Morgunblaðið - 18.05.2019, Síða 24
24 VIÐSKIPTIViðskipti | Atvinnulíf
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
olympium 350Nú bjóðum við til sölu hestakerrur frá reyndum framleiðenda
Fautrax sem eru nú að bjóða upp á nýja línu af kerrum sem
eru sérhannaðar fyrir íslenska hestinn.
8 ára ábyrgð á grind og lífstíðarábyrgð á gólfplötu.
Einnig mikið úrval aukabúnaða.
Leitið tilboða hjá sölumönnum okkar í síma 480 0400
Austurvegur 69 - 800 Selfoss
Lónsbakk i - 601 Akureyr i
Sólvangi 5 - 700 Egilsstaðir
Sími 480 0400 // jotunn@jotunn.is // www.jotunn.is
maxipodium 500
Hestakerrur frá Fautras
maxipodium 500 O
NÁNAR Á
S A L U R I N N . I S
DA CAPO GUNNAR GUÐBJÖRNSSONVIÐTALSTÓNLEIKAR
18.05.19 KL.14.00
ÞÓRA
EINARSDÓTTIR
STUTT
● Jón Viðar Stef-
ánsson hefur tekið
við starfi rekstrar-
stjóra þjónustu-
stöðva N1. Hann
segir að miklar
breytingar eigi sér
stað í neyslu-
hegðun fólks og
þar ráði miklu að
ungir neytendur
hugsi öðruvísi um
tíma sinn, heilsu og næringu og að þeir
vilji nýta tæknina við ákvarðanatöku.
„Markaðurinn er að breytast mjög hratt
og þetta eru allt áskoranir sem við ætl-
um að mæta. Þetta er skemmtilegt
verkefni, en krefjandi,“ segir Jón Viðar.
Segir miklar breytingar
í neysluhegðun fólks
Jón Viðar
Stefánsson
Hagar hf. högnuðust um 2,3 millj-
arða króna á síðasta rekstrarári sem
stóð frá 1. mars 2018 til 28. febrúar
2019, eða um 2,75% af veltu.
Heildareignir félagsins námu tæp-
um 51 milljarði króna í lok rekstrar-
ársins, og jukust um rúma 20 millj-
arða króna frá árinu á undan, þegar
eignirnar voru rúmir 29 milljarðar.
Eigið fé Haga nam rúmum 24
milljörðum í lok rekstrarársins og
jókst um rúma fimm milljarða á milli
ára. Eiginfjárhlutfall félagsins nam
47,7% í lok rekstrarársins.
Í tilkynningu félagsins til Kaup-
hallar Íslands segir einnig að vöru-
sala rekstrarársins hafi verið rúmir
84 milljarðar króna, en til saman-
burðar nam vörusalan 74 milljörðum
árið á undan. EBITDA-hagnaður
nam 4,5 milljörðum króna.
Olís hefur áhrif
Söluaukning félagsins á milli ára,
sem er 13,9%, skýrist, eins og fram
kemur í tilkynningunni, að stórum
hluta af áhrifum Olís á síðasta árs-
fjórðungi, en án áhrifa Olís er sölu-
aukning félagsins 4,1%.
Þá hafa seld stykki í matvöruhluta
félagsins aukist um 0,9% og við-
skiptavinum fjölgaði um 2% milli
ára.
Í tilkynningu Haga segir einnig að
laun og launatengd gjöld hafi hækk-
að um rúman milljarð króna millli
ára, eða 13,5%. „Hækkunina má að
mestu leyti rekja til áhrifa Olís og
kjarasamningshækkana á fyrri hluta
árs 2018. Launahlutfallið er nú
10,9% en var 11,0% á fyrra ári,“ segir
í tilkynningunni.
Þá segir að annar rekstrarkostn-
aður hafi hækkað um 293 milljónir
króna á milli ára og er kostnaðar-
hlutfallið nú 7,9% en var 8,6% á fyrra
ári.
Stjórn Haga mun leggja til á aðal-
fundi félagsins 7. júní nk. að greidd-
ur verði arður sem nemur 50% af
hagnaði ársins, eða tæpir 1,2 millj-
arðar króna. Er það í takti við arð-
greiðslustefnu félagsins.
Í lok tilkynningarinnar segir að
áætlun stjórnenda fyrir rekstrarárið
2019/20 geri ráð fyrir að EBITDA
félagsins verði 6.650-7.100 milljónir
króna. tobj@mbl.is
Morgunblaðið/Hari
Verslun Bónusverslanir í Faxafeni, á Hallveigarstíg og á Smiðjuvegi voru
seldar vegna sáttar við Samkeppniseftirlitið vegna samruna við Olís og DGV.
Hagnaður Haga
2,3 milljarðar
Velta jókst um 13,9% á síðasta rekstrarári
BAKSVIÐ
Pétur Hreinsson
peturhreins@mbl.is
Óvissa í rekstri Icelandair er lykilorð í
nýlegu verðmati ráðgjafarfyrirtækis-
ins Capacent á flugfélaginu sem gert
var í tilefni af fyrsta ársfjórðungsupp-
gjöri félagsins frá því í mars. 6,7 millj-
arða tap var á rekstri félagsins á þeim
tíma og lækkaði eiginfjárhlutfall Ice-
landair úr 32% í 23%. Capacent verð-
metur Icelandair á 469 milljónir
bandaríkjadala og lækkar það um 3%
frá síðasta verðmati. Verðmatsgengi
hljóðar upp á 11,9 kr. bréfið, sem er
16% yfir dagslokagengi flugfélagsins í
gær og segir í verðmatinu að óhag-
stæð ytri skilyrði og vandræði Ice-
landair vegna hinna kyrrsettu Boeing
737 Max-þota hafi dregið úr bjartsýni
Capacent í mars og apríl. Flugmála-
yfirvöld í Bandaríkjunum reikna með
að Max-þoturnar verði klárar um mitt
sumar en sérfræðingur Capacent
spyr aftur á móti áleitinnar spurning-
ar um það „hvort almenningur muni
treysta vélinni“.
