Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 50
50 MENNING
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
Smart
lands
blað
Fylgir Morgunblaðinu
föstudaginn 31. maí
Í Smartlandsblaðinu verður fjallað um
tískustrauma í fatnaði, förðun, snyrtingu, sólar-
kremum, sólgleraugum, sumarskóm og sundfatnaði
PÖNTUN AUGLÝSINGA:
Til kl. 16 mánudaginn 27. maí
NÁNARI UPPLÝSINGAR GEFUR:
Katrín Theódórsdóttir
Sími: 569 1105 kata@mbl.is
–– Meira fyrir lesendur
SÉRBLAÐ
Rósa Margrét Tryggvadóttir
rosa@mbl.is
„Yfirskrift tónleikanna er „Miklu
meira en orð“. Við erum þar að vitna
í að við getum nálgast tónlistina með
svo ótrúlega ólíkum hætti,“ segir
Helga Margrét Marzellíusardóttir,
kórstjóri Hinsegin kórsins sem und-
irbýr nú vortónleika sína sem haldnir
verða í Guðríðarkirkju í dag, laug-
ardag, kl. 15. „Stemningin er mjög
góð og svo er líka mikil eftirvænting
eftir sjálfu vorinu.“
Baða Vestfirði í hinsegin ljóma
Helga segir að kórinn standi nú í
stífum æfingum fyrir vortónleikana
en einnig sé kórinn að æfa fyrir kom-
andi ferðalag á Vestfirði, til Hólma-
víkur og á Ísafjörð, fyrstu helgina í
júní. „Með okkur koma aðilar á veg-
um Samtakanna ’78 og verða með
fræðslu. Við ætlum að baða Vestfirði
í hinsegin ljóma og regnbogalitum,“
segir Helga og hlær.„En til að byrja
með verða tónleikarnir hér í Guðríð-
arkirkju.“
Helga segir dagskrána skemmti-
lega og að lögin sem verði sungin séu
fjölbreytt, allt frá klassískum verk-
um til kórútsetninga á popp- og
rokklögum eins og „Smells Like
Teen Spirit“ með Nirvana. „Það lag
sýnir hvað það er hægt að vera með
mikinn metnað í að sameina kóra-
tónlist við popp og rokk. Lengi vel
var ekki lögð mikil vinna í útsetn-
ingar á slíkri tónlist fyrir kóra. Okk-
ar áherslur eru að flytja góðar út-
setningar og að tónlistin sem við
erum að flytja skili sér vel,“ segir
Helga og bætir við að kórinn muni
einnig syngja lag úr kvikmyndinni
La La land og lagið „I Wanna Dance
With Somebody“ í skemmtilegum
kórútsetningum.
„Ég er mjög vandfýsin á það hvers
konar útsetningar koma inn til kórs-
ins. Útsetning er náttúrlega að finna
góða, skemmtilega og metnaðarfulla
leið til að flytja lag sem er kannski
flutt af einum aðila, poppsveit eða
rokksveit. Það þarf að passa að öll
þau „element“ sem eru í upprunalega
laginu skili sér sem best í söngnum.
Það er það sem þetta snýst um og
það sem við leggjum mesta áherslu
á,“ segir Helga.
Ekki samið sem
hinsegin þjóðsöngur
Helga segir það vera gegnum-
gangandi í starfi Hinsegin kórsins að
tónlistin tengist hinsegin listafólki á
einhvern hátt. Segir hún að kórmeð-
limir sjálfir ákveði hvernig þeir vilji
túlka þetta. „Við reynum að finna
þessa þætti og grafa eftir þeim bæði
tónlistarsögulega og sögulega séð.“
Helga segir að mikið verði um
„hinsegin tónlist“ á vortónleikunum
og að kórinn sæki bæði í tónlist-
armennina sjálfa og í sögulegt sam-
hengi. Aðspurð hvernig hinsegin tón-
list sé túlkuð út frá sögulegu sam-
hengi tekur Helga dæmi um lagið
„Over the Rainbow“ úr kvikmynd-
inni The Wizard of Oz frá 1939.
„Lagið er þekkt fyrir að vera mikið
„hinsegin lag“ en sögulega séð er það
bara hinsegin vegna þess að hinsegin
fólk hefur tekið það upp á sína arma.
Það er ekki vegna þess að sagan hafi
verið einhvers konar hinsegin saga
heldur vegna þess að hinsegin sam-
félagið tók þennan texta og áttaði sig
á því að Dóróthea er að syngja um að
hún vilji fá meira út úr lífinu sem hún
lifir. Judy Garland söng lagið og það
eru margir sem tengja rosalega
sterkt við það. Margir hinsegin ein-
staklingar voru mjög hræddir á þess-
um tíma og vissu að í þessum orðum
sem hún söng fólst eitthvað meira.
Lagið er ekki samið sem einhver hin-
segin þjóðsöngur en þetta samfélag
tengdi við það.“
Mismuna engum
Lagið „Svart gólf“ eftir Helgu
verður frumflutt á tónleikunum.
Segir hún lagið vera um ákveðnar
aðstæður í miðborg Reykjavíkur þar
sem Hallgrímskirkjuturn, hundur og
svart gólf komi við sögu. Aðspurð
hvort Hinsegin kórinn hafi í hyggju
að gefa út tónlist á næstunni játar
Helga. „Við höfum verið að taka upp
og höfum safnað að okkur efni sem
okkur langar að gefa út með ein-
hverjum hætti. En því fylgir mikil
vinna að taka upp með þeim hætti
sem við viljum,“ segir hún.
Þegar Helga er spurð að því hvort
einstaklingar þurfi að vera hinsegin
til að verða hluti af Hinsegin kórnum
hlær hún. „Hvað er að vera hinsegin?
