Morgunblaðið - 02.05.2019, Síða 44

Morgunblaðið - 02.05.2019, Síða 44
44 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 www.gilbert.is SJÓN ER SÖGU RÍKARI ! SIF NART 1948 HANDBOLTI Ívar Benediktsson iben@mbl.is „Tímabilið hefur gengið ótrúlega vel, verið eitt ævintýri,“ segir handknatt- leikskonan Lovísa Thompson sem lék afar stórt hlutverk í liði þrefaldra meistara Vals í handknattleik á keppnistímabilinu sem lauk á sunnu- daginn var. Lovísa kom til Vals á síð- asta sumri eftir að hafa yfirgefið upp- eldisfélag sitt, Gróttu, þar sem hún var einnig sigursæl og varð m.a. þre- faldur meistari 2015, þá 15 ára göm- ul, Íslandsmeistari árið eftir og í sig- urliði í Meistarakeppni HSÍ haustið 2016. „Ég hef verið mjög heppin á ferl- inum að vera á réttum stað á réttum tíma og fengið að upplifa margt á fáum árum. Mér finnst eins og það hafi gerst í gær þegar ég varð Ís- landsmeistari með Gróttu í fyrsta sinn í meistaraflokki. Þá var ég að ljúka grunnskóla. Nú er ég byrjuð í námi í háskóla,“ segir Lovísa sem verður tvítug síðar á þessu ári. Hún leggur stund á nám í sálfræði við HÍ. Lovísa var markahæsti leikmaður Vals í deildarkeppninni með 107 mörk og skoraði einnig flest mörk Valskvenna í úrslitakeppninni, 34. Stærra hlutverk en ég bjóst við Lovísa var ekki síður aðsópsmikil í varnarleiknum þar sem hún lék afar vel í annarri bakvarðarstöðunni. Hún fékk lítið að hvíla sig í leikjum. „Ég var afar sátt við mitt hlutverk hjá Val sem var að vissu leyti stærra en ég bjóst við vegna þess að það er svo stutt síðan ég kom til félagsins auk þess sem mikil samkeppni er inn- an liðsins sem er vel skipað,“ sagði Lovísa sem verður tvítug síðar á þessu ári. Sigurganga Vals byrjaði í bikar- keppninni í byrjun mars þar sem liðið vann afar sannfærandi sigur á Fram í úrslitaleik. Síðan tók við sigur í deild- arkeppninni og loks sex sigurleikir og ekkert tap í úrslitakeppninni, fyrst í undanúrslitum gegn Haukum og síðan á móti meisturum tveggja síðustu ára, Fram, í þremur úrslita- leikjum. Það hljóp tryllingur í okkur „Það hljóp tryllingur í okkur. Við urðum eins villidýr inni á leikvell- inum,“ segir Lovísa þegar hún er beðin að lýsa hvað hafi gerst innan Valsliðsins sem vann öll mót tímabils- ins á afar sannfærandi hátt, svo ekki sé fastara að orði kveðið. „Frábær varnarleikur smitaðist út í allt liðið þannig að sóknarleikurinn fylgdi með. Við urðum óstöðvandi og blanda liðsins frábær þegar upp var staðið.“ Lovísa var aðeins 15 ára, hafði ekki lokið námi í grunnskóla, þegar hún skoraði sigurmark Gróttu í fjórða úr- slitaleiknum við Stjörnuna vorið 2015 sem tryggði liðinu sinn fyrsta Ís- landsmeistaratitil. Segja má að markið gegn Stjörnunni hafi end- anlega skotið Lovsíu upp á stjörnu- himininn í kvennahandboltanum. Gróttuliðið þá vann einnig þrefalt eins og Valur gerði nú. Lovísa segir ekki hægt að bera saman þessi tvö lið. Til þess sé m.a. umgjörðin í kring- um liðin ólík. „Þá var ég hluti af litlu liði sem vann óvænt sinn fyrsta titil fyrir lítið bæjarfélag og allt frekar smátt í sniðum í kringum liðið. Um- gjörðin hjá Val er allt öðruvísu og stærri. Maður varð svo vel var við það í kringum úrslitakeppnina þegar fleiri lið félagsins eru á svipuðu róli. Leik- menn ólíkra deilda skiptast á skoð- unum og hvatningum þegar maður mætir á æfingar og í leiki í Valsheim- ilinu. Það er alls ekkert sjálfgefið hjá svona stóru félagi.“ Mun fara til útlanda Lovísa segir alveg víst að hún verði áfram í herbúðum Vals á næsta keppnistímabili enda hafi hún gert tveggja ára samning við félagið á síð- asta ári. Hún neitar ekki að hugurinn stefni til útlanda til þess að leika hand- knattleik í framtíðinni. „Ég vil halda áfram að þróast með Valsliðinu og vinna til verðlauna. Hinsvegar legg ég svo mikla vinnu í handboltann að það er alveg ljóst að einn góðan veðurdag fer ég út til Evrópu til þess að spila svo ég haldi áfram að þróast sem handknattleikskona. Hvenær það verður skýrist þegar fram líða stund- ir,“ segir Lovísa. Óhætt er að segja að lífið hjá henni snúist fyrst og síðast um handbolta og hafi gert það árum sam- an. Hugsa ekki um annað „Ég dró meira að segja úr náminu til þess að geta lagt harðar að mér við æfingar vegna þess að ég vissi ekki al- veg í hvaða sporum ég stóð við kom- una til Vals í fyrra. Ég hef lagt mikinn metnað og vinnu í handboltann í vetur og ætla að leggja enn meiri vinnu á mig til þess að mæta enn sterkari til leiks á næsta keppnistímabili. Fyrir mér er handboltinn lífið. Ég hugsa nánast ekkert um annað og hef ekki gert það síðan ég byrjaði að æfa handbolta níu ára gömul. Á þess- um árum sem liðin eru hefur síst dregið úr áhuganum eða metn- aðinum sem er kannski skiljanlegt þar sem mér hefur gengið vel. Þessu til viðbótar hef ég verið svo heppin að hafa alla tíð haft góða liðsfélaga með mér til viðbótar við skilnings- ríka foreldra sem mæta á alla mína leiki og hafa alltaf gert.