta mjög vel út og ég man ekki eftir
svona góðu ástandi valla á þessum
árstíma,“ segir Steindór.
Skoðar hagstæðustu spárnar
„Veturinn var mildari fyrir gras-
svæðin heldur en oftast áður og
minna um hitasviptingar sem eru
hvað verstar fyrir okkur, sérstaklega
í nóvember og desember. Það sem
skilur þetta ár síðan frá öðrum er hve
milt og jafnt veðrið var í apríl.
Við ráðgerum að fara inn á flatir á
Jaðarsvelli um 10. maí. Það gæti verið
um viku fyrr en í meðalári, en það
sem munar mest um er hve ástand
vallarins er almennt gott.“
Steindór segir að samkvæmt frétt-
um sé ástand golfvalla við Eyjafjörð
gott og menn séu „býsna brattir“.
Sömu sögu sé að segja af knatt-
spyrnuvöllum á Norðurlandi og Ólaf-
ur segir það sama af fótboltavelli FH-
inga í Kaplakrika, sá völlur hafi aldrei
verið betri.
Spurðir hvort ástandi valla hraki
ekki hratt ef maí bjóði upp á norðan-
átt og 6-8 gráður segja þeir báðir að
nú sé spretta komin það vel á veg að
mikið þurfi að gerast svo það komi
verulegur afturkippur. Ólafur segir
það meira áhyggjuefni ef kólni og
dragi úr aðsókn því það kosti sitt að
manna allar stöður á vellinum, veit-
ingaþjónustu, verslun og annað sem
fylgi fullum rekstri. Steindór segist
gera út á bjartsýnina: „Ég skoða bara
hagstæðustu spárnar hverju sinni og
í heild eru menn ótrúlega ánægðir og
bjartsýnir á sumarið.“
Sjálfboðaliðar leggja víða hönd á
plóg við hreinsun fyrir sumarið. Hjá
GKG var opnunarmót í gær og í bréfi
til félagsmanna í vikunni mátti lesa
eftirfarandi: „Það verður að segjast
að vorið tók fram úr okkur nú í ár og
erum við því ekki komnir eins langt
með margt sem við hefðum viljað
vera komnir lengra með. Því væri frá-
bært að fá aðstoð allra þeirra sem
vettlingi gætu valdið á þriðjudaginn
til að koma öllu í lag fyrir opnun.“
Mikil spretta skapaði „vandamál“
Sérlega gott ástand á golfvöllum
Margoft búið að slá hjá Keili
Menn eru „býsna brattir“ í Eyjafirði
Morgunblaðið/Hari
Tiltekt Sjálfboðaliðar úr GR mættu á Korpúlfsstaðavöll í fyrrakvöld til hreinsunarstarfa eftir veturinn.
22 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
Ljósmynd/Jón Steinar Ragnarsson
Sumar Kylfingur reynir við miðnæturfugl á sjöundu flöt í Hólsdal. Horft er út yfir gamla malarnámu í ármótum
Leyningsár og Hólsár, sem lokað var með gerð golfvallar og útivistarsvæðis. Bærinn í Siglufirði í fjarska.
Golfvellir landsins taka breytingum
á hverju ári, nýir vellir koma til sög-
unnar og framfarir eru áberandi
þótt ekki sé horft nema tíu ár til
baka. Nokkrar framkvæmdir innan-
lands eru á teikniborði Edwins
Roalds golfvallahönnuðar. Nefna
má áform um nýjan golfvöll í Rifi í
Snæfellsbæ og nauðsynlegar breyt-
ingar á golfvellinum á Selfossi.
Edwin segir að bæjaryfirvöld í
Snæfellsbæ hafi í desember sam-
þykkt að útvega Golfklúbbnum
Jökli nýtt svæði og fyrirhugað sé að
gera nýjan rétt sunnan við Rif.
Klúbburinn fær 10 milljónir árlega
næstu fjögur ár til uppbyggingar á
nýjum stað og hefjast framkvæmdir
í sumar. Edwin segist vonast til að
hægt verði að leika á nýjum braut-
um þar sumarið 2022. Núverandi
völlur í Snæfellsbæ er á Fróðá, aust-
an við Ólafsvík, og þykir hann erf-
iður í viðhaldi og rekstri.
„Ég hef verið að hjálpa þeim í
Jökli við að hanna nýjan völl og hef
sjaldan séð hentugra svæði frá nátt-
úrunnar hendi fyrir góðan golfvöll
en þarna í Rifi,“ segir Edwin.
„Sendinn jarðvegur, sandöldur og
hólar minna um margt á vöggu golf-
sins í Skotlandi og landslagið er
ægifagurt. Þótt ekki séu stórar upp-
hæðir til að spila úr held ég að með
góðri skipulagningu, mikilli sjálf-
boðavinnu og hugmyndaflugi gæti
tekist að koma upp nógu mörgum
brautum til að nýi völlurinn geti far-
ið að þjóna samfélaginu betur en nú-
verandi völlur. Verkefnið verður
unnið í áföngum og stefnt er að því
að sá í fyrstu brautirnar á næsta
ári.“
Fyrirhugað er að færa þjóðveg-
inn austur fyrir Selfoss og byggja
nýja brú yfir Ölfusá. Það kallar á
lagningu þriggja nýrra brauta á
golfvellinum og eru framkvæmdir í
fullum gangi.
Þá nefnir Edwin golfvöllinn í
Hólsdal í Siglufirði, en byrjað var að
leika á honum í fyrra. Nú er fyrsta
heila sumarið að hefjast þar og seg-
ir Edwin spennandi að sjá hvernig
völlurinn reynist, en mikið hafi ver-
ið lagt í uppbygginguna. Þá verður
nýtt vallar- og þjónustuhús tekið í
notkun í sumar.
Loks nefnir Edwin að í Þorláks-
höfn hafi síðustu ár verið unnið í
áföngum að því að byggja upp
brautir í stað þeirra þriggja sem
liggja næst sjónum, sem hafa átt
undir högg að sækja vegna sand-
burðar. Legu brauta hafi verið
breytt og samhliða hafi tekist að
stytta verulega gönguleið á milli
þeirra. aij@mbl.is
Þrjár nýjar golfbrautir á Selfossi
Spennandi völlur
í Rifi undir Jökli
m.
M18 FUEL™ skilar afli til að saga
á við bestu bensínknúnu keðjusagirnar.
POWESTATE™ mótor.
REDLINK PLUS™ yfirálagsvörn.
REDLITHIUM-ION™ rafhlaða.
Sveigjanlegt rafhlöðukerfi sem virkar
með öllum Milwaukee® M12™ rafhlöðu
M18 FCHS
Alvöru keðjusög
fráMilwaukee
vfs.is
VERKFÆRASALAN • SÍÐUMÚLA 9, REYKJAVÍK • DALSHRAUNI 13, HAFNARFIRÐI • DALSBRAUT 1, AKUREYRI • S: 560 8888