Morgunblaðið - 02.05.2019, Síða 43
stuðningsfulltrúi. Foreldrar hennar
voru Theodór Þorkell Kristjánsson,
f. 19. mars 1930, d. 4. janúar 1979,
verkstjóri, og Sigrún Gunnars-
dóttir, f. 3. febrúar 1934, d. 2. janúar
2007, starfaði við umönnun. Þau
voru búsett í Reykjavík. Börn: 1)
Eyþór Guðnason (móðir: Vigdís
Kristjánsdóttir), f. 29. júlí 1975,
íþróttafræðingur, búsettur í
Reykjavík; 2) Sigrún Hlín Guðna-
dóttir, f. 14. september 1983, búsett
í Kópavogi; 3) Guðný Rut Guðna-
dóttir, f. 12. nóvember 1985, nemi,
búsett í Kópavogi; 4) Þorkell Már
Guðnason, f. 21. mars 1987, starfs-
maður á lager, búsettur í Reykjavík.
Barnabarn er Steinar Flóki Þor-
kelsson, f. 26. janúar 2019.
Systkini: Sigurður Hallgrímsson,
f. 18. ágúst 1932, fyrrverandi skip-
stjóri, búsettur í Hafnarfirði; Selma
Hallgrímsdóttir Ruga, f. 13. sept-
ember 1934, d. 29. ágúst 2010, hús-
freyja í Bandaríkjunum; Sveinn
Hallgrímsson, f. 5. júlí 1936, fyrrver-
andi búfræðilektor og skólastjóri,
búsettur á Hvanneyri; Ingibjörg
Hallgrímsdóttir, f. 7. október 1937,
skólaritari, búsett í Reykjavík; Hall-
dóra Hallgríms-O‘Neill, f. 28. ágúst
1942, hjúkrunarfræðingur, búsett í
Bretlandi; Hallgrímur Hall-
grímsson, f. 12. október 1947, verk-
fræðingur, búsettur í Reykjavík.
Foreldrar Guðna voru Hallgrímur
Sveinn Sveinsson, f. 2. desember
1901, d. 16. ágúst 1986, bóndi á Hálsi
í Eyrarsveit, og Guðríður Stefanía
Sigurðardóttir, f. 17. júlí 1910, d. 26.
apríl 1991, póst- og símstöðvarstjóri
í Eyrarsveit. Þau skildu.
Guðni E.
Hallgrímsson
Þórkatla Jóhannsdóttir
húsfreyja í Klettakoti og á Dalli
Pétur Frímann Guðmundsson
bóndi á Dalli í Fróðársókn, Snæf.
Ingibjörg Pétursdóttir
húsfreyja á Suður-Bár
Guðríður Stefanía Sigurðardóttir
póst- og símstöðvastjóri í Eyrarsveit
Sigurður Eggertsson
skipstjóri og bóndi á Suður-Bár í Eyrarsveit
Jóhanna Guðmundsdóttir
húsfreyja á Lambavatni og
Hvallátrum
Eggert Eggertsson
bóndi á Lambavatni á Rauðasandi og Hvallátrum
Þorkell Sigurðsson
kaupfélagsstjóri í Grundarfirði
Halldór E. Sigurðsson alþingismaður
Pétur Sigurðsson kaupfélagsstjóri í
Grundarfirði og starfsm. Alþingis
Margrét Sigurðardóttir félagsráðgjafi í Rvík
Þórarinn Sigurðsson ljósmyndari
og frkvstj. í Grundarfirði
Þorbjörg Kjartansdóttir
húsfreyja í Miðgörðum
Guðný Anna Eggertsdóttir
húsfreyja á Hálsi
Sveinn Sveinsson
bóndi á Hálsi
Eggert Eggertsson
bóndi í Miðgörðum í
Kolbeinsstaðasókn, Hnapp.