„Stóra spurningin er hins vegar
hvernig Icelandair kemur frá sumr-
inu,“ segir höfundur verðmatsins sem
bendir á að vísbendingar séu um
rekstrarbata í ljósi þess að sætanýt-
ing Icelandair nam 83,7% í apríl á
þessu ári í samanburði við 77,2% frá
apríl í fyrra. Sætanýtingin fyrir fyrsta
ársfjórðung í heild sinni var aftur á
móti óbreytt, og samhliða lægri flug-
fargjöldum og „lægri tekjum á hvern
farþega versnaði afkoma á milli ára“.
Í verðmatinu segir að dagskipun
Icelandair hljóti að kalla á aukið að-
hald í rekstri og betri nýtingu rekstr-
arfjármuna. Að fall WOW air hafi leitt
til betri sætanýtingar í apríl og að vís-
bendingar séu um að verð flugfar-
gjalda til og frá Íslandi hafi hækkað
eftir fall WOW air. „Þannig ættu
kostnaðarhlutföll á öðrum ársfjórð-
ungi að verða hagstæðari en á fyrsta
ársfjórðungi og rekstrarhagnaður að
verða hærri en á sama tíma fyrir ári,“
en að stórir þættir á borð við launa-
skrið, olíukostnað og kyrrsetningu
Max-þotanna geti komið í veg fyrir
það.
Í verðmatinu kemur fram að launa-
hlutfall Icelandair á fyrsta ársfjórð-
ungi hafi hækkað úr 42,3% í 44,3% og
betri sætanýting sé nauðsynleg til
þess að lækka launahlutfallið. Að
heimsmarkaðsverð á olíu sé lægra en
það var fyrir ári en frekari lækkun
eldsneytiskostnaðar hafi átt að nást
með endurnýjun flota félagsins, sem
fólst í innkaupum félagsins á Max-
þotum.
Fleiri hoppa á vagninn
Verðmatsgengi Capacent á
Icelandair hefur verið á milli 10 og 20
kr. undanfarin þrjú ár ef frá er talið
verðmat í kjölfar metársfjórðungs
félagsins seint á árinu 2016. Að mati
Capacent hefur Icelandair aftur á
móti frá miðju ári 2018 verið eitt van-
metnasta fyrirtækið á markaði en
munurinn á markaðsgengi og verð-
matsgengi fór yfir 50% á tímabili. Nú
er munurinn aftur á móti tæp 20% og
virðast „[m]arkaðsaðilar hafa hopp-
að á Icelandair-strætóinn síðustu
daga“.
Mun almenningur treysta
sér í Max-þoturnar?
Vísbendingar eru um rekstrarbata hjá Icelandair í nýju verðmati Capacent
Kyrrsettar Boeing 737 Max-vélar hafa staðið óhreyfðar frá 12. mars.
Víkurfréttir/Hilmar Bragi
Erlendum ferða-
mönnum fækk-
aði um 19% í
apríl er 106 þús-
und ferðamenn
komu til lands-
ins, í samanburði
við 131 þúsund
ferðamenn í apr-
íl í fyrra. Þetta
kemur fram í
frétt á vef Hag-
stofu Íslands um skammtíma-
hagvísa í ferðaþjónustu. Farþegum
með erlent ríkisfang fækkaði um 27
þúsund á milli ára og samkvæmt
gögnum Hagstofunnar er um að
ræða mestu fækkun erlendra far-
þega á milli sömu mánaða í tvo ára-
tugi, eða svo langt sem gögn Hag-
stofunnar ná.
Í maí 2010 fækkaði erlendum far-
þegum um 18%, sem rekja má til
eldgossins í Eyjafjallajökli sem lam-
aði flugumferð í Evrópu og varð
þess valdandi að um 95 þúsund
skipulögðum flugferðum á milli Ís-
lands og Evrópu var aflýst. Þá nam
fækkunin aftur á móti einungis
6.300 manns.
Minni umferð í Keflavík
Umferð í gegnum Keflavíkur-
flugvöll dróst einnig verulega sam-
an í apríl síðastliðnum, eða um 27%
á milli ára. Heildarfarþegahreyf-
ingar voru tæplega 475 þúsund nú í
apríl en 650 þúsund í sama mánuði í
fyrra. Þegar kemur að heildar-
flughreyfingum, flugtökum og
lendingum nam samdrátturinn
25%. Voru heildarflughreyfingar
9.300 í apríl 2018 en 7 þúsund í síð-
asta mánuði og sambærilegar því
sem þær voru í apríl 2017 er fjöld-
inn nam 6.800. peturh@mbl.is
Mesta
fækkun
í 20 ár
Leifsstöð Ferða-
mönnum fækkar.
106 þúsund í apríl
18. maí 2019
Gengi Kaup Sala Mið
Dollari 121.94 122.52 122.23
Sterlingspund 156.39 157.15 156.77
Kanadadalur 90.91 91.45 91.18
Dönsk króna 18.293 18.401 18.347
Norsk króna 14.025 14.107 14.066
Sænsk króna 12.714 12.788 12.751
Svissn. franki 120.81 121.49 121.15
Japanskt jen 1.1115 1.1181 1.1148
SDR 168.5 169.5 169.0
Evra 136.62 137.38 137.0
Meðalgengi/Viðskiptavog þröng 167.2643
Hrávöruverð
Gull 1295.55 ($/únsa)
Ál 1801.5 ($/tonn) LME
Hráolía 72.05 ($/fatið) Brent