Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 52

Morgunblaðið - 02.05.2019, Side 52
52 MENNING MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 2. MAÍ 2019 Verslun – Snorrabraut 56, 105 Reykjavík Sími 588 0488 | feldur.is VINDUR rauðrefstrefill 15.500 DRÍFA skinnkragi 31.900 HREFNA refaskinnsvesti 69.000 BYLGJA silfurrefskragi 24.600 Velkomin í hlýjuna SARA mokkakápa 238.000 SIF – vesti úr íslensku lambaskinni 50.400 Mikið á hann Orgeir gott.Þegar allt er fariðfjandans til, fjölskyldaná vonarvöl, rekin burt af heimilinu fyrir sakir heimsku hans og blindu þá standa þau með honum, faðma hann og gráta honum til sam- lætis í stað þess að hrækja á hann og klóra úr honum augun eins og hann á skilið, ekki síst fyrir þá taumlausu fyrirlitningu sem hann hefur sýnt þeim öllum með ákvörðunum sínum undanfarið og orsaka þá stöðu sem upp er komin í leikslok. Þegar and- legi leiðtoginn hefur verið afhjúpaður svo allir, meira að segja blinda ætt- móðirin, sjá í gegnum yfirdrepsskap- inn og illan ásetning. Þegar hann stendur engu að síður með pálmann í höndunum og lyklana að húsinu með- an skósveinar hans skipta málverki út fyrir spegil og rífa klukkuna af veggnum. Aldrei hefur mér fundist eins skýrt að Orgeir er aðalhlutverk Loddarans og í þessari uppfærslu Stefans Metz. Einungis hann, af aðalpersónum verksins, breytist eða þroskast. Allir aðrir á heimilinu hafa séð í gegnum Guðreð þegar tjaldinu er lyft. Sjálfur er loddarinn auðvitað bara það sem hann er. Eins og guð. Nafnið Guðreður er auðvitað ein af bráðfyndnum uppáfinningum Hall- gríms Helgasonar í sinni lipru og smellnu þýðingu. Önnur er nafnið Orgeir. Linnulaus straumurinn af AABBCC-rímuðum fimmliðunum reynir nokkuð á þolrifin þegar fer að síga á seinni hlutann en engu að síður er þýðingin afrek hjá Hallgrími að halda þetta út. Það er síðan allur gangur á hvernig hún skilaði sér út í salinn, leikmyndin virðist skapa nokkra glymjandi og ekki allir leik- ararnir nógu passasamir með að fylgja línunum sínum eftir allt til enda. Annars hvílir mikil ábyrgð á text- anum í þessari uppfærslu. Fyrir utan nútímaleg snið búninganna er farið einstaklega sparlega með brögð leik- sviðsins til að auka við merkingu leik- ritsins, bregðast við henni, skerpa eða snúa á hvolf. Það sama á við um grínið, sem fyrir utan fyrirskipuð farsabrögð og glaðbeitta þjónustu- stúlku hvílir nær eingöngu í text- anum. Þótt hefð Moliéres eigi rætur í skopleikjaformi Commedia Dell’Arte með sínum stílfærðu persónum og líkamlega gríni heldur Stefan Metz sýningunni nánast algerlega á raunsæislegu plani. Svo mjög reynd- ar að það er varla hægt að tala um persónusköpun, hvað þá týpusmíð, umfram þau einkenni sem atburða- rásin leiðir í ljós. Það er fátítt, jafnvel gleðiefni, að sjá leiktexta treyst jafn afdráttar- laust til að bera hitann og þungann af áhrifum og erindi leiksýningar núna á öld leikstjóra-, samsköpunar- og konseptleikhússins, en þá verður textinn að vera traustsins verður. Ég veit ekki alveg hvort það sé raunin með þessa skörpu og sniðugu en dýptarlausu lýsingu Moliéres á hræsni og maklegum málagjöldum fáviskunnar. Fyrir vikið fáum við litla innsýn í hvernig fólk þetta er. Hvern- ig Guðreður náði þessum heljar- tökum á huga Orgeirs. Hvort það skýrist frekar af sakleysi eða ein- feldningshætti fórnarlambsins eða út- geislun og sannfæringarkrafti hins andlega leiðtoga. Við sjáum reyndar heldur ekki nein merki um áhrif Guð- reðar í heimilislífinu eða á hegðun þeirra sem hafa gerst lærisveinar hans. Við vitum heldur næstum ekk- ert um samband Orgeirs og Elmíru konu hans, hvaða stöðu frú Petrúnella hefur á heimili sonar síns eða hvers konar áhrif Guðreður hefur á börnin. Það er eitthvað meinlætalegt við það hvernig verkinu er boðið að tala fyrir sig sjálft. Það kemur líka í ljós að það hefur ekki margt merkilegt, óvænt eða hugvekjandi að segja. Vissulega falla kjánar enn fyrir náðarvaldi sjarmerandi síkópata. Vissulega fæð- ist einn slíkur enn á mínútufresti eins og P.T. Barnum sagði kannski. Og vissulega hefur orðsnilld og rímflæði gildi í sjálfu sér, í það minnsta skemmtigildi. En samt. Af hverju er verið að sýna okkur Tartuffe? Sýn- ingin svarar því ekki á sannfærandi hátt. Hún gefur þétt skipuðum leik- hópnum heldur ekki mikil færi á að glansa. Einu karakterarnir sem verða sæmilega eftirminnilegir