Morgunblaðið - 18.05.2019, Side 31

Morgunblaðið - 18.05.2019, Side 31
UMRÆÐAN 31 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Klapparstíg 44facebook// Fransí instagram// fransi_skoverslun St. 36-42 19.995 kr. Einnig fáanlegir í dökkbláu og svörtu... Vinsælu kögurskórnir frá Wonders eru æðislegir í sumar! Minningarmótið um Berg-vin Oddsson, skipstjóraá Glófaxa VE, semfram fór í Vestmanna- eyjum um síðustu helgi, þótti heppn- ast svo vel að gamli framkvæmda- stjóri Ísfélagsins í Eyjum, Ægir Páll Friðbertsson, stakk upp á því að At- skákmóti Íslands yrði fundinn stað- ur á þessum slóðum. Það var fjöl- skylda Bergvins sem skipulagði mótið ásamt Taflfélagi Vestmanna- eyja. Alls hófu 44 skákmenn keppni og voru tefldar átta umferðir með tíma- mörkunum 15 5. Efstu menn móts- ins urðu: 1.-2. Jóhann Hjartarson og Hannes Hlífar Stefánsson 6½ v. (af 8) 3.-5. Helgi Ólafsson, Þröstur Þór- hallsson og Hjörvar Steinn Grétars- son 6 v. Jóhann var hærri á mótsstigum og telst því sigurvegari mótsins. Arnar Sigurmundsson, formaður TV, vakti athygli á því að þrír efstu hefðu einnig verið í þrem efstu sæt- um í landsliðsflokki á Skákþingi Ís- lands í Eyjum fyrir 25 árum. Bestum árangri félagsmanna í TV náði Lúðvík Bergvinsson, sem fékk 4 vinninga, en bestum árangri kvenna náðu Tinna Kristín Finn- bogadóttir og Jóhanna Björg Jó- hannsdóttir, einnig með 4 vinninga. Mótið fór fram á 2. hæð nýstand- setts húsnæðis þar sem áður var vinnslusalur Fiskiðjunnar í Eyjum og hýsir nú Þekkingarsetur Vest- mannaeyja. Á 1. hæð er Náttúru- gripasafnið í Eyjum, þ.m.t. hið merka Fiskasafn. Inn af því má finna risastóra laug sem bíður komu mjaldranna 19. júní næstkomandi. Þetta eru glæsileg salarkynni og framkvæmd mótsins í góðum stíl. Við setningu mótsins afhenti Lúðvík Bergvinsson, fyrir hönd fjölskyld- unnar, Taflfélagi Vestmannaeyja myndarlegan styrk til handa barna- og unglingastarfi. Magnús Carlsen vann með yfir- burðum á Fílabeinsströndinni Heimsmeistarinn Magnús Carl- sen hefur nú unnið öll þau mót sem hann hefur tekið þátt í á þessu ári og staðfesti sigur hans í borginni Abidjan á Fílabeinsströndinni, þar sem 10 skákmenn tefldu einfalda umferð í atskák og tvöfalda umferð hraðskák, yfirburði hans í öllum þrem keppnisgreinum skákarinnar. Hann hlaut 26½ vinning af 36 mögu- legum, en þess má geta að atskák- irnar reiknuðust tvöfalt á við hrað- skákirnar. Í 2.-3. sæti urðu Naka- mura og Vachier-Lagrave með 23 vinninga og í 4. sæti varð Wesley So með 19½ vinning. Oft var heimsmeistarinn að nudda af mönnum hnífjafnar stöður en glæsileg undantekning var sigur hans yfir Frakkanum í atskákinni: Magnús Carlsen – Maxime Vachier-Lagrave Sikileyjarvörn 1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3 Rg4 7. Bg5 h6 8. Bh4 g5 9. Bg3 Bg7 10. Dd2 Rc6 11. Rb3 Be6 12. h4 gxh4 13. Bxh4 Vachier-Lagrave teflir Najdorf- inn við hvert tækifæri og að þessu sinni vék Magnús ekki af alfaraleið- um og mætti vel undirbúinn. 13. … b5 14. f4 b4 15. Ra4 Dc7 16. 0-0-0 Hb8 17. Kb1 Ra5 18. Rxa5 Dxa5 19. b3 Dc7 20. Be2 h5 21. f5 Bd7 22. Bxg4 hxg4 23. Dg5! Hótar máti og skeytir engu um veikleika sem myndast á hinum vængnum. 23. … Bf6 24. Dxg4 Bxa4 25. Bxf6 Hxh1 26. Hxh1 exf6 27. bxa4 Ke7 28. Df3 Hc8 29. Dd3 a5 30. Hd1 Hg8 31. De2 Hg3 32. Df2 Ha3 33. g4 Hxa4? Tapleikurinn. Með 33. … Dc5! gat svartur haldið jafnvægi. 34. g5! Peð eru líka sóknarmenn. 34. … fxg5 35. f6+ Ke8 36. De2 b3 37. axb3 Hb4 38. e5! dxe5 39. Hd5 Kf8 40. Dh5 Hh4 41. Dxg5 Hh7 42. Dd2! – og svartur gafst upp. Glæsilegt minn- ingarmót Berg- vins í Eyjum Morgunblaðið/Óskar P. Friðriksson Á minningarmóti María Friðriksdóttir, ekkja Bergvins Oddssonar, lék fyrsta leikinn fyrir son sinn Lúðvík í skák hans við Jóhann Hjartarson. Með hvítt, frá vinstri: Einar Guðlaugsson, Lúðvík, greinarhöfundur, Birkir Karl Sigurðsson og Þröstur Þórhallsson. Á bak við þá stendur Arnar Sigur- mundsson, aðalskipuleggjandi minningarmótsins. Við taflið sitja einnig f.h.: Jóhann, Páll Andrason, Hannes Hlífar Stefánsson og Oddgeir Ottesen. Skák Helgi Ólafsson helol@simnet.is Mikið af rekstri fyr- irtækja hefur færst af pappír yfir í tölvukerfi og