Morgunblaðið - 18.05.2019, Síða 51
MENNING 51
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
Álfabakka 12, 109 Rvk • s. 557 2400 • bjorg@bjorg.is • Opið virka daga kl. 8-18
20% afsláttur af þvotti á svefnpokum í maí
GIMLI fasteignasala / Grensásvegi 13, 108 Rvk. / s 570 4800 / gimli@gimli.is
www.gimli.is
Við vitum hvað þín
eign kostarSkiptar skoðanir eru um framlagsvissnesk-íslenska myndlistar-
mannsins Christoph Büchel á aðal
sýningu Feneyjatvíæringsins. Fyrir
fjórum árum var hann fulltrúi Ís-
lands og setti upp í aflagðri kirkju
verkið Moskan sem var lokað að
kröfu borgaryfirvalda í Feneyjum.
Að þessu sinni er Büchel einn
tæplega áttatíu listamanna sem al-
ráður sýningarstjórinn Ralph Ru-
goff valdi inn á aðalsýningu tvíær-
ingsins sem hann kallar „May You
Live In Interesting Times“.
Verk Büchel nefnist Barca Nostra
(Báturinn okkar) og er flak af fiski-
skipi sem var lyft af hafsbotni milli
Líbíu og eyjarinnar Lampedusa á
Miðjarðarhafi. Engar merkingar
eru við skipið þar sem það stendur
við Arsenale, gríðarstóran sýning-
arstað í aflagðri skipasmiðju. Marg-
ir gestir sem koma á tvíæringinn
gera sér því ekki grein fyrir því
hvaða óheillafley er um að ræða.
Báturinn sökk í hafið árið 2015 og
um borð voru að minnsta kosti átta
hundruð flóttamenn frá Afríku sem
nær allir drukknuðu; sumir segja að
allt að ellefu hundruð manns hafi
farist.
„Viðurstyggilegt sjónarspil“
Samkvæmt samantekt The Art
Newspaper um þær deilur sem hafa
spunnist um þetta framlag Büchel,
þykir mörgum ósmekklegt að sjá
fólk njóta matar og drykkjar og
skemmta sér við hlið skipsins þar
sem allt þetta fólk fórst. Fram kem-
ur að starfsmenn tvíæringsins hafi
útbúið merkingar til að setja upp við
skipið, sem segðu frá því og hvað
Büchel væri að hugsa, en hann hafi
komið í veg fyrir að þær yrðu settar
upp. Hann teldi nægja að fjallað
væri um verkið í sýningarskránni,
eins og gert er, en bent er á að hana
kaupi aðeins lítill hluti gesta.
Í yfirlýsingu Büchel um verkið
segir hann það hugsað sem minnis-
varða um tímabundna flóttamenn í
dag. Adrian Searle, gagnrýnandi
The Guardian, er ómyrkur í máli og
afar ósáttur við verkið. Hann segir
flakið hafa verið flutt á sýninguna
með ærnum tilkostnaði og standi
þar nú eins og „dauðagildra og lík-
kista“. Hann hafi heyrt talað um það
sem „readymade“ en upphafsmaður
slíkra verka, Marcel Duchamp, hefði
áttað sig á „kláminu og ruddaskapn-
um“ í framlaginu. Og honum finnst
notkun listamannsins á bátum sem
allt þetta fólk fórst í „viðurstyggi-
legt og smeðjulegt sjónarspil“.
Annar virtur breskur gagnrýn-
andi, Waldemar Januszczak, sem
skrifar í Sunday Times, er ekki á
sama máli og tísti að margar fals-
fréttir og ýkjur hefðu birst um fley
flóttamannanna. Það sé ekki rétt að
sem verk sé það ekki í neinu sam-
hengi við annað á tvíæringnum og
hunsi dauða fólksins. „Samhengið er
útskýrt nákvæmlega í sýningar-
skránni. Mér fannst það myrkt,
truflandi, ásakandi og áhrifaríkt …
að segja að verkið upphefji eða
hunsi dauðann er einfaldlega rangt.“
Salvini: Pólitískur áróður
Erlendir fjölmiðlar hafa leitað eft-
ir viðtölum við Büchel sem eins og
fyrri daginn hafnar slíku, rétt eins
og myndatökum af sér. Hann vísar
til yfirlýsinga sinna um verkið, sem
sjá má á netinu og í fyrrnefndri sýn-
ingarskrá.
Það eru ekki bara gagnrýnendur
sem takast á um Barca Nostra.
Varaforsætisráðherra Ítalíu, Matteo
Salvini, sem hefur beitt sér fyrir
lokun landamæranna fyrir flótta-
fólki, fordæmir verkið og kallar það
pólitískan áróður. Og maður í for-
sæti héraðsstjórnarinnar sem Fen-
eyjar eru hluti af vill að báturinn
verði sendur til Sviss, heimalands
listamannsins, „svo Svisslendingar
geti velt fyrir sér hvernig eigi að
koma fyrir efnahagslegum flótta-
mönnum í sínu landi“. efi@mbl.is
Deilt um Barca Nostra
AFP
Umdeilt Hátt í þúsund flóttamenn fórust í skipinu sem Büchel sýnir.
Deilt á framlag Christophs Büchel til Feneyjatvíærings
Gagnrýnendur ósammála Hundruð drukknuðu
»Sólin skein á kvikmyndastjörnur sem mættu í sínu fínasta pússi á frumsýn-
ingu nýjustu kvikmyndar bandaríska leikstjórans Jim Jarmusch, The
Dead Don’t Die, á þriðjudaginn en hún var opnunarmynd hátíðarinnar.
Alþjóðlega kvikmyndahátíðin í Cannes hófst að vanda með glaumi og gleði á rauðum dreglum
AFP
Frumsýningargleði Leikstjórinn Jim Jarmusch og sambýliskona hans Sara Driver, leikkonan Tilda Swinton og
leikararnir Luka Sabbat og Adam Driver fyrir frumsýningu opnunarmyndar hátíðarinnar, The Dead Don’t Die.
Dómnefndarmenn Leikkonan Elle Fanning og leikstjórinn
Alejandro Gonzales Inarritu eru í aðaldómnefnd Cannes.
Kollegar Spænski leikarinn Javier Bardem og franska leikkonan og söng-
konan Charlotte Gainsbourg voru eldhress á rauða dreglinum.
Sprelligosi Bill Murray var þokkafullur þegar hann stillti sér upp.
Vinir Þýski leikarinn Udo Kier brá á leik með
brasilísku leikkonunni Barböru Colen.