Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 38

Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 38
38 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Í dag kveður Álftaneskórinn kæran vin og söng- félaga, Hallgrím Viktorsson. Kórinn var stofnaður árið 1982 og kom Hallgrímur fljótlega til liðs við kórinn. Var hann for- maður kórsins á árunum 1991 til 1994 og bar hag kórsins ætíð fyrir brjósti og vildi velgengni hans sem mesta. Hallgrímur var mjög tónelsk- ur maður og góður og öruggur söngmaður. Hann hafði einstak- lega fallega bassarödd sem naut sín vel í kórnum og það var mikill styrkur fyrir kórinn að njóta krafta hans. Hallgrímur naut þess að vera í góðum félagsskap í ferðalög- um og samkomum á vegum kórsins og munu kórfélagar sakna hans sárt. Við sendum Ragnheiði og börnum þeirra hjóna innilegar samúðar- kveðjur. F.h. Álftaneskórsins, Sigrún Helgadóttir og Sæbjörg Einarsdóttir. Síst vil ég tala um svefn við þig. Þreyttum anda er þægt að blunda og þannig bíða sælli funda; það kemur ekki mál við mig. Flýt þér, vinur, í fegri heim. Krjúptu að fótum friðarboðans og fljúgðu á vængjum morgunroðans meira að starfa guðs um geim. (Jónas Hallgrímsson) Við kveðjum kæran vin með trega en fram streyma ljúfar minningar um dýrmætar sam- verustundir og vináttu. Okkar dýpstu samúðarkveðj- ur sendum við Ragnheiði, Kristjáni, Hrannari, Auði og fjölskyldum þeirra og biðjum fyrir styrk þeim til handa. Inga og Þorgils. Góður drengur er fallinn frá, en dánarfregn hans kom eins og þruma úr heiðskíru lofti. Haustið 1969 fór Hallgrímur Aðalsteinn Viktorsson á æsku- slóðir foreldra sinna og hóf nám í Menntaskólanum á Akureyri. Heimavistarnemendur héldu hópinn og náðu margir að kynnast þar vel. Máladeildar- bekkur okkar skólabræðra var sá síðasti sem stundaði latín- unám við skólann. Við latínu- gránar stofnuðum félagið Salta- tor, sem jók ennfremur á samheldni okkar skólabræðra. Sú vinátta sem treyst er á skólaárum hefur tilhneigingu að haldast gegnum lífið og sú varð raunin í tilfelli okkar Hallgríms. Eftir áhyggjulaust líf menntaskólaáranna fetaði Hall- grímur í fótspor föður síns og lærði til flugmanns og starfaði síðan sem flugstjóri hjá Flug- leiðum til starfsloka. Ungur stofnaði hann heimili með æskuástinni sinni, Ragn- heiði Vilborgu Rögnvaldsdóttur hjúkrunarfræðingi, og áttu þau lengst af heimili á Álftanesi og hreiðruðu þar vel um sig ásamt börnunum þremur, Kristjáni Hjörvari, Hrannari Þóri og Auði. Hallgrímur var mikill fjöl- skyldumaður og kærleikur mik- ill í fjölskyldunni. Hallgrímur var traustur vin- ur, hæglátur og hógvær að dag- fari, en mikill gleðigjafi á góðra vina fundum. Stangveiði var eitt af helstu Hallgrímur Aðal- steinn Viktorsson ✝ HallgrímurAðalsteinn Viktorsson fæddist 13. ágúst 1953. Hann lést 3. maí 2019. Útför Hallgríms var gerð 17. maí 2019. áhugamálum Hall- gríms. Í áratugi stundaði hann veið- ar í Þistilfirði og víðar á Norður- landi, en hin síðari ár varð hann sér- fræðingur í vatns- föllum hinnar fögru Skaftafellssýslu, þar sem þau Ragn- heiður byggðu sér myndarlegt frí- stundahús og þar nutu þau úti- verunnar við jarðyrkju, veiði- skap og náttúruskoðun. Myndlistaráhugi Hallgríms hófst snemma og fylgdist hann vel með íslenskum myndlistar- mönnum. Þegar efni og aðstæð- ur leyfðu gerðist hann öflugur málverkasafnari og vandaði þar vel til verka. Hann hafði þjálfað og gott auga