Morgunblaðið - 25.05.2019, Side 1
L A U G A R D A G U R 2 5. M A Í 2 0 1 9
Stofnað 1913 122. tölublað 107. árgangur
SMÍÐAR STÓLA
AF MIKLUM
HAGLEIK
EINSTÖK
VERK TIL
SÝNIS
SÖLVI HELGASON 42DANÍEL MAGNÚSSON 12
Baldur Arnarson
baldura@mbl.is
Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for-
maður skipulags- og samgönguráðs
Reykjavíkur, segir til skoðunar að
leggja á svonefnd tafagjöld til að
stjórna og draga úr umferð einkabíla
í Reykjavíkurborg.
Hún segist horfa til góðs árangurs
Óslóarborgar af slíkri gjaldtöku.
„Norðmenn hafa beitt mengunar-
og tafagjöldum. Þau hafa tvenns
konar áhrif. Þau draga úr bílaumferð
og nýtast gríðarlega vel til að byggja
innviði fyrir vistvæna fararmáta,“
segir Sigurborg Ósk.
Umræddri gjaldtöku er ætlað að
draga úr mengun og töfum í umferð.
Rafbílar hafa fengið undanþágu frá
slíkum gjöldum í Ósló. Hófleg gjald-
taka er nú að hefjast af rafbílum.
Rafbílar ekki undanþegnir
Sigurborg Ósk segir aðspurð óvíst
að rafbílar í Reykjavík verði undan-
þegnir slíkum gjöldum til frambúð-
ar. Það þurfi enda að vera einhverjar
tekjur af umferðinni.
Framundan séu breytingar á um-
ferðarkerfinu á höfuðborgarsvæðinu
á næstu 10-15 árum. Án róttækra
breytinga í þeim efnum náist mark-
mið borgarinnar í loftslagsmálum
ekki.
„Jafnvel þótt það markmið náist
árið 2040 að 58% allra ferða verði
með almenningssamgöngum með
borgarlínu mun umferð engu að síð-
ur aukast. Við munum því ekki ná
markmiðum Parísarsamkomulags-
ins í loftslagsmálum,“ segir Sigur-
borg Ósk.
Hún segir útfærsluna á fyrstu
áföngum fyrirhugaðrar borgarlínu
verða kynnta á næstu mánuðum. Við
uppbygginguna verði röskun á um-
ferðarflæði á höfuðborgarsvæðinu.
Því verði borgarlínan byggð upp í
áföngum til að lágmarka röskun.
Borgin skoðar veggjöld
Horft til reynslu Óslóarborgar Tafagjöld dragi úr töfum og mengun frá bílum
Loftslagsváin kalli á breytingar á umferðarkerfinu á höfuðborgarsvæðinu
MVeggjöld hafa skilað árangri … »6
Hann er hálfur Íslendingur og hálf-
ur Svíi, hann Sven Ásgeir Hanson,
og á stærsta saltfyrirtæki Svíþjóðar
sem selur salt víða um Evrópu. Þessi
kappsfulli öldungur hefur haft í
ýmsu að snúast á langri ævi. Við-
skipti hafa verið hans ær og kýr þótt
hann hygðist um skeið gerast bóndi.
Hann keppti á Ólympíuleikum árið
1968 í siglingum en siglir í dag sér til
gamans. Önnur áhugamál hans eru
útreiðar og kaup og sala veð-
hlaupahesta. Hann á ekki langt að
sækja viðskiptavitið því faðir hans
og báðir afar voru miklir við-
skiptamenn; hinn íslenski afi stórút-
gerðarmaður.
Í Sunnudagsblaði Morgublaðsins
segir Sven frá tengingunni við Ís-
land og viðskiptum. Hann kom sjald-
an til Íslands áður fyrr en kemur nú
árlega að heimsækja frænda sinn og
hjartalækni sem hann treystir best
fyrir heilsunni.
