Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 56

Morgunblaðið - 18.05.2019, Blaðsíða 56
Harmonikutríóið Ítríó flytur eigin útsetningar, þjóðlagatónlist frá Makedóníu og verk eftir m.a. Finn Karlsson, Jón Nordal, Hosokawa og Zolotarjov á tónleikum í Hörpu- horni á morgun kl. 16. Ítríó stofn- uðu árið 2015 þau Helga Krist- björg Guðmundsdóttir, Jón Þorsteinn Reynisson og Jónas Ásgeir Ásgeirsson en þau hafa stundað nám við einleikara- deild Konunglega danska tón- listarháskólans. Harmonikutríó í Hörpuhorni Haukar jöfnuðu metin í úrslita- einvíginu gegn Selfyssingum í Olís- deild karla í handknattleik á Sel- fossi í gærkvöld. Í æsispennandi leik tryggði Daníel Þór Ingason Haukunum sigurinn þegar hann skoraði sigurmarkið á síðustu sek- úndu leiksins. Þriðji úrslitaleikur liðanna fer fram í Schenker- höllinni á sunnudaginn. »49 Haukar jöfnuðu metin í úrslitaeinvíginu Afmælistónleikar Elektra Ensemble Í tilefni af 10 ára starfsafmæli Elektra Ensemble og útkomu fyrstu hljómplötu hópsins verða haldnir afmælis- og útgáfutónleikar í Norð- urljósum Hörpu á morgun kl. 16. Frumflutt verður Elektrafied eftir Þórð Magnússon og flutt fleiri verk sem sérstaklega voru samin fyrir hópinn, m.a. Downbeat Aroma eftir Þuríði Jónsdóttur, Contrasti eftir Huga Guðmundsson og Elektra eft- ir Helga Rafn Ingvarsson. Veronika S. Magnúsdóttir veronika@mbl.is Nokkrir nemendur frá Dansskóla Birnu Björns, sem mynda danshóp- inn Dynjanda, standa fyrir dans- kennslu með Eurovision-þema í Sporthúsinu í dag. Þar munu þær kynna frumsaminn dans við fram- lag Íslendinga í keppninni, Hatrið mun sigra. Danshópurinn notaði hluta úr íslenska atriðinu til inn- blásturs en bætti síðan við alls kyns sporum í anda „commercial“ dans- stíls. Skrítinn dans við lag Hatara „Við gerðum dansinn svolítið skrítinn því lagið er náttúrlega skrítið, sem og dansarnir í atriðinu sjálfu,“ segir Ragnheiður Ugla Ocares Gauksdóttir, einn dansara danshópsins Dynjanda. Hópurinn býður upp á sinn þriðja og seinasta danstíma í dag, til þess að fjármagna keppnisferð á heims- meistaramót í dansi í Portúgal. Góð mæting hefur verið í tvo seinustu danstíma, þar sem dansar við Euro- vision-perlur voru kenndir. Á þriðjudag var dansað við lagið I Can’t Go On, framlag Svíþjóðar árið 2017, og á fimmtudag var dansað við lagið Tonight Again, sem Ástr- alía sendi í Eurovision árið 2015. – Hvernig datt ykkur í hug að semja dansa við Eurovision-lög? „Við erum að fara að keppa í Portúgal í sumar og það kostar frekar mikið þannig að okkur datt í hug að halda „masterclass“ eða danstíma. Fyrst ætluðum við að gera danstíma fyrir fjölskylduna en síðan datt okkur í hug að gera Eurovision-dansa. Eurovision var að skella á þegar okkur datt í hug að halda danstímana. Svo urðum við auðvitað að hafa íslenska lagið í ein- um af tímunum, sem er í dag,“ seg- ir Ragnheiður. Danshópurinn keppir í Portúgal í júní á heims- meistaramóti en Ísland sendir keppendur á mótið í fyrsta sinn í ár. Fólk á öllum aldri með mismikla reynslu af dansi sótti danstímana sem fram fóru fyrr í vikunni til styrktar danshópnum. „Regína Ósk, sem keppti einu sinni í Eurovision, kom í einn tím- ann og síðan komu mömmur ein- hverra og alls konar fólk. Yngri krakkar líka á bilinu fimm til sex ára. Þetta er bara fyrir alla og fólk þarf ekki að hafa dansgrunn,“ segir Ragnheiður. „Lag Íslands í ár er sérstakt þannig að dansinn er smá út fyrir þægindarammann en samt léttur. Við viljum sjá fólk dansa frjálslega, sérstaklega þegar krakkar eru meðal þátttakenda í tímanum,“ seg- ir Ragnheiður að lokum. Dynjandi Danshópurinn samdi dans við lag Hatara. Í dag verða þær með danskennslu í Sporthúsinu. Kenna frumsaminn dans við lag Hatara  Danshópurinn Dynjandi með danstíma í anda Eurovision VERTU LJÓSAVINUR Það er ekkert í lífinu sem býr þig undir það að greinast með krabbamein Ljósið gefur von Til okkar leita hundruð einstaklinga í hverjummánuði, bæði krabbameinsgreindir og aðstandendur þeirra í margvíslega þjónustu. Lífslíkur krabbameinsgreindra eru að aukast og samhliða því er aukin þörf á endurhæfingu fyrir líkama og sál. Við þurfum fleiri Ljósavini. Vertumánaðarlegur styrktaraðili áwww.ljosid.is LAUGARDAGUR 18. MAÍ 138. DAGUR ÁRSINS 2019 5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0 Í lausasölu 1.150 kr. Áskrift 7.240 kr. Helgaráskrift 4.520 kr. PDF á mbl.is 6.420 kr. iPad-áskrift 6.420 kr. Sími: 569 1100 Ritstjórn: ritstjorn@mbl.is Auglýsingar: augl@mbl.is Áskrift: askrift@mbl.is mbl.is: netfrett@mbl.is ÍÞRÓTTIR FÓLK Í FRÉTTUM
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.