Eru ekki bara allir hinsegin? Það er
eitthvað öðruvísi við okkur öll.“ segir
Helga. „Hinsegin kórinn gefur það út
að hann mismunar ekki á grundvelli
kynhneigðar. Við tökum fagnandi á
móti þeim sem eru tilbúnir að syngja
í hinsegin kór. Vissulega fylgir því að
þú þarft kannski að standa í fremstu
röð og vera tilbúin til að berjast fyrir
hinsegin málefnum þegar þú syngur
í kórnum. Ef þú ert manneskja sem
er tilbúin í það, hvort sem þú túlkar
þig sem hinsegin eða ekki, ertu hjart-
anlega velkomin.“
Miðar eru seldir á tix.is.
Kórinn Kórstjórinn segir að mikið verði um „hinsegin tónlist“ á vortónleikum Hinsegin kórsins.
Taka þeim fagnandi
sem vilja syngja með
Hinsegin kórinn heldur vortónleika í Guðríðarkirkju í dag kl. 15
Sumarsýning Litku verður opnuð í
dag kl. 14 í Listhúsi Ófeigs að
Skólavörðustíg 5.
Á Vetrarhátíð Reykjavík-
urborgar í febrúar 2009 sýndi fjöl-
breyttur hópur frístundamálara
verk sín í Kaaber húsinu við frá-
bærar undirtektir og fleiri þúsund
manns sóttu sýninguna þá helgi.
Segir í tilkynningu að margir af
þátttakendunum hafi talað um að
gaman væri að halda áfram að hitt-
ast og boðað var til fundar, 30
mættu og ákveðið var að stofna fé-
lag sem fékk heitið Litka myndlist-
arfélag. Hefur það stækkað og
dafnað frá stofnun í apríl 2009 og
haldið margar samsýningar, nám-
skeið, fyrirlestra, ráðstefnu og ann-
að. Og nú heldur félagið sýningu í
Listhúsi Ófeigs en frekari upplýs-
ingar um félaga og starfsemi þess
má finna á Facebook-síðu Litka,
„Litka myndlistarfélag“.
Litka opnar
sumarsýningu
Bíó Paradís heldur annað kvöld
fyrstu og einu sýninguna hér á
landi á heimildarmyndinni Slave to
the Grind, í samstarfi við Reykjavík
Metalfest 2019. Að lokinni sýningu
verða haldnar pallborðsumræður
með Shane Embury, bassaleikara
hljómsveitarinnar Napalm Death,
og fleiri góðum gestum og verður
þeim stýrt af dr. Arnari Eggert
Thoroddsen, tónlistarsérfræðingi
með meiru. Í myndinni er fjallað um
hina sk. grindcore-tónlistarstefnu á
undanförnum 35 árum eða svo en
grindcore er á vef kvikmyndahúss-
ins sögð hraðasta og öfgakenndasta
tónlist í heimi og að hún einkennist
af miklum ofsa, hraða og stöðugri
keyrslu. Sýningin hefst kl. 20 og fer
miðasala fram á bioparadis.is.
Shane Embury
situr fyrir svörum
Bassaleikari Shane Embury í heimild-
armyndinni Slave to the Grind.
I.M. Pei, einn áhrifamesti arkitekt
seinni hluta tuttugustu aldar, er lát-
inn 102 ára að aldri. Þekktasta og
jafnframt umdeildasta verk hans
eru breytingarnar við Louvre-
safnið í París frá 1989, þar sem
hann hannaði meðal annars gler-
píramída við inngang safnsins. Pei
teiknaði fjölda háhýsa, fyrir íbúðir
og fyrirtæki sem risu í stórborgum
Bandaríkjanna en er einna þekkt-
astur fyrir safnbyggingar; auk Lo-
uvre má nefna austurálmu Þjóðar-
listasafns Bandaríkjanna í Wash-
ington, Everson-listasafnið í Syra-
cuse og listamiðstöðina í Des Moi-
nes. Aðrar frægar byggingar eru til
að mynda rannsóknarstöð and-
rúmsloftsins í Boulder og Frægðar-
höll rokksins í Cleveland.
I.M. Pei fæddist í Kína en flutti til
Bandaríkjanna á fjórða áratugnum.
Hann aðhylltist snemma hug-
myndir módernismans og settu þær
skýrt mark á verk hans; hrein og
klár form, gler og hugvitsamleg
notkun stáls og steypu.
Stjörnuarkitektinn I.M. Pei látinn
AFP
Hönnuðurinn I.M. Pei við Louvre-
píramídann kunna í París árið 2006.
Þróun og fram-
tíð listar í al-
mannarými er
efni málþings
sem haldið verð-
ur á Kjarvals-
stöðum í dag,
laugardag, og
hefst klukkan
13.
Málþingið
tengist þeirri
áherslu sem lögð er þetta ár innan
Listasafns Reykjavíkur á list í al-
mannarými en þetta er síðasta
málþingið af þremur sem skipu-
lögð eru í vor sem fjalla öll á ólík-
an hátt um list í almannarými.
Fummælendur á þinginu eru
Æsa Sigurjónsdóttir listfræðingur,
Ólafur Sveinn Gíslason myndlist-
armaður, Starkaður Sigurðarson,
myndlistarmaður sem fæst einnig
við skrif, og Markús Þór And-
résson sýningarstjóri og deildar-
stjóri miðlunar og sýninga hjá
Listasafni Reykjavíkur. Fundar-
stjóri er Aldís Snorradóttir.
Aðgangur að málþinginu er
ókeypis og allir velkomnir.
Málþing um myndlist í almannarými
Æsa
Sigurjónsdóttir