Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 41

Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 41
MINNINGAR 41 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 ur sig á raunveruleikanum. Þó að þau séu óteljandi tárin sem við höfum fellt síðustu daga horfum við bara til Epiktekts í þessum til- finningarússíbana, í þessari vit- leysu allri, þegar við leggjum í síð- asta ferðalag Gemlinganna með þér. Því miður höfum við ekki vald yfir því að þú sért ekki lengur með okkur. En við höfum þó allavega vald yfir því hvernig við tökumst á við þennan nýja veruleika. Ferða- lagið hingað til; síðustu ár og ára- tugina með þér, hefur að minnsta kosti verið stórkostlegt. Og það mun halda 100% áfram! F.h. Gemlinga, Jón (Nonni), Óskar, Halldór og Erlingur. Þrátt fyrir vorið, birtuna og blómin blíð. Þá eru dagarnir dimmir Og drungi yfir tíð. Fleyið bar hann Kolbein okkar aldrei heim að Framnesi, heldur áfram inn í eilífðina. Orð fá því ekki lýst hversu djúpt sorgin ristir hjartað, endur- speglun af þeirri miklu ást sem hjartað geymir um Kolbein, og endurspeglun á óréttlætinu – hrif- inn úr blóma lífsins úr kaflanum sem var rétt að byrja, kaflanum með Írisi og Önnu litlu í drauma- landinu á Framnesi. Eftir standa dýrmætar minn- ingarnar. Þar er Kolbeinn alltaf í aðalhlutverki, hrókur alls fagnað- ar – með góða sögu, gott sprell, og oft að stjórna sviðsetningu á til- teknu konsepti. Persónutöfrar Kolbeins gátu fengið fólk til að taka þátt í flestöllu, t.d. að fá vini sína til að marsera um götur Ísa- fjarðar í fötum af móður sinni. Kolbeinn var happafengur allra sem fengu að kynnast honum. Frábæru og einstöku mann- kosti Kolbeins skildi ég enn betur þegar ég lærði um gagnrýna hönn- un. Kolbeinn var alltaf á fimmta eða sjötta hugsunarhring. Hans hugmyndir og sjónarmið voru allt- af nokkrum skrefum á undan okk- ur hinum, og hann var í raun alltaf að prótótýpa hugmyndir til þess að hrófla við okkar viðteknu venjum og ýta undir gagnrýna hugsun. Fræg eru jólatrén á Hlíðarvegin- um sem brutu öll lögmál um barr- nálar og grænan lit. Eitt árið var gulur bananastandur úr Samkaup endurnýttur sem jólatré heimilis- ins og annað árið voru það herðatré úr fataskápnum sem mótuðu jólatréð. Kolbeinn var sannur, einstakur og óritskoðaður. Kolbeinn gerði ekki hlutina af því að það var sam- félagslega rétt. Hann gerði það sem honum fannst rétt. Það end- urspeglaðist í vináttunni, sem var ein sú sannasta og besta sem ég hef upplifað. Fyrir það verð ég ei- líflega þakklát og það yljar mér að hugsa til þessara orða sem tekin eru af bloggi Kolbeins sem eru svo lýsandi fyrir hann: „Mörg okkar viljum alltaf gera það besta fyrir hana Sunnu okkar og tókum okk- ar góða skap með en fannst það ekki nóg svo við keyptum okkur smá auka gott skap í flöskuformi í Áfsláttar Tilfinningar Verslun Ríkisins“. Takk fyrir að hafa alltaf verið til staðar og takk fyrir að hafa boðið mér inn í ævintýra- heiminn þinn. Kolbeini tókst alltaf að beina orkunni frá leiðindum, og leysti hlutina með sínum frábæra húm- or og æðruleysi. Þessum eigin- leikum beitti hann í veikindum sínum, við mikla aðdáun allra sem fylgdust með honum. Hann horfði fram á við og naut þess að ræða framtíðina á Framnesi, hvernig endurhönnunin á húsinu ætti að vera, og eitt af því síðasta sem við ræddum voru stigahugmyndir – „Þessi er fallegur. Hann er eitt- hvað svo verkfræðilega réttur.