“ Systir Lovísu, Patricia Dúa, er 15 ára. Hún æfir einnig af sama metn- aði og áhuga og stóra systir. Patricia leikur með Gróttu, jafnt í handbolta sem fótbolta. „Hún er mikil íþrótta- kona og dugleg.“ Vonast eftir landsliðssæti Þótt Íslandsmótinu í handknatt- leik sé lokið þá er handknattleiksver- tíðinni ekki lokið hjá Lovísu, eða það vonar hún að minnsta kosti því fram- undan eru tveir landsleikir í lok maí og í byrjun júní, leikir við Spánverja sem skera úr um hvor þjóðin öðlast keppnisrétt á HM sem fram fer í Japan í desember. „Ég vona að ég verði valin í lands- liðið. Það væri að minnsta kosti skemmtilegt,“ segir Lovísa en nær útilokað er að Axel Stefánsson gangi framhjá henni við val á landsliðinu. „Það væri mjög gaman að taka þátt í undirbúningnum og leikjunum. Landsliðshópurinn er flottur um þessar mundir. Mikill metnaður. Með góðri frammistöðu í leikjunum tveimur þá gætum við tryggt okkur sæti á HM. Það væri hrikalega spennandi,“ sagði hin unga og frá- bæra handknattleikskona Lovísa Thompson. Urðum eins og villidýr á vellinum  Lovísa Thompson varð þrefaldur meistari í annað skiptið á ferlinum Morgunblaðið/Árni Sæberg Ógnandi Lovísa Thompson í hörðum slag við Ragnheiði Júlíusdóttur í ein- um af úrslitaleikjum Vals og Fram en Valskonur unnu úrslitaeinvígið 3:0. Spænska íþróttadagblaðið AS sagði í gær að Christian Eriksen, danski miðjumaður enska knattspyrnu- félagsins Tottenham, væri búinn að gera munnlegt samkomulag við Real Madrid um að ganga til liðs við félagið í sumar. Eriksen hefur verið sterklega orðaður við Real Madrid undanfarin ár en Manchester Unit- ed hefur einnig mikinn áhuga á leikmanninum. AS segir að Eriksen ætli sér að hafna United til þess að ganga til liðs við Real Madrid. Eriksen á leið til Spánar? AFP Seldur? Christian Eriksen gæti yf- irgefið Tottenham í sumar. HANDBOLTI Grill 66 deild karla Umspil, úrslit, annar leikur: HK – Víkingur ...................................... 25:26  Staðan er 2:0 fyrir Víking. Svíþjóð Undanúrslit, annar leikur: Alingsås – Kristianstad ...................... 28:25  Ólafur A. Guðmundsson skoraði 4 mörk fyrir Kristianstad, Arnar Freyr Arnarsson 1 en Teitur Örn Einarsson ekkert.  Staðan er 2:0 fyrir Alingsås. Danmörk Undanúrslit, annar leikur:: Köbenhavn – Esbjerg ......................... 23:29  Rut Jónsdóttir skoraði ekki fyrir Es- bjerg.  Staðan er 2:0 fyrir Esbjerg. Úrslit um sæti í úrvalsdeild, annar leikur: Bjerringbro – Ajax.............................. 25:27  Eva Björk Davíðsdóttir skoraði 3 mörk fyrir Ajax.  Ajax vann 2:0 og heldur sæti sínu. Frakkland Saint-Raphaël – Cesson-Rennes........ 29:27  Geir Guðmundsson skoraði 2 mörk fyrir Cesson-Rennes. Austurríki 8-liða úrslit, fyrsti leikur: Klosterneuburg – Wels....................... 85:70  Dagur Kár Jónsson skoraði 11 stig fyrir Wels, átti 3 stoðsendingar og tók 2 fráköst á 33 mínútum.  Staðan er 1:0 fyrir Klosterneuburg. Úrslitakeppni NBA Austurdeild, undanúrslit: Milwaukee – Boston ......................... 123:102  Staðan er 1:1. Vesturdeild, undanúrslit: Golden State – Houston................... 115:109  Staðan er 2:0 fyrir Golden State. KÖRFUBOLTI KNATTSPYRNA Úrvalsdeild kvenna, Pepsi Max-deildin: Hásteinsvöllur: ÍBV – Breiðablik ............ 18 Kórinn: HK/Víkingur – KR................. 19.15 Samsung-völlur: Stjarnan – Selfoss ... 19.15 Würth-völlur: Fylkir – Keflavík.......... 19.15 KÖRFUKNATTLEIKUR Fjórði úrslitaleikur karla: Hertz-hellirinn: ÍR – KR (2:1).................. 20 HANDKNATTLEIKUR Undanúrslit karla, annar leikur: Vestmannaeyjar: ÍBV – Haukar (0:1) ..... 19 Í KVÖLD!

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.