Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 47
ÍÞRÓTTIR 47 MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 Gary Martin, framherji Vals, hefur verið mikið á milli tann- anna á knattspyrnuáhugamönn- um í vikunni en farsinn í kringum Englendinginn hefur varla farið fram hjá nokkrum manni sem fylgist með íslenska fótbolt- anum. Þjálfarinn Ólafur Jóhann- esson lýsti yfir gríðarlegri ánægju sinni þegar Valur samdi við Gary í janúar en nú rúmum 4 mánuðum síðar er Óli búinn að gefast upp á Englendingnum. Ólafur tjáði Gary Martin degi áður en félagaskiptaglugginn lokaðist að hann mætti finna sér nýtt lið til að fara í og ástæðan fyrir því að hann vildi losna við framherjann var sú að hann mat stöðuna þannig að Gary hentaði ekki leikstíl Vals. Það þarf enginn að segja mér að ástæðan fyrir því að Gary Martin er kominn út í kuldann sé sú að hann henti ekki leikstíl Vals. Ólafur, sá sigursæli og þrautreyndi þjálfari, vissi alveg hvaða tegund af leikmanni hann var að fá þegar hann ákvað að fá Gary til liðs við sig. Gary hefur einhverra hluta vegna þrifist frekar illa hjá þeim liðum sem hann hefur leikið með. Sumir segja að hann sé skemmt epli, lítill liðsmaður, hugsi bara um eigin hag og láti illa af stjórn. Ekki ætla ég að dæma um það en Gary hefur ýmsa góða kosti sem knatt- spyrnumaður en utan vallar þekki ég lítið til verka hans. Óli Jó hefur eitthvað metið stöðuna rangt þegar hann fékk Gary og kannski mun hann síðar viðurkenna mistök sín þegar hann ákvað að fá Englendinginn á Hlíðarenda. Ef ég þekki smið- inn úr Hafnarfirði rétt þá segir mér svo hugur að Gary hafi spil- að sinn síðasta leik fyrir Val. BAKVÖRÐUR Guðmundur Hilmarsson gummih@mbl.is FÓTBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Birkir Bjarnason hefur síðustu mánuði sáralítinn þátt fengið að taka í upprisu hins sögufræga fé- lags Aston Villa, sem gæti snúið aftur í ensku úrvalsdeildina í fót- bolta með sigri á Derby á Wem- bley þann 27. maí. Birkir, sem á 31 árs afmæli sama dag, hefur verið hjá Villa í tvö og hálft ár en í allra síðustu leikjum er svo komið að hann hefur ekki fengið sæti í 18 manna leikmannahópi liðsins. „Ég hef voðalega lítið spilað síð- an í janúar og þannig er bara stað- an. Ég á náttúrulega eitt ár eftir af samningum við félagið en meira get ég í raun ekki sagt. Ég er voðalega rólegur yfir þessu og svo sjáum við til hvað gerist í sumar. Ég geri bara mitt besta á æfingum og þegar ég fæ tækifæri,“ segir Birkir við Morgunblaðið. En hefur það áhrif á hans stöðu hvort Villa kemst upp í úrvalsdeildina eða ekki? „Ég hef svo sem ekki hugsað mikið um það ennþá. Það yrði auð- vitað frábært ef við kæmumst upp en við yrðum bara að sjá til, og heyra hvað klúbburinn vill gera. Það er frábært að hafa komist aft- ur í umspilið og vonandi höfum við lært af tímabilinu í fyrra, og get- um farið alla leið í ár,“ segir Birk- ir, sem spilaði talsvert á fyrri hluta leiktíðarinnar og hefur samtals leikið 17 deildarleiki á tímabilinu, og skorað tvö mörk. Hann lék hins vegar síðast í byrjunarliði liðsins í janúar, og hefur síðan þá aðeins tvívegis komið inn á. Hann hefur því spilað samtals 16 mínútur með Villa síðustu fjóra mánuði. „Ég meiddist í nóvember og var kominn til baka rétt eftir jól. Á þeim tímapunkti var liðið hins veg- ar ekkert að spila sérstaklega vel. Liðið hefur verið að spila vel síðan í febrúar, og svona getur þetta verið í fótbolta. Það er ekki hægt að spila öllum í hópnum,“ segir Birkir. Vil mæta í landsleikina í eins góðu formi og ég get Á þeim tíma sem liðinn er frá janúar hefur hann hins vegar leik- ið tvo 90 mínútna landsleiki. Hann skoraði mikilvægt mark í 2:0-sigri á Andorra 22. mars og lék einnig allan leikinn í 4:0-tapinu gegn Frökkum þremur dögum síðar. Birkir kveðst ekki hafa fundið fyr- ir skorti á leikformi í þessum leikj- um og ætlar að gera allt til að