“ Kolbeinn var mikill fagurkeri, hafði sterkar skoðanir á öllu í kringum sig og gat komið þeim til skila í stuttu og hnitmiðuðu formi. Fyrir hönd árgangs 1984 þakka ég Kolbeini fyrir samfylgdina í 29 yndisleg og ógleymanleg ár. Við sendum fjölskyldunni styrk og biðjum þess að sumarsólin þerri tár og veiti yl í þessari miklu og ótímabæru sorg. Minningin um minn besta vin og okkar einstaka bekkjarfélaga mun alltaf lifa með okkur. Hafdís Sunna Hermanns- dóttir og árgangur 1984. Engin leið er að skilja að ungt fólk sé hrifið frá okkur í blóma lífs- ins. Höggið er gríðarlegt. Sárs- aukinn og sorgin ólýsanleg. Áður en ég vissi að Kolbeinn var í móðurkviði dreymdi mig draum. Begga gaf mér fallegt, myndarlegt karlmannsúr. Drauminn réð ég þannig að önnur okkar ætti von á barni. Á páskum á Ísafirði fékk ég þær fréttir að Begga ætti von á sér. Ég sagði Beggu og Einari frá draumnum og að þau myndu eign- ast dreng. Mánuðirnir liðu. Begga sótti mikið til mín í draumi. Í byrjun ágúst, á Ísafirði, fékk ég fréttir frá Beggu. Drengur hafði fæðst á af- mælisdegi mínum, löngu fyrir tímann. Ég sagði Beggu og Einari í gamni að hann ætti að heita Kol- beinn. Stuttu síðar óskaði Begga mér til hamingju með nafna minn Kolbein, sem skírður hafði verið í höfuðið á mér. Þvílíkur heiður. Kolbeinn hefur átt sérstakan stað í hjarta mínu síðan. Í Skóginum á Ísafirði léku börn- in okkar sér saman á sumrin. Eitt sinn fékk Kolbeinn að fara með okkur í sund. Mér þótti ábyrgðin mikil, að hafa auga með honum ásamt drengjunum mínum. Kol- beinn hefur þá verið fimm eða sex ára. Ég skipaði honum að halda sig nálægt mér í lauginni og hann yrði að lofa að fara varlega. Hann svar- aði engu. Ég var fljót að koma mér ofan í laugina til að fylgjast með drengnum. Þegar Kolbeinn kom út úr klefanum kom hann okkur öllum á óvart, stakk sér í djúpu laugina og synti eins og selur. Minning; jólakort frá Kolbeini 1994; „Ástkæra vinkona Kolbrún Svavarsdóttir. Allt gott af mér að frétta. Alltaf að stækka. Gleðileg jól og farsælt komandi ár. Kol- beinn Einarsson.“ Fleiri minningar; Kolbeinn í Tjöruhúsinu. Kolbeinn í heimsókn hjá okkur í sumarbústað. Kol- beinn drullugur frá toppi til táar á Mýrarboltamótum. Minning frá Róm, þar sem Begga, Elsa og ég héldum upp á afmæli okkar. Begga sagði að ég ætti von á leynigesti. Voru þar komin Kolbeinn og kærasta hans Íris, geislandi fögur og full af lífs- gleði. Þau fóru með okkur í útsýnisferð, út að borða og í Vatík- anið. Í Vatíkaninu dróst ég aftur úr hópnum. Birtist Kolbeinn þá við hlið mér og án þess að orða neitt fylgdumst við að. Kolbeinn var umhyggjusamur, skemmtileg- ur og lúmskt fyndinn með athuga- semdir um það sem fyrir augu bar. Haustið 2017 giftist Kolbeinn Írisi, von var á barni. Stuttu eftir veiktist Kolbeinn alvarlega. Hann náði að upplifa að eignast dóttur og 1. afmælisdag hennar. Þann 7. maí síðastliðinn lauk stuttri ævi Kolbeins. Íris hefur haldið úti síðu á Facebook fyrir þá sem hafa viljað fylgjast með heilsu Kolbeins. Æðruleysi þeirra hjóna var ein- stakt. Ég hef dáðst að styrk Írisar og fagmennsku í skrifum hennar. Sorgin og söknuðurinn virðist óbærilegur. Ég veit að vel hefur verið tekið á móti Kolbeini í öðr- um heimkynnum. Hann mun leiða okkur um nýja helgidóma þegar okkar tími kemur. Orð mega sín lítils. Megi allar góðar vættir halda utan um og styrkja Írisi, Önnu, Beggu, Einar, systkini, ættingja og vini í sorginni. Megi allar góðu, fallegu minningarnar um einstak- an mann verða þeim ljós sem lýsir áfram veginn. Blessuð sé minning Kolbeins. Kolbrún Svavarsdóttir Sörensen. Sú saga Kolbeins Einarssonar