Morgunblaðið - 02.05.2019, Blaðsíða 10
10 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
KÓÐI Í NETVERSLUN:
SUMAR
30%
AFSLÁTTUR
AF ÖLLUM
VÖRUM
OPNUNARTILBOÐ 30% AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
1.-5. MAÍ, NÝ OG ENDURBÆTT VERSLUN Á SMÁRATORGI
SMÁRATORGI | KRINGLAN | GLERÁRTORGI | LINDESIGN.IS
EN
D
U
R
H
U
G
SUN
PL
OK
K
U
M
HV
ERFI
SGÖNGUR
Hin mörgu andlit loftslagsbreytinga
Auður Önnu Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri Landverndar
Náttúruvernd á Íslandi í alþjóðlegu samhengi
Pétur Halldórssonson, formaður Ungra Umhverfissinna
Land, loft og líf
Hafdís Hanna Ægisdóttir, plöntuvistfræðingur og forstöðumaður
Landgræðsluskóla Háskóla Sameinuðu þjóðanna
Jörðin í alheiminum
Sævar Helgi Bragason, umsjónarmaður þáttanna Hvað höfum við gert?
Fundarstjóri er Heiðrún Ólafsdóttir
Dagskrá hefst kl. 20:00 en húsið opnar kl. 19:30
Allir velkomnir og aðgangur ókeypis
UNDIR, YFIR OG ALLT UM KRING
Fyrirlestrakvöld í sal Ferðafélags Íslands
fimmtudaginn 2. maí
ENDURHUGSUN
Ferðafélag Íslands
www.fi.is
Ágúst Ingi Jónsson
aij@mbl.is
Snyrtivörur frá líftæknifyrirtækinu
Primex í Siglufirði vöktu athygli á
stórri alþjóðlegri snyrtivörusýningu
í Dubai í síðasta mánuði. 500 vörur
voru kynntar í snyrtivöruflokknum
og komust vörurnar að norðan á
lokalista yfir 25 athyglisverðustu
vörutegundirnar á sýningunni.
Sigríður V. Vigfúsdóttir, fram-
kvæmdastjóri Primex, segir mikla
viðurkenningu og tækifæri felast í
þessu. „Við sýndum líkamskrem og
skrúbb úr vörulínu sem við köllum
ChitoCare Beauty, en þetta eru
fyrstu snyrtivörurnar frá Primex
sem við setjum á markað. Í ljósi þess
að vörur frá okkur eru óþekktar í al-
þjóðlegum snyrtivöruheimi er þetta
mjög góður árangur. Þetta á tví-
mælalaust eftir að hjálpa okkur mik-
ið í markaðssetningu og vekur at-
hygli á vörumerkinu,“ segir Sigríður.
Græðandi eiginleikar
Fyrirtækið Primex Iceland er
dótturfyrirtæki Ramma hf í Fjalla-
byggð og hóf framleiðslu 1999. Á
þriðjudag var 20 ára afmæli fyrir-
tækisins fagnað en nú starfa 14
manns hjá Primex í Siglufirði, auk
sölufulltrúa í Bandaríkjunum og
Evrópu. Fyrirtækið hefur lengst af
framleitt vörur til sárameðhöndl-
unar og er helsti markaðurinn í
Bandaríkjunum, en einnig í Asíu og
Evrópu. Græðandi eiginleikar fram-
leiðslunnar eru nýttir til fulls í
snyrtivörunum.
Primex Iceland sérhæfir sig í
þróun, framleiðslu og sölu á kítósan-
vörum fyrir fæðubótarefni, lækn-
ingatæki, snyrtivörur og ýmsa aðra
notkun. Í tvo áratugi hefur Primex
unnið að því að breyta hráefni sem
áður var mengandi úrgangur í verð-
mætar afurðir sem bæta lífsgæði
manna og dýra. Kítósan er að finna í
öllum vörum fyrirtækisins.
Rækjuskel frá verksmiðjum
Fyrirtækið kaupir rækjuskel af
öllum framleiðendum hér á landi, en
í skelinni eru kítín, prótein, kalk og
steinefni og er kítínið einangrað úr
því og framleitt kítosan. Kítósan eru
nátúrlegar trefjar með einstaka eig-
inleika því uppleyst kítósan hefur já-
kvæða hleðslu sem gerir það að
verkum að það binst við ýmis efni
með neikvæða hleðslu, t.d. rauð blóð-
korn. Þessi virkni gerir það að verk-
um að húðin, og þá um leið sár og ör,
taka á móti kítósan.
