Morgunblaðið - 18.05.2019, Qupperneq 53
Refusés. „Salon des Refusés vísar í
gamla sögu myndlistarsýninga þar
sem listamenn hafa tekið sig saman
og sýnt verk sem hefur verið hafnað
af dómnefndum. Þessa tegunda sýn-
inga má rekja til sýningar í París ár-
ið 1863. Á Salon des Refusés í Deigl-
unni verða einnig sýnd verk eftir
listamenn sem af einhverjum ástæð-
um sóttu ekki um. Von Gilfélagsins
er að sýningarnar í Listagilinu
munu veita góða innsýn í hvað lista-
menn tengdir Norðurlandi eru að
fást við,“ segir í tilkynningu. Lista-
mennirnir sem verk eiga í Deiglunni
eru m.a. Aðalsteinn Þórsson, Anna
Benkovic, Dagrún Matthíasdóttir,
Helgi Þórsson, Jóna Bergdal, Karól-
ína Baldvinsdóttir og Tryggvi Zop-
honias Pálsson.
Sjúkdómar Verk sem Jonna, Jónborg Sigurðardóttir, gerði í fyrra.
MENNING 53
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 18. MAÍ 2019
34.900.000,-
Maríubakki 12, 109 Reykjavík
3ja herb mikið endurnýjuð íbúð 88.3 m2
Falleg og mikið endurnýjuð 3ja herbergja, 88,3 fm útsýnisíbúð á 3.
hæð (efstu) í vel staðsettu fjölbýlishúsi. Tvö svefnherbergi, stofa, eldhús,
baðherbergi, þvottahús með búri inn af. Nýtt harðparket á allri íbúð.
Laus strax..
✆ 585 8800
Áratuga reynsla og þekking í fasteignaviðskiptum
Kringlunni 4-6 | 103 Reykjavík | híbýli.is Ingibjörg Þórðardóttir löggiltur fasteignasali s. 864 8800
Þórður S. Ólafsson löggiltur fasteignasali
Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865 8515
Grenimelur 29, 107 Reykjavík
Falleg og mikið endurnýjuð hæð, 99 m2
3ja-4ra herbergja hæð í þríbýlishúsi við Grenimel. Stór og björt stofa.
Tvö svefnherbergi (annað inn af stofu). Þvottahús innan íbúðar (áður
barnaherbergi). Baðherbergi nýlega endurnýjað. Eldhús með nýlegri
innréttingu Góð hæð á frábærum stað.
55.900.000,-
Opið hús
þriðjud 28. maí.
17:30 til 18:00
69.800.000,-
Glæsileg 3-4ra herb - 143 m2 bílastæði laus strax
Glæsileg íbúð á jarðhæð í nýlega byggðu (2016) lyftuhúsi. Íbúðin er inn-
réttuð á vandaðan hátt. Eldhús og borðstofa samliggjandi með útgangi á
stóra timburverönd. Rúmgóð svefnherb. Þvottahús í íbúð. Eign í sérflokki.
Langalína 20, 210 Garðabær
64.900.000,-
3ja-4ra herb. 133,3 m2 + 11,5 fm sólstofa laus strax
Afar falleg og björt íbúð á 1. hæð í vönduðu og eftirsóttu fjölbýlishúsi
fyrir 55 ára og eldri. Stórar og bjartar stofur í suður með útgangi í yfir-
byggða sólstofu með verönd þar útaf. Tvö góð svefnherb. Baðherbergi.
Gestasnyrting. Þvottahús í íbúð.
Sléttuvegur 15, 103 Reykjavík
ar. Síðan í maí 2017 hefur Ægir
Sindri Bjarnason (trommari í
World Narcosis, LOGN, Dead
Herring, Bagdad Brothers og
fleiri böndum) rekið tónleikastað-
inn R6013 í kjallara í Ingólfs-
stræti. Staðurinn er rekinn án
gróðamarkmiða og fólk borgar að-
gangseyri eftir kostum/vilja. Ægir
sjálfur reiðir þá fram veganrétt
þegar tónleikar eru, gestum að
„kostnaðarlausu“. Meira er um
óhefðbundnar aðferðir, t.d. er
sviðspælingunni snúið við, í raun
er ekkert svið sem aðskilur hljóm-
sveit og áhorfendur, utan að það
er pallur aftast hvar fólk getur
staðið á til að sjá betur. Allir eru
velkomnir, og ungviðið fær heyrn-
arhlífar að láni, þurfi þau þess.
