Morgunblaðið - 25.05.2019, Page 10

Morgunblaðið - 25.05.2019, Page 10
10 FRÉTTIRInnlent MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 25. MAÍ 2019 E N N E M M / S ÍA / N M 9 2 1 4 5 PRÓFAÐU 100% RAFBÍL Í 24 TÍMA! RENAULT ZOE Renault ZOE – verð: 3.790.000 kr. TIL AFGREIÐSLU STRAX! Hafðu samband við sölumenn Renault og tryggðu þér 100% rafdrifinn ZOE til reynslu í 24 tíma. Renault ZOE hefur algjöra sérstöðu í þessum stærðarflokki rafbíla með 300 km uppgefið drægi.* ZOE er að auki, eins og aðrir nýir Renault bílar, með ríkulegan staðalbúnað. Taktu græna skrefið og prófaðu Reanult ZOE 100% rafbíl. BL ehf Sævarhöfða 2 / 110 Reykjavík 525 8000 /www.bl.is Bílasalan Bílás Akranesi www.bilas.is 431 2622 Bílasala Akureyrar Akureyri www.bilak.is 461 2533 Bílaverkstæði Austurlands Egilsstöðum www.bva.is 470 5070 IB ehf. Selfossi www.ib.is 480 8080 BL söluumboð Vestmannaeyjum 481 1313 862 2516 *Uppgefið drægi miðast við WLTP staðal. OPIÐ Í DAGFRÁ12–16 Snorri Másson snorrim@mbl.is Forstjóri Kirkjugarða Reykja- víkurprófastsdæma telur ekki úti- lokað, að ný greftrunaraðferð, sem einkafyrirtæki í Bandaríkjunum hefur þróað, ryðji sér til rúms. Sagt var frá því í Morgunblaðinu sl. fimmtudag, að ríkisstjóri Wash- ington-ríkis í Bandaríkjunum hefði staðfest lög sem heimila að líkum manna sé breytt í moltu, sem hægt væri að nota sem jarðvegs- bæti, með það að markmiði að draga úr losun gróðurhúsaloftteg- unda vegna bálfara og greftrunar. Þórsteinn Ragnarsson, forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófasts- dæma, segir vel hugsanlegt að þessi leið kunni að verða farin hér á landi. „Ef þetta yrði viðtekin venja í nágrannalöndunum og ef þetta væri í höndum aðila sem myndu gæta þess að þetta væri gert af virðingu, þá er ekkert hægt að neita neinni svona til- lögu,“ segir Þórsteinn. Hann segir þó, að nýjar hefðir í þessum efnum séu mjög lengi að ná fótfestu, málaflokkurinn sé í eðli sínu íhaldssamur. „Greftr- unarmál mótast á mannsöldrum en ekki einhverjum mánuðum,“ segir hann. „Venjur og hefðir með þjóðum í þessum efnum eru yf- irleitt erfiður hjalli til þess að klífa yfir fyrir þá sem eru með svona hugmyndir,“ segir hann. „Það tek- ur fólk langan tíma að meðtaka nýjar leiðir í þessum efnum,“ segir hann. Ýmsar hugmyndir að nýjum að- ferðum hafi komið fram í gegnum tíðina. „Það hafa til dæmis verið hugmyndir um greftrun sem felast í að færa líkamann undir mikinn þrýsting, svonefnd frystipressa, þar sem líkið er gert að mjöli og síðan grafið,“ segir Þórsteinn. Dýr aðferð Fram kom í Morgunblaðinu á fimmtudag að moltugerðarleiðin myndi kosta um 700.000 krónur ís- lenskar vestanhafs, fyrir hverja meðferð. „Við og við koma upp svona viðskiptahugmyndir sem menn vilja koma í framkvæmd. En þetta er náttúrulega óheyrilegt verð sem þarna er sett fram,“ seg- ir Þórsteinn. Íslenska ríkið yrði ólíklega fúst til að taka upp veskið ef þessi leið yrði valkostur hér á landi, að sögn Þórsteins. „Verðið er ekki til að hjálpa til við þetta. Ég er hræddur um að ríkissjóði yrði hverft við ef kæmi fram svona krafa. Þeir geta ekki einu sinni staðið við gerðan samning, sem er mörghundruð prósentum lægra en þetta,“ segir hann jafnframt, en Þórsteinn hef- ur gagnrýnt að tekjustofnar kirkjugarða hafa skerst. Þórsteinn bendir loks á að sunn- ar í Evrópu, svo sem í Hollandi, þekkist alls konar sölumennska í sambandi við ösku fólks eftir að bálför hefur farið fram. „Menn geta þar borið skartgripi með ösku ættingjanna í,“ segir Þórsteinn. Greftrunarhefðir breytast hægt  Boðið upp á moltugerð úr líkum í Bandaríkjunum  Forstjóri Kirkjugarða Reykjavíkurprófastsdæma útilokar ekki slíkt hér á landi ef áhugi er til staðar Morgunblaðið/Kristinn Magnússon Garðyrkja Unnið við garðyrkju í kirkjugarðinum í Fossvogi í Reykjavík. Séra Sigfús Kristjánsson, verk- efnastjóri Biskupstofu, segir hugmyndina athyglisverða. „Er þetta ekki það sem gerist hvort eð er þegar við jörðum fólk, bara á lengri tíma?“ spyr hann. Hann sér ekki fyrir sér að þjóðkirkjan myndi setja sig upp á móti þessari aðferð. „Ég gæti vel hugsað mér að vera jarð- vegsbætir,“ segir hann. Og þetta stangast ekki á við heil- aga ritningu, segir hann að- spurður. „Ég hef að minnsta kosti ekki lesið þann kafla.“ Ekki andstætt Biblíunni ÞJÓÐKIRKJAN SAMÞYKK Héraðsdómur Reykjavíkur hefur dæmt íslenska ríkið til að greiða Jóni Trausta Lútherssyni 1,8 milljónir króna í skaðabætur auk vaxta vegna ólögmæts gæsluvarðhalds sem hann sætti vegna rannsóknar á dauða Arnars Jónssonar Aspar árið 2017. Málskostnaður á milli aðila fellur niður og allur sakarkostnaður stefn- anda skal greiðast úr ríkissjóði. Jón Trausti fór fram á 10,5 millj- ónir króna í skaðabætur frá ríkinu vegna gæsluvarðhaldsins. Jón Trausti sætti einangrun í 21 dag en Sveinn Gestur Tryggvason var einn ákærður og dæmdur fyrir að hafa valdið dauða Arnars. Sex voru úrskurðaðir í gæsluvarðhald vegna málsins. Ríkislögmaður hafnaði bótakröfu Jóns Trausta með þeim rökum að hann hefði sjálfur valdið eða stuðlað að gæsluvarðhaldinu með því að sýna ekki samvinnu við rannsókn málsins, gefa litlar eða óljósar skýr- ingar á atburðarás og hafna því að veita lögreglu leyfi til að skoða sím- ann sinn. Morgunblaðið/Ófeigur Mosfellsdalur Lögregla og sjúkra- lið á vettvangi harmleiksins. Jón Trausti fær 1,8 milljónir

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.