Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 26

Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 26
26 FRÉTTIRErlent MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 Guðmundur Sv. Hermannson gummi@mbl.is Þess er minnst með ýmsu móti á árinu að 500 ár eru liðin frá andláti ítalska meistarans Leonardo da Vinci. Sergio Mattarella, forseti Ítalíu, og Emmanuel Macron, forseti Frakklands, ætla þannig í dag að ferðast saman til Loire-dalsins í Frakklandi þar sem da Vinci lést 2. maí árið 1519, 67 ára að aldri. Síðar á þessu ári verður haldin mikil sýning í Louvre-safninu í París þar sem mörg af helstu verkum da Vincis, bæði þau sem eru í eigu safnsins og annarra, verða til sýnis. En óvíst er að það málverk eignað honum, sem hvað mest hefur verið fjallað um á undanförnum mánuðum, verði meðal sýningar- gripanna. Málverkið Salvator Mundi var selt á uppboði hjá Christie’s í Lund- únum í nóvember árið 2017 fyrir 450 milljónir dala, jafnvirði 55 milljarða króna. Er það hæsta verð sem greitt hefur verið fyrir listaverk á uppboði. En verkið hefur ekki sést opinber- lega síðan og óljóst er hver á það, hvar það er niðurkomið og hvort það er í raun eftir da Vinci. Til stóð að málverkið, sem er and- litsmynd af Jesú, yrði sýnt í lista- safninu Louvre Abu Dhabi í Samein- uðu arabísku furstadæmunum í september í fyrra. En af því varð ekki og engar skýringar voru gefn- ar. Forsvarsmenn Louvre Abu Dhabi hafa ekki upplýst hver eig- andi verksins er og aðeins sagt að menningar- og ferðamálaráðuneyti furstadæmisins hafi eignast það. Nú hefur talsmaður Louvre- safnsins í París upplýst að óskað hafi verið eftir því við umrætt ráðu- neyti að málverkið yrði lánað á sýn- inguna í Louvre í haust en ekkert svar hafi borist. Er krónprinsinn eigandinn? Bandaríska blaðið Wall Street Journal hefur sagt fréttir af því að sádiarabískur prins, Badr ben Ab- dallah, hafi keypt málverkið á upp- boðinu fyrir Mohammed bin Salm- an, krónprins Sádi-Arabíu og valdamesta manninn þar í landi. Mo- hammed, sem oft er nefndur MBS, hefur hvorki játað né neitað þessum fréttum. Samband Sádi-Arabíu og Sameinuðu arabísku furstadæm- anna er náið og bæði taka ríkin þátt í hernaðaraðgerðum gegn uppreisn- armönnum í Jemen. MBS er einnig sagður trúnaðarvinur Mohameds bin Zayed, krónprins Sameinuðu ar- abísku furstadæmanna, sem opnaði Louvre Abu Dhabi-listasafnið form- lega árið 2017 ásamt Emmanuel Macron. Þetta listasafn er það fyrsta utan Frakklands sem fær að nota nafn franska Louvre-safnsins. AFP fréttastofan segir að það veki athygli að fyrrgreint málverk „hverfi“ á sama tíma og fallið hefur verulega á ímynd MBS vegna morðsins á Jamal Khashoggi í Ist- anbúl í Tyrklandi á síðasta ári. Krónprinsinn hefur raunar ítrekað vísað því á bug að hann hafi átt þar nokkurn hlut að máli. Artprice, sem er ein helsta upp- lýsingaveitan um alþjóðlegan lista- verkamarkað, segir að múslima- klerkar við Al Azhar-háskólann í Kaíró, hafi sagt MBS, að ekki sé hægt að sýna Salvator Mundi opin- berlega af trúarlegum ástæðum. Samkvæmt íslamstrú er Jesús spá- maður en málverkið sýni hann sem frelsara og því með guðseðli og ísl- am banni að sýna Guð í mannsmynd. Efasemdir Listfræðingar eru raunar alls ekki á einu máli um hvort málverkið sé í raun eftir da Vinci. Jacques Franck, sérfræðingur í málaratækni meistarans, segir við AFP- fréttastofuna, að tæknilegri út- færslu á mannsmyndinni, meðal annars á fingrum, sé verulega ábótavant. Vitað sé að da Vinci lét aðstoðarmenn sína ljúka nokkrum verkum fyrir sig vegna þess að hann hafði ekki tíma til þess. Annar sérfræðingur í verkum da Vincis, Daniel Salvatore Schiffer, segir einnig ljóst að verkið sé ekki eftir ítalska meistarann. „Þegar smáatriðin eru rannsökuð sést að ekkert þeirra minnir á Leonardo; innblásturinn skortir,“ segir hann. En Diane Modestini, sem vann að lagfæringum á málverkinu frá árinu 2005, segist ekki skilja þessar um- ræður. Ljóst sé, að Leonardo da Vinci hafi málað það. Talsmaður Christie’s sagði að nið- urstaða sérfræðinga árið 2010 hefði verið að málverkið væri eftir da Vinci. Ekkert nýtt hefði komið fram síðan sem ylli því að uppboðsfyr- irtækið teldi ástæðu til að endur- skoða þá niðurstöðu. AFP Dýrasta listaverk sögunnar Starfsmenn uppboðsfyrirtækisins Christie’s í Lundúnum framan við málverkið Salvator Mundi í nóvember 2017. Verkið seldist þar á uppboði fyrir 450 milljónir dala, jafnvirði 55 milljarða króna. Málverkið hefur ekki verið sýnt opinberlega síðan, óvíst er hver keypti verkið, hvar það er niðurkomið og hvort það sé í raun eftir Leonardo da Vinci. Meistari Gestur á sýningu í Tórínó á Ítalíu skoðar teikningu eftir Leonardo da Vinci frá árinu 1510 sem almennt er talið að sé sjálfsmynd meistarans. Óvissa ríkir um dýr- asta listaverk sögunnar  500 ár eru í dag liðin frá því að Leonardo da Vinci lést HRINGDU Í BÓTARÉTT Í SÍMA 520 5100 OG ÞÚ FÆRÐ ÞITT. Slys valda heilsutjóni og þjáningum. En það er ekki síður sárt þegar starfsorkan skerðist og áætlanir um framtíðina bregðast. Því fylgir óvissa og áhyggjur. Ef þú hefur orðið fyrir slysi þá skaltu hafa samband við Bótarétt sem fyrst. Það kostar ekkert að kanna málið. Við metum stöðu þína og skoðum síðan málin ofan í kjölinn. Þú getur látið þér batna á meðan við sækjum rétt þinn. ER BROTIÐ Á ÞÉR? ÍS L E N S K A S IA .I S B O T 70 22 7 08 /1 4 botarettur.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.