Morgunblaðið - 18.05.2019, Side 44
44 DÆGRADVÖL
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
70 ára Sigríður er
Reykvíkingur, vann
fyrst í fiski , var síðan
verkstj. í niðursuðu-
verksmiðjunni Lagmeti
og síðast í aðhlynningu
á Hjúkrunarheimilinu
Eir.
Maki: Pétur Hreinsson, f. 1954, vinnur í
álverinu í Straumsvík.
Börn: Ragnheiður Brimrún, f. 1966,
Jóhannes Þorvaldur, f. 1968, Dagmar
Björg, f. 1971, Ísabel Lilja, f. 1975, og
Sesselja Hrönn, f. 1977. Barnabörn eru
13 og langömmubörn 9.
Foreldrar: Jóhannes Guðjónsson, f.
1914, d. 1996, útgerðarmaður, og Ragn-
heiður Maríasdóttir, f. 1924, d. 2007,
húsfreyja í Reykjavík.
Sigríður María
Jóhannesdóttir
Stjörnuspá
21. mars - 19. apríl
Hrútur Samkeppnin ræður ríkjum í
vinnunni, en ef þú vinnur vel heima ferðu
auðveldlega með sigur af hólmi. Reyndu
að hvíla þig.
20. apríl - 20. maí
Naut Vertu vakandi fyrir tækifærum sem
kunna að bjóðast í fjármálum. Það verður
fjörugt í félagslífinu næstu vikur.
21. maí - 20. júní
Tvíburar Gættu þess að setja annað fólk
ekki á of háan stall. Það er svo sárt þegar
það fellur af honum. Reyndu að sýna þol-
inmæði því við vinnum ekki öll á sama
hraða.
21. júní - 22. júlí
Krabbi Einbeittu þér að þeim málum sem
þú þarft að afgreiða strax. Ekki lofa upp í
ermina á þér, þú ættir að vera búin/n að
læra það.
23. júlí - 22. ágúst
Ljón Það getur eitt og annað farið úr-
skeiðis þegar menn tala ekki hreint út um
hlutina. Láttu útlit ekki blekkja þig, því
ekki er allt sem sýnist.
23. ágúst - 22. sept.
Meyja Hver er sinnar gæfu smiður svo
það er í þínu valdi að velja milli þeirra
möguleika sem lífið býður upp á. Þú átt
fullt í fangi með að elta drauma þína.
23. sept. - 22. okt.
Vog Það er óþarfi að láta sér leiðast þau
störf sem skyldan býður. Það er ekki allt
með felldu í ástamálunum. Komdu þeim á
hreint.
23. okt. - 21. nóv.
Sporðdreki Farðu vel að því fólki sem þér
er kært því þú vilt hafa alla góða. Aukið
annríki og óreiða halda þér við efnið.
22. nóv. - 21. des.
Bogmaður Það er góð regla að vera við
öllu búin/n þannig að óvænt atvik setji
ekki allt úr skorðum.
22. des. - 19. janúar
Steingeit Fólki lendir saman og átök eiga
sér stað. Láttu það ekki koma þér úr jafn-
vægi heldur auka þér styrk. Sjálf/ur þarft
þú að leita inn á við.
20. jan. - 18. febr.
Vatnsberi Þú veltir fyrir þér hvort nákom-
in manneskja er gengin af göflunum eða á
undan sinni samtíð. Reyndu að halda
dampi þótt það reyni á þolrifin.
19. feb. - 20. mars
Fiskar Einhver vill bindast þér, en þú ert
ekki tilbúin/n, þar sem það eru svo margir
möguleikar þarna úti sem þú hefur aldrei
látið reyna á.
formennsku um tveggja ára skeið.
Hann tók líka virkan þátt í Skotvís,
félagi skotveiðimanna, og var þar
sömuleiðis formaður í tvö ár. Hann
flutti með fjölskylduna að Árbakka
við Elliðaár 1970 og býr þar enn.
Fyrir nokkrum árum gaf hann út
bókina Glettni veiðigyðjunnar í
samstarfi við Árna Björn Jónasson
og Kristján Bjarnason. Enn er
hægt að nálgast eintök af þeirri
bók hjá útgefanda.
„Nú reyni ég að aðallega að
halda lífi og fylgist með fjölmiðlum.
Ég yrki ekki lengur en er enn með
fullan haus af kveðskap. Ég man
hluti betur ef þeir eru rímaðir og
sérstaklega ef það eru 70 ár síðan
ég lærði þá.“
B
jarni Kristjánsson
fæddist 18. maí 1929 á
Norður-Hvoli í Mýr-
dal. Þar stýrðu for-
eldrar hans stóru búi
og fjölmennu heimili. Fóstra hans
var Elín Gottsveinsdóttir og sögur
og ævintýri til að næra barnssálina
hafði Anna Guðmundsdóttir á
hraðbergi.
Bjarni var í barnaskóla í Litla-
Hvammi í Skeiðflatalandi í Mýrdal
og varð stúdent frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1950. Hann
lauk prófi sem vélaverkfræðingur
frá Technische Hochschule í
München árið 1956.
