Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 45
ÍÞRÓTTIR 45
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
Framleiðum allar gerðir
límmiða af mismunandi
stærðum og gerðum
Thermal
Hvítir miðar
Litamiðar
Forprentaðir
Athyglismiðar
Tilboðsmiðar
Vogamiðar
Lyfsölumiðar
Varúðarmiðar
Endurskinsmiðar
Flöskumiðar
Verðmer
Selhellu 13 • 221 Hafnarfirði • Sími 554 0500 • bodtaekni.is
kimiðar
Límmiðar
Þegar lið sem enginn reiknar
með slá í gegn og ná langt eða
vinna jafnvel meistaratitla hríf-
ast margir með og þau fá stuðn-
ing óháðs áhugafólks um íþrótt-
ir. Jafnvel fólks sem allajafna
hefur engan áhuga á íþróttum.
Við sáum þetta vel fyrir þrem-
ur árum þegar öskubusku-
ævintýri Leicester City í enska
fótboltanum gaf „litlum liðum“
um allan heim nýja von og aukna
hvatningu.
ÍR getur orðið Íslandsmeistari
í körfubolta karla í kvöld, í fyrsta
skipti í 42 ár. Nú eða í oddaleik í
Vesturbænum á laugardags-
kvöldið. Engin furða að spennan í
Breiðholtinu sé nánast áþreif-
anleg.
Og víðar. Konan mín hefur
ekki fylgst sérstaklega með Ís-
landsmótinu í körfubolta en má
nú ekki missa af neinu og styður
ÍR með ráðum og dáð. Eins og
margir fleiri hlutlausir gera
þessa dagana.
Mér var í vikunni bent á
skemmtilega samlíkingu við æv-
intýri ÍR-inga. Það var þegar
handboltalið HK sló í gegn í úr-
slitakeppninni vorið 2012 og varð
Íslandsmeistari karla í þeirri
íþrótt í fyrsta skipti.
Þar fór einhvern veginn allt á
flug, svipað og hjá ÍR-ingum í
vor, þegar HK varð í fjórða sæti í
deildinni en valtaði svo 3:0 yfir
bæði Hauka og FH í úrslita-
keppninni og vann bæði Hafnar-
fjarðarliðin tvisvar á útivelli. Þar
byggðist upp rétt stemning og
gríðarleg tiltrú leikmannanna á
verkefnið og engu skipti þó mót-
herjarnir virtust sterkari á papp-
írunum.
Rétt eins og KR ætti alltaf að
vinna ÍR 3:0 eða 3:1 ef maður
færi bara yfir ferilskrá leikmann-
anna og meinta getu þeirra.
BAKVÖRÐUR
Víðir Sigurðsson
vs@mbl.is
KÖRFUBOLTI
Kristján Jónsson
kris@mbl.is
Hitastigið verður við suðumark í
Seljahverfinu í Breiðholti í kvöld
þegar ÍR tekur á móti KR og há-
vaðinn í Hellinum nánast óbærileg-
ur. Morgunblaðið tók púlsinn á Sig-
urkarli Róberti Jóhannessyni,
leikmanni ÍR, á þriðjudaginn og
ræddi við hann. Daginn eftir sig-
urinn sæta gegn KR í Vest-
urbænum.
„Já já. Það var fagnað í gær en
við vitum allir að við þurfum að
komast fljótt niður á jörðina. Það
þýðir ekkert að koma of æstir inn í
þennan leik,“ sagði Sigurkarl þegar
Morgunblaðið sló á þráðinn til hans
og spurði hvort hann væri kominn
niður á jörðina.
„Maður tekur eftir því í um-
ræðunni eftir leikinn að fólk bjóst
ekki við því að við næðum einhverju
út úr leiknum úr því sem komið var.
En við gerðum það með baráttu og
góðri vörn,“ sagði Sigurkarl og
hann segir tilhlökkunina vera mikla
í Breiðholtinu nú þegar ÍR er aðeins
einum sigri frá bikarnum.
„Stemningin er náttúrlega gríð-
arlega góð. Það eru bara allir ÍR-
ingar mjög peppaðir enda er við-
bjóðslega langt síðan ÍR varð meist-
ari síðast. Allir í Breiðholtinu eru
tilbúnir í fjör á fimmtudaginn (í
kvöld). Alveg óhætt að segja það.“
Voru of spenntir í leik tvö
Hvað segir Sigurkarl um spennu-
stigið í úrslitarimmunni? Hefur það
hækkað eftir því sem á hefur liðið?
