Morgunblaðið - 18.05.2019, Síða 32

Morgunblaðið - 18.05.2019, Síða 32
32 UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Forystumenn heild- arsamtaka atvinnurek- enda og launafólks skrifuðu fyrir nákvæm- lega 50 árum undir kjarasamning fyrir fólk á almennum vinnu- markaði þar sem sér- stakur kafli er um líf- eyrissjóði. Fyrsta málsgrein hljóðar svo: „Lífeyrissjóðir með skylduaðild verði stofnaðir og starf- ræktir á félagsgrundvelli.“ Þetta gerðist 19. maí 1969 og lagð- ur var grunnur að lífeyrissjóðakerf- inu sem við höfum búið við allar götur síðan þá. Samningur um skylduaðild að lífeyrissjóðum markaði auðvitað tímamót og áhugavert er að hafa í huga að á þessum tíma var íslenskt samfélag í efnahagslegu og fé- lagslegu uppnámi. Hér ríkti djúpstæð efnahagskreppa með tilheyrandi fjöldaatvinnuleysi og flótta fólks í stórum stíl sem leitaði eftir atvinnu og betri lífskjörum annars staðar. Flestir fluttu til Svíþjóðar og Dan- merkur en margir líka alla leið til Ástralíu. Við munum flest vel eftir efnahags- og at- vinnuástandinu á Ís- landi eftir hrun banka- kerfisins 2008 en víst er að aðstæður allar voru mun verri og kreppan umfangsmeiri á síðustu árum sjöunda áratug- arins. Þegar svo var umhorfs í íslensku þjóð- félagi var samið um skylduaðild að lífeyr- issjóðum. Aðstandendur kjarasamn- ingsins sýndu aðdáunarverða for- sjálni og til varð vísir að kerfi sem byggist á því að hver kynslóð leggi til hliðar á starfsævinni fjármuni sem lífeyrissjóðir gæta, ávaxta og greiða út sem lífeyri á efri árum. Íslendingar völdu þá leið í lífeyr- issjóðamálum sem bæði Efnahags- og framfarastofnunin OECD og Al- þjóðabankinn mæla eindregið með. Þjóðir eldast og færri og færri vinn- andi standa undir eftirlaunum þeirra sem hverfa af vinnumarkaði. Sam- félögin og efnahagskerfin ráða ein- faldlega ekki við það til lengdar að fjármagna eftirlaun að mestu með sköttum í svokölluðum gegn- umstreymiskerfum. Þess vegna mæla OECD og Alþjóðabankinn með sjóðsöfnunarkerfi lífeyris og benda meðal annars á Ísland sem fordæmi. Við hjá Landssamtökum lífeyr- issjóða viljum minnast þess sér- staklega að hálf öld er liðin frá því að skylduaðild að lífeyrissjóðum var ákveðin í kjarasamningum og beina sjónum að því sem þessi framsýni at- vinnurekenda og launafólk hefur skil- að fólki á vinnumarkaði og samfélag- inu öllu. Samkomur verða í Hörpu þriðju- daginn 28. maí og í Hofi á Akureyri á uppstigningardag, 30. maí. Við köll- um þær góðvinafundi og bjóðum alla velkomna til þess að njóta skemmti- legrar dagskrár í tali, tónum og myndum. Nánari upplýsingar á Líf- eyrismál.is. Lífeyrissjóðakerfið er fjarri því að vera óumbreytanlegt fyrirbæri í sam- félaginu. Lífeyrissjóðir breytast og kerfið allt breytist til að svara kalli tímans hverju sinni. Flestir urðu sjóðirnir um 100 talsins en eru nú 21, þar af nokkrir með sameiginlegt skrifstofuhald eða rekstrarsamning við banka. Lífeyrissjóðum hefur þannig fækkað stórlega og þeir eru um leið stærri og sterkari en áður. Rekstrarkostnaður þeirra hefur minnkað en sérhæfð þjónusta við sjóðfélaga aukist á sama tíma. Yfir 60% lífeyris á Íslandi koma úr lífeyrissjóðakerfinu en innan við 40% frá Tryggingastofnun. Hvergi annars staðar í veröldinni þekkist svo hátt hlutfall lífeyris úr lífeyrissjóðum en það verður