í rýni sinni á myndlist. Gaman var að fylgjast með hvaða listamaður var undir smásjánni hverju sinni og hverjir voru verðlaunaðir með listaverkakaupum. Það verður söknuður að myndlistarspjall- inu við þennan góða vin. Það er sorg í hjarta að þurfa að kveðja þennan góða dreng svona alltof snemma, en góð minningin lifir. Ragnheiði og börnunum þremur votta ég mína innileg- ustu samúð. Hvíl í friði, minn kæri. Þorsteinn Jónsson. Það er harmur þegar maður í blóma lífsins kveður. Ég kynnt- ist Hallgrími Viktorssyni fyrir yfir tveimur áratugum. Viktor bróðir hans er fornvinur minn. Ég flaug með Hallgrími í nokk- ur ár og kynntist honum vel með tíðum samtölum okkar um borð. Hann var prúðmenni, vel gefinn og gaman að ræða við hann. Áhugi okkar á myndlist kom samtölum okkar á flug og minnist ég þess sérstaklega þegar við Hallgrímur og Viktor bróðir hans heimsóttum Gunnar Örn listmálara að Kambi í Holt- um þar sem hann bjó. Stór- skemmtilegur dagur þar sem Gunnar sýndi okkur verkin sín og vinnustofur, sagði okkur sögur af sjálfum sér og öðrum. Síðar kynnist ég sonum Hall- gríms, þeim Kristjáni og Hrannari, í gegnum störf okkar og það kvað við það sama, skemmtilegir og klárir strákar eins og þeir eiga kyn til. Með þessum fáu orðum kveð ég góð- an kollega og votta fjölskyldu hans og vinum, mína dýpstu samúð. Þorsteinn Kristmannsson. Ég vil með örfáum línum minnast míns góða kórfélaga, Hallgríms Viktorssonar sem kvaddur er í dag. Það þekkja þeir sem starfað hafa í kór hversu gefandi það er og í Álftaneskórnum sem starf- að hefur um alllangt skeið mæt- ast sveitungar og áhugafólk um söng sem er afar góð blanda. Félagsskapurinn er einkar góð- ur og minningar tengdar mess- um, tónleikum og söngferðum eru dýrmætar. Í hópnum hafa allir sinn sess og það munaði sannarlega um Hallgrím í bass- anum, hann hafði hljómfagra og þróttmikla rödd, var afar tón- viss og lét sig varða um hvað skyldi flytja. Hann hafði líka skoðanir á fleiru og hringdi einhvern tíma í mig til að fá mig á lista Sjálf- stæðisfélags Bessastaðahrepps, hvort ég vildi ekki hafa áhrif þar sem ég væri nýflutt í hreppinn og gæti haft nýja sýn á ýmsa hluti. Ég lét tilleiðast og öðlaðist dýrmæta reynslu og innsýn sem ég hafði ekki séð fyrir. Hallgrímur var áhugamaður um myndlist og fylgdist vel með, spurði gjarnan hvað væri á döfinni eða hvernig gengi og þau hjónin létu sig ekki vanta á opnanir og sýningar hjá mér þegar því varð við komið. Ég kveð þennan velgjörðar- mann minn með miklum trega og við Sveinn þökkum fyrir góða viðkynningu. Fjölskyld- unni allri votta ég mína dýpstu samúð. Soffía Sæmundsdóttir. Fréttin um andlát Hallgríms Viktorssonar, fyrrverandi flug- stjóra, snart samferðamenn hans. Nú er góður drengur genginn sem er sárt saknað. Það var spenningur í lofti fyrir 45 árum þegar nýr ár- gangur settist í lagadeild Há- skóla Íslands. Nokkrir laga- nemar skáru sig þar úr, Hallgrímur var einn þeirra, há- vaxinn með suðrænt útlit, vin- samlegur og hlýr í fasi og spurði prófessorana áhuga- verðra spurninga í kennslunni. Á þessum árum mynduðust góð kunningjatengsl milli okkar sem vörðu alla tíð síðan. Við sátum oft saman í fyrirlestrum og ræddum námsefnið í þaula. Hallgrímur lauk öllum prófum í fyrsta hluta laganáms en þegar komið var fram á þriðja ár námsins breyttust umræðuefnin og samtölin okkar fóru meira að snúast um flug. Hugur hans var farinn að stefna í