„Eins og þú segir þá erum við
komnir svo nálægt bikarnum. Mað-
ur getur nánast snert hann. Ef
spennustigið verður hins vegar of
hátt þá er alveg eins líklegt að við
töpum. Það var kannski raunin í
leik númer tvö þegar við töpuðum á
heimavelli. Þá gæti spennustigið
hafa verið of hátt eftir sigur á úti-
velli í fyrsta leik. Við þurfum að
gæta okkur á því að halda spennu-
stiginu temmilega lágu en á sama
tíma þurfum við að vera vel gíraðir
og hafa löngun í sigurinn. Við vilj-
um vinna og vitum að við getum það
ef við förum ekki fram úr okkur,“
útskýrði Sigurkarl og ekki að heyra
að viðmælandinn sé tvítugur leik-
maður.
Kynntist pressunni 17 ára
Sigurkarl kynntist leiðinlegu hlið-
inni á úrslitakeppninni sem ungur
meistaraflokksmaður. Tók þá skot á
lokasekúndu gegn Stjörnunni sem
ekki rataði rétta leið og ÍR tapaði.
Var hann þá einungis 17 ára en fékk
góða hjálp við að vinna skyn-
samlega úr þeirri reynslu.
„Fyrir tveimur árum komst ÍR í
fyrsta sinn í úrslitakeppnina í nokk-
ur ár. Við spiluðum á móti Stjörn-
unni í 8-liða úrslitum. Var það mitt
fyrsta tímabil í meistaraflokki. Við
vorum þremur stigum undir og ég
fékk skotfæri á nákvæmlega sama
stað á vellinum og gegn KR. Ég
hefði getað jafnað leikinn og náð
fram framlengingunni en skotið
klikkaði. Þá sögðu bæði Borche
(Ilievski þjálfari) og Matthías (Orri
Sigurðarson) að ég ætti að taka því
sem jákvæðum hlut að fá að taka
svona mikilvægt skot svo snemma á
mínum ferli. Næst myndi ég setja
slíkt skot niður.
Skotið gegn KR var nánast ná-
kvæmlega eins og aðstæður mjög
svipaðar. Þeir höfðu því rétt fyrir
sér. Ég man hvað mér leið illa þá og
mér leið alveg jafn vel núna. Þetta
var þess virði.“
Ólympíufari hjálpar til
Leiðin að titlinum fyrir ÍR-inga
er óhemju erfið. Í 8-liða úrslitum
mætti liðið Njarðvík, þá tók við
Stjarnan í undanúrslitum og nú KR
í úrslitum. Allt geysilega vel mönn-
uð lið í vetur. Fyrir þá sem horfa á
leikina utan frá þá virðast ÍR-ingar
ekki vera þreyttir og alvarleg
meiðsli hafa ekki gert vart við sig.
„Þessir leikir hafa ekki setið í
okkur inni á vellinum. Við erum
búnir að fara í gegnum efstu tvö lið-
in í deildakeppninni og fóru báðar
rimmurnar í fimm leiki. Auðvitað
tekur það sinn toll en Óðinn frjáls-
íþróttakappi (Þorsteinsson) hjálpar
okkur í endurheimt eftir leiki. Auð-
vitað verða menn þreyttir en við er-
um þannig stemmdir að það gleym-
ist þegar komið er inn á völlinn. Við
erum auk þess það margir sem get-
um komið við sögu í leikjunum.
Eldri mennirnir okkar (Gerald)
Robinson og Siggi (Sigurður Þor-
steinsson) eru alltaf ferskir þótt
þeir hafi þurft að berjast á móti
mönnum eins og Hlyni (Bærings-
syni), Kristófer (Acox) og (Julian)
Boyd,“ sagði Sigurkarl Róbert Jó-
hannesson við Morgunblaðið.
„Maður getur nánast
snert bikarinn“
Sigurkarl var hetja ÍR í sigrinum á KR og segir mikla tilhlökkun í Breiðholtinu
fyrir fjórða leikinn í kvöld ÍR getur orðið Íslandsmeistari í fyrsta sinn í 42 ár
Morgunblaðið/Eggert
Breiðholt Sigurkarl Jóhannesson er tvítugur ÍR-ingur sem er að ljúka sínu fjórða tímabili með meistaraflokki fé-
lagsins. Hér á hann í höggi við hinn ítalsk-bandaríska Michele Di Nunno í úrslitarimmunni gegn KR-ingum.
ÍR - KR
» ÍR og KR mætast í fjórða sinn
í úrslitarimmunni um Íslands-
meistaratitil karla í körfuknatt-
leik í kvöld.
» ÍR er 2:1 yfir. Með sigri í kvöld
verður liðið Íslandsmeistari í
fyrsta skipti síðan 1977.
» ÍR vann síðast stóra keppni
þegar liðið varð bikarmeistari
árið 2007.
» KR er Íslandsmeistari síð-
ustu fimm ára.
» Vinni KR mætast liðin í odda-
leik í Frostaskjóli á laugardags-
kvöldið.