sem slíkir eru Dóra vinnukona sem Kristín Þóra Haraldsdóttir nýtur greinilega að skapa og sýna, þótt ekki sé hún alsak- laus af fyrrnefndum textameðferðar- göllum, og kostuleg lögmærin hennar Dóru Jóhannsdóttur, sem vissulega er örhlutverk. Hennar „aðalhlutverk“ er Vala, heitmey heimasætunnar. Hún birtist í einni senu sem hefur elst hvað verst af texta Moliéres og verð- ur algerlega tilgangslaus sé ekki unn- ið með afstöðu og persónueinkenni þeirra Völu og Maríönnu Orgeirs- dóttur. Lára Jóhanna Jónsdóttir gaf þeirri síðarnefndu sviðssjarma en ekki eftirtektarverðan persónuleika. Danni, bróðir Maríönnu, er öllu til- þrifameiri í sínum fyrirgangi hjá Oddi Júlíussyni, en ekki er hann nú sérlega skýr samt. Það hefur sína kosti að kynbreyta tilvonandi ektamaka Marí- önnu, en kostar líka sitt. Til dæmis það að kynhneigð heimasætunnar trompar allt annað sem hún gæti haft á móti því að giftast Guðreði. Ein- hverjum hefði líka þótt það dauðafæri að „jarðtengja“ trúarkreddur lodd- arans með því að gefa honum, og læri- sveini hans, færi á að tjá á einhvern hátt vanþóknun á samkynja hjúskap, en það er ekki gert. Þetta er ekki svo- leiðis sýning. Baldur Trausti Hreinsson er mágur Orgeirs og hefur tilhneigingu til að láta línuendingar sínar fjara út en var annars aðsópsmikill í vanþakklátu hlutverki. Ragnheiður Steindórs- dóttir var reffileg frú Petrúnella, en ekki fannst mér blinda hennar ýkja sannfærandi. Fyrir utan að ég skildi ekki tilganginn, þetta er almennt ekki uppfærsla sem krefst þess að vera skilin táknrænum hætti. Nína Dögg Filippusdóttir blómstraði í langbita- stæðasta atriði verksins, þar sem húsfrúin Elmíra táldregur guðs- manninn til að afhjúpa hann loksins fyrir eiginmanninum. Guðjón Davíð Karlsson fer prýðilega með hlutverk Orgeirs, og ekki við hann að sakast hvað frelsi til skoptilþrifa eru af skornum skammti í túlkunarleið sýn- ingarinnar. Hilmir Snær Guðnason glímir við sama vanda, en er einnig ágætur innan hins þrönga ramma. Hann byrjaði reyndar með þreytandi „stórleikararaddbeitingu“ í fyrstu innkomu sinni, eitthvert hljómfall sem jaðrar við flámæli, en svo hvarf það og styrkleiki hans í textameðferð nýtist vel. Það eru samt sorglega mörg glötuð tækifæri í afstöðu- leysinu. Í hverju felst náðarvald hans? Hefur taumlaus neyslan sem lýst er í upphafi haft einhver áhrif á hann? Er hann jafnvel sérlega ógeð- felldur í augum allra annarra en Or- geirs og móður hans? Það nægir ekki að aflita hárið og láta Guðreð bera krem á fæturna á sér til að trompa stjörnuútgeislun Hilmis Snæs. Leikmynd Seans Mackaoui og búningar eru umtalsvert augnayndi. Sérstaklega létt og litrík föt fína fólksins, þótt klæðnaður Danna stingi þar í stúf. Erfitt er að lesa í búninga Völu og Guðreðar, hvort beri að skilja þá samfélagslegum eða táknrænum skilningi. Það þarf almennt að kveða fastar að í túlkun verksins og það gildir um umgjörð hennar líka. Lýs- ing Ólafs Ágústs Stefánssonar er til sóma, skörpu „blakkátin“ mjög skemmtileg. Tónlist Elvars Geirs Sævarssonar var sniðug og flutn- ingur leikhópsins á sálmi Sibeliusar var íðilfagur. Loddarinn virkar heldur yfirborðs- kennt verk í þeirri mynd sem það fær á sig í þessari sýningu. Að sumu leyti óhjákvæmilegt, hinn hreini og beini framsetningarmáti Moliéres er í það minnsta einfaldur, og jaðrar við að vera einfeldningslegur, séð með bak- sýnisspegli nútímans. Það virðist vera meðvituð listræn ákvörðun að leyfa einfaldleikanum að tala að þessu sinni. Þar fara að mínu mati forgörðum ótal möguleikar til að gera þessa kvöldstund bæði skemmtilegri og umhugsunarverðari. Leiðtogi lífsins Ljósmynd/Hörður Sveinsson Þjóðleikhúsið Loddarinn bbbnn Eftir Molière. Íslensk þýðing: Hallgrímur Helgason. Leikstjórn: Stefan Metz. Leik- mynd og búningar: Sean Mackaoui. Lýs- ing: Ólafur Ágúst Stefánsson. Tónlist og hljóðmynd: Elvar Geir Sævarsson. Leik- arar: Baldur Trausti Hreinsson, Dóra Jóhannsdóttir, Guðjón Davíð Karlsson, Hilmir Snær Guðnason, Kristín Þóra Haraldsdóttir, Lára Jóhanna Jónsdóttir, Nína Dögg Filippusdóttir, Oddur Júlíus- son og Ragnheiður Steindórsdóttir. Frumsýning á Stóra sviði Þjóðleikhúss- ins 27. apríl 2019. ÞORGEIR TRYGGVASON LEIKLIST Yfirborðskennt „Loddarinn virkar heldur yfirborðskennt verk í þeirri mynd sem það fær á sig í þessari sýningu.“

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.