þá átt enda ekki langt að sækja þar sem faðir hans hafði um árabil verið þjóðkunnur flugstjóri. Svo fór að Halli hvarf frá laganámi og hellti sér í flugið sem varð hans ævistarf. En samtölin snérust einnig um hvernig unnt væri að eignast íbúð og komast af leigumarkaði. Hallgrímur og Ragnheiður kona hans hófu að byggja rað- hús í byggingarsamvinnufélagi í Garðabæ, heimabæ hans. Og það hafði áhrif og svo fór að við urðum nágrannar í raðhúsunum í Kjarrmóum. Hallgrímur Viktorsson lauk atvinnuflugmannsprófi og kenndi flug um árabil. Árið 1980 réðst hann til Flugleiða sem flugmaður og varð síðan flugstjóri fáum árum síðar. Hann var farsæll flugmaður alla tíð, enda nákvæmur reglu- maður sem fylgdi fyrirmælum og hugsaði fyrst og síðast um farþega sína. Eldskírn hans varð þegar hreyfill á Fokker- flugvél sprakk yfir Ísafirði á árinu 1982 en áhöfninni tókst að fljúga vélinni til Keflavíkur og nauðlenda þar án þess að mannskaði yrði. Við ræddum þetta atvik oft og þann lærdóm sem hann var fyrir flugið hér- lendis. Það varð Halla mikið áfall fyrir röskum áratug þegar hann þurfti að hætta að fljúga af heilsufarsástæðum. Reglur mæla svo fyrir að líffæraþegi má ekki vera við stjórn á far- þegaflugvél. Halli náði að jafna sig á þessu áfalli með sálar- styrk sínum og átti fyrir hönd- um góð ár í öðrum störfum. Það sýndi stöðu hans innan flug- mannastéttarinnar að honum var trúað fyrir að verða for- maður flugslysanefndar ári eft- ir að hann þurfti að hætta að fljúga. Það hlutverk rækti hann af mikilli samviskusemi og sóma. Halli var skarpgreindur mað- ur, grandvar og vandaður að orði og æði. Hann var vinsæll og vel látinn af samferðamönn- um sínum, yfirvegaður ró- semdamaður sem hafði góða nærveru. Hann leysti úr málum þegar til hans var leitað, var eftirsóttur til trúnaðarstarfa, einstaklega viðræðugóður, gam- ansamur og hlýr í viðmóti. Þétta handartakið, viðkunnan- lega röddin og blikið í augunum lýstu inn í sálina. Hverjum þótti ekki vænt um Halla? Hann hef- ur nú horfið á braut alltof snemma og löngu samtölin okk- ar um flugið og flugvélarnar verða ekki fleiri. Fjölskyldu Halla og öðrum ættingjum og vinum er vottuð innileg samúð í þeirra miklu sorg og söknuði. Við samferða- mennirnir minnumst hans með virðingu og hlýju og þökkum honum gefandi samfylgd. Skúli Eggert Þórðarson. Kveðja frá sóknarnefnd Bessastaðasóknar Í dag kveðjum við með sökn- uði og virðingu góðan vin og samstarfsfélaga til margra ára í sóknarnefnd Bessastaðasóknar. Hallgrímur Viktorsson sat í um 20 ár í sóknarnefndinni. Okkur, sem starfað höfum með honum á þeim vettvangi sem og öðrum, er minnisstætt, að hann var alla tíð mjög virkur í starfi og öll hans störf og allt sem hann tók sér fyrir hendur var unnið af alúð og vandvirkni. Hallgrímur var heilsteyptur persónuleiki sem naut trausts allra sem kynntust honum. Formaður sóknarnefndar Bessastaðsóknar var hann í nokkur ár og reyndist hann öt- ull og drífandi formaður. Smá- atriði flæktust aldrei fyrir hon- um og hafði hann alla tíð góða yfirsýn yfir starfið í sókninni og fylgdi fast eftir að hlutirnir gengju vel fyrir sig. Fráfall hans er mikill og sár missir fyrir fjölskylduna og okkur öll sem gengum með honum á lífsins vegi. Sóknarnefnd Bessastaða- sóknar þakkar af alhug sam- fylgdina á liðnum árum og bið- ur góðan Guð að vernda og styrkja fjölskylduna um alla framtíð. Far þú í