„Primex Iceland hefur náð
mestum árangri af kítósanframleið-
endum í heiminum á framleiðslu og
sölu á efni í sárameðhöndlun,“ segir
Sigríður. „Það byrjaði allt þegar við
hófum þróun með bandarísku fyrir-
tæki sem seldi og selur enn kítósan-
vörur sem notaðar eru í hernaði og
hefur bandaríski herinn staðfest að
þessar vörur hafi bjargað hundruð-
um mannslífa. Með vísindalega
þekkingu og hágæða framleiðslu
höfum við svo haldið áfram og sett á
markað okkar eigin neytendavöru
ChitoCare Medical sem eru græð-
andi sprey og gel.
Vörurnar hafa nú verið skráðar
sem lækningatæki í Evrópu og er
skráningu að ljúka hjá FDA í Banda-
ríkjunum. Græðandi vörurnar okkar
hafa slegið í gegn hér heima en auk
einstkra græðandi eiginleika þá
dregur ChitoCare Medical úr ör-
myndun, sviða og kláða.“
Óhætt er að segja að leiðin sé
löng frá því að rækjan kemur í trollið
fyrir norðan land þar til efni úr skel
hennar fer á markað í útlöndum sem
hluti af hátæknivöru. Þá hefur Pri-
mex varðveitt mörg kolefnissporin
með því að koma í veg fyrir að
rækjuskel frá rækjuverksmiðjunum
sé urðuð.
Eiginleikar og tækifæri
En sér Sigríður fyrirtækið
dafna og vaxa næstu 20 árin?
„Sannarlega. Kitosan er tiltölu-
lega nýtt efni og á því hafa verið
gerðar gríðarlega miklar rannsóknir
síðustu 20 árin. Við gerðum til dæm-
is í fyrra rannsókn varðandi liposan
og þá kom í ljós að efnið hefur góð
áhrif á þarmaflóru og ristil og bætir
meltingu auk þess að hafa andox-
unareiginleika og draga í sig sind-
urefni.
Þannig eru stöðugt að koma
fram nýir eiginleikar og þá um leið
möguleikar til frekari nýtingar.
Þetta er umhverfisvæn starfsemi og
það er dýrmætt að geta gert verð-
mæti úr því sem áður fór í sjóinn,“
segir Sigríður.
Nýsköpun úr náttúru-
legum trefjum úr hafinu
Athygli Gestur á alþjóðlegri snyrtivörusýningu í Dubai fær upplýsingar um
snyrtivörur og græðandi vörur frá Primex hjá Sigríði Vigfúsdóttur.
Snyrtivörur frá Primex vekja alþjóðlega athygli á 20 ára
afmælinu Fjórtán manns starfa hjá fyrirtækinu í Siglufirði
Neytendamarkaður
» Í upphafi var Primex Ice-
land eingöngu á fyrirtækja-
markaði erlendis. Í seinni tíð
hefur verið sótt inn á neyt-
endamarkaði bæði hér heima
og erlendis.
» Þar segir framkvæmda-
stjórinn mikil tækifæri til vaxt-
ar og frekari virðisauka.
Morgunblaðið/Sigurður Ægisson
Í sólinni í Siglufirði Starfsfólk og stjórnarmenn Primex fögnuðu 20 ára afmæli fyrirtækisins á þriðjudag.
„Það eru allir tilbúnir í þetta. Það
er verið að uppskera vinnu vetr-
arins og allir mjög kátir. Þeir bíða
spenntir,“ segir Ómar Baldursson,
formaður Karlakórs Selfoss, um
tónleika kórsins í Skálholtskirkju á
laugardag klukkan fimm. Á efnis-
skrá er blanda sígildra karlakórs-
laga og þekktra dægur- og þjóð-
lagaperla. „Ég held að það megi
búast við fjörugum og skemmti-
legum tónleikum. Þetta er aðeins
öðruvísi en við höfum haft þetta
undanfarin ár, við höfum harm-
onikkuleikara, bassa og trommur,
auk píanóleikara,“ segir Ómar.
Karlakór Hinir söngglöðu Selfyssingar halda síðustu vortónleika ársins í
Skálholtskirkju. Rúmlega sextíu hafa verið á æfingum kórsins í vetur.
Uppskeruhátíð haldin
í Skálholtskirkju