„Ég fór í fyrsta skipti til Íslands í
júní árið 1946 í gamalli uppgerðri
herflugvél og ég man að vélin lét illa
á leiðinni. Ég held reyndar að þetta
hafi verið fyrsta flugið milli Svíþjóð-
ar og Íslands því það var getið um
það í sænskum dagblöðum.“
Með
saltið í
blóðinu
Morgunblaðið/Ásdís
Saltkóngur Sven Ásgeir Hanson
heimsækir Ísland núorðið árlega.
Sven Ásgeir
er hálfíslenskur
Líf hefur færst í landsmenn í sumarblíðunni undanfarna daga. Fólk sækir
mikið í útiveru og þá helst í náttúruperlur og helstu útivistarstaði. Konan
sem skokkaði við Nauthólsvík var vel mælum búin og fylgdist reglulega
með hraða, vegalengd og ástandi líkamans. Veðurstofan spáir svipuðu
veðri áfram. Þó verður ekki eins bjart á höfuðborgarsvæðinu og undan-
farna daga og líkur á stöku skúrum.
Morgunblaðið/Eggert
Skokkað í
sumarblíðu
Boris Johnson,
fyrrverandi
utanríkis-
ráðherra Bret-
lands, er talinn
vera sigur-
stranglegastur í
komandi leið-
togakjöri Íhalds-
flokksins eftir að
Theresa May forsætisráðherra
ákvað að segja af sér. Johnson
sagði í gær að Bretland myndi
ganga úr Evrópusambandinu 31.
október með eða án samnings yrði
hann næsti forsætisráðherra lands-
ins. »23
Johnson álitinn
sigurstranglegastur
Boris Johnson
Flugvélaframleiðandinn Airbus
hefur nú afhent tólf þúsund flug-
vélar til viðskiptavina sinna vítt og
breitt um heiminn. Félagið fagnar
50 ára afmæli um þessar mundir en
það er í raun eini keppinautur Bo-
eing á markaðnum með stærri far-
þegaþotur. Meðal véla sem fyrir-
tækið framleiðir er hin gríðarstóra
A380-breiðþota sem getur tekið á ní-
unda hundrað farþega í hverri ferð.
Og vélin er engin smásmíði. Full-
hlaðin vegur hún nærri 590 tonn og
á lengstu flugleiðunum brennir hún
yfir 300 tonnum af eldsneyti.Í gær
tók japanska flugfélagið Al Nippon
Airways fyrstu vél sína af þessari
gerð í notkun en alls verða þær þrjár
í flota þess. Þeim verður beint á leið-
ina milli Tókíó og Hawai.
Snemma á þessu ári tilkynnti Air-
bus að félagið hygðist hætta fram-
leiðslu þessarar risavélar. »18
Airbus afhendir tólf þúsundustu vélina
Ljósmynd/Airbus
A380 Langstærsta farþegaþota heims.
Fullhlaðin vegur vélin 560 tonn.
Björn Stefánsson, fyrrverandi
trommuleikari þungarokks-
hljómsveitarinnar Mínuss, segist
hafa gengið með leiklistardrauma í
maganum allt frá barnæsku.
„Þetta heillaði mig rosalega en
tónlistin tók yfir. Ég átti mér alltaf
þennan draum en þorði ekki að
segja frá því,“ segir Björn sem loks-
ins lét verða af því að læra leiklist.
Hann hafði þá skömmu áður tek-
ið þá ákvörðun að hætta að drekka
og hóf leiklistarnám í dönskum
leiklistarskóla, án þess að kunna
orð í dönsku.
Björn er í einlægu viðtali í
Sunnudagsblaði helgarinnar þar
sem hann segir frá glímunni við
alkóhólisma, föðurmissi, leiklist-
inni, rokkárunum og leiðinni til
betra lífs. „Ég var alltaf að ögra
sjálfum mér. Rokkhrokinn í mér
var settur í aftursætið.“
Trymbillinn sem gerðist leikari
Ljósmynd/Íris Dögg Einarsdóttir
Leikarinn Björn Stefánsson komst yfir
erfiða hjalla í lífinu og er í dag sáttur.