friði, friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði, Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem) Fyrir hönd sóknarnefndar Bessastaðasóknar, Elín Jóhannsdóttir, formaður. Stjórn Félags nýrnasjúkra minnist hér félaga síns Hall- gríms Viktorssonar, gjaldkera félagsins, sem lést þann 3. maí síðastliðinn. Hallgrímur var félagi í Fé- lagi nýrnasjúkra í mörg ár og sat í stjórn þess síðan 2008. Hann vildi leggja sitt lóð á vog- arskálarnar fyrir nýrnasjúka og beitti sér meðal annars fyrir þýðingu á fræðsluriti um nýrnasjúkdóma og hvernig bregðast ætti við þeim. Þessu fræðsluriti er dreift til allra þeirra sem greinast með þenn- an sjúkdóm og hjálpar það mörgum sjúklingum að takast á við sjúkdóminn. Hann hafði sjálfur gengist undir nýraíg- ræðslu og var því vel kunnugur því hvernig það er að greinast með þennan sjúkdóm og lifa með honum. Honum var einkar annt um styrktarsjóð félagsins. Styrkt- arsjóðurinn hefur það markmið að styrkja þá sem eiga um sárt að binda eftir að hafa greinst með nýrnasjúkdóm og þurfa jafnvel að leita sér læknis- hjálpar um langan veg. Félagar í Félagi nýrnasjúkra sakna nú góðs félaga og minn- ast hans með kærri þökk fyrir starfið sem hann vann fyrir fé- lagið. Blessuð sé minning Hall- gríms Viktorssonar og megi hann hvíla í friði. Fyrir hönd stjórnar Félags nýrnasjúkra, Guðrún Barbara Tryggvadóttir. Virðing, reynsla & þjónusta Allan sólarhringinn 571 8222 Svafar: 82o 3939 Hermann: 82o 3938 Ingibjörg: 82o 3937 www.kvedja.is svafar & hermann FALLEGIR LEGSTEINAR Verið velkomin Á góðu verði Auðbrekku 4, 200 Kópavogi, sími: 537-1029, www.bergsteinar.is Opið: 10-17 alla virka daga Ástkær eiginmaður minn, faðir, stjúpfaðir, tengdafaðir, afi og langafi, REIMAR CHARLESSON framkvæmdastjóri, lést á hjúkrunarheimilinu Hrafnistu í Hafnarfirði föstudaginn 10. maí. Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju mánudaginn 20. maí klukkan 13. Björg Hjálmarsdóttir Heiða Reimarsdóttir Magnús Karlsson Kristín Helga Reimarsdóttir Linda Reimarsdóttir Sigurlína Halldórsdóttir Sigrún Bergsdóttir Tony Arcone Óskar Bergsson Jóhanna Björnsdóttir Lára Gyða Bergsdóttir barnabörn og barnabarnabörn Ástkær eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, MÁLFRÍÐUR SIGURÐARDÓTTIR, Stapavöllum 12, Reykjanesbæ, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja laugardaginn 11. maí. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju fimmtudaginn 23. maí klukkan 13. Blóm og kransar eru vinsamlegast afþakkaðir en þeim sem vildu minnast hennar er bent á Krabbameinsfélagið. Innilegar þakkir til starfsfólks Heilbrigðisstofnunar Suðurnesja fyrir einstaka umönnun og hlýtt viðmót. Marís Hvannberg Gíslason Sigurður Marísson Kristín Auður Jónsdóttir Ingibjörg Guðný Marísdóttir Örn Benedikt Sverrisson Margrét Linda Marísdóttir Kristberg Snjólfsson Viðar Þór Marísson Tonje Tellefsen barnabörn og barnabarnabörn Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og systir, ÞÓRA FRIÐRIKSDÓTTIR leikkona, andaðist sunnudaginn 12. maí. Útför hennar verður gerð frá Dómkirkjunni í Reykjavík fimmtudaginn 23. maí klukkan 13. Sérstakar þakkir viljum við færa starfsfólki á deild V-3 á dvalarheimilinu Grund, Reykjavík, fyrir þá alúð og umhyggju sem Þóru var sýnd. Lára Jónsdóttir Kristín Jónsdóttir Sigmundur Jóhannesson Iðunn Jónsdóttir Tryggvi Jónsson Þórunn Friðriksdóttir

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.