að segjast að ein stærsta áskorun okkar nú er að móta og ákveða mun réttlátara samspil lífeyr- issjóðakerfisins annars vegar og al- mannatryggingakerfisins hins vegar. Harkaleg skerðing lífeyris almanna- trygginga vegna greiðslna úr lífeyr- issjóðum skapar eðlilega mikla óánægju í samfélaginu. Lífeyr- issjóðum er jafnvel ómaklega kennt um skerðinguna og menn spyrja sig hvers vegna þeir eigi að borga í líf- eyrissjóði þegar það kosti þá að missa að miklu eða öllu leyti lífeyrinn frá ríkinu? Hér verða heildarsamtök vinnu- markaðarins að koma til skjalanna, móta sýn sína á lífeyriskerfið í heild sinni og hafa áhrif á hvernig það þróast. Hvert á hlutverk lífeyrissjóða að vera? Hvert á hlutverk almanna- trygginga að vera? Hér er mikilvægt að marka skýra stefnu til framtíðar! Fyrir liggur að hvergi annars stað- ar en á Íslandi gerist það að greiðslur lífeyris úr almannatryggingum geta hreinlega fallið niður ef greiðslur úr lífeyrissjóðakerfinu fara yfir ákveðin mörk og þau mörk eru lág. Það væri viðeigandi á afmælisári í lífeyrissjóðakerfinu að ákveðið yrði að milda verulega skerðingu lífeyris almannatrygginga. Viljum við annars eiga áfram staðfest heimsmet í skerð- ingu lífeyris? Eftir Þóreyju S. Þórðardóttur » Viðeigandi væri á afmælisári að ákveða að milda veru- lega skerðingu lífeyris almannatrygginga eða viljum við eiga áfram heimsmet í lífeyris- skerðingum? Þórey S. Þórðardóttir Höfundur er framkvæmdastjóri Landssamtaka lífeyrissjóða. Merkum tímamótum í lífeyrissjóðakerfinu fagnað Á Íslandi er ekki viðhöfð mikil umræða um Evrópusam- bandið og það sést á því að litlum hópi af æsingarmönnum hef- ur tekist að æsa upp hluta af Íslendingum vegna laga um sam- keppni á íslenskum raforkumarkaði vegna þess að um- rædd lög koma frá Evrópusamband- inu. Það er gjörsamlega fáránlegt að þetta skuli vera staðreynd á Íslandi árið 2019. Orkulögin frá Evrópusambandinu eru ekki hættuleg. Umræddir æsing- armenn gegn þessum lögum eru það hinsvegar. Þar sem þeir ala á stór- hættulegri þjóðernishyggju og eru að gera sér dælt við fasisma og útlend- ingahatur eins og hefur sést í verki hjá sumum á undanförnum mán- uðum. Þetta fólk stefnir að því leynt og ljóst að koma Íslandi úr EES og EFTA og valda þannig gífurlegu efnahagslegu tjóni fyrir Íslendinga. Þetta hefur sést mjög vel í Bretlandi þar sem æsingarmenn gegn Evrópu- sambandinu unnu kosninguna um að- ild að Evrópusambandinu árið 2016. Síðan þá hafa þeir valdið tuga milljarða tjóni á breskum efnahag og það sér ekki ennþá fyrir endann á þeim skemmdarverkum. Ástæða þess að hægt er að æsa Íslendinga upp í andstöðu við Evrópu- sambandið er sú að lítil umræða hefur farið fram um málefni Evrópusam- bandsins á Íslandi. Þeir sem hafa stjórnað og ráð- ið umræðunni um Evrópusambandið hafa verið andstæðingar Evrópusam- bandsins og þeir hafa verið mjög iðn- ir við að ljúga að Íslendingum um Evrópusambandið á undanförnum áratugum. Ísland er nærri því að vera með fulla aðild að Evrópusambandinu. Það vantar aðeins tollabandalagið, landbúnaðinn, fiskveiðar og evruna svo að Ísland sé fullur aðili að Evr- ópusambandinu. Við fulla aðild að Evrópusambandinu mundu Íslend- ingar fá ákvörðunarrétt á öllum stig- um þegar lög og reglugerðir eru sam- þykkt. Í dag er það ekki raunin með EES en þó hefur