og Írisar Birgisdóttur sem hófst 2. september 2017 með fallegu brúð- kaupi niðri við sjó og endaði óvænt á Landspítalanum 7. maí síðastlið- inn, þegar Kolbeinn kvaddi þetta líf, er ótrúlegri en orð fá lýst. Brúðkaupshelgin var eftir- minnileg – þar með talið kvöldið fyrir brúðkaup, í dýrðlegu veðri og gleðskap á Framnesi. Kolbeinn og Íris höfðu nýlega fest kaup á þeirri fallegu jörð við Berufjörð, skammt frá Djúpavogi, og höfðu glæstar fyrirætlanir um endur- gera húsin og setjast þar að. Barn var undir belti og kom í heiminn 24. febrúar 2018 – hún Anna Kol- beinsdóttir. Mánuði eftir brúðkaup greind- ist krabbamein í höfði Kolbeins. Þó að horfur væru slæmar í fyrstu átti eftir að birta til og vonir að kvikna um farsælan endi. Aldrei fékkst samt hvíld og baráttan var erfið, það eina og hálfa ár sem hún stóð. Að lokum reyndist krabba- meinið illvígara en við héldum. Það var okkur blessun í barátt- unni að fram á síðasta dag var vonin alltaf til staðar. Við Kolbeinn systursonur minn höfðum sömu sýn á heiminn, vor- um litblindir á sama hátt. Grænt var SS-pylsusinnep, þýskt skorpubrauð og fólk sem var of lengi í sólbaði. Rauðir túlípanar leyndust okkur í grænu túni. Við sáum heldur aldrei liti haustsins. Kolbeinn var heimspekilega þenkjandi og dvaldi ekki í haust- inu. Hann sótti sér leiðarljós í bók- ina „Hver er sinnar gæfu smiður“. Í bókinni kennir Epíktetos að við stjórnum ekki því hvað hendir okkur og ættum að taka því með jafnaðargeði og af æðruleysi. Hins vegar séum við ábyrg fyrir eigin viðbrögðum og gjörðum. Í takti við þessa heimssýn var það einkennandi fyrir Kolbein að hann gat alltaf hlegið. Léttum hlátri sem lýsti því að ekkert ætti að taka of hátíðlega, hvorki sjálfan sig né aðra – ekkert ranglæti of nærri sér, engin mistök of alvar- lega. Í þessum anda tókst Kol- beinn á við sjúkdóminn, hann horfðist í augu við dauðann og hló. Kolbeinn sá hlutina oft öðrum augum en nokkrum hefði dottið í hug. Ég man eftir honum að borða nokkra diska af súpu án þess að nota skeið. Hann veiddi súpuna bara upp með brauði – og notaði heilt brauð til verksins. Kolbeinn sótti sjóinn, hló og blés sápukúlur á stærð við hús. Engin hugmynd var of brjál- æðisleg til að skoða mætti hana af alvöru. Það féll stundum í hlut Kolbeins að róa þá sem vinahóp- urinn, Gemlingarnir, hafði gengið of nærri í prakkaraskap. Eftir uppátæki sem maður hefði haldið að væru ófyrirgefanleg gat Kol- beinn náð sáttum, með hrein- skilni, einlægni og stóískri ró. Þess verður sárt saknað að fá ekki framar að fylgjast með og taka þátt í uppátækjum Kolbeins frænda. Sárt er líka að sjá ekki fallega drauma þeirra Kolbeins og Írisar rætast á Framnesi við Berufjörð. Samúð okkar allra er með Írisi, sem enn heldur áfram að takast á við stærsta verkefni lífs síns til þessa. Við hlökkum til að sjá hana skapa nýja draumsýn fyrir sig og Önnu litlu. Við hlökkum til að styðja þær mæðgur í að móta nýja framtíð. Við hlökkum til að minn- ast Kolbeins eins og Kolbeins ætti að minnast – með óhefðbundnum hætti. Gísli H. Halldórsson. Sími 5 @utfarir.is · www.utfarir.is· 67 9110 · utfarir Rúnar Geirmundsson Sigurður Rúnarsson Þorbergur Þórðarsson Elís Rúnarsson Stofnað 1990 Traust fjölskyldufyrirtæki í áratugi ✝ Hans StefánGústavsson fæddist 16. desem- ber 1930 í Fischersundi 3 í Reykjavík. Hann andaðist á Heil- brigðisstofnun Suðurlands 2. maí 2019. Foreldrar hans voru Gústav Sigurbjarnason, f. 1901, d. 1971, og Klara Ólafía Benediktsdóttir, f. 1905, d. 1934. Systkini Hans