Kristín Eggertsdóttir
húsfreyja á Hálsi
Sveinn Jónsson
bóndi á Hálsi
Úr frændgarði Guðna E. Hallgrímssonar
Hallgrímur Sveinn Sveinsson
bóndi á Hálsi í Eyrarsveit
DAGBÓK 43
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019
„HVERS VEGNA VARSTU SVONA LENGI AÐ
KOMA Í SKOÐUN?”
„HVAÐ SKYLDI HÚN SJÁ VIÐ HANN
ÞENNAN?”
Ferdinand
Hrólfur hræðilegi
Grettir
... yndisleg.
Í klípu eftir Mike Baldwin eftir Jim UngerHermann
KETTIR ERU GÁFUÐUSTU
VERUR Í HEIMI
EKKI ÞAÐ AÐ ÞAÐ SÉ MIKIL
SAMKEPPNI
BORGAÐIRÐU
MÖNNUNUM
Í SÍÐASTA
MÁNUÐI?
NEI! ÉG SAGÐIST EKKI
BORGA ÞEIM FYRR EN
ÞEIR SÝNDU FRAM Á AÐ
ÞEIR GÆTU BARIST AF
HÖRKU!
ÞEIR ERU KOMNIR TIL ÞESS
AÐ SÝNA ÞÉR ÞAÐ!
Á Boðnarmiði segir Pétur Stef-ánsson frá því að hann hafi
orðið þeirrar óvæntu ánægju að-
njótandi að vinna til verðlauna í
Vísnakeppni Sæluviku Skagfirð-
inga fyrir besta botninn. Hann er
svona:
Vorið nálgast, vinda lægir
vermir sólin dal og grund.
Lóusöngur burtu bægir
böli vetrar hverja stund.
Eftirskrift:
Á ljóðahörpu lipurt slæ ég,
lífga og hressi mína þjóð.
Verðlaun gjarnan fyrstu fæ ég
fyrir öll mín snilldarljóð.
Sjálfur lýsir Pétur sér þannig:
Í ástum verð ég aldrei strand,
er afar frjór og slyngur,
allvel þekktur út um land
sem afbragðs hagyrðingur.
Skarphéðinn Ásbjörnsson segir
frá því, að þessi sléttubönd hlutu
náð fyrir augum dómnefndar í
Vísnakeppni Safnahússins á Krókn-
um og hlutu í gær við setningu
Sæluvikunnar verðlaun sem besta
vísan.
Veður sæinn röðull rótt,
rjóður daginn langan.
Kveður snæinn foldin fljótt.
fyllir bæinn angan.
Þau hljóma síðan svona aftur-
ábak:
Angan bæinn fyllir fljótt,
foldin snæinn kveður.
Langan daginn rjóður rótt,
röðull sæinn veður.
Magnús Halldórsson yrkir við
mynd af nýútsprungnum fífli sem
þrengir sér upp á milli gangstéttar-
hellna:
Vanga þýður vermir blær,
vors á degi þekkum,
fífill upp úr gangstétt grær,
grösin lifna’í brekkum.
Ég er eins og aðrir og þykir vænt
um það sem ég hef sjálfur ort og nú
rifjast upp:
Sóley í varpa brosir blítt
það biðlar til hennar löngum
hálsmjór fífill með hárið strítt
og hefur grátt í vöngum.
Bæjarlækur og burstir tvær.
Barn að skoða sínar tær.
Hrúturinn Pjakkur, hornótt ær.
Ármann Þorgrímsson yrkir um
ellina:
Eftir þrotlaust ævistrit
er að þyngjast báran,
grána vangar, glatast vit,
geislum tapar áran.
Halldór Blöndal
halldorblondal@simnet.is
Vísnahorn
Enn vorljóð,
botn og sléttubönd
Z-brautir &
gluggatjöld
Opið mán.-fös. 10-18, lau. 11-15 Faxafeni 14 | 108 Reykjavík | S. 525 8200 | www.z.is |
Mælum, sérsmíðum og setjum upp
Úrval - gæði - þjónusta
Falleg gluggatjöld
fyrir falleg heimili