vera upp á sitt besta í leikjunum mik- ilvægu við Albaníu og Tyrkland í júní: „Ég var búinn að æfa rosalega vel, gera mikið aukalega og var því í mjög góðu formi í þessum leikj- um. Ég held því áfram núna fram að næstu landsleikjum. Það er mjög mikilvægt í mínum huga og ég vil mæta í þá leiki í eins góðu formi og ég get. Það er fínt fyrir mig að liðið [Aston Villa] skuli áfram æfa alveg fram til loka maí,“ segir Birkir. Eftir leikinn á Wembley kemur Birkir til með að setjast niður með forráðamönnum enska félagsins, sem síðast lék í úrvalsdeild árið 2016 og hafði þá verið í efstu deild samfleytt frá árinu 1988. „Ég sest örugglega niður með forráðamönnum félagsins eftir tímabilið og við sjáum til hvað ger- ist. Ég hef ekkert rætt við þá síð- an í janúar. Þetta er náttúrlega frábær klúbbur, með frábæra að- stöðu, mjög góðan hóp og þjálfara, svo hér er allur pakkinn til staðar. Ég myndi því mikið vilja spila hérna, en það verður bara að koma í ljós í sumar hvað gerist,“ segir Birkir. Birkir fær bara að fylgjast með liðinu í baráttunni  Hefur spilað í 16 mínútur síðan í janúar  Úrslitaleikur við Derby á Wembley AFP England Birkir Bjarnason reiknar með að geta komið í góðu formi í lands- leikina í júní þar sem Aston Villa æfir til mánaðamóta vegna umspilsins. Keflvíkingar eru með fullt hús stiga eftir þrjá leiki í In- kasso-deild karla í knattspyrnu en þeir burstuðu nýliða Aftureldingar 5:0 á heimavelli sínum í gærkvöld. Adam Árni Róbertsson var maður leiksins en hann skoraði þrennu og þeir Davíð Snær Jóhannsson og Rúnar Þór Sigurgeirsson skoruðu sitt markið hvor. Víkingur Ólafsvík er tveimur stigum á eftir Keflvík- ingum en Ólsarar gerðu góða ferð í Laugardalinn og lögðu Þróttara 2:1. Jacob Andersen og Harley Williard skoruðu mörk Víkinga en Birkir Þór Guðmundsson setti mark Þróttara. Njarðvík hrósaði 2:1-sigri gegn Leikni í Breiðholti. Toni Tipuric og Stefán Birgir Jóhannesson komu Njarðvík í 2:0 í fyrri hálf- leik en Sævar Atli Magnússon minnkaði muninn fyrir heimamenn undir lokin. gummih@mbl.is Adam Árni með þrennu Adam Árni Róbertsson Ekki tókst Hirti Hermannssyni að verða danskur bikarmeistari annað árið í röð en Bröndby tapaði fyrir Midtjylland í bikarúrslitaleiknum á Parken í gær að viðstöddum tæp- lega 32 þúsund áhorfendum. Stað- an eftir venjulegan leiktíma og framlengingu var jöfn, 1:1, en Midt- jylland hafði betur í vítakeppni, 4:3, og skoraði Alexander Scholz, fyrr- verandi leikmaður Stjörnunnar, sigurmarkið. Hjörtur lék allan tím- ann en tók ekki vítaspyrnu. gummih@mbl.is Svekkjandi fyrir Hjört AFP Tap Hirti Hermannssyni tókst ekki að vinna bikarinn annað árið í röð. Leikmenn í úrvalsdeild karla í fót- bolta fá lítinn hvíldartíma þessa dagana því þrír fyrri leikir fimmtu umferðarinnar fara fram á morg- un, sunnudag. Boðið er upp á sannkallaðan toppslag á Kópavogsvelli annað kvöld en þá verður jafnframt leikið í fyrsta skipti á nýju gervigrasi á vellinum. Breiðablik tekur á móti ÍA en liðin eru jöfn og efst í deild- inni með 10 stig. Umferðin byrjar hinsvegar með botnslag því klukkan 16 á morgun mætast neðstu liðin, ÍBV og Vík- ingur, og jafnframt einu liðin sem ekki hafa unnið leik í fyrstu fjórum umferðunum. Þó hefur byrjun Vík- inga verið mun frísklegri en þeir hafa skorað átta mörk, þar af þrjú gegn Val og þrjú gegn Stjörnunni, án þess að það hafi dugað þeim til að vinna leiki. Þriðji leikur dagsins fer fram í Garðabæ klukkan 17 þar sem Stjarnan tekur á móti KA. Stjörnu- menn eru með átta stig og geta því tekið forystuna í deildinni með sigri, allavega þar til viðureign Breiðabliks og ÍA lýkur um kvöldið. Seinni þrír leikirnir verða á mánudagskvöld. Þá mætast KR – HK, Grindavík – Fylkir og FH – Valur. vs@mbl.is Toppslagur á nýjum Kópavogsvelli www.gilbert.is GEFÐU TÍMA ÍSLENSKT ÚR MEÐ SÁL 101 ART DECO
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.