Morgunblaðið - 25.05.2019, Qupperneq 6

Morgunblaðið - 25.05.2019, Qupperneq 6
6 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 Skráning á: marel.is/tilframtidar Opið hús 27. maí 2019 kl. 15:00-17:00 15:00 Ásthildur Otharsdóttir, stjórnarformaður Marel, býður gesti velkomna 15:15 Marel – frá sprota til leiðtoga á heimsvísu – Árni Oddur Þórðarson, forstjóri Marel – Linda Jónsdóttir, fjármálastjóri Marel 15:40 Pallborðsumræður “Vogarafl síðustu 40 ára til næstu 40 ára” – Anna Kristín Pálsdóttir, stjórnandi í vöruþróun, stýrir umræðum – Guðbjörg Heiða Guðmundsdóttir, framkvæmdastjóri Marel á Íslandi – Jón Þór Ólafsson, verkfræðingur í vöruþróun og einn af stofnendumMarel – Pétur Hafsteinn Pálsson, framkvæmdastjóri Vísis – Skúli Sigurðsson, yfirmaður vörusviðs 16:10 Kafaðu dýpra Leiðsögn um framleiðslustöð Marel í Garðabæ Sýning á vöruþróunartækifærummeð sýndarveruleika (Virtual Reality) 17:00 Dagskrá lokið HORFÐU TIL FRAMTÍÐAR MEÐ MAREL opna augun fyrir nauðsyn slíkra breytinga. Vilja aðra fararmáta „Ég held að margir hafi gert það nú þegar. Það er orðið miklu algeng- ara viðhorf í samfélaginu að nýta aðra fararmáta en einkabíl. Yngri kynslóðir skilja ekki þá hugmynd að frelsi fylgi því að eiga bíl. Því fylgir ekki mikið frelsi að þurfa að verja á annarri milljón króna til reksturs og viðhalds á bíl á ári. Frelsið er ein- mitt hitt að þurfa ekki að reka bíl.“ Sigurborg Ósk segir að á næstu mánuðum verði fyrstu skrefin við uppbyggingu borgarlínu kynnt. Uppbyggingin á fyrsta leggnum, frá Suðurlandsbraut og upp á Ártúns- höfða, muni hafa vissa röskun á um- ferðarflæðinu í för með sér. Því verði ekki byrjað á næsta leggnum, sem fari meðal annars um stokk á Miklubraut, fyrr en þeim fyrsta er lokið. Áformað sé að hefja fram- kvæmdir 2021. „Borgarlínan mun stýra uppbygg- ingunni í borginni. Við erum að þétta byggð mest þar sem línan verður. Samgöngumátinn hefur mest áhrif á hvernig borgir byggjast upp.“ Tafagjöld skila árangri Fram kom á ráðstefnunni í Ósló að Norðmenn hefðu náð árangri við umferðarstýringu, m.a. með því að leggja veggjöld á þá bíla sem menga. Spurð um þessar aðferðir segir Sigurborg Ósk þær til skoðunar í Reykjavík. „Norðmenn hafa beitt mengunar- og tafagjöldum. Þau hafa tvenns konar áhrif. Þau draga úr bílaum- ferð og nýtast gríðarlega vel til að byggja innviði fyrir vistvæna farar- máta. Norðmennirnir eru einmitt að nota þennan pening til að gera Ósló- arborg betri. Setja þá umferð í stokk sem þarf að fara í stokk og byggja Veggjöld hafa skilað árangri  Reykjavíkurborg horfir til árangurs Óslóborgar með tafagjöld í umferð  Liður í að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda Morgunblaðið/Baldur Samgöngur Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, formaður samgöngu- og skipulagsráðs Reykjavíkur, í Osló í gær. Hún segir að til skoðunar sé í Reykjavík að fara að dæmi Norðmanna og leggja veggjöld á þá bíla sem menga. VIÐTAL Baldur Arnarson baldur@mbl.is Sigurborg Ósk Haraldsdóttir, for- maður samgöngu- og skipulagsráðs Reykjavíkur, segir að á næstu 10-15 árum muni samgöngukerfið á höf- uðborgarsvæðinu taka breytingum. Eitt meginmarkmiðið sé að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda frá samgöngum. „Við verðum að fara í þessa átt. Loftslagsváin neyðir okkur til þess. Jafnframt fáum við miklu betri og fallegri borgir,“ segir Sigurborg Ósk, sem sótti ráðstefnuna Framtíð borga í Ósló í vikunni. Þegar Morgunblaðið ræddi við hana í miðborg Óslóar í gær heyrðist vel í loftslagsmótmælum skóla- krakka fyrir framan Stórþingið. Loftslagsmálin voru mál málanna á ráðstefnunni. Hún segir aðspurð að án róttækra breytinga muni markmið borgarinn- ar í loftslagsmálum ekki nást. „Jafnvel þótt það markmið náist árið 2040 að 58% allra ferða verði með almenningssamgöngum með borgarlínu mun umferð engu að síð- ur aukast. Við munum því ekki ná markmiðum Parísarsamkomulags- ins í loftslagsmálum,“ segir Sigur- borg Ósk sem telur að þeim borgar- búum muni fjölga á næstu árum sem

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.