Morgunblaðið - 18.05.2019, Side 48

Morgunblaðið - 18.05.2019, Side 48
48 ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019 HANDBOLTI Olísdeild karla Annar úrslitaleikur: Selfoss – Haukar .................................. 26:27  Staðan er 1:1 og þriðji leikur á Ásvöllum kl. 18 á morgun. EHF-bikar karla Undanúrslit í Kiel: Kiel – Tvis Holstebro .......................... 32:26  Alfreð Gíslason þjálfar Kiel. Gísli Þ. Kristjánsson er frá keppni vegna meiðsla.  Vignir Svavarsson skoraði þrjú mörk fyrir Holstebro. Füchse Berlín – Porto......................... 24:20  Bjarki Már Elísson skoraði fjögur mörk fyrir Füchse. Þýskaland B-deild: Rhein Vikings – Hüttenberg.............. 24:36  Ragnar Jóhannsson skoraði tvö mörk fyrir Hüttenberg. Austurríki Undanúrslit, oddaleikur: Alpla Hard – West Wien ..................... 29:25  Viggó Kristjánsson skoraði fjögur mörk fyrir West Wien, Guðmundur Hólmar Helgason fjögur en Ólafur Bjarki Ragn- arsson ekkert. Alpla vann 2:1 og mætir Krems í úrslitum. Danmörk Oddaleikur um sæti í úrvalsdeildinni: Kolding – Tönder ................................ 33:28  Ólafur Gústafsson skoraði eitt mark fyr- ir Kolding sem vann 2:1. KNATTSPYRNA Úrvalsdeild karla, Pepsi Max-deildin: Hásteinvöllur: ÍBV – Víkingur R .......... S16 Samsung-völlur: Stjarnan – KA ............ S17 Kópavogsvöllur: Breiðablik – ÍA...... S19.15 1. deild karla, Inkasso-deildin: Þórsvöllur: Þór – Grótta ........................ L16 Extra-völlur: Fjölnir – Magni ............... L16 2. deild karla: Eskjuv.: Fjarðabyggð – Völsungur ...... L14 Olísvöllur: Vestri – Kári ......................... L16 Nesfiskvöllur: Víðir – Tindastóll ........... L16 Boginn: Dalvík/Reynir – Leiknir F . L18.30 3. deild karla: Bessastaðavöllur: Álftanes – Sindri...... L13 Europcarv.: Reynir – Höttur/Hug... L13.30 Vopnafjarðarv.: Einherji – KH ............. L14 Ólafsfjarðarvöllur: KF – KH................. L16 1. deild kvenna, Inkasso-deildin: Extra-völlur: Fjölnir – ÍA ...................... S14 Ásvellir: Haukar – Þróttur R................. S14 Hertz-völlur: ÍR – Augnablik ................ S14 Mustadv.: Grindavík – Afturelding ....... S14 Sauðárkrókur: Tindastóll – FH............. S15 2. deild kvenna: Bessastaðav.: Álftanes – Hamrarnir .... L16 Vivaldi-völlur: Grótta – Sinddri ............. S14 HANDKNATTLEIKUR Þriðji úrslitaleikur karla: Schenker-höll: Haukar – Selfoss ........... S18 UM HELGINA! FRJÁLSARSindri Sverrisson sindris@mbl.is Elísabet Rut Rúnarsdóttir úr ÍR vann mikið afrek á Skallagrímsvelli í Borg- arnesi í fyrradag. Hún bætti þá Ís- landsmetið í sleggjukasti um 39 senti- metra, með 62,16 metra kasti, aðeins 16 ára gömul. Fáheyrt er að svo ungur iðkandi setji Íslandsmet í frjálsum íþróttum utanhúss en um það eru þó dæmi. Nú þegar Elísabet hefur tekið sér sæti á lista yfir núverandi Íslands- methafa er aldur hennar á „metdegi“, í hennar tilviki 16. maí, sá lægsti af öll- um á