Morgunblaðið - 18.05.2019, Page 2
2 FRÉTTIRInnlent
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
ÚRVAL ÚTSÝN | HLÍÐASMÁRA 19 | 201 KÓPAVOGI | 585 4000 | UU.IS
MIÐJARÐARHAFS-
SIGLING
MEÐ SPÆNSKU ÍVAFI
INDEPENDENCE OF THE SEAS
1. - 13. SEPTEMBER
SMELLTU HÉR
Morgunblaðið Hádegismóum 2, 110 Reykjavík. Sími 569 1100 Fulltrúar ritstjóra Sigtryggur Sigtryggsson sisi@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson aij@mbl.is Fréttir Guðmundur Sv. Hermannsson ritstjorn@mbl.is Menning Einar Falur Ingólfsson menning@mbl.is
Viðskipti Stefán E. Stefánsson vidskipti@mbl.is Íþróttir Víðir Sigurðsson sport@mbl.is mbl.is Jón Pétur Jónsson netfrett@mbl.is Smartland Marta María Jónasdóttir smartland@mbl.is Umræðan | Minningar mbl.is/sendagrein Prentun Landsprent ehf.
Í gær voru 80 ár frá því Stanga-
veiðifélag Reykjavíkur var stofnað
í Baðstofu iðnaðarmanna við
Reykjavíkurtjörn. Af því tilefni var
haldinn óformlegur stjórnarfundur
á sama stað, þar sem Jón Þór Óla-
son formaður sæmdi Guðrúnu E.
Thorlacius, félagsmann nr. 1, gull-
merki félagsins, en hún gekk í fé-
lagið 1941, 16 ára að aldri. Síðdeg-
is var afmælisveisla í Elliðaár-
dalnum.
Á stofnfundinn 17. maí 1939
mættu 48 manns, en nú eru um
2.500 manns í félaginu. Fyrsti for-
maður var Gunnar E. Benedikts-
son.
„Við erum fjölmennasta veiði-
félag í heimi,“ segir Ari Hermóður
Jafetsson, framkvæmdastjóri
SVFR. Hann bendir á að félagið sé
með veiðiréttindi á um 25 ársvæð-
um víðs vegar um land og annist
umboðssölu á þeim heima og er-
lendis. „Kjarnastarfsemi félagsins
felst í að semja um leigu á ársvæð-
um og sjá um að selja þau fyrir
bændur,“ segir hann.
Stangaveiðifélag Reykjavíkur minntist 80 ára afmælisins með ýmsum hætti í gær
Fjölmenn-
asta veiði-
félag heims
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Fékk gullmerki Jón Þór Ólason, formaður SVFR, afhendir Guðrúnu E. Thorlacius gullmerki félagsins. Aðeins 18 hafa fengið merkið í 80 ára sögu
félagsins, þar á meðal Ásgeir Ásgeirsson, fyrrverandi forseti Íslands, og Ólafur Noregskonungur, borgarstjórar og fyrrverandi formenn félagsins.
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Þrír af farþegunum fjórum sem flutt-
ir voru á Landspítalann í fyrradag
vegna rútuslyssins í Öræfum voru
enn á gjörgæslu í gær, en sá fjórði
var kominn inn á bráðalegudeild.
Rannsókn á tildrögum slyssins
stendur enn yfir, en bílstjóri rútunn-
ar greindi lögreglunni frá því að hann
hefði mætt tveimur stórum bílum
stuttu áður og misst stjórnina á bíln-
um í kjölfarið.
Áætlað er að hátt á þriðja hundrað
manns hafi tekið þátt í aðgerðum í
fyrradag samkvæmt heimildum
Morgunblaðsins, en þær stóðu yfir
frá um klukkan 15, þegar tilkynning
barst um slysið, þar til um ellefuleyt-
ið um kvöldið.
Davíð Már Bjarnason, upplýsinga-
fulltrúi Landsbjargar, segir að sam-
starf viðbragðsaðila á vettvangi í
fyrradag hafi verið til fyrirmyndar.
„Það er magnað hvað allir vinna vel
saman og af miklum krafti þegar
reynir á eins og í gær,“ segir Davíð.