voru Hilmar, f. 1924, d. 2003, og Hulda, f. 1926, d. 2018. Einnig átti hann eina hálfsystur samfeðra, Haf- dísi, f. 1937. Þau bjuggu á Laufásveg 4, þar sem Klara lést 1934. Þá fluttist hann að Hvammi í Holtum til Oddbjargar Guðna- dóttur, þar sem hann ólst upp. 1945 fór hann í Flensborg- arskóla í Hafnarfirði og út- skrifaðist þar 1948 og síðan í Garðyrkjuskólann 1950. Þar kynntist hann fyrri konu sinni, Ásdísi Magnúsdóttur, f. 1. október 1928, d. 31. ágúst 1973, og giftust þau 1952 þeg- ar hann útskrifaðist þaðan. Þá fóru þau til Svíþjóðar og hann til að afla sér meiri þekkingar í garðyrkjunni. Þegar heim var komið aftur 1954 fór Hans að vinna sem garðyrkjufræðingur í Hvera- gerði og byggði síðan sína eig- in stöð sem hann rak til ársins 2007. Börn Hans og Ásdísar eru Klara, f. 30. október 1959, gift Eyþóri Hjartarsyni, Björg Elva, f. 1. desember 1960, í sambúð með Magnúsi B. Krist- jánssyni, og Frið- rik Hallvarður, f. 30. júlí 1962, var giftur Valgerði Rúnarsdóttur. Áður hafði Hans eignast Jónu, f. 30. mars 1950, hún er gift Gísla Jónssyni. Þau tóku einnig dreng í fóstur 1958, Skúla Einarsson, f. 30. apríl 1956, eiginkona hans er Ásdís Ter- esita Einarsson. Barnabörnin eru níu, barna- barnabörnin eru orðin 16 og eitt barnabarnabarn. Árið 1975 giftist Hans seinni eiginkonu sinni, Elínu Þórarinsdóttur, f. 1932, d. 2019, þau skildu. Hans vann mörg trún- aðarstörf fyrir Hvera- gerðisbæ, var m.a. formaður bæjarráðs og síðar forseti bæjarstjórnar. Einnig var hann í fulltrúaráði fyrir Sam- band sunnlenskra sveitarfé- laga og í orkunefnd. Hann var einn af stofnendum Blóma- miðstöðvarinnar og stjórn- arformaður þar svo árum skipti. Einnig var hann einn af stofnendum Lionsklúbbs Hveragerðis og formaður um tíma. Hann gekk í Frímúr- araregluna. Hans var mikill bridgespilari, stundaði blóma- ræktun og veiðimennsku og spilaði m.a. á harmóniku og píanó. Síðustu 11 ár var Hans bú- settur á Ási í Hveragerði. Útförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fallinn er frá kær vinur. Rúmlega þrjátíu ár eru síðan leiðir okkar Hansa lágu fyrst saman í Hveragerði. Sjaldan leið sá dagur að við ekki rædd- um um bæjarmálin og almennt um daginn og veginn. Þráður- inn sem þá varð til slitnaði aldrei. Það var stundum tekist á, enda skoðanir okkar ekki alltaf þær sömu. Aldrei nokk- urn tíma bar þó skugga á vin- áttu okkar. Stundum rölti ég heim til hans, þessa fáu metra sem voru á milli heimila okkar. Þá var ég iðulega leystur út með liljum sem hann ræktaði af alúð og þekkingu. Ég lærði fljótlega að hætta því að hafna þessum fallegu vöndum, því Hansi sagði: „Þetta er ekkert handa þér, þetta er fyrir Nönnu.“ Við vorum ekki sammála um hvað almættið héti, eða hvernig það væri innréttað. Skemmtum okkur reyndar í þeim tilgangs- lausu umræðum og öðrum létt- vægum, svo sem um lyndis- einkunnir pólitíkusa. Hann hafði góðan og ögrandi húmor, sem vekur enn hlátur í huga. Síðustu mánuði var umræðu- efnið oft dauðinn og eftirlífið, þar sem við höfðum báðir reynslu, sem gaf okkur full- vissu um framhaldslíf. Hansa verður vel tekið hinum megin, það er ég viss um. Sé hann samt ekki fyrir mér þar í hvít- um serk, spilandi á hörpu. Sé hann glamrandi gamla djass- slagara á píanóið, eða með nikkuna þanda með vindil og viskíglas innan seilingar. Við Nanna sendum börnum Hans Gústavssonar og fjöl- skyldum þeirra samúðarkveðj- ur. Hans er sárt saknað. Hilmar Baldursson. Hans Stefán Gústavsson

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.