verið hægt að fá undanþágur í samningaviðræðum í EES-nefndinni við Evrópusam- bandið og þar hefur Evrópusam- bandið verið mjög sveigjanlegt við Íslendinga á undanförnum áratug- um. Hæst er bann við eignarhaldi út- lendinga í fiskvinnslum á Íslandi sem fékkst í upphaflegum samningum Ís- lands þegar EES-samningurinn tók gildi árið 1994. Íslensk sjávarútvegs- fyrirtæki eru hinsvegar á fullu innan Evrópusambandsins og hafa verið í marga áratugi núna og velta þar milljörðum evra í tekjum á ári í bæði veiðar og vinnslu en á sama tíma dæla þessi sömu fyrirtæki peningum í áróður gegn aðild Íslands að Evr- ópusambandinu á sama tíma. Hræsn- in er svo þykk hérna að hægt er að skera hana með hníf og bera til borðs. Á Íslandi tapar landbúnaður stórum fjárhæðum á hverju ári vegna þess að Íslendingar standa fyrir utan Evrópusambandið. Tak- markanir á útflutningi eru helsta ástæða þess. Engu að síður sjá þeir sem sitja beggja vegna borðsins í samtökum kenndum við bændur ekki það tjón sem þeir valda á sjálfum sér. Enda er þar rekinn einn sá svæsnasti áróður gegn Evrópusambandinu sem finnst á Íslandi. Það er nefnilega staðreynd að umrædd samtök eru fjármögnuð af skattgreiðendum og fá á sama tíma að ákveða hvaða bændur fá greiðslur á sama tíma og þau eru ráðgefandi hjá íslenska ríkinu um þennan sama málaflokk. Enda var rekið upp hátt og skýrt væl þegar Evrópusambandið krafðist þess að stofnuð yrði sérstök greiðslustofnun á Íslandi sem mundi sjá um þessar greiðslur í framtíðinni til bænda. Síð- an þá hefur áróðurinn gegn Evrópu- sambandinu verið bæði grimmur, vægðarlaus og hraðlyginn á síðum blaðs sem umrædd samtök gefa út frítt fyrir bændur á Íslandi. Að standa utan við Evrópusam- bandið hefur einnig aðrar afleiðingar. Ein af þessum afleiðingu sem Íslend- ingar spá í en hefur verið sagt að ekki sér hægt að gera neitt í nema hækka skatta á fátækasta fólkið í landinu eru holóttir og jafnvel ónýtir vegir víðsvegar um Ísland. Evrópusam- bandið eyðir milljörðum evra á hverju ári í að uppfæra vegakerfi og viðhalda vegakerfum í aðildarríkjum sínum. Enda eru góðar samgöngur eitt af þeim atriðum sem Evrópu- sambandið eyðir peningum í að við- halda og laga hjá nýjum aðildar- ríkjum. Við aðild að Evrópu- sambandinu yrði fjármagn sett í viðhald og viðgerðir á íslenska vega- kerfinu. Andstæðingar Evrópusambands- ins tala mikið um mikinn kostnað við aðild. Þetta er rangt. Kostnaður á hvern Íslending við aðild að Evrópu- sambandinu yrði væntanlega í kring- um 500 til 900 kr. á ári. Í Danmörku kostar Evrópuþingið hvern Dana 26 DKK (476 ISK) á ári. Þannig að heildarkostnaður Dana er ekki mikið meira en 900 íslenskar krónur á ári. Danmörk græðir hinsvegar marg- falda þessa upphæð til baka með að- ild sinni að Evrópusambandinu. Það er tap fyrir Íslendinga að standa fyrir utan Evrópusambandið. Aðild Íslands að Evrópusambandinu getur eingöngu orðið Íslendingum til hagsbóta. Tal um annað er byggt á blekkingum þeirra sem ala á hræðsluáróðri. Eftir Jón Frímann Jónsson » Á Íslandi eru rang- færslur í umræðunni um Evrópusambandið vegna þess að andstæð- ingar Evrópusambands- ins hafa stjórnað henni á undanförnum áratug- um. Jón Frímann Jónsson Höfundur er rithöfundur. jonfr500@gmail.com Rangfærslur um Evrópusambandið á Íslandi Elskulegu alþing- ismenn, sýnið