Hann bætir við að á síðustu tveimur
árum hafi orðið of mörg slys af þessu
tagi en afleiðingin sé sú að allir við-
bragðsaðilar, björgunarsveitir, lög-
regla og sjúkraflutningalið, séu vel
æfðir og vinni vel saman, sem sé ekki
sjálfgefið. „Þegar eitthvað bjátar á
erum við á Íslandi dugleg að snúa
bökum saman og leysa málin.“
Ástand vegamála óviðunandi
„Það er vitað að vegurinn er allt of
þröngur og það eru engar vegaxlir á
þessum stað, sem er óviðunandi,“
segir Matthildur Ásmundardóttir,
bæjarstjóri Hornafjarðar, um að-
stæður á þjóðveginum þar sem rútu-
slysið varð.
Hún segir ástandið ekki einskorð-
ast við staðinn þar sem slysið varð
heldur sé það almennt slæmt á þjóð-
veginum og menn hafi átt von á að
slys af þessu tagi gæti orðið. Því hafi
verið þrýst á um vegaúrbætur í allri
sýslunni.
„Bæjarráð ákvað fyrir stuttu að fá
úttekt á vegakerfinu frá óháðum að-
ila til að fá betri upplýsingar um
ástand vegarins þannig að stjórnvöld
hafi skýrslu sem sýni svart á hvítu
hvernig það er, því við vitum að
ástandið er ekki gott og það fer mikil
umferð um þessa vegi,“ segir Matt-
hildur.
Hún bætir við að umferðin hafi
margfaldast á undanförnum árum
með fjölgun ferðamanna, en tölfræði
yfir heimsóknir í Skaftafell og Jök-
ulsárlón sýni að á hverjum degi árið
um kring heimsæki þessa staði að
meðaltali tvö til þrjú þúsund gestir.
Matthildur segir að hin aukna tíðni
slysa á þessum slóðum reyni mjög á
fámennar sveitir viðbragðsaðila í ná-
grenninu. Hins vegar séu þær vel
æfðar, þar sem bæði séu reglulega
æfingar um viðbrögð við flugslysum
auk þess sem heimamenn hafi þjálfað
sig í viðbrögðum við rútuslysum, því
það hafi ekki verið spurning um
hvort næsta rútuslys yrði heldur hve-
nær. Það sé því þakkar- og aðdáun-
arvert hversu vel störf viðbragðs-
aðila hafi gengið í fyrradag.
Þrír farþegar enn á gjörgæslu
Ljósmynd/Guðmundur Karl
Rútuslysið Hátt á þriðja hundrað manns kom að aðgerðum vegna slyssins.
Bílstjóri rútunnar í Öræfum mætti tveimur stórum bílum stuttu fyrir slysið Hátt á þriðja hundrað
manns kom að aðgerðum Brýn þörf á úrbótum í samgöngum í Öræfum að mati bæjarstjórans á Höfn
Stefán Gunnar Sveinsson
sgs@mbl.is
Samtök sunnlenskra sveitarfélaga
stóðu í gær ásamt lögreglustjórun-
um á Suðurlandi og í Vestmanna-
eyjum að ráðstefnu um almanna-
varnir og skipulag þeirra, sem
haldin var á Hótel Selfossi, og var
þar farið ítarlega yfir þá náttúruvá
sem steðjar að sveitarfélögum á
Suðurlandi og hvernig almanna-
varnir á svæðinu eru skipulagðar.
Matthildur Ásmundardóttir, bæj-
arstjóri á Hornafirði, segir að ráð-
stefnan hafi verið einkar vel heppn-
uð og til marks um hið góða og
mikla samstarf sem sveitarfélögin á
Suðurlandi hafi með sér í almanna-
vörnum.
Matthildur flutti á ráðstefnunni
erindi um þær ógnir sem steðja að
suðaustanverðu landinu og nefnir
hún þar Öræfajökul, Bárðarbungu
og Grímsvötn sem helstu hættu-
svæðin og þar af hræði möguleikinn
á eldgosi í Öræfajökli mest. „Það er
búið að gera áhættumat og það eru
komin drög að rýmingaráætlun ef
til eldgoss kæmi,“ segir Matthildur
og er stefnt að því að sú áætlun
verði æfð á næsta ári. Þá sé einnig
unnið að því að bæta farsímasam-
band og upplýsingagjöf til íbúa á
svæðinu.
„Tímaþátturinn er svo stuttur,“
segir Matthildur. „Ef það gýs í
Öræfajökli, þá er komið flóð á þjóð-
veginn hálftíma síðar, þannig að þá
þarf allt að vera í lagi.“
Drög að rýmingaráætlun
komin vegna Öræfajökuls
Ráðstefna haldin um almannavarnir á Suðurlandi í gær
Morgunblaðið/RAX
Öræfajökull Tvö gos hafa orðið í
jöklinum frá landnámi Íslands.