Maturinn er t.d. mikilvægur, Ægir
sagði í viðtali við Grapevine fyrr á
þessu ári að sameiginlegar mál-
tíðir kæmu á tengslum í svona
litlum rýmum og tengslin – sem
slík – eru honum mikilvægur út-
gangspunktur.
Ég sótti tónleika í R6013 fyrir
viku síðan og var hrifinn. Rýmið
er lítið, en allt til alls samt. Pláss
til að spila, salerni, gólfrými, pall-
ur þar sem hægt er að standa á
eða sitja, hljóðblöndunar/
afgreiðsluborð og lager Why Not?
útgáfunnar í hillum. Alvöru
„Gerðu það sjálfur“ eða „Gerum
það saman“ (DIY og DIT, sem er
skammstöfun sem maður er farinn
að sjá oftar).
D7Y, Dauðyflin, ROHT og
Grafnár léku, öll sem eitt stórkost-
leg mulningspönkbönd. ROHT
þeirra Júlíu Aradóttur og Þóris
Georg Jónssonar er æðislegt band
og plata þeirra frá síðasta ári
meiriháttar (Fannar Örn Karlsson
trommaði með þeim á þessum tón-
leikum) og það var virkilega gott
að sjá Grafnár, sem ég þekkti
ekki. Söngkona sem öskraði fal-
lega úr sér lungu sem lifur og
trommuleikur með afbrigðum góð-
ur. Negla. Tónleikarnir tóku þá
stutt af, voru búnir fyrir níu, sem
hentar fjölskyldumanni í Holt-
unum vel. Andinn var þó aðal, það
var milt vorveður og bjart og á
milli sveita sat fólk úti og spjallaði
um heima og geima. Rómantísku
taugarnar (sem eru þykkar í pist-
ilritara) voru þandar allan tímann.
Það var allt rétt við þetta.
Rýmið er lítið en hjartað er stórt
»Meira er um óhefð-bundnar aðferðir,
t.d. er sviðspælingunni
snúið við, í raun er ekk-
ert svið sem aðskilur
hljómsveit og áhorf-
endur, utan að það er
pallur aftast hvar fólk
getur staðið á til að sjá
betur.
Ofsi Hljómsveitin ROHT trukkaði af öryggi í gegnum helþétt sett.
Ægir Sindri Bjarnason
hefur rekið tónleika-
rýmið R6013 á Ingólfs-
stræti í tvö ár. Tugir ef
ekki hundruð sveita
hafa komið fram.
Nánd Gestir létu fara vel um sig utan við tónleikastaðinn.
Feðgin Ægir Sindri Bjarnason, rekstraraðili staðarins, ásamt dóttur sinni.
TÓNLIST
Arnar Eggert Thoroddsen
arnareggert@arnareggert.is
Grasrót íslenskrar tónlistar,sem liggur eðli málsinssamkvæmt undir öllum
þeim stórsigrum sem við höfum
orðið vitni að undanfarna áratugi,
þrífst eðlilega ekki án einhvers að-
búnaðar, að einhver hlúi að henni,
leggi við hana rækt. Einhverjir
þurfa innviðirnir að vera, þó að
við gerum okkur ekki endilega
grein fyrir því eða komum auga á
þá. Við hlustum á lög, förum á
tónleika og kaupum plötur en á
bakvið slíkt er fólk sem klastrar
upptökunum saman og opnar tón-
leikastaðina með lyklunum sem
Bensi frændi skutlaði til þeirra
eftir vinnu. Það er heilmikill erill í
kringum senuna, þó hann blasi
ekki jafn vel við og lagið sem þú
ert með á heilanum.
Neðanjarðarrokkssenan á
Íslandi í dag er við góða heilsu,
eins og ég hef rakið í pistlum mín-
um endrum og eins. Útgáfur eins
og post-dreifing og Why not?
halda hjólunum gangandi og há-
tíðir eins og Norðanpaunk og Há-
tíðni smala saman hljómsveitum
og senunni eins og hún leggur sig
(þú þarft ekki endilega að vera í
hljómsveit til að tilheyra senu). At-
hugið, að nú glími ég við lúxus-
vandamál, ég ætla ekki að fara út
í öfgarokkið (svartþungarokk o.fl.)
en það myndi þýða annan eins
pistil og marga jafnvel. Nei, skoð-
um lauslega það sem mætti kalla
pönkrokk í þetta sinnið, og hér
ætla ég að fjalla um tónleikastað
sem hefur heldur en ekki verið
sterkt lím hvað viðgang þess varð-
Ljósmyndir/Arnar Eggert Thoroddsen