okkur til- litssemi, sem líst illa á umræðurnar á vinnu- staðnum ykkar og ískyggilegar horfur á af- greiðslu orkupakka þrjú, sem fjallað er um á alþingi nú og takmarkað traust á meðferð mála á þeim virðulega stað Al- þingi. Frestið málinu. Frestið samþykkt málsins, gefið svigrúm til frekari um- fjöllunar. Það myndi bæta álit ykkar hjá almenningi, ef þið yrðuð við þessu. Horfur eru á því að meiri hluti þjóðarinnar sé mjög andvígur því að málið verði afgreitt nú. Þeir kapps- fyllstu í ykkar hópi segja að nógur tími hafi verið gefinn til umþóttunar og málið sé fullbúið til afgreiðslu. Við hin, sem teljum meiri hluta þjóðarinnar á okkar bandi vitum að svo er ekki. Málið er ekki fullreifað. Við telj- um hættu á því, að það eigi að fara með góðu eða illu í gegn um Al- þingi sem fyrst og áður er almenningur hefur áttað sig á því, hvað er verið að gera. Afleið- ingarrnar af samþykkt orkupaka þrjú eru veiklun á yfirráðarétti okkar yfir auðlindum landsins og það sem óhugnanlegra er en það eru næstu skref í sama máli, orkupakki 4 og orkupakki 5, sem koma eftir einhverja mánuði, kannski einhver ár. Þar eru stigin enn óheilla- vænlegri skref til að ná af landinu okkar forráðum yfir eigin orku og auðlindum undir sameiginlega stjórn Evrópubandalagsins. Við höfum ekk- ert að gera með forræði þeirra yfir þessum málum, þótt gott sé að eiga þá að vinum og stuðningsaðilum. Vaknið, alþingismenn, vaknið, al- menningur, enn betur og takið þátt í umræðunni og látið til ykkar taka baráttunni gegn þeirri óheillastefnu, sem þetta mál hefur tekið. Fyllist orku til að verja orkuna okkar og full- veldið. Hvar standa þjóðhollir framsókn- armenn og sjálfstæðismenn í þessu máli? Horfa þeir mállausir og vilja- lausir upp á þessi ósköp? Alþingismenn og orkupakki þrjú, fjögur og fimm Eftir Sigurð Sigurðarson Sigurður Sigurðarson »Frestið samþykkt málsins, gefið svig- rúm til frekari umfjöll- unar. Það myndi bæta álit ykkar hjá almenningi. Höfundur er dýralæknir frá Keldum. Mannfjöldi jarðar- innar árið 1950 var 2,6 milljarðar (mia), 1970 3,7 mia og er nú 7,7 mia. Mannfjöld- inn hefur því þre- faldast á sl. 70 árum og tvöfaldast frá 1970. Þessi gífurlega fólksfjölgun er þegar komin í óefni og ástandið mun aðeins versna til muna með tímanum verði ekkert að gert. Þessu munu fylgja hungursneyðir, styrjaldir og fólksflótti. Auðlindir jarðar eru komnar að þolmörkum og mjög er þegar þrengt að öðrum lífverum hennar, hvort sem um að ræða jurta- eða dýraríkið. Mengun er líka orðin gífurleg og læt ég hér duga að benda á plastefni, sem er bókstaf- lega að kæfa lífið í höfunum. Mannfjölgunin hefur að langmestu leyti orð- ið í vanþróuðum lönd- um Asíu og Afríku. Reyndar er það svo að yfir 90% af plastmeng- uninni er komin frá þessum sömu löndum. Umhverfismál eru nú ofarlega á baugi, en fyrir mér er það dag- ljóst að verði fólks- fjölgunin ekki stöðvuð munu allar aðrar að- gerðir til að sporna við umhverfisbreytingum verða til einskis. Takmarka verður barn- eignir hjóna/para við 1-2 börn með góðu eða illu. Þetta er hægt, Kín- verjar hafa þegar gert það. Offjölgun mannkyns Eftir Reyni Eyjólfsson Reynir Eyjólfsson » Takmarka verður barneignir við 1-2 börn með góðu eða illu. Höfundur er doktor í lyfjafræði.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.