listanum. Raunar voru aðeins þrír aðrir núverandi Íslandsmethafar á táningsaldri þegar þeir settu þau met sem nú eru í gildi. Guðbjörg Jóna Bjarnadóttir var líkt og Elísabet 16 ára þegar hún setti núverandi Íslands- met í 200 metra hlaupi í fyrra, Helga Margrét Þorsteinsdóttir var 17 ára þegar hún sló í síðasta skipti Íslands- met í sjöþraut, og Andrea Kolbeins- dóttir var 19 ára þegar hún setti Ís- landsmet í 3.000 metra hindrunarhlaupi í fyrra. Hjá körlunum var ekkert Íslands- metanna sett af manni á tvítugsaldri. Einar Karl Hjartarson var yngstur þegar hann setti núgilandi met, í há- stökki, en hann var 20 ára þegar hann setti metið árið 2001. Hins vegar hafa frjálsíþróttakonur náð að setja Íslandsmet fyrr á ferl- inum heldur en Elísabet. Naumlega þó. Aníta Hinriksdóttir virðist hafa verið fljótust allra til þess, samkvæmt metalista á heimasíðu FRÍ. Hér má ítreka að aðeins er horft til keppni ut- anhúss. Aníta var 16 ára og 163 daga gömul þegar hún sló fyrst Íslands- metið í 800 metra hlaupi. Elísabet var aðeins sex dögum eldri þegar hún setti metið í Borgarnesi í vikunni. Þrátt fyr- ir það nær þriðji ÍR-ingurinn, fyrr- nefnd Guðbjörg Jóna, að skjóta sér á milli þeirra en hún var 16 ára og 167 daga þegar hún sló fyrst Íslandsmetið í 200 metra hlaupi fyrir tæpu ári síðan. Aníta hefur slegið Íslandsmetið í 800 metra hlaupi utanhúss alls sjö sinnum, síðast árið 2017 og þá 21 árs gömul, og Guðbjörg Jóna sló metið í 200 metra hlaupi þrisvar í fyrra. El- ísabet bætti met Vigdísar Jónsdóttur sem sló metið í sleggjukasti átta sinn- um á árunum 2014-2017. Elísabet í afar fámennan hóp  Sló Íslandsmet í sleggjukasti 16 ára Ljósmynd/FRÍ Íslandsmet Elísabet Rut Rúnarsdóttir á Skallagrímsvelli eftir metkastið í fyrrakvöld þar sem hún bætti met Vigdísar Jónsdóttur um 39 cm. Ríkjandi bikarmeistarar Breiðabliks mæta Fylki, nýliðunum í Pepsi Max- deildinni, í 16-liða úrslitunum í Mjólk- urbikarkeppni en dregið var til þeirra í gær. Leikirnir í 16-liða úrslitunum: ÍA – Þróttur R. Augnablik – Tindastóll Fylkir – Breiðablik Þór/KA – Völsungur ÍBV – Valur HK/Víkingur – Afturelding Stjarnan – Selfoss Keflavík – KR Leikirnir fara fram 31. maí og 1. júní. Fylkir mætir bik- armeisturunum Morgunblaðið/Valli Fögnuður Blikar fagna bikarmeist- aratitlinum á síðustu leiktíð. Handknattleikskonan Arna Sif Pálsdóttir, sem hefur leikið á annað hundrað landsleiki fyrir Ísland, skrifaði í gær undir tveggja ára samning við Val, sem varð Íslands-, deildar- og bikarmeistari á nýaf- stöðnu tímabili. Arna kemur til Vals frá ÍBV, sem hún gekk til liðs við í fyrra. Hún er uppalin í HK en lék í atvinnumennsku í Danmörku, Frakklandi og Ungverjalandi. Þá hefur markvörðurinn Íris Björk Símonardóttir skrifað undir nýjan eins árs samning við Val en hún var besti markvörður tímabilsins. Arna Sif til liðs við meistara Vals Ljósmynd/Valur Samherjar Arna Sif Pálsdóttir og Íris Björk Símonardóttir. HANDBOLTI Sindri