Bjarni var verkfræðingur á
teiknistofu Sambands íslenskra
samvinnufélaga 1956-59, verkfræð-
ingur hjá Skeljungi 1959-61 og
verkfræðingur hjá flugher Banda-
ríkjanna á Keflavíkurflugvelli
1961-64. Hann hóf störf við Tækni-
skóla Íslands þegar hann var
stofnaður árið 1964 og kenndi
stærðfræði og aflfræði. Hann var
síðan rektor frá 1966 til 1990 þeg-
ar honum þótti mál að slaka á
klónni; en var reyndar stunda-
kennari í tæknigreinum í nokkur
ár eftir rektorstímabilið. Þessi
skóli var annar en sá sem nú er
rekinn undir sama nafni.
„Skólinn var stofnaður til að
framhaldsmennta iðnaðarmenn og
það var ýmislegt sem við próf-
uðum. Ef það er eitt sem ég ætti
að nefna þá er það að við útskrif-
uðum fyrstu Íslandsmenntuðu
byggingafræðingana. Ég lagði
þetta til og þá var þetta ekkert
sett í nefnd heldur skoraði Gylfi Þ.
Gíslason menntamálaráðherra á
mig að gera þetta og ég er mjög
ánægður með hvernig til tókst.“
Bóklestur, kveðskapur, pólitík,
fjallgöngur og badminton eru með-
al áhugamála Bjarna en veiðiskap-
ur í ýmsum myndum yfirskyggir
öll önnur áhugamál. „Ég byrjaði
samt ekki á veiðiskapnum fyrr en
ég var kominn heim úr námi, undir
þrítugt, fékk þá veiðistöng að gjöf,
og skyttiríið byrjaði ennþá seinna.“
Hann var einn af stofnfélögum
Ármanna árið 1973 og gegndi þar
Fjölskylda
Bjarni kvæntist Snjólaugu
Bruun, f. 23.9. 1931, húsfreyju árið
1953 en þau skildu.
Börn Bjarna og Snjólaugar eru
1) Gunnar Bruun, f. 14.2. 1954, raf-
eindavirki, bús. í Garðabæ. Maki:
Bára Einarsdóttir, f. 24.2. 1955.
Börn: Bjarni, f. 1.4. 1980; Andri, f.
19.6. 1984; Arna, f. 13.12. 1986, og
Björk, f. 13.12. 1986; 2) Kristján, f.
13.10. 1956, garðyrkjufræðingur,
bús. í Njarðvík. Maki: Svava Boga-
dóttir, f. 30.5. 1954. Börn: Eyþór, f.
17.7. 1991, og Bjarni Kristjánsson,
f. 21.6. 1993. Börn Svövu af fyrra
hjónabandi: Halldóra, f. 12.3. 1977
og Bogi, f. 30.6. 1980, Hreinsbörn;
Bjarni Kristjánsson, fyrrverandi rektor Tækniskóla Íslands – 90 ára
Í Dyrhólaey Á heimaslóðum Bjarna. Frá vinstri: Snjólaug Elín Bjarnadóttir, Arnar Steinn Hansson, Eyþór
Kristjánsson, Svava Bogadóttir, Bjarni Kristjánsson yngri, Bjarni Kristjánsson, Bára Einarsdóttir, Kristín Friðriks-
dóttir (látin), Kristín Ellen Bjarnadóttir (látin) og Guðbergur Ingvarsson.
Með hausinn fullan af kveðskap
Veiðimaðurinn Síðdegisafli á
Hofsstöðum í Mývatnssveit.
50 ára Anna Þóra er
Reykvíkingur og er
löggiltur endurskoð-
andi hjá Ernst &
Young. Auk þeirrar
menntunar er hún
með BA-próf í
frönsku og píanó-
kennarapróf frá Tónlistarskólanum í
Reykjavík. Hún hefur verið í Dómkórn-
um frá 2011 og er formaður kórsins.
Systkini: Gullý, f. 1957, Jón Atli, f.
19.5. 1960, Kristín, f. 1967, og tvíbur-
arnir Helgi og Kjartan, f. 1974.
Foreldrar: Benedikt Alfonsson, f.
1928, d. 2018, skólastjóri Siglingaskól-
ans, og Katrín Jónsdóttir, f. 1933, fyrr-
verandi skrifstofumaður, búsett í
Reykjavík.
Anna Þóra
Benediktsdóttir
Til hamingju með daginn
Börn og brúðhjón
Á opnunni „Íslendingar“ í Morgunblaðinu
er sagt frá merkum viðburðum í lífi fólks,
svo sem stórafmælum, hjónavígslum,
barnsfæðingum og öðrum tímamótum.
Allir þeir sem senda blaðinu mynd af nýjum
borgara eða mynd af brúðhjónum fá fría
áskrift að Morgunblaðinu í einn mánuð.
Hægt er að senda mynd og texta af slóðinni
mbl.is/islendingar eða á islendingar@mbl.is