hefur verið á þann veg nokkuð lengi. Tölvuþrjótar hafa áttað sig á því hversu mikið af upplýsingum er geymt í þessum net- kerfum og eru stöðugt að finna nýjar leiðir til að misnota þær sér í hag. Ponemon-stofnunin sérhæfir sig í rannsóknum á öllum hlutum sem tengjast gagnavernd og persónu- vernd. Stofnunin var sett á laggirnar árið 2002 af dr. Larry Ponemon og hefur síðustu fjögur ár birt skýrslur í samvinnu við IBM um stöðu upplýs- ingaöryggismála hjá fyrirtækjum. Síðasta skýrsla kom út í apríl síðast- liðnum og náði hún til 3.655 aðila sem sérhæfa sig í upplýsingatækni. Eru til viðbragðsáætlanir hjá þínu fyrirtæki? Þau fyrirtæki sem skilgreind eru sem leiðandi (e. high performer í skýrslunni) hegða sér á margan hátt öðruvísi en hin fyrirtækin. Þegar spurt var um hvort gagnainnbrot eða tölvuárás hefði komið upp hjá fyrir- tækinu þá svöruðu 45% af leiðandi fyrirtækjum að það hefði gerst hjá sér en meðaltalið var 57% af öllum fyrirtækjum. 95% leiðandi fyrirtækja voru með viðbragsáætlanir vegna mögulegra tölvuárása og 55% af þeim sögðu að sú viðbragðsáætlun væri að fullu innleidd í allar deildir innan fyrirtækjanna. Til sam- anburðar þá sögðust 24% fyrirtækja ekki vera með viðbragðsáætlanir og 25% sögðu að viðbragðsáætlun þeirra væri ekki til á blaði en það ger- ir hana að mestu gagnslausa. Hverju skilar viðbragðsáætlun? 30% leiðandi fyrirtækja sögðust hafa lent ítrekað í truflunum vegna tölvuárása en meðaltalið yfir heildina var 45%. Þetta er vegna þess að leið- andi fyrirtæki læra af fyrri árásum og búa þannig um hnútana að viðbrögð við tölvuárás- um eru skilgreind, skil- virk og byggð á reynslu. Leiðandi fyrir- tæki nýta sér meira sjálfvirk kerfi sem bregðast við árásum og æðstu stjórnendur fyr- irtækjanna taka meira þátt í öryggiskerfi þeirra. Einföld kerfi við flóknum vandamálum Annar marktækur munur á leið- andi fyrirtækjum og meðalfyrir- tækjum er straumlínulögun í örygg- iskerfi þeirra. Leiðandi fyrirtæki nota að meðaltali 39 lausnir í sínum öryggiskerfum en meðalfyrirtæki notar 45 lausnir. 53% af leiðandi fyr- irtækjum álitu að þau væru með full- nægjandi lausnir og tækni í sínu ör- yggiskerfi en meðaltalið var 30% yfir heildina. Leiðandi fyrirtæki fjárfesta því meira í sjálfvirkum kerfum. Þau skjalfesta betur niðurstöður úr ör- yggiskerfinu og eru með skilgreind mælikerfi sem gera þeim kleift að fylgjast með frammistöðu þeirra. Leiðandi fyrirtæki glíma líka við færri hindranir í samvinnu innan fyrirtækisins og hafa þau öll skipu- lega aukið samvinnu á milli deilda innan fyrirtækisins. Þau deila frekar niðurstöðum sínum með öðrum að- ilum og hjálpast þannig að við að berjast gegn tölvuógnum. Samvinna er því lykillinn að góðu öryggiskerfi. Viðbrögð við tölvu- árásum og gagnalekum Eftir Aron Friðrik Georgsson » Leiðandi fyrirtæki hafa góðar við- bragðsáætlanir Aron Friðrik Georgsson Höfundur er viðskiptafræðingur og ráðgjafi í upplýsingaöryggismálum hjá Stika ehf. aron@stiki.eu Upplýsingaöryggi Jóhann fæddist 19. maí 1919 í Reykjavík og ólst þar upp. Foreldrar hans voru hjónin Eyjólfur Jóhannsson og Helga Pétursdóttir. Að loknu prófi frá Verzl- unarskóla Íslands árið 1938 hóf Jóhann störf með föður sínum í fjölbreyttum atvinnurekstri. Hann rak síðar sitt eigið fyrir- tæki, Heildverslunina Akur hf., um árabil. Jóhann gat sér gott orð sem knattspyrnumaður og varð Ís- landsmeistari með Val fimm sinnum. Þekktastur var Jó- hann þó sem golfleikari en þá íþrótt stundaði hann í 70 ár og vann til fjölda verðlauna. M.a. varð hann Íslandsmeistari árið 1960 og heimsmeistari öldunga árin 1975, 1979 og 1981 í Bandaríkjunum. Jóhann sat í sveitarstjórn Garðabæjar 1950-1965 og var einn af stofnendum Lions- klúbbsins Ægis í Reykjavík. Þá var hann fyrsti formaður Sjálf- stæðisfélags Garðabæjar og gegndi formennsku og stjórn- armennsku í Golfklúbbi Reykjavíkur um margra ára skeið og var heiðursfélagi. Seinni eiginkona Jóhanns er Fríða Valdimarsdóttir, f. 1936, og eignuðust þau tvær dætur. Jóhann átti tvo syni af fyrra hjónabandi. Jóhann lést 3.1. 2006. Merkir Íslendingar Jóhann Eyjólfsson Bílar

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.