Sverrisson sindris@mbl.is Svo getur farið að Þróttur í Reykja- vík tefli ekki áfram fram karlaliði í handbolta á næstu leiktíð. Þórir Há- konarson, íþróttastjóri Þróttar, seg- ir þó að ekki standi annað til en að liðið leiki áfram í 1. deild, þrátt fyrir að stjórn handknattleiksdeildar sé hætt og að frestur til að sækja um keppnisleyfi hafi runnið út 9. maí síðastliðinn. Samkvæmt upplýsingum frá HSÍ hafa Þróttarar enn möguleika á að skrá lið sitt til keppni, að minnsta kosti næstu daga. Fari svo að Þrótt- ur verði ekki með verða hins vegar aðeins þrjú félög með sín aðallið í 1. deild. Róbert Geir Gíslason, fram- kvæmdastjóri HSÍ, segir að það muni ekki kalla á breytingar á liða- fjölda í úrvalsdeild fyrir næstu leik- tíð en að staðan valdi áhyggjum. Hvort sem Þróttur verður með eða ekki þá muni úrvalsdeildin áfram skipuð 12 liðum. Alls tefldu 16 félög fram liðum í meistaraflokki karla í vetur. Félög- unum fækkaði úr 18 árin þar á und- an, og þau voru 19 tímabilin 2013- 2015. Á móti kemur að flest félögin tefla fram ungmennafélögum en tímabilið sem nú er að ljúka er það þriðja síðan opnað var fyrir þátt- töku þeirra. Þrjú félög í baráttu um tvö sæti? Í 1. deild í vetur léku Fjölnir, Vík- ingur, Þróttur og HK, auk sex ung- mennaliða frá öðrum félögum. Átta ungmennalið léku svo í 2. deild. Ungmennalið geta farið á milli 2. og 1. deildar en ekki upp í úrvalsdeild og því var baráttan í vetur á milli aðeins fjögurra liða um tvö sæti í úr- valsdeildinni. Fjölnir og HK (sem í raun endaði í 6. sæti í deildinni en var alltaf öruggt um sæti í umspili vegna þess hve mörg ungmennalið voru í deildinni) náðu þeim sætum og koma upp í stað Akureyrar og Gróttu sem falla. Á næstu leiktíð er því útlit fyrir að Þór (sem áður hét Akureyri), Grótta og Víkingur berjist um tvö sæti í úrvalsdeild veturinn 2020- 2021, nema þá að Þróttur bætist í þann hóp. Þessi staða gæti kallað á breytingar á deildafyrirkomulag- inu: „Það verða ekki breytingar á næstu leiktíð en ef staðan er svona þá fer að verða tæpt að halda úti tveimur deildum hvað félagafjölda varðar. Við höfum áhyggjur af þess- ari stöðu. Það verður samt aldrei þannig að við fækkum í úrvalsdeild- inni á næstu leiktíð,“ segir Róbert Geir Gíslason, framkvæmdastjóri HSÍ. Vonir standa til þess að hægt verði að sporna við fækkun félaga og fjölga þeim á ný: „Við erum að skoða hvaða leiðir eru til þess að fjölga félögum með lið á Íslandsmótinu. Hvort við get- um jafnvel rýmkað enn frekar svig- rúm í venslafélagaleiðum, til að að- stoða minni félögin við að halda velli og styrkja þannig deildakeppn- ina okkar,“ segir Róbert. „Höfum áhyggjur af þessari stöðu“ Morgunblaðið/Árni Sæberg Óvissa Þróttarar hafa ekki tilkynnt þátttöku á næsta Íslandsmóti.ÞARF A Ð GIRÐ A ? ÞÚ FÆRÐ GIRÐINGAREFNIÐ HJÁ FÓÐURBLÖNDUNNI. HAFÐU SAMBAND VIÐ OKKUR Í SÍMA 570-9800 - fodur@fodur.is SJÁ NÁNAR ÁWWW.FODUR.IS

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.